Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1989, Page 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989.
Smáauglýsingar - Sími 27022
Fréttir
Varml
RÉTTINGAR 0G SPRAUTUN
AUÐBREKKU 14, KÚPAV., SÍMI 44250
IÖLVPHARAKSTPR
Sumarbústaðir
Sumarhús í Borgarfiröi til sölu. Uppl.
gefur Guðmundur í síma 93-86995 milli
kl. 8 og 18.
■ Bátar
Til sölu. Flipper 640 ’86, mótor 85 hp.
Suzuki utanborðsvél, ganghraði ca.
25-30 mín. Innréttingar. Uppl. í síma
91-10»3 og 656527 eftir kl. 19.
■ BOar til sölu
f Þessir vagnar eru til sölu, góðir vagnar
á góðu verði. Vörubílasalan Hlekkur,
sími 672080.
MMC Pajero '83 til sölu, verð 600 þús-
und. Uppl. í síma 91-76500 (Máni) á
daginn og 43800 eftir kl. 19.
Celica Supra 3,0i, árg. ’87, svartur,
stýrðar rúður, speglar, sæti og loftnet,
tölvustýrð miðstöð, hiti í sætum, afl-
og veltistýri, sjálfskiptur, ABS og cru-
ise control, 204 din hö, þjófavörn.
Uppl. í síma 92-14879.
Gröfuþjónusta, sími 985-21901 og 91-
689112, Stefán. Tökum að okkur alla
gröfuvinnu, JCB grafa með opnan-
legri framskóflu, skotbómu og fram-
drifl.
FERÐAFÓLK!
Munið að spenna beltin í bílnum
og björgunarvestin í bátnum.
Maggi skalli hefur veriö þrjátíu og tvö ár 1 Vestmannaeyjum:
Ætlaði að vera
í tvo mánuði
„Ég er ísfirðingur og kom til
Vestmannaeyja fyrir þrjátíu og
tveimur árum. Ég kom til að vinna
hjá bróður mínum. Til stóð að ég
yrði hér í tvo mánuði - en hér er
ég enn og er ekki á fórum. Bróðir
minn er hins vegar löngu farinn,"
sagði Magnús Magnússon - eða
Maggi skalli eins og hann er kallað-
ur í Vestmannaeyjum. Til að skýra
þá nafngift tók Maggi ofan. Stór og
mikill skalli blasti við þegar húfan
var farin af höfði hans og sólar-
geislamir brotnuðu á „bónuðum”
skallanum. „Ég er stoltur af því að
vera kallaður Maggi skalli.“
Maggi hefur lengi unnið við
ýmiss konar iðnaðarstörf. Hann er
ekki iðnlærður. Maggi sagðist vel
sætta sig við að vera fúskari. Þegar
DV hitti Magga var hann að vinna
fyrir Jóa gullsmið. Maggi var að
mála auglýsingastafi á húsvegg.
Stafimir mynda nafn verslunar
Jóa. Verslunin heitir: „Steingrím-
ur gullsmiður." Maggi skýrði þetta
með því að segja að Steingrímur
héti Jói. Svona getur það verið í
Vestmannaeyjum. Maggi hafði
skorið stafina út og sagði það þægi-
legt verk. „Það var gott að sitja
heima í hlýjunni og skera stafi.
Vestmannaeyjar eru afbragð
annarra staða - annars væri ég
ekki hér. Við misstum húsið okkar
undir hraun í gosinu. Meðan gosið
var bjuggum við eitt ár í Hafnar-
Maggi skalli segir Vestmannaeyjar vera afbragð annarra staða.
DV-mynd BG
firði. Þar kunnum við vel við okk-
ur. Hafnarfjörður er rólegur og
vinalegur staður. Eins líst mér vel
á Selfoss. Við óskuðum að fá að
fara annaðhvort til Selfoss eða
Hafnarfjarðar í gosinu. Þegar við
komum aftur keyptum við hús af
Viðlagasjóði. Hann átti mest allt
hér á þeim tíma,“ sagði Maggi
skalli.
-sme
Til sölu Citroen C 35 ferðabíll, árg. 1977,
svefnpláss fyrir 5, er með vaski, raf-
magnsvatnsdælu, gaseldavél. Sími
92-68494, 92-68064, 92-68262.
Chevrolet Blazer disil turbo '76 til sölu,
breyttur, góður bíll. Uppl. í síma
91-76267 og 985-21122.
Ford Econoline 350 ’84 til sölu, ekinn
55 þús., 6 cyl., sjálfskiptur, vökva-
stýri, gott lakk, verð 890 þús., 690
þús. staðgreitt. Úppl. í síma 26887.
Mazda 626 GLX, árg. '84, til sölu, ekin
99.000 km, 5 gíra, rafm. í rúðum/læs-
ingum, vökva/veltistýri o.fl. Verð kr.
450.000, skipti ath. Uppl. í síma 674203.
Þjónusta
Fjöldi fólks hefur nýtt sér ferðir Fagraness í sumar.
Chrysler Laser '85 til sölu, svartur,
ekinn 64 mílur. Glæsilegur bíll. Uppl.
í áíma 98-34291.
Djúpbáturinn vinsæll:
Um 100 manns
í hverri ferð
Sguijón J. Sigurðssan, DV, ísafirði:
Mikið hefur verið að gera hjá
starfsmönnum Djúpbátsins á ísafirði
undanfarna daga því nálægt 100
manns eru í hverri ferð Fagranessins
til Aðalvíkur, Hornvíkur og inn í ísa-
fjarðardjúp.
Ferðir til Hornvíkur og Aðalvíkur
hófust í lok júní og er farið þangað
á mánudögum og fimmtudögum en í
ísafjarðardjúp á þriðjudögum. Einn-
ig er áætlað að fara alla leið norður
í Furufiörð og Reykjafiörð.
Að sögn Reynis Ingasonar, starfs-
manns Djúpbátsins, er einnig tölu-
vert um flutninga á bílum með bátn-
um. Farþegar eru bæði innlendir og
erlendir, margir hverjir á vegum
Ferðafélags íslands og Útivistar, en
einnig er nokkuð um að fiölskyldur
taki sig saman og fari í Homvík og
Aðalvík.
Enn hefur ekki verið ákveðið hve-
nær ráðist verður í kaup á öðrum
bát í stað Fagraness en unnið er að
áætlun á kostnaði við kaup á notuð-
um báti og endurbótum á slíkum til
samanburðar við nýsmíði.