Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1989, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989.
9
Leðursófasett
hornsófar
og borð í
miklu úrvali.
Við erum í
NUTIÐ
HUSGOGPf
Faxafeni 14, s. 680755,
Utlönd
Thatcher stokkar upp í stjóminni:
Stórfelldar
breytingar
Sir Geoffrey Howe, sem veriö hefur
utanríkisráðherra Bretlands, tekur
nú við stöðu varaforsætisráðherra
landsins. Víð stööu Howe tekur John
Major, 46 ára gamall fyrrum aðstoð-
arfjármálaráðherra. Margaret
Thatcher, forsætisráðherra Bret-
lands, tilkynnti um þessar breyting-
ar í gær en þær eru hluti uppstokk-
unar í stjórn hennar til að koma í
veg fyrir síauknar óvinsældir. Eru
þetta mestu breytingar sem Thatcher
hefur staðið fyrir á tíu ára valdatíma
sínum.
Paul Channon samgöngumálaráð-
herra var annar tveggja sem fékk
reisupassann í gær en við stöðu hans
tekur Cecil Parkinson. Varnarmála-
ráðuneytið skipti einnig um hendur
en við æðstu stöðu þar af George
Younger, sem sagði af sér, tekur Tom
King, fyrrrnn írlandsmálaráðherra.
Lord Young, sem farið hefur með
málefni viðskipta- og iðnaðar, sagði
einnig af sér og við af honum tekur
Nicholas Ridley sem var með um-
hverfismálin á sinni könnu. Við
þeirri deild tekur Christopher Patt-
en.
Kenneth Baker tekur nú við for-
mannsembætti íhaldsflokksins og
hefur því kosningabaráttuna fyrir
næstu kosningar, líklega árið 1992, á
sinni könnu. Segja fréttaskýrendur
að útnefning Bakers og Majors sé til
marks um hveijir þykji líklegir til
að taka við leiðtogaembætti flokksins
af Thatcher.
Það sem kemur einna mest á óvart
er útnefning Major, tiltölulega
óþekkts 46 ára stjórnmálamanns, í
eina af hæstu stöðum Bretlands.
Bresku blöðin telja að með þessu sé
Thatcher að segja til mn hvern hún
vilji fá sem sinn arftaka. Annar ung-
ur og tiltölulega óþekktur er Patten
sem tekur við hinu umdeilda emb-
ætti umhverfisverndarmála.
Reuter
John Major, hinn nýi utanríkisráðherra Bretlands, að loknum viðræðum við
Thatcher. Simamynd Reuter
Ósammála um
áhrrfin
Hagfræðingar eru ekki á eitt sáttir
um hvort samkomulag það sem er-
lendar lánastofnanir og stjórn Mex-
íkó náðu um helgina, um greiðslu á
rúmlega fimmtíu milljörðum dollara
af erlendri skuld landsins, gefi
stjómvöldum þar í landi nægilegt
svigrúm til að auka hagvöxt. Sam-
komulagið gerir ráð fyrir þremur
möguleikum, niðurfelhngu þriðj-
ungs skuldarinnar, föstum vöxtum
eða möguleikanum á nýjum lánum.
Segja hagfræðingar að prófsteinn-
inn á samninginn sé hvernig hinir
450 hlutaðeigandi erlendu bankar og
lánastofnanir bregðast við honum.
Aðeins einn hður samningsins kveð-
ur á um raunverulegan niðurskurð
lána.
Þá er einnig óljóst hvaða áhrif sam-
komulag þetta hefur á skuldir ann-
arra þjóða. Mexíkó er þriðja skuldug-
asta þjóð þróunarlanda, skuldar ahs
rúmlega eitt hundrað mihjarða doh-
ara en samningurinn frá því um
helgina tekur th um helmings þeirr-
ar upphæðar.
Reuter
Ökumælar
Haldex
VDO
Almennar
barkaviðgerðir
Tökum notaða
mælaupp í nýja!
GunnarÁsgeirsson hf.
Suðuriandsbraut 16,108 Reykjavlk - Slmi 91-680 780
AUKABLAÐ
UM
FERÐALÖG
INNANLAIiDS
ÁMORGUM
24síðna aukablað um innlend ferðamál
fylgir DV á morgun
Meðal efnis:
Útihátíðir verslunarmannahelgarinnar,
maturinn í útileguna,
Qallaferðir á hestum, flakkað um Austur-
Skaftafellssýslu, meðferð tjald- og hús-
vagna, hvernig hafa á ofan af fyrir börnum
í bílnum, seglbrettasiglingar, KeriingarQöll
o.fl. o.fl.
Ferðablað
á morgun
Hraðakstur er orsök margra slysa. Miðum
hraða alltaf við aðstæður, m.a. við ástand
vega, færð og veður.
Tökum aldrei áhættu! M É umferðar
Uráð