Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1989, Síða 18
26
FIMMTUDAGUR 13. JÚLf 1989.
íþróttir
Þessi lið
drégust
saman
Spora Luxemborg - Real Madrid
(Spáni)
Steua Búkarest (Rúmeníu) - Fram
(íslandi)
Ruch Chorsow (Póllandi) - Sredetz
Sofia (Búlgaríu)
PSV Eindhoven - Luzem (Sviss)
Rosenborg (Noregi) - Mechelen
AC Milano (Ítalíu) - HJK Helsinki
Swarovski Tyrol (Austurríki) -
Omonia Nikosia (Kýpur)
MarseiUes (Frakkandi) - Bröndby
(Danmörku)
Derry City (íriandi) - Benfica
Inter Milano (Ítalíu) - Malmö
Glasgow Rangers - Bayern
Múnchen
Dinamo Dresden (A-Þýskalandi) -
AEK Aþena (Grikklandi)
Sparta Prag (Tékkóslóvakíu) -
Fenerbache Istanbul (Tyrklandi)
Dnéprópetroysk (Sovétrikjunum)
- Linfield (N-írlandi)
Sliema Wanderers (Möltu) - Nent-
ori Tirana (Aibaniu)
Honved (Ungvetjalandi) - Voj-
vodina Novi Sad (Júgóslavíu)
Evrópukeppni bikarhafa
Besiktas Istanbul (Tyrklandi) -
Borussia Dortmund (V-Þýska-
landi)
US Luxemborg - Djurgarden
Glasgow Celtic - Partiz Belgrad
Dinamo Berlín - Valur
Panathnaikos - Swansea
Ballymena United (N-írlandi) -
Anderlecht (Belgíu)
Brann - Sampdoria (Ítalíu)
Barcelona (Spáni) - Legia Varsjá
1 (Póllandi)
Bratisjava - Grasshoppers
Belenenses (Portúgal) - Monaco
Real Valladolid (Spáni) - Hamrun
Spartans (Möltu)
Dinamo Bukarest (Rúmeníu) -
Chemomoretz (Búlgaríu) - Din-
amo Tirana (Albaniu)
Groningen (Hollandi) - Ikast (Dan-
mörku)
Ferencvaros (Ungveijalandi) -
Vaikakosken (Finniandi
Wacker Vín (Austurríki) - Limas-
sol (Portúgal)
Torpedó Moskva (Sovétrikjunura)
- Cork City (írlandi)
UEFA-keppnin
Gornik (PóJlandi) - Juventus (ítal-
íu)
Hibemian (Skotlandi) - Videoton
' íUngveijalandi)
Orgryte - Hamburger SV
Liege (Belgíu) - Akranes (íslandi)
Twente (Hollandi) - Club Bmgge
Köln - Plastika (Tékkóslóvakíu)
Sochaux (Frakklandi) - Jeunesse
Esch (Lúxemborg)
KarJ Marx Stadt (A-Þýskalandi) -
Boavista (Portúgal)
Rostock (A-Þýskalandi) - Banik
Ostrava (TékkósJóvakíu)
Lahti (Finnlandi) - Paris SG
Dundee United - Glentoran
Zalgiris (Sovétrikjunum) - Gauta-
borg (Sviþjóð)
Austria Vín - Ajax
Lille8tröm - Werder Bremen
Palloseura (Finnalandi)
Katowice (Póllandi)
Zenit Leningrad - Naestved
. Apolion Nikosia (Kýpur) - Real
' Zaragossa (Spáni)
Atalanta - Spartak Moskva
Olympiakos (Grikklandi) - Rad
Belgrad (Júgóslaviu)
Vitoslia Sofia (Búlgaríu) - Ant-
werpen (Belgiu)
Porto (Portúgal) - Flacara Moreni
(Rúmenia)
Fiorentina (ítaliu) - Atletico
Madrid (Spáni)
Saloniki (Grikklandi) - Sion
(Sviss)
Auxerre (Frakklandi) - Dinamo
Zagreb (Júgóslavíu)
Galtasaray (Tyrklandi) - Rauöa
Stjarnan (Júgóslavíu)
Sporting Lissabon (Portúgal) -
Napólí (Ítalíu)
Valetta (Möltu) - Foto Net (Aust-
urríki)
Stuttgart (V-Þýskalandi) - Feyeno-
ord (Hollandi)
Aberdeen (Skotlandi) - Rapid Vín
(Austurríki)
Dinamo Kiev (Sovétrikjunum) -
MTK Budapest (Ungverjalandi)
Wettingen (Sviss) - Dundalk (ír-
landi)
„Hefði getað hugsað
mér léttari mótherja“
- segir Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram,
en Uðið dróst gegn Steaua Búkarest
1 Evrópukeppni meistaraliða
„Ég heföi getað hugsaö mér léttari og skemmtilegri motherja. Steaua Búkar-
est er mjög sterkt hö, enda komst þaö alla leið í úrslit keppninnar í vor en
t>eið lægri hlut fyrir AC Milan í skemmtilegum leik. Það er alltaf gaman að
taka þátt í Evrópukeppninni í knattspymu og kannsld skiptir ekki svo miJdu
máli hverjir eru mótheijar hverju sinni,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari ís-
landsmeistara Fram, í samtali við DV en þá var Ásgeir staddur austur á
Laugarvatni.
Fram fékk fyrri leikinn heima en
fulltrúar Fram Við dráttinn í gær
reyndu að fá fyrri leikinn í Reykja-
vík og tóku forráðamenn Steaua vel
á þá hugmynd. Félögin verða í nán-
ara sambandi á næstu dögum og í
framhaldi af því verða leikdagar
ákveðnir.
„Lið frá Austur-Evrópu eru alltaf
erfið viðureignar og möguleikar okk-
ar gegn Steaua Búkarest eru eldd
mildir í fljótu bragði en við Framarar
reynum aö ,gera okkar besta gegn
þessu sterka liði,“ sagði Ásgeir Ehas-
son.
- Hvað viltu segja um mótherja Vals-
manna og Akurnesinga?
„Valsmenn standa í sömu sporum
og við. Þeir eiga þó alltaf einhverja
möguleika gegn Dinamo Berlín. Fyr-
ir hönd Akumesinga líst mér nokkuð
vel á mótherja þeirra. FC Liege er
þó áreiðanlega sterkt atvinnuknatt-
spyrnulið en á góðum degi getur allt
gerst,“ sagði Asgeir Eliasson, þjál
Fram. -JKS
• Ásgeir Elíasson, þjálfari islandsmeistara Fram, í deildarleikfyrir nokkru.
• Siguróur Lárusson, þjálfari ÍA, er mjög ánægöur með FC Liege sem
mótherja í Evrópukeppni félagsliða.
ÍA leikur gegn FC Liege:
„Mjög sáttur
með dráttinn“
Valur austur fyrir jámtjald:
„Við eigum
möguleika gegn
Dinamo Berlin“
- segir Hörður Helgason, þjálfari Vals
„Ég er mjög ánægður með mót-
herja okkar frá Austur-Þýskalandi.
Það er staöreynd að austur-þýsk
knattspyrna er í lægö um þessar
mundir, því til stuðnings getum við
bent á slæma frammistöðu landsliðs
þeirra. Valsmenn náðu góðum ár-
angri gegn austur-þýska hðinu
Wismut Aue fyrir tveimur árum,
jafntefli varð í báðum leikjunum og
óheppni að komast ekki áfram í
keppninni," sagði Hörður Helgason,
þjálfari Vaismanna, í samtali við DV.
Valsmenn leika fyrri leildnn á
Laugardalsvelhnum 13. september.
UEFA breytti leikdögum liðanna en
upphaflega átti fyrri leikurinn aö
vera í Berhn.
„Ég get ekki séð annað en að Valur
eigi góða möguleika gegn Dinamo
Berhn. Þetta er liö sem rekið er af
ríkinu og þess vegna er þaö ekki vin-
sælt í Austur-Þýskaiandi. í liöi þeirra
eru nokkrir landsliðsmenn, þeirra
þekktastur er Andreas Thom en við
gerum ráðstafanir til að halda hon-
um niðri í leikjunum sem framundan
eru.
- Hverja telur þú möguleika Framara
og Akurnesinga?
„Mótherjar Fram, Steaua Búkar-
est, eru í fremstu röð og af þeim sök-
um eru Framarar ekki öfundsverðir
upp á framhald í keppninni. Ég held
samt að knattspyrnan sem Steaua
leikur henti FYam-hðinu vel og með
skynsamlegum leik getur allt gerst.
Mótherja Akurnesinga þekki ég ekki
vel en Skagamenn eiga góða mögu-
leika í leiknum heima. Akurnesingar
léku gegn beigiska liðinu Beveren
fyrir nokkrum árum og stóðu sig
vel,“ sagði Hörður Helgason.
-JKS
- segir Sigurður Lárusson, þjálfari ÍA
„Ég er mjög sáttur viö FC Liege sem mótherja okkar í Evrópu-
keppni félagsliða. Ég þekki samt lítið til þeirra en belgísk
knattspyma er ekki á háu plani. Við lékum gegn belgíska Uð-
inu Beveren fyrir nokkrum árum og stóðum okkur þokka-
lega, náðum jafntefli heima en töpuðum stórt úti eftir dómarahneyksh.
Við Akumesingar ætlum að standa okkur vel í Evrópukeppninni í ár,“
sagði Sigurður Lámsson, þjálfari Akumesinga, í samtali við DV.
Fulltrúar Akurnesinga viö drátt-
inn í Genf í gær víxluðu leikdögum
í samráði við forráðamenn FC Liege.
Akumesingar áttu upphafiega að
leika fyrri leikinn úti en hann verður
á Akranesi 12. september.
„Það er kostur fyrir okkur að leika
á Akranesi. Við höfum undanfarin
tvö ár leikið okkar Evrópuleiki á
Akranesi með góðum árangri, gert
jafntefli í bæði skiptin, en nú verður
stefnan tekin á sigur gegn FC Li-
ege,“ sagði Siguröur.
- Hvað viltu segja um mótherja
Framara og Valsmanna?
„Ég þekki ekki vel mótheija Fram
og Vals og er feginn að við þurfum
ekki að fara austur fyrir járntjald.
Þangað er alltaf leiðinlegt að. fara.
Steaua er frægt hö og Fram á erfiða
leiki fyri'r höndum. Valsmenn eiga
mun meiri möguleika gegn Dinamo
Berlín," sagði Sigurður Lárusson.
-JKS
• Höröur Helgason, þjálfari bikarmeistara Vals i knattspyrnu.