Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1989, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 1989.
Utlönd
Fjöldamorð
í Frakklandi
Papandreou, fyrrum forsætisráðherra Grikklands, og unnusta hans, Liani.
Þau munu ganga í það heilaga í kvöld. Símamynd Reuter
Papandreou í
hnapphelduna
Óöur maður skaut í gær til bana
íjórtán manns í þorpinu Luxiol í
austurhluta Frakklands í gær, þar á
meðal móður sína og systur, áður en
lögreglu tókst að grípa hann.
Blóðbaðið, sem stóð yfir í hálftíma,
hófst síðdegis í gær þegar maðurinn,
Christian Domier, sem er 31 árs,
skaut á og særði föður sinn og drap
dýralækni sem var staddur á býli
fjölskyldu mannsins. Móðir hans
hringdi í lögregluna og gat varað
hana við áður en hún féll sjálf fyrir
hendi sonar síns. Því næst beindi
hann byssunni að systur sinni sem
gekk í hjónaband síöasta laugardag.
Maðurinn stökk upp í bifreið og ók
um götur bæjarins og skaut á alla
sem á vegi hans urðu. Þar á meðal
stúlku sem sat í bifreið og systkini
sem voru á hjólum sínum á bæjar-
torginu. Sjónarvottar segja að sonur
borgarstjórans hafi skotið Dornier í
hálsinn með haglabyssu en þrátt fyr-
ir það hafi hann haldið áfram að
skjóta fólk. Herþjálfaðir lögreglu-
menn skiptust á skotum viö hann og
tókst að særa hann og grípa. Líf hans
er ekki sagt í hættu.
Níu manns særðust í þessu fjölda-
morði sem er hið blóðugasta í
Frakklandi síðan 1978. Þá voru tíu
manns skotnir til bana á bar í Mar-
seille.
Domier var lýst sem skapþungum
manni sem aldrei hefði yrt á nokk-
urn mann.
Eyðing
ósonlags-
ins yfir
norður-
skautinu
Bandarískir vísindamenn teija
að mengun hafi leitt til eyöingar
ósonlagsins yfir norðurskautihu
sem og suðurskautinu. Þetta
kemur fram í grein í bandaríska
vísindatímaritinu Nature sem
kemur út í dag.
í greininni er þó geflð í skyn
að hvemig ósonlagiö liggi yiflr
norðurskautinu geri það að verk-
mn að það sé minni hætta á eyð-
ingu þar en í ósonlaginu yflr suð-
urskautinu. Þar segir að eyðingin
á norðurskautinu eigi sér stað í
mun meiri hæð yfir jörðu en yfir
suðurskautinu. Virðist það benda
til þess aö ósonlagið þar sé ekki
eins viðkvæmt fyrir mengun og
ósonlagið yfir suðurskautinu.
Nokkrir vísindamenn frá há-
skólanum í Wyoming-fylki í
Bandaríkjunum stóðu fyrír rann-
sóknum á eyðingu ósonlagsins
yflr norðurskautinu. Fóm rann-
sóknirnar fram yflr Kiruna í
norðurhluta Svíþjóðar.
Sagði David Hofinann, leiðtogi
hópsins, að með notkun skanna
sem settir voru um borð í loft-
belgi heföu þeir orðið varir eyð-
ingar ósonlagsins.
Greinileg eyöing ósonlagsins
yfi noröurskautinu er mjög lítil,
sagði Hofmann, eða um um þjú
prósent .miðað við um fimmtíu
prósent yfir suðurskautinu.
Keuter
Andreas Papandreou, fyrrum for-
sætisráðherra Grikklands, gengur í
það heilaga í kvöld þrátt fyrir yfirvof-
andi rannsókn á meintri aðild hans
að hneykslismálum. Ástarævintýru
Papandreous, sem er sjötugur, og
hinnar þrjátíu og fjögurra ára Dimi-
tru Liani, fyrrum flugfreyju,
hneykslaði marga í Grikklandi og er
taliö eiga þátt í tapi sósíahstaflokks-
ins í þingkosningunum nýveriö. Pap-
andfeou fékk skilnað frá bandarís-
kættaðri eiginkonu sinni, Margréti
Chant, tveimur dögum fyrir þing-
kosningarnar sem fram fóru þann
18. júní. Þau höfðu verið gift í rúm-
lega þijátíu ár.
I fréttum dagblaða segir aö hjóna-
vígslan muni fara fram í kirkju í
Ekali, úthverfi Aþenu, þar sem þau
hjónaleysin búa. Engin opinber til-
kynning hefur þó verið gefin út varð-
andi brúðkaupiö. Gestalistinn er
stuttur og hafa grísk dagblöð skýrt
frá því að ekkert bama Papandreous
og Margrétar, en þau eru ijögur,
verði viðstatt vígsluna.
Hin nýja stjórn í Grikklandi, sam-
steypustjóm íhaldsmanna og banda-
lags^vinstri manna og kommúnista,
hefur það að markmiði að rannsaka
meinta aðild fyrrum embættismanna
Papandreou-stjómarinnar að fjár-
málahneyksh er varðar Krítar-
banka. I næstu viku mun gríska
þingið ganga til atkvæöagreiöslu um
sérstaka nefnd sem kanna skuli aðild
Papandreous að þessu máh. Stjómin
fékk á sunnudag heimhd til að lyfta
friðhelgi forsætisráðherrans fyrr-
verandi sem og fjöguma annarra
fyrrum háttsettra embættismanna
ríkisstj ómarinnar.
Hætta er á að brúðkaupsferð þeirra
Papandreous og Liani verði eitthvað
snubbótt því að nefndin getur hve-
nær sem er kallað hann th yfir-
heyrslu.
Reuter
Reuter
Hreinsaö til eftir fjöldamorðin í Luxiol í Frakklandi í gær. Símamynd Reuter
'J
■ Helgarmarkaður DV ■ Helgarmarkaður ■ Helgarmark
LÆKJARKJÖR
Brekkulæk 1 - sími 35525
- OPIÐ -
Fimmtudaga 9.00 - 18.30
Föstudaga 9.00 - 19.00
Laugardaga 10.00 - 13.00
Kvöldsala til kl. 23.30
SELJAKAUP 1
- Kleifarseli 18, s. 75644 -
Opið laugardaga
10-16
Mikið vöruúrval
- Góð þjónusta -
SVEINSBÚÐ
Bræðraborgarstíg 43 - sími 14879
ADIAa Föstudaga til kl. 19.
Ur ltl« Laugardaga kl. 10-14.
Nautakjöt - svínakjöt - folaldakjöt í úrvali
Fransmann franskar, kr. 138 Nautahakk, 1. fl„ kr. 650 kg
Mjólk, 1 I, kr. 61 Nautahakk, 2. fl„ kr. 520 kg