Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1989, Side 27
. Mt i ! 1^1 f i
FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 1989.
35
Afmæli
Guðrún Kr. Jörgensen
Guðrún Kr. Jörgensen húsmóðir,
Háaleitsibraut 89, Reykjavík, er sex-
tugídag.
Guðrún fæddist að Löndum í
Stöðvarfirði og ólst þar upp í for-
eldrahúsum. Hún stundaði nám við
Kvennaskólann í Reykjavík 1945-49
en eftir skólagöngu starfaði hún við
Kaupfélagið á Stöðvarfirði. Guðrún
flutti til Reykjavíkur 1954 og starfaði
þá hjá Karh Jónssyni nuddlækni
umskeið. ,
Guðrún var formaður Austfirð-
ingafélagsins í Reykjavík 1974-84 og
hefur starfað mikið fyrir félagið. Þá
starfar hún í Kvenfélaginu Hringn-
um. Hún hefur spilað bridge hjá
Bridgefélagi kvenna um langt skeið.
Guðrún giftist 19.11.1955, Bent
Bjama Jörgensen, f. 25.8.1927, sem
lengi var starfsmaður Sveins Egiis-
sonar hf., en sem starfar nú hjá ís-
spori hf. í Kópavogi. Foreldrar
Bents voru Bjarney og Alfreð Jörg-
ensen.
Dóttir Guðrúnar og Bents er Aðal-
heiður, f. 11:5.1956, húsmóðir í
Reykjavík, var gift John Nolan golf-
kennara og eignuðust þau eina dótt-
ur, Maríu Guðrúnu, f. 3.1.1979, en
sambýlismaður Aðalheiðar er nú
Sigurbjartur Halldórsson, húsa-
smiðameistari við nám við Tækni-
skóla íslands, og eiga þau einn son,
Bent Bjama, f. 21.4.1988. Kjörsonur
Guðrúnar og Bents er Alfreð Bjami,
f. 29.4.1960, tamningamaður,
ókvæntur og barnlaus. Sonur Bents
er Ámi Ómar, f. 4.2.1950, starfsmað-
ur hjá Skipadeild Sambandsins,
kvæntur Bryndísi Hilmarsdóttur og
eiga þau tvo syni, Bjama, f. 16.5.
1974, og Hilmar Friðrik, f. 5.8.1976.
Guörún á þrjú systkini sem öh era
á lífi. Þau eru Þorsteinn, f. 12.2.1927,
verslunarmaður hjá Sambandinu í
Reykjavík, kvæntur Guðbjörgu
Jónsdóttur og eiga þau íjögur börn;
Sigurður, f. 11.2.1931, yfirverkstjóri
í Straumsvík, kvæntur Jónínu Ei-
ríksdóttur og eiga þau þijú böm, og
Brynhildur Guðlaug, f. 3.10.1932,
húsmóðir og ljósmóðir í Reykjavík,
gift Þórami Ingimundarsyni, húsa-
smið og bílstjóra, og eiga þau fimm
böm.
Foreldrar Guðrúnar voru Aðal-
heiður Sigurðardóttir, f. 3.8.1903,
d. 16.5.1988, húsmóðir, og Kristján
Þorsteinsson, f. 19.2.1905, d. 19.4.
1977, útvegsb. á Löndum á Stöðvar-
firði.
Bróðir Kristjáns er Einar Þór, pró-
fastur á Eiðum. Kristján var sonur
Þorsteins Kristjánssonar, b. á Lönd-
um, og konu hans, Guðlaugar Gutt-
ormsdóttur húsfreyju.
Þorsteinn var sonur Kristjáns, b.
á Löndum, Þorsteinssonar, b. á
Heyklifi, Sigurðssonar. Móðir Þor-
steins var Kristborg Erlendsdóttir,
b. á Þorgrímsstöðum, Gunnlaugs-
sonar. Móðir Erlends var Oddný
Erlendsdóttir, b. á Ásuimarstöðum,
Bjamasonar, ættfoður Ásunnar-
staðaættarinnar. Móðir Kristjáns
var Guðbjörg Jónsdóttir, b. á Keldu-
skógum, Guðmundssonar, bróður
Guðmundar, langafa Finns listmál-
ara og Ríkharðs myndskera Jóns-
sona. Systir Jóns var Vhborg, lang-
amma Halldóru, móður Ragnars
Hahdórssonar, stjórnarformanns
ísal. Móðir Guðbjargar var Guðrún
Guðmundsdóttir, prests í Berufirði,
Skaftasonar, bróður Árna, langafa
Magdalenu, ömmu Ellerts, ritstjóra
DV. Móðir Þorsteins á Löndum var
Margrét Höskuldsdóttir, b. á Þver-
hamri í Breiðdal, Bjarnasonar,
bróður Jóns, langafa Jóns, foður
Eysteins, fv. ráðherra, og Jakobs,
prests og rithöfundar, Jónssona.
Bjarni var sonur Stefáns, b. á Þver-
hamri, Magnússonar, prests á Hall-
ormsstað, Guðmundssonar, föður
Sigríðar, langömmu Benedikts, afa
Þórbergs Þórðarsonar. Móðir
Margrétar var Sigríður Jónsdóttir,
b. á Skriðu í Breiðdal, Gunnlaugs-
sonar, bróöur Erlends á Þorgríms-
stöðum. Móðir Sigríðar var Stein-
unn Jónsdóttir, systir Páls, langafa
Eysteins og Jakobs Jónssona.
Móðursystir Einars var Guðríður,
móðir Péturs, sýslumanns í Búöar-
dal, Skúla námsstjóra, og Páhnu
Þorsteinsdóttur, móður Bjöms Guð-
mundssonarlagaprófessors. Guð-
laug var dóttir Guttorms, prófasts á
Stöð, bróður Páls, afa Hjörleifs Gutt-
ormssonar alþingismanns og Sig-
urðar Blöndal skógræktarstjóra.
Annar bróðir Guttorms var Björg-
vin, afi Helga Þorlákssonar sagn-
fræðings. Guttormur var sonur Vig-
fúsar, prests á Ási, Guttormssonar.
Móðir Vigfúsar var Margrét Vigfús-
dóttir, systir Guttorms, langafa
Maríu, ömmu Hrafns Gunnlaugs-
sonar. Systir Margrétar var Ingunn,
lang-amma Þorsteins, skálds og rit-
stjóra, föður Gylfa, fv. menntamála-
ráðherra. Móðir Margrétar var
Bergljót Þorsteinsdóttir, systir
Hjörleifs, langafa Einars Kvaran.
Bróðir Bergljótar var Guttormur,
langafi Þórarins, föður Kristjáns
Guðrún Kr. Jörgensen.
Eldjárn. Móðir Guðlaugar var Þór-
hildur Sigurðardóttir, b. á Harðbak
á Sléttu, Steinssonar, b. á Harðbak,
Hákonarsonar. Móðir Steins var
Þórunn Stefánsdóttir, prests á
Presthólum, Scheving, bróður Jó-
runnar, ömmu Jónasar Hallgríms-
sonar.
Aðalheiður var dóttir Sigurðar, b.
í Urðarteigi við Berufiörð, Berg-
sveinssonar, b. í Urðarteigi, Skúla-
sonar. Móðir Aðalheiðar var Sigríð-
arHelgadóttir.
Steingrímur Jónsson
Steingrímur Jónsson flugvirki,
Hagamel 16, Reykjavík, er sextugur
ídag.
Steingrímur fæddist á Akureyri
en flutti eins og hálfs árs með for-
eldram sínum í Stykkishólm þar
sem faðir hans var sýslumaður.
Þegar Steingrímur var átta ára flutti
fiölskyldan í Borgarnes þar sem
hann bjó til tvítugs. Steingrímur
stundaði nám við skólann í Varma-
hhð í Skagafirði, við MA og Sám-
vinnuskólann í Reykjavík. Hann
byrjaði ungur í vegavinnu og stund-
aði hana fram yfir tvítugt, síðustu
árin á þungavinnuvélum. Þá vann
hann á Togaraafgreiðslunni um
skeið og var bílstjóri á Keflavíkur-
flugvelh.
Steingrímur hóf nám í flugvirkjun
hjá Embry & Riddle-flugskólanum á
Miami í Bandaríkjunum og lauk þar
prófum 1959. Eftir heimkomuna hóf
Steingrímur stöf hjá Flugfélagi ís-
lands og starfaði þar í þrjú ár, var
síðan hjá Loftleiðum 1962-75, síðan
aftur hjá Flugfélaginu fram að sam-
einingu félaganna,og hefur starfað
hjá Flugleiðum síðan.
Kona Steingríms er Molly Clark
Jónsson, f. 28.3.1932, af enskubergi
brotin.
Steingrímur á tvo syni frá fyrra
hjónabandi. Þeir eru Jón Stein-
grímsson, læknir í Reykjavík, f. 15.9.
1960, og Skorri Steingrímsson,
starfsmaður hjá Hólmveri í Stykkis-
hólmi, f. 29.8.1962.
Steingrímur á þijár systur. Þær
eru Benta Margrét Briem, f. 1925,
húsmóðir í Reykjavík, gift Valgarð
Briem lögfræðingi og eiga þau þrjá
syni; Guðný Schrader, f. 1927, hús-
móðir í Flódída í Bandaríkjunum,
gift William Schrader fulltrúa hjá
byggingafyrirtæki og á hún tvö
börn; Kristín Sólveig, f. 1933, hús-
móðir í Reykjavík, gift Ólafi Erni
Amarssyni, yfirlækni á Landakoti,
og eiga þau þrjú börn.
Foreldar Steingríms voru Jón
Steingrímsson sýslumaður, f. 14.3.
1900, d. 1961, og kona hans, Karitas
Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 20.12.
1899, d. 1986.
Karitas var systir Péturs í Málar-
anum. Karitas var dóttir Guðmund-
ar Péturssonar, bátasmiðs á Brunn-
stíg í Reykjavík, og konu hans
Margrétar Kolbeinsdóttur.
Jón var sonur Steingríms alþing-
ismanns, sýslumanns á Húsavík og
síðar bæjarfógeta á Akureyri, bróð-
ur Kristjáns Jónssonar, alþingis-
manns, háyfirdómara, amtmanns
og ráðherra, og Péturs Jónssonar,
cdþingismanns ográðherra. Systir
Steingríms var Sigrún, móðir Stein-
gríms Steinþórssonar forsætisráð-
herra. Önnur systir Steingríms var
Rebekka, móðir Haraldar Guð-
mundssonar, alþingismanns, for-
manns Alþýðuflokksins og ráð-
herra. Rebekka var einnig móðir
Sigurðar, föður Jóns Sigurðssonar,
alþingismanns og viðskiptaráð-
herra.
Steingrímur var sonur Jóns, al-
þingsmanns á Gautlöndum Sigurðs-
sonar, ættföður Gautlandsættarinn-
ar, Sigurðssonar, b. á Gautlöndum,
Jónsson, b. á Mýri í Bárðardal, for-
föður Mýrarættarinnar, Halldórs-
sonar.
Móðir Steingríms var Sólveig,
systir Jakobínu, konu Gríms
Thomsens skálds. Önnur systir Jak-
obínu var Valgerður, móðir Hall-
dóra, konu Tryggva Gunnarssonar,
alþingismanns og bankastjóra. Val-
Steingrímur Jónsson.
gerður var einnig móðir Hólmfríð-
ar, konu Arnljótar Ólafssonar,
prests í Sauðanesi, hagfræðings og
alþingismanns. Bróðir Sólveigar
var Pétur, afi Jóns Ármanns, föður
Áka Jakobssonar alþingismanns og
ráðherra, ogÁrmanns útvegs-
bankastjóra, föður Jakobs aðstoðar-
bankastjóra. Annar bróðir Sólveig-
ar var Jón á Lundabrekku, faðir
Valgerðar, konu Jóns, alþingis-
manns í Múla, föður Árna, alþingis-
manns í Múla, föður Jónasar, fyrrv.
alþingismanns og Jóns Múla, út-
varpsmanns og tónskálds. Þriðji
bróðir Sólveigar var Benedikt á Ref-
stað, faðir HaUgríms alþingis-
manns, föður Geirs, fyrrv. forsætis-
ráðherra og alþingsmanns. Bene-
dikt var afi Elísabetar, konu Þor-
valdar Garðars Kristjánssonar al-
þingismanns. Sólveig var dóttir
Jóns, prests í Reykjahlíð í Mývatns-
sveit, Þorsteinssonar, forföður
Reykjahlíðarættarinnar.
Elín Óskars-
dóttir
Elín Óskarsdóttir húsmóðir, til
heimilis aö Vesturbergi 92, Reykja-
vík.erfertugí dag.
Elín fæddist á Seyðisfirði og ólst
þar upp í foreldrahúsum. Hún lauk
gagnfræðaprófi frá Eiðaskóla og
starfaði á unghngsáranum við síld-
arsöltun.
Elín giftisfl.il. 1969, Bjarna Bær-
ings kaupmanni, f. í Reykjavík, 23.8.
1949. Foreldrar Bjama vora Ásta
Bæringsdóttir húsmóðir og Halldór
Guðjónsson vélstjóri en þau eru
bæði látin.
Elín og Bjarni eiga þrjú börn. Þau
eru Halldór Bærings, f. 15.5.1969,
starfsmaður hjá föður sínum í Ljós-
myndaþjónustunni hf; Dagur Bær-
ings, f. 21.1.1976, ogÁsta Bærings,
f. 8.12.1981.
Elín á sex systkini. Þau eru Þór-
dís, húsmóðir á Seyðisfirði, gift
Trausta Magnússyni útgerðar-
manni og eiga þau sex börn; Guð-
rún, húsmóðir á Akureyri, gift Sig-
urði Hjaltalín og eiga þau átta böm;
Fanney, húsmóðir í Hafnarfirði, gift
Guðmundi Björgvinssyni og eiga
þau átta börn; Hrafnhildur, hús-
Elín Óskarsdóttir.
móðir á Rifi á Snæfellsnesi, gift Þor-
geiri Ámasyni vertaka og eiga þau
fiögur börn; Guðjón, netagerðar-
maður á Seyðisfirði, kvæntur Aldísi
Kristjánsdóttur húsmóður og eiga
þau tvær dætur; Finnur, verkstjóri
á Seyðisfirði, kvæntur Ingu Sigurð-
ardóttur og eiga þauþrjú böm.
Foreldrar Elínar: Óskar Finnsson,
verkamaður á Seyðisfirði, og kona
hans, Sigrún Guðjónsdóttir.
AXSTOB.
EB
JFEROAR
AKSTOB
85 ára
Steinunn Sigurðardóttir,
Bólstaðarhlíð 64, Reykjavík.
Magnús G. Kristjánsson,
Drápuhlíð 8, Reykjavík.
80 ára
Jón Jónasson,
tYeyjugötu 44, Reykjavík.
Hörður Tryggvason,
Svartárkoti I, Bárödælahreppi.
75 ára
Guðjón Jóhannesson,
Strandgötu 12, Hvammstanga.
70 ára
Hansína Sigurbjörg Hjartardóttir,
Strandgötu 7, Hvammstanga.
Hallgrímur H. Egilsson,
Reykjamörk 11, Hveragerði.
50 ára
60 ára
Böðvar Valtýsson,
Búlandi 17, Reykjavík.
Erla Aðalsteinsdóttir,
Urðarbraut 20, Blönduósi.
Sigurlilja Þórólfsdóttir,
Þórastíg 8, Njarðvíkum.
Óskar John Bates,
Hellisgötu 5, Hafnarfirði.
Helga Aðalsteinsdóttir,
Klettavík 7, Borgarnesi.
Inga Guðmundsdóttir,
Hlíðargötu 20, Þingeyri.
Ingigerður Guðmundsdóttir,
Kjarrholti 2, ísafirði,
María Þórarinsdóttir,
Tjarnarseli 4, Reykjavík.
Birgir Guðjónsson,
Áshamri 6, Vestmannaeyjum.
Guðný Stefánsdóttir,
Álfabergi 24, Hafnarfirði.