Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1989, Page 5
5
•; ( : l i . < li IJ í ■ I
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989.
Fréttir
Þessa dagana er unnið við steypuvinnu af miklum skörungsskap á þyrlupallinum á varðskipinu Óðni sem er við Kolbeinsey. Á þilfari varðskipsins mala nú
3 steypuhrærivélar með óhljóðum og gauragangi. Verið er að steypa í sprungur á eyjunni og byggja þyrlupall sem er hannaður með 35° fiáa svo hafís
renni frekar yfir hann í stað þess að brjóta á pallinum. DV-myndir Jakob Ólafsson
Steypuframkvæmdir ganga vel í Kolbeinsey:
Sprungurnar meiri en
áætlað var í upphafi
Við erum búnir að steypa um 30
rúmmetra úti í eyjunni. Sprungum-
ar voru meiri en áætlað var í upp-
hafi - eyjan er að gliðna í tvennt. Við
reiknum nú með að steypa um 90 m3
í stað 60 m3 eins og gert var ráð fyrir
í byijun“, sagði Sigurður Steinar
Ketilsson, skipherra á varðskipinu
Óðni, í samtali við DV.
„Þetta er mjög skemmtilegt verk-
efni þar sem allir sem vettiingi geta
valdið eru í steypuvinnu. í áhöfhinni
eru 22 menn. Auk þess komu með
okkur hingað 4 iðnaðarmenn og 4
verkamenn. Við gerum ráð fyrir að
ljúka steypuvinnu á fimmtudaginn
en frágangi á fostudaginn. Veðrið er
búið að vera eins og við hefðum pant-
að það sjálfir. Svo er bara að vera
bjartsýnn á framhaldið þó að þoka
og hafís geti reyndar haft einhver
áhrif.
Skammt frá Kolbeinsey var sker
sem við höfum ekki fundið. Ég tel
að það sé vegna hafíssins sem kemur
þama á fullri ferð og eyðir því sem
fyrir verður. Þess vegna er þyrlupall- 35° fláa þannig að hafísinn á að geta
urinn á Kolbeinsey hannaður með farið yfir hann í stað þess að brotna
Steingrímur J. Sigfússon samgönguráðherra kom og leit á aðstæður hjá
steypumönnum á laugardaginn. Hér er hann á gúmmibáti á leið frá Óðni
til Kolbeinseyjar.
á honum. Eyjan eyðist meira vegna
hafíss en sjávargangs.
Annars eru þessar framkvæmdir
aðeins byrjunin á stærra verkefni.
Bráðlega verður farið að huga að enn
stærri framkvæmdum við eyjuna -
þetta er aðeins byijunin. í þessar
viðgerðir er varið 3,4 milljónum
króna en mér finnst að stjómvöld
eigi að opna pyngjuna aöeins betur.
Hér er um mikilvægt atriði að ræða
vegna grunnlínunnar. Ef eyjan
hverfur minnkar lögsaga okkar um
10 þúsund ferkílómetra.
Þaö var ipjög gaman að fá yfirmenn
þessara mála til að taka þátt í þessu
með okkur. T.d. kom Steingrímur J.
Sigfússon á trillubát frá Grímsey á
laugardaginn og leit á aðstæður. Auk
þess lögðu þeir Hermann Guðjóns-
son, vita- og hafnamálastjóri og
Gunnar Bergsteinsson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, upp í ferðina
með okkur á fostudaginn. Þeir fóru
síðan í land á Akureyri í gær,“ sagði
Sigurður Steinar skipherra.
-ÓTT
bankans
muni rætast
- segir Benedikt Davíðsson
„Ég er ekki ósáttur við þessa
spá ef hún gæti staðist," sagði
Benedikt Davíðsson, formaður
Sambands almennra lífeyris-
sjóöa.
Seðlabankinn vinnur nú að
endurskoðun á spá sinni um ráð-
stöfunarfé lífeyrissjóðanna. (
fiárlögum var gert ráð fyrir að
það yrði um 16,1 milljarður en í
maí síöastliðnum iiækkaði bank-
inn spá sína í 16,9 til 17,1 milljarð.
„Þaö er fátt sem bendir til þess
að heildartekiur fólks verði meiri
á þessu ári en því síðasta. Allra
síst ef þaö verður mikið um land-
flótta og fiskkvótar veröa að
mestu búnir 1 september. Þá
verður ek-ki mikið um yfirvinnu
í þeim greinum og lítiö um lífeyr-
issjóðsgreiðslur. Mér þykir því
óvarlegt að ætla að ráðstöfunarfé
sjóðanna hækki frá því sem ráð
var fyrir gert í vetur en ég held
að Seðlabankinn geri nú ráð fyrir
17 til 18 milljarða tekjum."
- Leiða gengisfellingar ekki til
aukinnar verðbólgu og þar með
aukinna tekna lífeyrissjóðanna?
„Ég er ekki viss um aö aukin
verðbólga leiði til aukinna tekna,
Ef samdráttur í atvinnuhfinu er
mikill vegur það á móti. Ég hefði
ekkert á móti þvi að þetta gengi
eftir en ég er bara ekki trúaöur á
það.“
- Ef þetta gengur eftir sem þú
segir þá bresta í raun foi-sendur
þeirra aðgerða sem rikisstjómin
greip tii vegna hallans á fiárlög-
um þessa árs þar sem þær vom
á tvennan hátt bundnar auknum
ráöstöftinartekjum lífeyrissjóð-
anna?
„Ég skal ekkert segja um hvaða
leiðir stjórnin hefur aðrar til að
stoppa í þetta gat En matið á
ráðstöfunarfé sjóöanna finnst
mér orka mjög tvímælis. Það hef-
ur alltaf verið rangt og oftar of
hátt. Ég man ekki til þess að hafa
fengiö of lága spá,“ sagði Bene-
dikt.
Ingvi Örn Kristinsson, hag-
fræðingur í Seðlabanka, sagði að
spár Seðlabankans heföu yfirleitt
verið of lágar fram aö þessu.
Bæði væri að spárnar væru gerð-
ar í tengslum við fiárlög og þar
væri oft um fullbjartsýnar spár
um verð- og launaþróun að ræða
og eins reyndi bankinn að gæta
hófs í þessum spám þar sem út-
lánastefna Húsnæðisstofnunar
væri mótuð á grunni hennar.
-gse
Mokveiði á VestQarðamiðum:
Togarar fylla
sig á þremur til
fjórum dögum
Keynir TrauBtasoo, DV Flaleyxi; veri<> aö s|S á þremur 01 ÖÓr-
„■■1—.............. um dögum.
Mokveiði af þorski hefur verið Fá skip eru nú á Vestfiarðamið-
ftjá togurum á Vestfiarðamiðum um ef miðað er við sama tíma und-
síðustu daga eftir ördeyðu undan- anfarinárogástæðanersúaöflest-
farinnavikna. Góðveiðihefurver- ir eru langt komnir með þorsk-
ið allt firá kantinum vestan við kvótasína.
HalannogausturáStrandagrunn. Skipin eru að veiðum við ísinn
Dæmi eru um að einstakir togar- sem hefur hörfað frá landi að und-
ar hafi fengið allt að 100 tonn á anfömu.
sólarhring og hafa skipin almennt
Stórkostleg útsala
30-95% afsláttur
Herra
Dömu
Bama
Stærð 36-41 Stærð 36-41 Stærð 40-45
Áður 2.195,- Áður 3.420,- Áður 3.620,-
Nú 1.097,- Nú 1.990,- Nú , 1.499,-
Skóbúðin i #
C>f%cícm
Laugavegi 89
Sími 22453.