Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1989, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989.
Lesendur
Um borð í Brúarfossi:
Tímabær tilbreyting
I Eimskipafélagsskipunum, Brúarfossi og Laxfossi, er afar þægilegur
aðbúnaður og frábær þjónusta fyrir farþega, að mati bréfritara.
Ánægður farþegi skrifar:
Mér finnst ég ekki geta látið hjá
líða að geta um afarþægilegan aö-
búnað og þjónustu sem stendur til
boða um borð í skipum Eimskipafé-
lagsins, Brúarfossi og Laxfossi. Ég
er einmitt nýkominn heim sem far-
þegi með Brúarfossi frá Evrópu og
naut ferðarinnar til hins ýtrasta.
Þar er nú fyrst til að taka að far-
þegaklefamir eru mjög rúmgóðir,
með tveimur breiðum og góðum
rúmum, sófa, skrifborði og stól,
sjónvarpi og nægu skáparými og
sérstoku bað- og snyrtiherbergi
með hverjum klefa. Þá er sérstakur
matsalur fyrir farþega og einnig
setustofa.
Einnig er um borö aðstaða til lík-
amsræktar og nægir hún fyllilega
þeim sem á annað borð stunda
hana reglulega og vilja ekki láta
hana falla niður þá daga sem siglt
er. Góð „sauna“ er þar einnig. Á
þilfari geta þeir sem vilja njóta sól-
ar eða útilofts setið í sólstólum þeg-
ar þannig viðrar.
Áhöfn skipsins er samhent um
að láta farþega finna að þeir séu
ekki afskiptir og lífið um borð er
afslappað og hvílandi. Matur er sá
sami fyrir alla um borð en hann
er bæði mikill og góður.
Það var í sannleika tímabært að
geta átt kost á að fara frá landinu
eða koma heim með skipi. Ég valdi
síðari kostinn og sé ekki eftir því.
Einnig getur fólk tekið heila hring-
ferð með eða án bifreiðar og enn-
fremur farið af þar sem því þykir
henta í þeim íjórum löndum þar
sem skipið hefur viðkomu. Maður
á vonandi eftir að fara í raunveru-
lega „siglingu" aftur á þennan
máta.
Frakklandsdagskráin í sjónvarpinu:
Rugl og tætingur
Gunnar hringdi:
Sjaldan hef ég horft á annað eins
rugl í dagskrá sjónvarpsins og þegar
ég álpaðist til að setjast niður til að
horfa á rúmlega tveggja tíma langa
útsendingu frá hátíðargöngu í beinni
útsendingu frá París í tilefni bylting-
arafmælis Frakka.
Ég er þess fullviss að fyrir áhorf-
anda á staðnum hefur þetta verið til-
komumikið, ekki síst þegar Qugelda-
sýningin hófst í næturkyrrðinni. En
að bjóða áhorfendum upp á þetta í
sjónvarpi er alveg út í hött.
Þetta er kannski vel meint hjá dag-
skrárstjóra sjónvarpsins - og ekkert
„kannski‘‘ með það. Ég er þess næst-
um fullviss að svo er - en þetta var
alltof langdregið og í það heila tekið
ekkert augnayndi. Góð bíómynd er
það sem fólk vill sjá á síðkvöldi,
sunnudagskvöldum, laugardags-
kvöldum og reyndar öll kvöld.
Og fyrir alla muni farið nú ekki að
byrja á vandamála- og slysaþáttum
eina ferðina enn. Afleiðingar vímu-
efnaneyslu, drykkjuskapar, bifreiða-
slysa og hvað þetta heitir allt saman.
Svoleiðis þættir eru að verða þrúg-
andi á þjóðinni.
„Rógur“ gegn landbúnaði?
Landsbyggðarmaður í Reykjavík
skrifar:
í útvarpinu, rás 1, var fyrir nokkr-
um dögum þáttur um landbúnaðar-
mál. Viðtal var þar við konu eina sem
er aðstoðamaður landbúnaðaráð-
herra. Þessi kona viðhafði stór orð
um Dagblaðið Vísi og aðra þá fjöl-
miðla sem „stunduðu róg um land-
búnaðinn". - Nú væri nóg komið!
o.s.frv., o.s.frv.
Ég vildi bara koma því að að MÉR
finnst nóg komið af þessari tilætlun-
arsemi sem forsvarsmenn tófu- og
rollubænda stunda með málflutningi
sínum. Ég tek af heilum hug undir
þau skrif sem t.d. DV hefur haft for-
göngu um, einkum annar ritstjóri
blaðsins, svo og utamíkisráðherra,
Jón Baldvin Hannibalsson.
Það verður með öllum tiltækum
ráðum að koma í veg fyrir áfram-
haldandi óstjórn í íslenskum land-
búnaði og finna leið til að sætta sjón-
armið landsbyggðarinnar, sem snúa
að búskap og fólks á þéttbýlissvæð-
um annars staðar á landinu.
Með áframhaldandi fjáraustri og
eftirlátssemi við íslenskan land-
búnað stendur ekki steinn yfir steini
í efnahag landsmanna. Það er þegar
farið að örla á uppgjöf flestra þeirra
sem nálægt stjórnun koma og telja á
ábyrga fyrir fjárveitingum til land-
búnaðarmála.
Opinber könnun á matvælaverði:
Enn ein sýndarmennskan
Helga skrifar:
Ég var að lesa um það í einu dag-
blaðanna, Alþýðublaðinu að sjálf-
sögðu, að viðskiptaráðuneytið hefði
falið Hagfræðistofnun Háskóla ís-
lands (vissi ekki einu sinni að sú
stofnun væri til) að gera hagfræði-
lega könnun á matvælaverði hér á
landi. Bera á saman og kanna verð-
myndun hér miðað við í nágranna-
löndunum.
Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipt-
ið sem þetta er gert. Margar slíkar
kannanir hafa verið gerðar en lítið
sem ekkert komið út úr þeim. Niður-
stöður haía verið birtar en ekkert
hefur verið aðhafst. Allir vita að
skýringamar á okurháu verði á vör-
um og þjónustu hér á landi má rekja
til framleiðslu, dreifingarkerfis og
hreinlega álagningar sem hér ér mun
hærri en þekkist annars staðar á
byggðu bóli.
En er hinu opinbera svo leitt sem
það lætur? Er ekki í hag hins opin-
bera að halda verðlagningu í há-
marki. Því hærri söluskattur og þeim
mun hærri tollar og skattar sem
koma í ríkiskassann.
Talsmaður hins opinbera, sem er
aðstoðarmaður viðskiptaráðherra,
sagði í fréttinni að markmið áður-
nefndrar könnunar væri að finna
skýringu á hinu háa verði en hún
yrði áreiðanlega ekkert einfold! - Já,
það megum við bóka að þar hefur
hann rétt fyrir sér, hún verður ekki
einföld. Og áfangaskýrslu er svo að
vænta í næsta mánuði og loka-
skýrslu í október! Það er langt þang-
að til. Það er líka eins gott fyrir hið
opinbera - ekki fyrir okkur sem
borgum brúsann.
Sundlaugar á íslandi:
Hvar
■ B ■
,,Syndari“ skrifar:
í tilefhi sundmeistaramóts ís-
lands, sem haldið var x sundlaug-
unum í Laugardal fyrir skömmu,
finnst mér ég tilneyddur til að
láta frá mér heyra. Mótið var
haldið í einu íslensku boðlegu 50
metra keppnislauginm - útisund-
laug þar sem oft er rok og rigning
og talsverður kuldi.
í maímánuði var hér haldið
sundmót með erlendum þátttak-
endum og var hrikalegt að sjá
sundfólkiö í kuldanum og rokinu.
Það þarf að bæta aöstööuna ef
erlent sundfólk á að sjá einhvera
tilgang í því að koma hingað. Ég
reikna með að það verði erfitt.
Það er löngu orðið tímabært að
setja hér upp 50 metra innilaug
sem ætti að geta þjónað almenn-
ingi, sundíþróttinni og ekki síst
sundkennslu. - Það er ömurlegt
að horfa upp á sundkennslu fara
fram, Ld, í bogalauginni við
rennibrautina í Laugardal, í roki
og kulda.
Útisundlaugar eru „bakteríu-
bæli“. Læknir hefur rannsakað
sundlaugarnar í Laugardal og
kora þar ýmislegt í ljós. Viðkom-
andi læknir hefur látið eftir sér
hafa að hann fari aldrei í Laugar-
dalslaugina. - Margt fólk sera
stundar útisundlaugar að stað-
aldri á það til að fá í eyrun og
slímhimna í nefi getur auðveld-
lega sýkst.
Þótt við eigum hitavatnsauð-
lindir hlýtur eitthvaö að kosta að
kynda allar þessar útisundlaug-
ar. Að vetrarlagi skilar sér hvorki
sundkennsla né sundþjálfun þeg-
ar leiðbeinandi sér varla ofan í
laugina fyrir gufu. - Yfirbygging-
ar þurfa ekki að kosta milljónir
á milljónir ofan. Það þarf t.d. ekki
2-3 m breiða steinveggi. Þaö á
einfaldlega að byggja á ódýran
hátt. Leitum ráða hjá nágranna-
þjóöum okkar. Það er nær eins-
dæmi aö byggðar séu útilaugar
nema í hitabeltislöndum og á ís-
landi. Þaö hlýtur að vera hægt
aö reisa laug sem hægt er að nota
sem innilaug á vetrum en útilaug
í „sólarlandaveöri" okkar íslend-
inga.
13
Kennarar!
Kennara vantar að Grenivíkurskóla. Aðalkennslu-
grein: Stærðfræði í 7. og 9. bekk.
Uppl. gefur Björn Ingólfsson skólastjóri í síma
96-33131 eða 96-33118.
UTSALA
20-70% afsláttur
Snyrtivöruverslunin TARÝ
Rofabæ 39
Snyrtivöruverslunin TARÝ
Reykjavíkurvegi 60, Hafnarfirði
HVERVANN?
Vinningsröðin 22. júlí:
X21 -X21 -111-112
Heildarvinningsupphæð: 205.652 kr.
12 rétlir = 143.992 kr.
1 var með 12 rétta - og fær 143.992 kr. í sinn hlut.
11 réttir = 61.660kr.
17 voru með 11 rétta - og fær hver 3.627 kr. í sinn hlut.
Dömu- og henahárkollur
og toppar frá
Mandeville
OF LONDON
Sérhver hárkolla og hártoppur er búinn til eftir
þörfum hvers og eins.
Ráðgjafi frá Mandeville of London
verður þessa viku hér á landi
á eftirtöldum stöðum:
REYKJA VÍK: Rakarastofan Klapparstíg, sími
12725.
AKUREYRI: Hársnyrting Reynis, Strandgötu
6, sími 24408.
KEFLA VÍK: Klippótek, Hafnargötu 34, sími
13428.