Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Síða 22
22' liAUGARDAGUtt 1: JÚLÍ 1989. HEILSU (jb LINDIN NÝBÝLAVEGI24 SÍMI46460 Frábærir Ijósalampar með þremur andlits- Ijósum. Eimbað og vatnsnudd innifalið í hverjum Ijósatíma. 10. hverju seldu 10 tíma Ijósakorti fylgja 5 tímar í bónus. Opið virka daga frá ki. 9 til 22 og laugardaga frá kl. 10 til 17. FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Félagsráðgjafi Félagsráðgjafa vantar í afleysingar á hverfaskrifstofu Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar í 6 mánuði. Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 34, á sérstökum eyðu- blöðum sem þar fást. Nánari upplýsingar veitir yfirfélagsráðgjafi, Erla Þórðardóttir, í síma 685911. MENNTASKÓLINN VIÐ HAMRAHLÍÐ VINNUAÐSTAÐA KENNARA LYFTA Tilboð óskast í breytingar og endurbætur á húsnæði Menntaskól- ans við Hamrahlíð. Meðal annars skal stækka glugga á útveggjum kjallara í suðurálmu skólans, endurnýja lagnir og setja upp lyftu- stokk. Verkinu skal skila I nokkrum áföngum: Skila skal fyrsta hluta þess 28.8. 1989 en verklok á verkinu í heild verða 22.4. 1990. Útboðsgögn verða afhent til föstudagsins 7. júlí gegn 10.000,- kr. skilatryggingu. Húsið verður væntanlegum bjóðendum til sýn- is dagana 3., 4. og 7. júlí milli kl. 9 og 12. Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri þriðjudaginn 11. júlí 1989 kl. 14.00. INIMKAUPASTOFIMUIM RÍKISINS ________BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK 9.00 - 22.00 Laugardaga, 9.00 - 14.00 Sunnudaga, 18.00 - 22.00 ER SMÁAUGLÝSINGA BLADID ^ 55 SÍMINNER Æl M Évmg&má Hinhlidin Sægarpinn mikla, Gunnar Martin Úlfsson, langar mest til að hitta Thor Heyerdal, norskan skipasmið. Ætla að verða mjög gamall prakkari - sægarpurinn Gunnar Martin sýnir á sér hina hliðina Hann hugöist sigla við annan mann á DV-bátnum, bát búnum til úr dagblöðum einum saman, frá Akranesi til Reykjavikur. Gífurleg vinna hafði verið lögð í að smíða bátinn og fylgdust lesendur DV spenntir með sjóferð þessari. En hún varð styttri en vonast hafði verið til. Skipstjórinn og skipa- smiðurinn Gunnar Martin Úlfsson sýnir á sér hina hiiðina í dag. Fullt nafn: Gunnar Martin Úlfsson. Fæðingardagur og ár: 19. ágúst 1954. Maki: Kolbrún Svavars- og Ernu- dóttir. Böm: Úlfur, 9 ára og Hlynur, 6 ára, svo er eitt á leiðinni. Bifreið: Mitsubishi Lancer 1988. Starf: Auglýsingateiknari. Laun: Sæmileg. Áhugamál: Útivera. Hvað hefur þú fengið margar tölur réttar i lottóinu? Einu sinni fékk ég fjórar réttar. Hvað fmnst þér skemmtilegast að gera? Þaö er svo margt. Módel- smíði, útivera og að vera með fjöl- skyldunni. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Vera með hendur í vösum. Uppáhaldsmatur: Ekta indverskur, vel kryddaöur matur. Uppáhaldsdrykkur: Hiklaust ís- lensk mjólk. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Tvímælalaust synir mínir. Uppáhaldstímarit: National Ge- ographic. Fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan konuna þína? Ég veit þaö ekki ég var skotinn í svo mörgum. Hlynntur eða andvígur rikisstjórn- inni: Andvígur. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Thor Heyerdal, norskan skipasmið. Uppáhaldsleikarí: David Keath. Uppáhaldsleikkona: Engin sérstök. Uppáhaldssöngvarí: Enginn. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Þeir eru ailir jafnlélegir. Hlynntur eða andvígur hvalveiðum fslendinga: Hlynntur. Uppáhaldssjónvarpsefni: Vísinda- og fræðsluþættir. Hlynntur eða andvigur veru varn- arliðsins hér á landi: Andvígur. Hver útvarpsrásanna Snnst þér best? Rás 2. Uppáhaldsútvarpsmaður: Ég tek ekki eftir þeim. Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða Sjónvarpið? Horfi svipað á stöðv- arnar báðar. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ómar Ragnarsson. Uppáhaldsskemmtistaður: Get ekki dæmt það þar sem ég hef ekki farið á neinn þeirra í lengri tíma. Uppáhaldsfélag í íþróttum: ÍBÍ. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Að verða mjög gamall prakkari. Hvað ætlar þú að gera i sumarfrí- inu? Vera í faðmi fjölskyldunnar. -RóG.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.