Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1989, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 1989.
Tilkynning til launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skál vakin á því að
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina maí og júní er
15. júlí nk.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytiö
Leðursófasett
hornsófar
og borð í
miklu úrvali.
Við erum í
> NUTIÐ
IfUSGOGN
Faxafeni 14, s. 680755.
Útlönd______________________i>
Bush í Ungverjalandi:
Býður aðstoð
„Það er enginn vafi á því að við
stöndum nú á þröskuldi nýrra tíma,“
sagði Bush Bandaríkjaforseti í ræðu
sem hann hélt í Búdapest í Ungverja-
landi í gær. Forsetinn, sem var í op-
inberri heimsókn í Ungverjalandi,
bauð ráðamönnum þar aðstoð
Bandaríkjanna til aö vinna að efna-
hagsumbótum í landinu á svipaðan
hátt og hann gerði í heimsókn sinni
til Póllands fyrr í vikunni. í báðum
þessum löndum eiga sér nú stað
miklar breytingar í lýðræðisátt og
hafa þau leitað aðstoðar hjá Vesturl-
öndum til að rétta við efnahag sinn.
Forsetinn lagði til að settur yrði á
laggirnar tuttugu og fimm milljón
dollara sjóður í Ungverjalandi sem
yrði til styrktar einkaframtakinu í
landinu. Þá sagði hann að Ungverjar
myndu nú njóta bestu viðskiptakjara
viö Bandaríkin og viðskipti þjóðanna
yrðu auðveldari en áður.
„Við getum unnið saman,“ sagði
forsetinn í ræðu sinni í gær. Hann
lagði áherslu á, eins og hann gerði í
Póllandi, að framundan væru erfiðir
tímar fyrir þjóðina. „En í fyrsta
Bandarísku (orsetahjónin ásamt
nokkrum ungverskum námsmönn-
um. Símamynd Reuter
skipti er rifa komin í járntjaldið,"
sagði forsetinn, „og Ungverjaland er
þar í fararboddi."
Nemeth, ungverski forsætisráð-
herrann, hafði áður gefið Bush
gaddavírsbút úr girðingu þeirri sem
var á milli Austurríkis og Ungverja-
lands, táknræna gjöf um niðurrif
jámtjaldsins.
Eftir viðræður sínar við ráðamenn
í Ungveþalandi og ávarp til náms-
manna hitti Bush að máli fulltrúa
stjórnarandstöðunnar. „Heimsókn
Bush er mjög mikilvæg fyrir Ung-
verjaland,“ sagði Gyorgy Kadar úr
Ungverska lýðræöishópnum. Full-
trúar stjómarandstöðunnar eiga nú
í viðræöum við ráðamenn um fjöl-
flokkakerfi sem ætlað er að komist á
í Ungverjalandi.
Bush hélt í morgun áleiðis til París-
ar þar sem hann tekur þátt í leið-
togafundi sjö helstu iðnríkja heims
sem hefst á morgun. í kveðjuávarpi
sínu sagði hann að því nútímalegri
sem efnahagur Ungverjalands yrði
því stærri þátt myndi landiö eiga í
þróun nýrrar Evrópu.
Bandaríkjamenn munu nú án efa
leggja áherslu á sameiginlega efna-
hagsstefnu Vesturlanda gagnvart
Póllandi og Ungveijalandi í kjölfar
heimsóknarBushþangað. Reuter
Bush Bandaríkjatorseti og Rezso Nyers, (ormaður ungverska kommúnistaflokksins, takast í hendur. Tveggja daga
opinberri heimsókn Bush til Ungverjalands lauk í morgun. Símamynd Reuter
Aukablað um
ferðalög innanlands
Miðvikudaginn 26. júlí nk. mun aukablað um
ferðalög innanland fylgja DV. Meðal þess sem
fjallað verður um er: útihátíðir um verslunar-
mannahelgina, fjaldvagnar og hjólhýsi, segl-
brettasiglingar, Qallaskíði og öræfaferðir - auk
þess sem ferðamöguleikar um land allt verða
kannaðir.
Þeir auglýsendur, sem áhuga hafa á að auglýsa
í þessu aukablaði, vinsamlegast hafi samband við
auglýsingadeild DV hið fýrsta í síma 27022.
Vinsamlegast athugið að skilafrestur auglýsinga
er til fimmtudagsins 20. júlí nk.
Auglýsingadeild
Þverholti 11, sími 27022
Tillaga um
afvopnun
kynnt í dag
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að Atl-
antshafsbandalagið myndi form-
lega kynna tillögu um fækkun
hefðbundinna vopna í dag, nær
tveimur mánuðum fyrr en áætlað
var. Baker tilkynnti þetta í Búda-
pest þar sem Bush Bandaríkjafor-
seti hitti ungverska ráðamenn á
öðrum degi heimsóknar sinnar þar.
í tillögu Atlantshafsþandalags-
ins, sem leggja átti fram í Vín 7.
september, er hvatt til að fækkað
verði í herliði Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna í Evrópu í 275 þús-
und hermenn. Einnig er hvatt til
að fækkað veröi flugvélum, skrið-
drekum og herbOum.
Baker sagði að í tillögunni, sem
í aöalatriðum var samþykkt á leið-
togafundi Atlantshafshandalagsins
í maílok, kæmi fram aö aðildarrík-
in vildu að orrustuþotum yrði
fækkað í 5.700 og orrystuþyrlum í
1.900.
í tilkynningu frá Hvíta húsinu
sagöi að með því aö leggja fram
afvopnunartillöguna núna myndi
Sovétríkjunum vonandi gefast
tækifæri til að svara formlega þeg-
ar samningaviðræðumar hefjast á
ný í Vín í september.
Tilkynning Bakers gefur til
kynna að aðildarríki Atlantshafs-
bandalagsins hafi leyst innbyrðis
deilu um hversu mikil fækkun eigi
að vera í hverju ríki fyrir sig. Bret-
ar og Frakkar hafa tilkynnt að þeir
muni ekki samþykkja að þeim flug-
vélum þeirra sem geti borið bæði
hefðbundin vopn og kjarnorku-
vopn verði fækkað.
Bush Bandaríkjaforseti, sem
fyrst kynnti afvopnunartillöguna á
fundi Atlantshafsbandalagsins í
maílok, hefur sætt gagnrýni fyrir
að gefa í skyn að samkomulag
kunni að nást við Varsjárbandalag-
ið eftir sex mánuði eða innan árs.
Margir sérfræðingar lita á þá
tímaáætlun sem pólitískt bragð til
að þrýsta á Gorbatsjov. En Baker
sagði í gær að það að tillagan skyldi
borin fram núna sýndi fram á að
tímaáætlun Bush væri ekki út í
hött. Reuter