Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1989, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR’25.'JÚLÍ'1989. ■
3
Fréttir
m Harðræði í fiskeldi í Noregi:
íslendingar geta orðið
undir í samkeppninni
segir Ragnar Haugan hjá norska útflutningsráðinu
Björg Eva Erlendsdóttír, DV, Osló
„Nú þurfum viö aö komast betur
inn á nýja markaði,“ sagöi Ragnar
Haugan í norska útflutningsráðinu
fyrir eldisfisk í Þrándheimi.
„Viö bindum miklar vonir við jap-
anska markaðinn sem hefur veriö í
miklum vexti aö undanfómu. Ég
held ekki að offramleiösla sé ástæðan
fyrir verðlækkunum á eldisfiski í
Evrópu og Bandaríkjunum að und-
anfcrnu."
Ef áfram harðnar á dainum telur
Haugan að íslendingar geti orðið
undir í samkeppninni við Norðmenn
um markaði.
„Við Norðmenn framleiðum helm-
ingi meiri lax en þið smáframleið-
endumir allir til samans. Mikil
reynsla og nákvæmt gæðaeftirlit
styrkir líka stöðu Norðmanna gagn-
vart öðrum útflytjendum.“
Haugan segir að fregnir af verð-
hruni á eldisfiski, sérlega á frönskum
markaði, séu mjög yfirdrifnar.
Franski markaðurinn er mikilvægur
hluti af heildarútflutningi Norð-
manna og þrátt fyrir nokkurn þrýst-
ing og verðlækkanir er salan mjög
góð og verðið þolanlegt enn þá. En
ef verðið lækkar enn meir getur það
vissulega leitt til gjaldþrota hjá fyrir-
tækjum sem nú þegar eiga við rekstr-
arerflðleika að stríða. Allmikil lækk-
un hefur orðið á Bandaríkjamarkaði,
bæði á laxi og urriða, en svo virðist
sem sömu áhrifa gæti þar og í
Frakklandi. Vonir standa til aö verð-
ið hækki þar með haustinu, segir
Haugan án þess aö geta fært nein rök
fyrir þeirri bjartsýni.
„Okkar mikilvægasta verkefni
framundan er að styrkja stöðu okkar
á nýjum mörkuöum og halda uppi
sem fullkomnustum gæðurn," segir
Ragnar Haugan í útflutningsráðinu
sem er hiuti af sölufélagi norskra
eldisfiskframleiðenda, Fiskeopp-
drettefnes falgslag í Þrándheimi.
Hressar konur á ferð
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Það er óhætt að segja að það hafi
veriö nokkuð létt yfir hópi
vestfirskra kvenna sem DV hitti á
Alexandersflugvelli á Sauðárkróki á
dögunum.
í ljós kom að þar voru á ferð konur
frá ísaflrði, Súgandafirði, Hnífsdal
og fleiri stöðum á Vestfjörðum og
þetta var einungis hiuti 23 kvenna
þaðan sem höfðu verið í „húsmæðra-
orlofi“ á Norðurlandi. Þegar DV bar
að biðu þær eftir flugi heim á leið
eftir vel heppnaða ferð.
Ferð þeirra var skipulögð af Hótel
Áningu á Sauðárkróki en hótehð
býður upp á það sem kallað er „Sælu-
dagar Áningar“ og er það boð fyrir
félagasamtök, starfsmánnafélög og
samtök aldraðra víðs vegar um
landið.
„Þetta er búið að vera alveg æðis-
legt,“ sögöu konurnar einum rómi.
„Það versta var að við fórum á ball
og það voru engir karlar þar!“ og
þessu fylgdi mikill hlátur.
Hluti vestfirsku orlofskvennanna á flugvellinum á Sauðárkróki. DV-mynd gk
Samsetning eigna í sjóði
að baki Skammtímabréfum
32,5% Spariskírteini
ríkissjóðs
Öruggustu verðbréfin
á markaðnum, Ríkis-
sjóður íslands greið-
andi.
67,5% Skuldabréf
banka og sparisjóða
Skuldabréf útgefin af
bönkum og stærstu
sparisjóðunum. Teljast
því með öruggustu
verðbréfunum á mark-
aðnum.
Hvað stendur að baki
verðbréfasjóðnum þínum?
KAUPÞING HF
Húsi verslunarinnar, sími 686988