Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1989, Page 7
FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 1989.
7
DV
Erlendir markaðir:
Dollarinn á léttu róli
Dollarinn er á léttu miðjuróli þessa
dagana á erlendum mörkuðum. Eftir
að hafa lækkað í verði undanfarið
hefur hann hægt um sig núna og bíða
sérfræðingar þess hvort hann heldur
áfram að lækka í verði eöa hvort
hann fikrar sig upp á við. Raunar var
hann lítillega byrjaður að klifra í
gær.
Dollarinn reis hæst á erlendum
gjaldeyrismörkuðum í kringum
þjóðhátíðardag íslendinga. Hinn 15.
júní seldist hann á 2,004 þýsk mörk
og daginn eftir á 2,0038 þýsk mörk. Á
sama tíma var dollarinn kominn yfir
59 krónur á íslandi.
Nú selst dollarinn á 57,7 krónur á
íslandi og 1,875 þýsk mörk á erlend-
um gjaldeyrismörkuðum. Megnið af
þessu ári hefur hann verið á rólinu
á milli 1,8 og 1,9 þýskra marka. í
október og nóvember síðasthðnum
var dollarinn að vísu kominn niður
í um 1,7 þýsk mörk.
Það sem fyrst og fremst veldur því
að dollarinn hefur lækkað í verði
erlendis er vaxtalækkun í Bandaríkj-
unum. Frekari lækkun dollarans
byggist á ótta við frekari lækkun
vaxta í Bandaríkjunum vegna aukins
atvinnuleysis, samdráttar í efna-
hagslífinu. Við það að vextir lækka
kemur upp ótti um að menn fari með
peningana sína annað. Eftirspurn
eftir dollar lækkar og þar meö lækk-
ar hann í verði.
Vextir í Bandaríkjunum, milli-
bankavextir, eru nú um 8,7 prósent.
Nýlega voru þessir vextir um 9 pró-
sent og ekki fyrir margt löngu mátti
sjá 11 prósent vexti í Bandaríkjun-
um.
Kaffi heldur áfram að lækka í
verði. Þær þjóðir sem framleiða kaffi
höfðu bundist samtökum um kvóta
og að halda verðinu uppi. Stærsti
kaffiframleiðandi heims, Brasilía,
hefur svikið samkomulagið að und-
anfórnu og lækkað verð á kaffi og
þar með hefur heimsmarkaðsverðið
lækkaðíkjölfarið. -JGH
Peningainarkaður
Innlán með sérkjörum
Alþýðubankinn
Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri
og 65 ára og eldri. 65 ára og eldri geta losað
innstæður sínar með 3ja mánaða fyrirvara.
Reikningarnir eru verðtryggðir og meö 7,5%
raunvöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 7,5%
raunvöxtum.
Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyris-
sjóðum eða almannatryggingum. Innstæðureru
óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru
15,5% og ársávöxtun 15,5%.
Sérbók. Nafnvextir 35% og vísitölusaman-
burður tvisvar á ári. 38,1% ársávöxtun.
Búnaðarbankinn
Gullbók er óbundin með 27% nafnvöxtum
og 28,8% ársávöxtun á óhreyfðri innstæöu, eða
ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3% raun-
vöxtum reynist hún betri.
Metbók er með hvert innlegg bundið í 18
mánuði á 28% nafnvöxtum og 30 ársávöxtun,
eða ávöxtun verðtryggðs reiknings með 3%
vöxtum reynist hún betri. Hvert innlegg er laust
að 18 mánuðum liðnum.
Iðnaðarbankinn
Bónusreikningur er óverðtryggður reikningur
með 27-28,5 % nafnvöxtum, eftir þrepum, sem
gera 28,8-30,5% ársávöxtun. Verðtryggð bón-
uskjör eru 3-4,5% eftir þrepum. Borin eru sam-
an verðtryggð og óverðtryggð kjör og gilda þau
sem hærri eru. Reikningurinn er alltaf laus.
18 mánaöa bundinn reikningur er með 32%
Inafnvöxtum og 32% ársávöxtun.
Landsbankinn
Kjörbók er óbundin með 27% nafnvöxtum
og 28,8% ársávöxtun. Eftir 16 mánuði, í fyrsta
þrepi, greiðast 28,4% nafnvextir af óhreyfðum
hluta innstæðunnar sem gefa 30,4% ársávöxt-
un. Eftir 24 mánuði, í öðru þrepi, greiðast 29%
nafnvextir sem gefa 31,1% ársávöxtun. Á
þriggja mánaða fresti er gerður samanburður
við verðtryggðan reikning og gildir hærri ávöxt-
unin.
Hlutabréfavísitala
Hámarks, 100 =? 31.121986
Samvinnubankinn
Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti
á hvert innlegg. Fyrstu 3 mánuðina eru vextirn-
ir 14%, næstu 3 mánuði 30%, eftir 6 mánuði
31% og eftir 24 mánuði 32% og gerir það
34,56% ársávöxtun. Sé ávöxtun betri á 6 mán-
aða verðtryggðum reikningum gildir hún um
hávaxtareikninginn.
Hávaxtabók er óbundin bók sem ber 31%
nafnvexti og 33,4% ársávöxtun á óhreyfðri inn-
stæðu. Ef ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reikn-
ings reynist betri gildir hún. Útttektargjald reikn-
ast ekki af uppfærðum vöxtum síðustu 12 mán-
aða.
Útvegsbankinn
Ábót. Nú er ekki lengur mánaðarlegur saman-
burður. Ábótarreikningur ber 27% nafnvexti sem
gefa 28,8% ávöxtun. Samanburður er gerður
við verðtryggða reikninga. Raunvextireftir þrep-
um eru frá 3,5-5%.
Sérstök Spariábót ber 4,5 prósent raunvexti
strax.
Verslunarbankinn
Kaskóreikningur. Innstæða sem er óhreyfð
í heilan ársfjórðung ber 28% nafnvexti sem
gefa 31,1% ársávöxtun, eða nýtur kjara 6 mán-
aða verðtryggðs reiknings. Sú ávöxtun sem er
hærri gildir.
RentubókRentubókin er bundin til 18 mán-
aða. Hún ber 28,0% nafnvexti. Ávöxtunin er
borin reglulega saman við verðtryggða reikn-
inga.
Sparisjóðir
Trompbók er óbundinn reikningur með ekk-
ert úttektargjald. Grunnvextir eru 27,5% sem
gefa 30,4 prósent ársávöxtun. Samanburður er
gerður við verðtryggðan reikning. Óhreyfö inn-
stæða fær 1% vaxtaauka eftir 12 mánuði.
Öryggisbók sparisjóðanna er bundin í 12
mánuði. Vextir eru 29% upp að 500 þúsund
krónum, eða 3,5% raunvextir. Yfir 500 þúsund
krónum eru vextirnir 30%, eða 4% raunvextir.
Yfir einni milljón króna eru 31 % vextir, eða 4,5%
raunvextir.
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 14-20 Úb
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 15-20 Vb.Úb
6mán. uppsögn 16-22 Vb
12mán.uppsögn 18-20 Úb
18mán. uppsögn 30 Ib
Tékkareikningar, alm. 3-9 Ab.Sp
Sértékkareikninqar 4-17 Vb.Ab
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5-2 Vb
6 mán, uppsögn 2,5-3 Allir nema
Innlán með sérkjörum 27-31 Sp Sb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 8-8,75 Ab
Sterlingspund 11,75-13 Lb.Bb,- Ib.Vb,- Sb
Vestur-þýsk mörk 5,25-6 Sb.Ab
Danskar krónur 7,75-8,25 Lb.lb,- Vb.Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 32,5-34,5 Bb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 34,25- 37,25 Bb
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 35,5-39 Lb
Utlán verðtryggð
, Skuldabréf 7-8,25 Lb
Utlán til framleiðslu
Isl. krónur 27,5-37 Úb
SDR 10-10,5 Lb
Bandaríkjadalir 11-11,25 Allir nema Úb
Sterlingspund 15,75-16 Allir nema Úb
Vestur-þýsk mörk 8,25-8.5 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 42.8
MEÐALVEXTIR
óverðtr. júlí 89 34,2
Verötr. júlí 89 7.9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala júli 2540 stig
Byggingavísitala júlí 461,5stig
Byggingavísitalajúli 144,3stig
Húsaleiguvisitala 5% hækkun 1-júll
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,033
Einingabréf 2 2,236
Einingabréf 3 2,633
Skammtímabréf 1,388
Lífeyrisbréf 2,028
Gengisbréf 1,801
Kjarabréf 4,007
Markbréf 2,132
Tekjubréf 1,731
Skyndibréf 1,217
Fjölþjóðabréf 1,268
Sjóðsbréf 1 1,937
Sjóösbréf 2 1,551
Sjóðsbréf 3 1.368
Sjóðsbréf 4 1,140
Vaxtasjóðsbréf HLUTABRÉF 1,3663
Söluverð aö lokinni jöfnu m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 300 kr.
Eimskip 360 kr.
Flugleiöir 175 kr.
Hampiðjan 164 kr.
Hlutabréfasjóður 128 kr.
lönaðarbankinn 157 kr.
Skagstrendingur hf. 212 kr.
Útvegsbankinn hf. 135 kr.
Verslunarbankinn 145 kr.
Tollvörugeymslan hf. 108 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum
og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum al þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup-
gengi, kge.
Vidskipti
Verð á eriendum
mörkuðum
Bensín og olía
Rotterdam, fob.
Bensín, venjulegt,....192$ tonnið,
eða um.........8,4 ísl. kr. lítrinn
Verð í síöustu viku
Um...........................202$ tonnið
Bensín, súper,.......205$ tonnið,
eða um.........9,0 ísL kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um...........................210$ tonnið
Gasolia..............145$ tonnið,
eöa um.........7,1 ísi. kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um...:.............. 141$ tonnið
Svartolía............101$ tonnið,
eða um.........5,4 ísl. kr. lítrinn
Verð í síðustu viku
Um...........................105$ tonnið
Hráolia
Um..............17,50$ tunnan,
eða um.....1010 ísL kr. tunnan
Verð i síðustu viku
Um..............17,44$ tunnan
Gull
London
Um................380$ únsan,
eða um.....21.926 isl. kr. únsan
Verð i síðustu viku
Um..................379 únsan
Al
London
Um..........1.815 dollar tonnið,
eða um....104.726 ísl kr. tonnið
Verð i siðustu viku
Um........1.795 dollar tonnið
Ull
Sydney, Ástraliu
Um.........11,0 dollarar kilóiö,
eða um.....634 ísL kr. kílóið
Verð í siðustu viku
Um.........10,0 dollarar kílóið
Bómull
London
Um............81 cent pundiö,
eöa um....103 ísl. kr. kílóið
Verð í síðustu viku
Um..............80 cent pundið
Hrásykur
London
Um.......332 dollarar tonnið,
eöa um.19.156 ísl. kr. tonnið
Verð í síðustu viku
Um...........350 dollarar tonnið
Sojamjöl
Chicago
Um.......224 doliarar tonnið,
eða um.12.924 ísl. kr. tonnið
Verð í siðustu viku
Um........,215 dollarar tonniö
Kaffibaunir
London
Um............96 cent pundið,
eða um........122 ísl. kr. kílóið
Verð í síðustu viku
Um.............101 cent pundið
Verð á íslenskum
vörum erlendis
Refaskinn
K.höfn., mai
Blárefur............185 d. kr.
Skuggarefur.........176 d. kr.
Silfurrefur.........409 d. kr.
BlueFrost...........351 d. kr.
Minkaskinn
K.höfn, maí
Svartminkur.........147 d. kr.
Brúnminkur..........167 d. kr.
Grásleppuhrogn
Um.....1.100 þýsk mörk tunnan
Kísiljárn
Um.......1.030 dollarar tonnið
Lodnumjöl
Um.........630 dollarar tonnið
Loönulýsi
Um.........230 dollarar tonnið