Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1989, Síða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989.
íþróttir
Kvennaknattspyma:
Skaginn
vann Val
Skagastúlkur unnu Valsstúlk-
ur á Hlíðarenda í gærkvöldi í bik-
arkeppni KSÍ og tryggðu sér þar
með rétt til aö leika í úrslitum í
6. skiptið. Leikurinn var mjög
jafn og var greinilegt að hvorugt
liðið ætlaði að gefa sig. Hvorugt
liðið náði að skapa sér hættulegt
marktækifæri í fyrri hálfleik. Það
var um miðjan seinni hálfleik
sem Skagastúlkur náðu að skora
eftir mikinn barning í vítateig
Vals. Það var Jóna Víglundsdótt-
ir, fyrirliöi Skagaliösins, sem
skoraði framhjá Sigrúnu Norð-
fjörð. Valsstúlkur fengu 5 mínút-
um síðar ágætisfæri til að jafha
en Skagastúlkur björguðu á ell-
eftu stundu og þar með voru þær
búnar að tryggja sér sigur í leikn-
um. Skagastúlkur hörðust betm:
og uppskáru laun erflðisins. Þess
má geta að þær hafa tapað fimm
úrslitaleikjum í bikarkeppninni
og eru greinilega orðnar himgr-
aðar í titil og leika annaðhvort
við KA eða Þór í úrslitum
I síðustu viku fóru fram þrír
leikir í deildinni. Breiöablik vann
KR á KR-vellinum, 2-1, með
mörkum frá Sigrúnu Óttarsdótt-
ur og Kristrúnu L. Daöadóttur en
mark KR gerði Jóna Kristjáns-
dóttir. Blikastelpurnar voru
meira meö boltann en sköpuöu
sér ekki nein hættuleg tækifæri.
KR-Iiðið var slakt fyrir utan Söru
Smart sem er ung og efhileg og á
framtíöina fyrir sér.
ÍA vann KA, 2-1, á Akureyri.
Ásta Benediktsdóttir skoraði
baeði mörk Skagaliðsins en mark
KA skoraði Hjördís Úlfarsdóttir.
ÍA hafði leikinn í hendi sér þó svo
að tölurnar gefi þaö ekki til
kynna.
Þórsstúlkur unnu sinn fyrsta
sigur í deildinni er þær lögðu
Stjömuna úr Garðabænum að
velli norðan heiða, 1-0. Ellen
Óskarsdóttir skoraði markiö á 41.
rainútu leiksins. Stjömuliðið var
rajög slakt og voru stúlkumar
heppnar aö fa ekki á sig fleiri
mörk en Þórsliðið spilaði ágætan
bolta en liðið hefúr átt mjög erfitt
uppdráttar í sumar.
-MHM
Islandsmótið - 3. og 4. deild:
Grindavík
og ÍK unnu
Grindavík og Grótta eru jöfn í efsta
sæti A-riöils 3. deildar en bæði liðin
unnu sigra í gærkvöldi.
• Grindavík vann Víkverja, 3-2, í
hörkuleik. Þórarinn Ólafsson og Ól-
afur Ingólfsson komu Grindvíking-
um í 2-0 áöur en bræðurnir Bergþór
og Magnús Magnússynir jöfnuðu
fyrir Víkverja. Þegar 5 mínútur voru
til leiksloka gerðu Víkverjar sjálfs-
mark og Grindvíkingar fógnuðu
naumum sigri.
• ÍK-menn lögðu Leikni, 3-1, í
Kópavogi. Júlíus Þorfinnsson skor-
aði tvö mörk fyrir ÍK og Stefán Pét-
ursson gerði eitt mark. Jóhann Við-
arsson skoraði fyrir Leikni.
• Badmintonfélag ísafjarðar vann
stórsigur á Aftureldingu í Mosfells-
bæ. Lokatölur urðu 5-2. Sævar Æv-
arsson gerði tvö af mörkum ísfirð-
inga og þeir Stefán Tryggvason,
Pálmi Gunnarsson og Haraldur
Benediktsson eitt mark hver.
• Grótta tók á móti Hvergerðing-
um á Seltjarnamesi og sigruðu
Gróttumenn, 2-0. Ögmundur Krist-
insson tók fram skóna og lék í marki
Hvergerðinga en það dugði ekki til.
Gísli Magnússon og Þorsteinn Guð-
jónsson skoruðu fyrir Gróttu.
• í B-riðlinum léku Valur og
Kormákur á Reyðarfirði. Valsmenn
sigruðu í leiknum, 4-2. Lúðvík Vigg-
ósson, Ingólfur Guðmundsson,
Sindri Bjarnason og Þórir Harðarson
gerðu allir eitt mark hver fyrir Val.
Páll Leó Jónsson og Grétar Eggerts-
son gerðu mörk Kormáks.
Skotfélagið öruggt í úrslit
Skotfélag Reykjavíkur tryggði sér
sæti í úrslitakeppni 4. deildar er liðið
sigraöi Fyrirtak, 4-1, á gervigrasinu
í Laugardal. Snorri Már Skúlason
gerði tvö mörk fyrir Skotfélagið og
þeir Þorfmnur Ömarsson og Örn
Hauksson eitt mark hvor. Gunnar
Valsson náði að minnka muninn úr
vítaspymu.
-RR/MJ
Clarke jákvæður
að koma til IIMFN
- hefur verið í æflngabúðum með Lakers
Ægir Már Kárason, Dv, Suðumesjum:
Svo gæti farið að bikarmeistarar
Njarðvíkur í körfuknattleik, verði
fyrstir til að ráða erlendan leikmenn
til sín fyrir keppnistímabilið. Þeir
hafa í huga að ráð þrítugan Banda-
ríkjamann, Mike Clarke, en hann
þykir mjög sterkur miðvörður og er
um 2,07 metrar á hæð. Clark hefiu-
leikið sem atvinnumaður í ísreal, ít-
alíu og Sviss.
„Ég talaði við hann í síma í gær
og leist honum mjög vel á að koma
hingað til lands og leika meö okkur
og þá væri hugsanlegt að ráða hann
sem þjálfara þar sem hann hefur
mikla reynslu sem leikmaður. í sam-
talinu sagðist hann einnig hafa verið
í æfingabúðum með Los Angeles
Lakers í tvö ár og einnig hjá Chicago
Bulls í eitt ár.
Gunnar Þorðvarðarson, fyrrver-
andi þjálfari Njarðvíkinga, mun tala
við Pétur Guðmundsson og spyrja
hvort hann kannist við umræddan
leikmann og einnig er maður í ísreal
á okkar snærum sem þekkir nokkuð
vel til hann. Ef upplýsingar reynast
jákvæðar þá munum við ganga til
samninga við hann,“ sagði Gunnar
Garðar Gunnarsson, formaður
körfuknattleiksráðs Njarðvíkur, í
samtali við DV í gærkvöldi.
• Hart barist um knöttinn í leik Víkings og Þórs í Stjörnugróf í gærkvöldi. Leiknu
Norðurlandsmót í golfi:
Krislján og Inga
urðu meistarar
- geysilega hörð keppni í karlaflokki
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyn:
Geysilega hörð keppni
var í karlaflokki um
Noröurlandsmeistara-
titilinn í golfi en Norður-
landsmótið var háð á Húsavík um
helgina.
Þegar aðeins 9 holum var ólokið
höfðu 7 kylfmgar möguleika á að
sigra og munaði aðeins 4 höggum
á þeim. Sama spennan hélst áfram,
enda hafði taugaspennan greini-
lega áhrif á menn og golfið sem
leikið var var ekki í hæsta gæða-
flokki.
Þegar upp var staöið voru tveir
jafnir á 158 höggum eftir 36 holur,
Kristján Gylfason, GA og Axel
Reynisson, GH, og þeir Kristján
Hjálmarsson, GA og Sverrir Þor-
valdsson voru höggi á eftir. í auka-
keppni um sigurinn vann Kristján
Gylfason sigur á Axel Reynissyni
og hreppti þar með titilinn og
Sverrir Þorvaldsson vann sigur á
Kristjáni Hjálmarssyni í keppni
um 3. sætið.
Inga Magnúsdóttir vann öruggan
sigur í kvennaflokknum, lék á 171
höggi. Ámý L. Ámadóttir lék á 179
og Andrea Ásgrímsdóttir á 196.
Þær em allar úr GA.
Aðrir sigurvegarar urðu þessir:
í unglingaflokki Guðni R. Helga-
son, GH, á 173 höggum, Fjóla Stef-
ánsdóttir, GA, í 1. flokki kvenna á
229 höggum, Pálmi Pálmason, GH,
í 3. flokki karla á 188 höggum,
Oddur Jónsson, GA, í 2. flokki á
178 höggum, Kristján Guðjónsson,
GH, í 1. flokki á 165 höggum og í
öldungaflokki, þar sem keppt var
með forgjöf, sigraði Gísli Vigfús-
son, GH, á 152 höggum nettó.
Þetta mun hafa verið fjölmenn-
asta mót sem fram hefur farið á
Húsavík, keppendur vom 103 tals-
ins. Keppendur fengu rjómaveður.
• Kristján Gylfason, GA, og Inga Magnúsdóttir, GA, urðu meistarar á Norð-
urlandsmótinu í golfi sem fram fór á Húsavík um helgina. DV-mynd GK
Meistaramót yr
Meistaramót yngri aldursílokka í
frjálsum íþróttum var háö á Valbjamar-
velli í Laugardal um helgina. Ágætur
árangur náðist í mörgum greinum en
hæst bar þó afrek Höllu Svanhvítar
Heimisdóttur, Ármanni, í kringlukasti.
Halla þeytti kringlunni 39,44 metra sem
er lengsta kast íslendings í greininni i
ár. Halla vann besta afrekið í meyja-
flokki.
Árangur Höllu er enn glæsilegri þegar
haft er í huga að hún er aöeins 16 ára
gömul. Kast hennar er jafnframt meyja-
og stúlknamet. Þess má geta aö Halla
er systurdóttir hins kunna spjótkastara
Siguröar Einarssonar.
Þóra Einarsdóttir, UMSE, vann besta
afrekið í stúlknaflokki er hún stökk 1,77
metra í hástökki sem jafnframt er besta