Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1989, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 13. JtJLÍ 1989.
5
DV
Melrihlutinn á Skagaströnd:
Eðlileg og
lýðræðisleg
vinnubrögð
MeiriMuti sveitarstjómar Skaga-
strandar hefur gert athugasemdir
við skrif og orð Adolfs. Berndsen,
fyrrverandi oddvita. Eftir að fulltrú-
ar Alþýðuflokks, Alþýðubandalags
og Framsóknarflokks mynduðu
meirihluta á Skagaströnd hefur
Adolf, sem er annar af sveitastjórn-
arfulltrúum Sjálfstæðisflokks, verið
í minnihluta. Adolf hefur nýverið
sagt af sér sem oddviti. í bréfi meiri-
hlutans segir:
„Nýr meirihluti var myndaður fyr-
ir rúmu ári þegar shtnaði upp úr
samstarfi Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks. Þá var Adolf gerð grein
fyrir þeirri breytingu sem orðin var.
Jafnframt var honum gert ljóst að
hann hefði ekki stuðning umrædds
meirihluta. Þá var ítrekað farið fram
á afsögn oddvitans enda eðlileg og
lýðræðisleg vinnubrögð að oddviti sé
forsvarsmaður meirihlutans.
Markmið þessarar meirihluta-
myndunar var ekki að hefja neinn á
stall eða rífa af stafli eins og Adolf
hefur látið hafa eftir sér, heldur að
samræma skoðanir og krafta þeirra
sem treystu sér til að vinna saman
af heilindum.
Eftir að Adolf skaut máfl sínu til
félagsmálaráðuneytisins og fékk
þann dóm að hann „mætti“ sitja út
kjörtímabilið þar sem hann hafði
verið kjörinn til fjögurra ára, voru
afsagnarmál hans ekki rædd frekar
á hreppsnefndarfundum. Hins vegar
starfaði meirihlutinn áfram af full-
um krafti enda kom það hvergi fram
í úrskurði Félagsmálaráðuneytisins
að óheimilt væri að mynda meiri-
hluta um annað en stuðning við titt-
nefndan Adolf.
Þótt oddvitakjör og afsagnarmál
væru ekki til umræðu reyndi meiri-
hlutinn að gera oddvdta ljóst hver
raunveruleg staða hans væri. Til
þess voru gerðar ýmsar bókanir og
ályktanir. Eins og fyrr getur vdrtist
Adolf þó þurfa rúmt ár til að átta sig
á stöðunni.
Alla tíð var samkomulag um það í
meirihlutanum að fara ekki út í svo
harkalegar aðgerðir að samþykkja
vantraust á oddvitann, þótt hann láti
nú sem öll mannréttindi hafi verið
brotin á honum eftir að hann tók
sjálfur ákvörðun um að segja af sér.“
-sme
Skagafiörður:
Hlöðuball eftir
riðuhreinsun
- EM deild Alþingis lék fyrir dansi
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauöárkrókú
„Þetta byijaði eiginlega sera
brandari. Það kom upp riða hér svo
vdð þuríitum að hreinsa öll útíhúsin
og einhver fór að gantast með að
þegar vdð værum búin að skrúbba
hlöðuna að innan væri kjörið að
slá upp bafli. Þetta var hreint ekki
svo gafln hugmynd, sérstaklega þar
sem systír Páls er í tfljómsveit á
Egilsstöðum sem við fengum öl að
koma og spila,“ sagði Guðmunda
Kristjánsdóttir á Halldórsstöðum í
Seyluhreppi í Skagafirði en hún og
maður hennar, Páll Pálsson, stóðu
fyrir bafli eitt laugardagskvöldið í
júlí.
Ekta hlöðuböll gerast æ sjaldgæf-
ari en á annað hundrað manns kom
á skemmtunina á Halldórsstöðum
sem var hin fjörugasta og stóð til
rúralega fjögur um nóttína.
„Mér er sagt að fleiri hafi komið
hingaö en á dansleik í Miðgarði
sama kvöld. Fólk kom úr sveitinni
hér, frá Hólum, utan af Sauðár-
króki og framan úr Lýtingsstaða-
hreppi kom heilmikið liö á hestum.
Þeir voru margir sem komu ríðandi
á hlöðuballið sem tókst ákaflega
vel,“ sagði Guðmunda húsfreyja og
svona í lokin má geta þess að
hijómsveitin, sem lék fyrir dansin-
um, heitir Efri deild Alþingis.
Bond í Bíóborginni
Sextánda og nýjasta myndin um
James Bond, Leyfið afturkallað,
verður frumsýnd í Bíóborginni í
kvöld. Mun aðsókn að myndinni er-
lendis þegar vera orðin meiri en fyrri
mynda um 007.
Sú hefð hefur skapast að Lions-
klúbburinn Ægir sér um undibúning
frumsýninga James Bond mynda
hérlendis. Mun að þessu sinni vera
sérlega vandað til. Verður boöið upp
á ljúfar veitingar, Halli og Laddi
koma fram, hinn íslenski James
Bond mætir á staðinn ásamt fogrum
fljóðum og Bjartmar Guðlaugsson
skemmtir ásamt leynigesti.
Miðasala hefst kl. 16.30. Húsið verð-
ur opnað kl. 20 en sýning myndarinn-
ar hefst kl. 21. Miöaverð er kr. 750
og rennur allur ágóði af frumsýning-
unni óskiptur til líknarmála.
-GHK
Feröamálaár Evrópu:
ísland gerist aðili
Evrópubandalagið og EFTA-ríkin
munu á næsta ári standa fyrir
„Ferðamálaári Evrópu". Hefur sam-
göngumálaráðherra nú ákveðið að
Island gerist aðili að ferðamálaárinu
en markmiðið með því er að vekja
athygli á ferðaþjónustunni sem at-
vinnugrein, þýðingu hennar í efna-
hags- og félagslegu tilliti og jafnframt
að móta nýjar leiðir og áherslur í
ferðaþjónustunni.
Fréttir
Sverrir Hermannsson. Isabel Allende.
Tnor Vilhjalmsson.
Blómleg bóka-
tíð fram undan
Allt útlit er fyrir að á komandi
haustí verði bókaútgáfa með allra
blómlegasta mótí, hvort sem litið
er til íslenskra fagurbókmennta,
þýðinga eða ævisagna.
Á þessu stigi eru útgefendur að
vísu fremur þegjandalegir en þó
hefur DV áreiðanlegar heimildir
fyrir því að meðal jólabóka.verði
nýjar skáldsögur eftir Thor Vil-
hjálmsson, Svövu Jakobsdóttur,
Einar Kárason, Pétur Gimnarsson
og Vigdísi Grímsdóttur, ef tfl vill
einnig Steinunni Sigurðardóttur.
Ný smásagnasöfn eftir Hrafn
Gunnlaugsson og Sveinbjörn Bald-
vinsson verða á bókamarkaði, svo
og ljóðabækur eftir Stefán Hörð
Grímsson, Gyrði Elíasson og Sig-
mund Erni Rúnarsson, að
ógleymdri heildarútgáfu á ljóðum
Dags Sigurðarsonar.
Lífshlaup þekktra manna
Gefin verða út verk eftir marga
erlenda úrvalshöfunda, til dæmis
Garcia Marquez, Shusaku Endo,
Patrick Suskind, Doris Lessing,
Isabel Allende, Salman Rushdie,
Anatólí Rybakov og nýbakaðan
nóbelshöfund, Naguib Mahfouz.
Nokkrir höfundar sitja nú sveitt-
ir við að skrá lífshlaup þekktra
manna og kvenna. DV hefur fengið
staöfest að meðal þeirra síðar-
nefndu séu Guðmundur J. Guð-
mundsson, Sverrir Hermannsson,
Davíö Oddsson og Ævar Kvaran,
en óstaðfestar fregnir herma að
einnig séu í vinnslu ævisögur Ing-
ólfs Guðbrandssonar, Kristjáns Jó-
hannssonar, Valgerðar Bjamadótt-
ur og „eiginkonu þekkts embætt-
ismanns úr utanríkisþjónustunni“.
Á flestum útgefendum er að
heyra að þeir muni gefa út svipað-
an fjölda bóka og í fyrra og reyna
að halda verði í lágmarki. A næstu
dögum mun DV segja frekari tíö-
indi af jólabókaútgáfunni.
-ai.
Færð á hálendinu:
Fleiri leiðir eru ófærar en færar
Flestir hálendisvegir eru ófærir.
Hjörleifur Ólafsson vegaeftirlitsmað-
ur segir að þeir vegir sem eru færir
séu mun færri en þeir sem eru ófær-
ir. Ástandið er einna best á Norð-
austurlandi. Fært er í Öskju að norð-
anverðu. Eins er fært í Kverkfjöll.
Þá er fært á mifli Öskju og Kverk-
fjalla ef ekið er yfir nýju brúna á
Jökulsá. Kíölur er fær sunnan
Hveravalla. Norðurhlutinn er fær
jeppum. Vegurinn er víða blautur og
varásamur þess vegna.
Fært er í Eldgjá úr Skaftártungu.
Vonast er til að Fjallabaksleið í Land-
mannalaugar verði fær um næstu
helgi. Ófært er bæði um Kaldadal og
Sprengisand. Þá er ófært í Laka.
Um síöustu helgi var flogið yflr
Sprengisand. Mat þeirra sem þar
voru á ferð er að 10 til 15 prósent af
efsta hluta Sprengisandsleiðar séu
enn undir snjó og meiri snjór er á
Fjallabaksleið nyrðri. -sme
AFMÆLISTI LBOÐ
BÍIAR
tilefni af 10 ára starfsafmæli bílasölunnar getum
við nú boðið nokkur eintök af nýjum og ókeyrðum
Nissan Sunny og Toyota Corolla iiftback bíium á
einstaklega hagstæðu verði og' með góöum
greiðsluskilmálum.
Sýningarbílar á staönum til reynsluaksturs.
Ath. Notaðir bílar teknir upp í.
Opið laugardaga
kl. 10.00-17.00
Bílasalan
ilSKEIFAN
l||: Skeifunni 11
I 108 Reykjavík
sími: 689555
-GHK