Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.1989, Page 26
26
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989.
Menning
Eins og sagt var frá í síðustu viku
er allt útlit fyrir að komandi bóka-
vertíð verði vænleg, hvort sem litið
er til fagurbókmennta eða nytja-
bóka.
Útgefendur eru að vísu ekki allt
of fúsir að gefa upp hvaða bækur
þeir ætla að gefa út í haust, meðal
annars vegna þess að um þetta leyti
árs eru margir höfundar, einkum
þeir sem skrifa viðtalsbækur, að
skila handritmn sínum.
Með hjálp nokkurra útgefenda og
áreiðanlegra heimildarmanna má
þó draga upp sæmilega skýra mynd
af bókaútgáfu haustsins ’89.
Þeir útgefendur sem DV talaði við
sögðust annaðhvort ætla að gefa
út sama fjölda bóka og í fyrra, eða
ívið færri, svo ætla má að áður en
árið er hðið muni yfir 300 nýjar
bækur líta dagsins ljós.
Ekki virtust útgefendur vera á
einu máli um það hve mikið bækur
þyrftu að hækka í verði milli ára.
Ami Kr. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Máls og menningar,
sagðist halda að útgefendur mundu
veigra sér við að hækka bækur um
meira en 10% en Örlygur Hálf-
dánarson, forstjóri Amar og Örl-
ygs, var efins um að útgefendur
hefðu efni á slíkri „góögerðastarf-
semi“, eins og hann nefndi það.
„Það er jú frumskilyrði að fá upp
í kostnað," sagði hann.
Ef við lítum, fyrst á fagurbók-
menntir er nokkuð víst að eins og
á undanfömum ámm verða mestu
umsvifin hjá Máli og menningu og
Iðunni.
Komplett Dagur Sig
Ámi Kr. Einarsson staðfesti að
Mál og menning mundi gefa út
nýjar skáldsögur eftir Thor Vil-
hjálmsson, Einar Kárason og Bjöm
Th. Bjömsson og þar að auki sex
nýjar ljóðabækur, meðal annars
eftir Stefán Hörð Grímsson og
Gyrði Elíasson.
Einnig gefur forlagið út heildar-
útgáfu á ljóðum Dags Sigurðarson-
ar.
Fleiri íslensk skáldrit vildi Ámi
ekki nefna að sinni en upplýsti að
meðal þýddrá verka yrðu ný bók
Isabel Allende, Eva Luna og Bömin
við Arbat eftir sovéska rithöfund-
inn Anatólí Rybakov, sem kemur
til landsins í tilefni útgáfunnar.
Kölskakver eftir Salman Rushdie
hefur einnig verið bendlað við Mál
og menningu, en Ámi vildi hvorki
játa því né neita aö sú umdeilda
bók væri inni í myndinni hjá þeim.
Ami sagði hins vegar að ein af
þeim bókum sem þeir hlökkuðu
mest til að gefa út væri ferðasaga
þeirra Þorbjöms Magnússonar og
Unnar Jökulsdóttur, sem síðastlið-
in átta ár væra búin að vera á sigl-
ingu um öll heimsins höf.
Viðamest útgáfubóka Máls og
menningar verður samt Upprana-
Sveinbjörn Baldvinsson tekur við bókmenntaverðiaunum úr hendi Doris Lessing árið 1986. Báðir þessir
S höfundar munu eiga nýjar bækur á íslenskum jólabókamarkaði.
orðabók Ásgeirs Blöndals Magnús-
sonar, sem gefin verður út í sam-
vinnu við Háskóla íslands.
Loks vildi Ámi nefna að í haust
yröu fleiri bamabækur gefnar út
hjá Máh og menningu en nokkru
sinni fyrr.
Tveir þögulir
Jón Karlsson hjá Iðunni vildi lítið
segja um bókaútgáfu haustsins en
staðfesti þó að gefin yrði út ný og
„mögnuð“ skáldsaga eftir Vigdísi
Grímsdóttur.
Þess má einnig geta að í vor gaf
Iðunn út nýja ljóðabók Þorsteins
frá Hamri, Vatns götur og blóðs.
Heimildarmenn DV hafa fullyrt
að von sé á nýrri ljóðabók eftir
Steinunni Sigurðardóttur frá Ið-
unni, einnig að ævisaga Kristjáns
Jóhannssonar stórsöngvara sé í
smíðum á vegum sama forlags, en
ekki sé fullvíst hvort hún komist á
markaö fyrir jól.
Jóhann Páll Valdimarsson hjá
Forlaginu var þögull sem gröfin
um útgáfuna þar á bæ. Heimildir
DV herma þó að von sé á nýrri
skáldsögu eftir Svövu Jakobsdótt-
ur á vegum Forlagsins.
Aðrar heimildir benda einnig th
þess að Forlagið muni gefa út
nokkrar þýðingar úrvalsbók-
mennta, meöal annars á mikilli
metsölubók frá Þýskalandi eftir
Christoph Ransmayr, þýðandi
Bókmenntir
Aðalsteinn Ingólfsson
Kristján Árnason, á nýrri skáld-
sögu eftir Marquez, Hershöfðing-
inn í völundarhúsi sínu, á skáld-
sögu eftir einn helsta rithöfund
Japana, Shusaku Endo og loks á
nýrri bók eftir Doris Lessing.
Hrafn og Indriði
Sigurður Valgeirsson, útgáfu-
stjóri Almenna bókafélagsins,
sagði að þeirra útgáfa yrði svipuð
og í fyrra að magni.
Af skáldritum nefndi hann tvö
smásagnasöfn, annars vegar eftir
Hrafn Gunnlaugsson, hins vegar
eftir Sveinbjörn Baldvinsson, og
ljóðabækur eftir Sigmund Erni
Rúnarsson, Birgittu Jónsdóttur og
Steinunni Ásmundsdóttur.
Einnig nefndi hann „mjög per-
sónulegt" sagnfræðirit eftir Þór-
unni Valdimarsdóttur um Snorra á
Húsafehi og bók eftir Elínu Pálma-
dóttur sem ber hiö skemmthega
nafni Fransí biskví, og fjallar um
frönsku íslandssjómennina.
Umfangsmesta verk sem AB gef-
ur út verður þó íslenskur Söguatlas
upp á nokkur hindi, en undirbún-
ingur að því verki hófst uppruna-
lega á vegum bókaútgáfunnar
Svarts á hvítu.
Sigurður treysti sér ekki til að
skýra frá þeim viðtalsbókum sem
AB ætlaði að gefa út en heimildar-
menn DV segja að meðal þeirra sé
viðtalsbók Indriða G. Þorsteinsson-
ar og Sverris Hermannssonar.
Heimildarit og nytjabækur
Sem endranær leggja Örn & Ör-
lygur mesta áherslu á ýmiss konar
heimildarit og nytjabækur.
Forlagið gefur út Ijórða og síðasta
bindi Reykjavíkurbókar sem jafn-
framt er lykilbók. Höfundur er Ein-
ar Arnalds.
íslandshandbókin heitir annað
mikið verk á vegum Arnar & Ör-
lygs, en þar er um að ræða 6-700
síðna uppflettibók, byggða á
Landinu þínu, íslandi.
Af öðram uppflettibókum for-
lagsins má nefna nýja útgáfu af
Heimsmetabók Guinness og Lög-
bókinni þinni, svo og nýja íslensk-
enska viðskiptaorðabók.
Flugsöguna frá stríðslokum er
einnig að finna á bók frá Erni &
Örlygi.
Loks má geta tveggja ævisagna,
Þorgeirs í Gufunesi, sem Atli
Magnússon hefur skráð, og Ævars
R. Kvaran, sem skráð er af Baldri
Hermannssyni.
Þýðingar úrvalshöfunda
Ólafur Ragnarsson, forstjóri
Vöku-Helgafehs, vildi lítið láta hafa
eftir sér um útgáfu haustsins, nema
að þar á bæ yrði gefinn út svipaður
fjöldi bóka og í fyrra.
Hann féllst þó á að upplýsa að
meðal bóka sinna yrði fyrsta skáld-
saga ungs höfundar, Einars Heim-
issonar, Götuvísa gyðingsins.
Ólafur fékkst hvorki til að játa
né neita að Ómar Valdimarsson
sæti nú við að skrifa ævisögu Guð-
mundar J. Guðmundssonar jaka,
til útgáfu í haust.
Upplýsingar frá minni forlögum
og einstakhngum um fyrirhugaða
bókaútgáfu þeirra lágu ekki á
lausu.
Þó hefur DV áreiðanlegar heim-
ildir fyrir því að Pétur Gunnarsson
muni sjálfur ætla að gefa út nýja
skáldsögu sína.
Manna á meðal er einnig mikið
rætt um að von sé á „ævisögu“
Davíðs Oddsonar sem skrifuð er í
óþökk hans af Eiríki Jónssyni,
Tákn gefi út, sjálfsævisögu Ingólfs
Guðbrandssonar, og viðtalsbók við
Valgerði Bjárnadóttur, Frjálst
framtak gefi út. Loks segja heimild-
ir DV að verið sé að skrifa ævisögu
íslenskrar sendiherrafrúar og get-
um hefur verið leitt að því aö hér
sé um frú Oddnýju Thorsteinsson
að ræða.
Ljóst er að mikið verður um þýð-
ingar á verkum erlendra úrvals-
höfunda á jólamarkaði.
Setberg ætlar til dæmis að gefa
út nýja bók eftir Singer, svo og eina
þekktustu bók egypska nóbels-
skáldsins Naguib Mahfouz, Skjald-
borg heldur áfram að gefa út skáld-
sögur Mayu Angelou, bókaútgáfan
Bjartur gefur út nýjustu bók
Patricks Suskind, Dúfuna, og nýja
bók eftir Fay Weldon, Sveitasælu.
Hér hefur verið stiklað á stóru
um bókamarkaðinn. Frekari tíð-
inda af honum er eflaust að vænta
íloksumarleyfa. -ai