Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1989, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 1989.
25
Iþróttir
STYKKISHÓLMSVÖLLUR
Laugardag 15.7. kl. 14.00
SNÆFELL - HAUKAR
Ráðast þar úrslitln í B-riðli 4. deildar?
Allir á völlinn!
Áfram Snæfell
Knattspymuráð
a, steytir hnefann og er tilbúinn með hækj-
í gifsi undanfarið en hefur engu að síður
íikjum. Hann er ekki of ánægður á svip þar
da fengu Fylkismenn skell í gærkvöldi þeg-
DV-mynd GS
Boris
Becker frá
V-Þýskalandi hamp-
ar verðlaunagripn-
um sem hann fékk
fyrir sigurinn á
Wimbledon tenn-
ismótinu á dögun-
um. Becker sigraði
Svíann Stefan Ed-
berg í úrslitum, 6-0,
7-6 og 6-4. Þetta var
í þriðja skipti sem
Becker vinnur
Wimbledon-keppn-
ina en Edberg sigr-
aði í fyrra.
Símamynd/Reuter
Stórsigur FH
- HaöiarQ arðarliðið vann Fylki, 0-4, og er komið upp 1 toppbaráttuna
FH-ingar eru komnir upp í annað
sæti 1. deildar eftir stórsigur á Fylki,
0-4, í Árbæmnn í gærkvöldi. Sigur
FH var kannski fullstór miðað við
gang leiksins en Hafnaríiarðarliðið
nýtti færi sín vel á meðan Fylkis-
menn fóru illa að ráði sínu.
Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik en FH-ingar voru sókndjarf-
ari. Það voru þó Fylkismenn sem
náðu að koma knettinum í netið á
39. minútu en Bragi Bergman dómari
tók markið af vegna rangstöðu. Á
síöustu mínútu fyrri hálfleiks fengu
FH-ingar dæmda vítaspymu er Guö-
Viðar Halldórsson:
Stöndum
mjög vel
að vígi
„Betra liðið vann í kvöld og I
það er ekki annað hægt en að
vera ánægður með gang mála.
Það var gríðarlega mikilvægt
að vinna þennan leik þar sem
höinu hefur gengið illa í síöustu
leikjum. Nú stöndum við mjög |
vel að vígi í öðru sæti deildar-
innar og við munum halda okk-
ur þar. Við höfum gengið í gegn-
um slæman kafla og nú hggur I
leiðin upp á við,“ sagði Viðar
Hahdórsson, þjálfari FH-inga, [
eftir sigurinn á Fylki í gær-
kvöldi.
„Við komum til með að halda I
sæti okkar í 1. deild og nú er |
stefnan að halda hðinu í topp-
baráttunni,“ sagði Viðar enn-
fremur.
mundi Val Sigurðssyni var brugðiö
innan vítateigs og Hörður Magnús-
son skoraði af öryggi.
Fylkismenn komu ákveðnir til
leiks í síðari hálfleik og ætluðu
greinilega að jafna metin. Sóknir
þeirra voru vel upp byggðar en ahtaf
vantaði einhvem tíl að klára dæmiö.
Öm Valdimarsson og Hörður Vals-
son fengu báöir ágæt færi en heppnin
var ekki með þeim. Um miöbik síðari
hálfleiks fengu Fylkismenn síðan
vítaspyrnu eftir mikla pressu á mark
FH en Gústaf Vífilsson skaut fram-
hjá.
Hafi Árbæingar haldið að það
versta væri að baki þá var það ekki
raunin. FH-ingar snera vöm í sókn
og gerðu 3 mörk á aðeins þremur
mínútum. Hörður Magnússon skor-
aði tvö faheg mörk með mínútu milli-
bih og fullkomnaði þrennu sína.
Pálmi Jónsson innsiglaði sigurinn
með 4. marki kvöldsins og martröð
Fylkismanna var þar meö lokið.
FH-ingar léku vel og skynsamlega
og hðið hefur ekki sagt sitt siðasta í
deildinni þrátt fyrir misjafnt gengi í
undanfornum leikjum. Björn Jóns-
son og Birgir Skúlason vom að
vanda sterkir fyrir í vöminni og
Guðmundur Valur Sigurðsson var
góður á miðjunni. Hörður Magnús-
son og Pálmi Jónsson vom sterkir
frammi og léku Fylkisvömina oft.
grátt.
Fylkishðið lék ekki iha en hðið á í
miklum erfiðleikum með að skora.
Hilmar Sighvatsson og Öm Valdi-
marsson vom einna bestir 1 annars
jöfnu hði.
Dómari: Bragi Bergmann.......☆
Maður leiksins: Hörður Magnússon,
FH.
-RR
• FH-ingarnir Ólafur Kristjánsson og Björn Jónsson í baráttu viö Fylkismann i Árbænum í gærkvöldi. FH-ingar
sigruðu í leiknum, 0-4, og eru komnir í toppbaráttu 1. deildar.
DV-mynd GS