Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1989, Qupperneq 23
LAUGARDAGUK 1. JÚLÍ 1989.
23
LífsspegiU
Hvað þýðir það að líta sakleysis-
lega eða heiðarlega út? Rétt eins og
fólk er ólíkt útlits þá er mjög mis-
jafnt hvað það lítur út fyrir að vera
heiðarlegt.
Tveir bandarískir sálfræðingar
sýndu þessu máh áhuga. Þeir vildu
vita hvort hópur fólks gæti orðii,
sammála um hveijir litu heiðarlega
út og hveijir ekki. Rétt eins og fólk
er sammála um að ákveðin mann-
eskja sé mjög falleg en önnur síður.
Og það reyndist ekki vandamál.
Þeir sem fengnir voru til starfans
gátu auðveldlega skipti fólki í hópa,
þ.e.a.s. hverjir að þeirra mati voru
heiðarlegir og hveijir óheiðarlegir.
Það voru myndir af um 340 manns
sem teknar voru til skoðunar og
flokkaðar eins og áður segir.
Heiðarlegu andlitin og þau síður
heiðarlegu litu ólíkt út. Kom í ljós
að þeir sem voru brosandi á mynd-
unum þóttu líta heiðarlegar út en
þeir sem voru alvarlegir og jafnvel
grimmir á svip á myndunum. Þá
þótti sem karlmenn sem htu beint
fram á myndunum væru heiðarlegri
en konur sem það gerðu. Slíkt þótti
frekar merki um óheiðarleika þegar
kona átti í hlut. Augnsvipurinn virt-
ist ekki hafa eins mikið að segja og
rannsakendumir höfðu gert sér í
hugarlund. Hvort menn og konur
höfðu þykkar og miklar augabrýr
hafði heldur ekkert með þetta að
gera. En hvort viðkomandi brosti eða
ekki hafði mest áhrif á hvort fólkið
virtist heiðarlegt eður ei.
Of mikU kaffidrykkja hefur
óæskileg áhrif á líkamsstarfsemina
og því á almenna hðan þess sem
neytir kaffisins. Sífellt kaffiþamb
er ávani sem mörgum reynist erfitt
aö venja sig af. En það er þess virði
aö hætta eöa að minnka kaffi-
drykkjuna ef hún er orðin of mikil.
Alveg eins og áhrif koffinsins á
líkamann veröa vanabindandi má
búast við eftirköstum þegar líkam-
inn hættir aö fá þetta ávanalyf.
Höfuðverkur, þreyta, slappleiki og
lystarleysi eru algengustu áhrifin
sem líkaminn verður fyrir ef kaffi-
drykkju er hætt eða hún minnkuð.
Því er ráðlagt að minnka kaffi-
drykkjuna smám saman. Þess má
þó geta að einn til tveir bohar af
kaffi á dag gera engum mein. Ef
kaffiö er drukkið sem hressing er
best aö neyta þess á miðjum morgni
og aftur í eftirmiödaginn. Sist skal
þess neytt seint á kvöldin.
En koffin er að fá í ýmsum öðrum
drykkjum. í meðalkaffiboha eru
100-150 milUgrömm af koffini. í
boha af tei eru um 40 milligrömm
af koffini. Gos inniheldur svipað
magn af þessu vanabindandi efni
og te, enda er það koffinið sem
mestu gosdrykkjaneytendumir
verða háðir. í súkkulaöibolla eru
um 10 millígrömm af koffini.
Hvað er rómantík?
Það að eiga rómantíska stund sam-
an þýðir ekki endilega að mála bæinn
rauðan. Rómantísk stund á sér ekki
síður stað heima í stofu í rólegheitum
og jafnvel fyrir framan sjónvarpið.
Þetta er áht lesenda ástarsagna en
hópur þeirra var beðinn að lýsa því
hvað væri rómantík og rómantísk
stund í þeirra augum.
Að þeirra mati er mun rómantísk-
ara að eiga góða stund heima við
með þeim heittelskaða eða heittelsk-
uðu heldur en að fara út að borða, í
leikhús, á ball eða í bíó.
Þá var þetta sama fólk spurt hvaða
leikarar og söngvarar því þætti hafa
rómantískasta yfirbragðið. Kenny
Rogers, sveitasöngvarinn góðkunni,
var fremstur í flokki á meðal tónhst-
armanna, Tom Seheck á meðal leik-
ara og Clenn Close þótti bera af öðr-
um leikkonum hvað varðar þetta at-
riði. Þótt hún hafi oft verið í gervi
hjákonu í kvikmyndunum þá
skyggði það ekki á hve rómantísk
hún þótti. Nærri allir þessir lesendur
ástarsagna sögðust þó ekki myndu
fyrirgefa maka sínum ef hann reynd-
ist þeim ótrúr.
Það virðist samkvæmt þessari við-
horfskönnun sem gerð var á meðal
lesenda ástarsagna sem ástin og róm-
antíkin sé til í öUum og að hún komi
fyrst og fremst að innan, frá mann-
eskjunni sjálfri. Að berast á með
elskunni sinni er ekki rómantík.
Að spara tíma
Það er sífeUt verið að gera okkur
lífið léttara. Skyndibitastaðir hafa
verið gífurlega vinsæhr um gjörvall-
an heim síðustu ár og áratugi. Hrað-
inn og tímaálagið eykst stöðugt í
stórborgunum og fólk nýtír sér því
þessa staði óspart til að magann
megi metta. Það er nú svo sem ekki
hægaganginum fyrir að fara í þjón-
ustu þessara veitingastaða en aUtaf
eru fundnar nýjar leiðir til að flýta
enn frekar fyrir afgreiðslunni.
Nú er hægt að nota póstfaxleiðina
við að panta matinn, að minnsta
kostí á ýmsum veitingastöðum í New
York. Mörg veitingahús eru farin að
bjóða upp á þá þjónustu að taka við
pöntunum í gegnum póstfaxvélar. Þá
geturðu stimplað inn á faxið heitið á
þeim mat sem þig langar tíl að gæða
þér á. Svo bætírðu við hvenær þú
ætlar að sækja hann eða hvort þú
vUjir láta senda þér hann. Og ekki
nóg með að þú getir pantað með þess-
ari leið heldur eru margir veitinga-
staðirnir komnir með mjög fullkom-
in tæki sem einfaldlega birta myndir
af þeim mat sem pantaður er.
Þá geta þjónamir sem vinna við
afgreiðslu prentað inn á Utlar sér-
stakar tölvur, sem þeir hafa á sér,
hvað hefur verið pantað. Birtast þá
um leið myndir í eldhúsinu, af þeim
réttum og drykkjum sem gestimir
hafa pantað. Matreiðslumaðurinn
getur því byrjað að undirbúa matinn
áður en þjónninn hefur svo mikið
sem snúið sér við.
Og vitanlega sparar þetta tíma sem
er svo dýrmætur í nútímaþjóðfélag-
inu. Svo þarf að finna tíma til að
borða matinn...
Að sjá er að trúa
Það er ekki alltaf sem maður trúir
því sem aðrir segja; ástæður þess
geta verið margar. En það sem mað-
ur sér sjálfur berum augum er eitt-
hvað sem hlýtur að vera satt; eitt-
hvað sem hefur gerst, hvort sem aðr-
ir koma til með að trúa því eða ekki.
Þú hefur séð atburðinn eiga sér stað
með eigin augum.
Stundum sér maður bara þaö sem
vUji er fyrir að sjá og annað látíð
fara framhjá. Þaö snertír innri hvat-
ir, áhuga og skynjun hveiju sinni.
Margar rannsóknir hafa verið gerðar
á þessu viðfangsefni. Hafa niðurstöð-
umar verið hvað áhugaverðastar
varðandi hungur og fæðu. Þá er kom-
ið að skynjunaratriöi í huga fólks.
í einni rannsókninni voru sjó-
mönnum, sem allir voru mjög svang-
ir, sýndar alls kyns og ólikustu fígúr-
ur. Þeir áttu svo að lýsa því á eftir
hvað þeir sáu.
Þar sem sjómennimir höfðu ekki
borðað í marga tíma reyndust þeir
„sjá með maganum“. Lítil þyrla var
tekin fyrir lauk, blekblettur fyrir
gaffal, bleikur vasi fyrir flösku af
jarðarbeijasafa og þar fram eftir göt-
unum. -RóG.
VÖRUBILSTJORAR - SKIPSTJORAR
VERKTAKAR - ÚTGERÐARMENN
**
A morgun, sunnudaginn 2. júlí, verður véla-
og tækjasýning í þjónustumiðstöð okkar að
Bíldshöfða 6, frá kl. 10-17.
Við sýnum og kynnum m.a.:
• Volvo vörubifreiðar af öllum stærðum og •
gerðum.
• Volvo Penta bátavélar (t.d. hina nýju
Tamd 1 62A 470 hestafla vél).
• Volvo BM og Michigan þungavinnuvélar
(t.d. hjólaskóflu með tölvuvog).
• Hiab Foco vökvakrana á vörubíla, skip
og báta.
Einnig verður kynntur á sýningunni nýr Sómi
660 frá Bátasmiðju Guðmundar sem búinn
er öflugri Volvo Penta vél.
Allir velkomnir - veitlngar á staðnum
Brimborg hf.
Traust fyrirtæki ísókn...
3 1
] 1_______ _
Heiðarlegur eða ekki?
Klæðnaður karlmannsins
Karlmaöur ber það utan á sér
hvemig hann er í samskiptum við
hitt kynið því klæðnaðurinn getur
haft heilmikið um það að segja. Fötín
em alltaf það sem er næst líkaman-
um og er því oft hægt að lýsa tilfinn-
ingum og hegðan fólks þar að lút-
andi, eftír klæðaburði.
Karlmaður sem gengur í háum,
uppreimuðum skóm og/eða stífþress-
uðum jakkafótum er ekki líklegur til
málamiðlana. Hans leiðir og hug-
myndir era þær réttu. Mjög pjattað-
ur karlmaður er oftar en ekki nöldr-
ari og smámunasamur í nánum sam-
skiptum. Slóðinn, aftur á móti, er lík-
lega tillitslaus, og vill væntanlega
láta konuna gera allt fyrir sig og taka
til eftir sig drashð.
Sá sem klæðist flíkum úr hinni og
þessari áttinni, sem auðsýnilega
passa lítt saman, er ef til vill frekar
óáreiðanlegur en annars þolinmóður
og þægilegur í daglegri umgengni.