Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1989, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1989, Side 14
14 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1989. Frjálst,óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (1 )27022 - FAX: (1 )27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð i lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Skattagleðin Virðisaukaskatturinn er á næsta leiti. Hann á að taka við af söluskattinum um næstu áramót. Fundur Versl- unarráðsins með fjármálaráðherra síðastliðinn mið- vikudagsmorgun leiddi í ljós að mikill áhugi og um leið áhyggjur fylgja þessari skattbreytingu. Afleiðingar hans eru mörgum óljósar en talsmenn virðisaukaskattsins telja hann auðveldari í meðfórum, skilvirkari og hent- ugri bæði fyrir þá sem greiða skattinn og leggja hann á. í aðalatriðum kemur virðisaukaskatturinn í stað söluskattsins og hefur þar af leiðandi ekki íþyngjandi áhrif á vöruverð eða þjónustu, umfram það sem leitt hefur af söluskattinum. Hins vegar hefur gármálaráð- herra tilkynnt að undanþágum verði fækkað og virðis- aukaskattur verði lagður á starfsemi og þjónustu ýmiss konar sem hingað til hefur verið undanþegin sölu- skatti. Meðal annars er gert ráð fyrir að fjölmiðlar, áskrift og útsöluverð ásamt með auglýsingum, sem þar birtast, beri virðisaukaskatt. Þetta þýðir í raun að í einu vetfangi hækkar dagblaðaverð og áskriftargjöld af sjón- varpi um rúman fjórðung. Sömuleiðis verð á tímaritum og þeir sem vilja auglýsa í fjölmiðlum munu þurfa að greiða sömu hækkun. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um þessa hækk- un. Hún mun kippa fótunum undan útgáfustarfsemi. Kaupendum mun fækka, svo og þeim sem auglýsa. Út- varpsstöðvar og sjónvarp, sem treysta á auglýsingatekj- ur, munu vart standast þessa atlögu, hvað þá tímarit, landsmálablöð og jafnvel dagblöð. Skattar hafa áður verið lagðir á eða hækkað frá einum tíma til annars en það er einsdæmi að nýjum 26% skatti sé skellt á, án nokkurs aðdraganda. Slíkar drápsklyflar eiga sér ekki hliðstæðu. Bókaútgefendur og rithofundar hafa að undanförnu mótmælt kröftuglega þeim virðisaukaskatti sem lagður er á sölu bóka. Röksemdir þeirra eru aðallega þær að íslendingar eigi fremur að örva bókalestur með því að gera bækur ódýrari fyrir almenning. íslensk tunga, ís- lensk bókmenntahefð er í hættu og á slíkum tímum er það öfugsnúningur að íþyngja bókaútgáfu með 26% skatti. Þetta eru sterk rök og það sama gildir um aðra útgáfustarfsemi, nema hvað þar er staðan hálfu verri því skatturinn er nú lagður á í fyrsta skipti með fullum þunga. Fjölmiðlar í hinum ýmsu myndum eru hluti af tján- ingar- og prentfrelsinu. Þeir eru vettvangur skoðana- skipta, vettvangur frjálsrar umræðu í landinu. Sú stefna, sem úármálaráðlerra boðar með álagningu virð- isaukaskattsins, er atlaga að skoðanafrelsinu. Ekki bætir úr skák þegar hann tekur fram að ríkissjóður muni endurgreiða skattinn að hluta, til þeirra sem að mati ríkisvaldsins hafa menningargildi, félagslegt eða byggðastefnulegt hlutverk. Ríkisvaldið ætlar að mið- stýra því hverjir séu þóknanlegir ráðandi öflum hverju sinni. Það á að drepa þá sem ekki hafa efni á að halda úti blöðum, útvarpi eða tímaritum en skammta síðan peningana út til þeirra sem pólitíkusamir hafa dálæti á! Er hægt að storka lýðræðinu og skoðanafrelsinu öllu meir? Fijálslyndir og lýræðissinnaðir alþingismenn eiga að koma í veg fyrir þessa fyrirætlan. Þeir eiga að koma vitinu fyrir úármálaráðherra. Þeir eiga að standa vörð um þá gmndvallarstefnu að íslendingar rækti með sér frjálsa og óhefta umræðu, þeir eiga að efla íslenska flöl- miðla í stað þess að þagga niður í þeim. Ellert B. Schram „Breytingin í Austur-Evrópu of mikil til að hún gangi nokkru sinni til baka“, segir m.a. í greininni. - Leiðtogi austur-þýska kommúnistaflokksins, Egon Krenz, heilsar mannþröng á Marx Engels torgi i Austur-Berlín eftir að hann var kosinn æðsti maður landsins. Um aðgát og uppburðaleysi Nú er ekki lengur logn um Bush Bandaríkjaforseta eins og ríkt hef- ur mestallan tímann síðan hann tók við. Skjótt skipast veður í lofö og hvöss gagnrýni beinist nú að Bush úr öllum áttum. Prófraun hans var tilraunin til valdaráns í Panama og á því prófi féll Bush, ekki aðeins að dómi þeirra sem vildu að Bandaríkin skærust í leik- inn heldur hinna líka sem telja aö rétt hafi veriö að láta málið af- skiptalaust. Gagnrýnin beinist ekki eingöngu að stefnunni í Panama heldur fyrst og fremst hagsmunagæslu Banda- ríkjanna utaniands yfirleitt. Pan- ama skiptir htlu máh í sjálfu sér, það sem skiptir máli er geta Banda- ríkjanna til að skilgreina hagsmuni sína og fremfylgja þeim. Frammi- staða Bush í vaidaránstilrauninni gegn Noriega þykir sýna að hann skorti bæði festu og djörfung, og það þykir ills viti í Evrópu þar sem nú eru mestu breytingatímar 1 ára- tugi og ný stefna bíður mótunar. Bush hefur í marga mánuði talað um nauðsyn þess að koma Noriega eiturlyíjaherstjóra frá völdum og gert brotthvarf hans aö forgangsat- riði stefnu sinnar en þegar tæki- færið bauðst til að framkvæma þá stefnu í verki þorði hann ekki að taka áhættuna af beinum afskipt- um. Þaö getur vel hafa verið skyn- samlegt en eftir situr að Bush sé maður orða en ekki athafna. Einkunnagjafir í kjölfar þessa máls eru Bush nú gefnar nýjar einkunnir. Það orð, sem nú er mikið notað til að lýsa stjóm hans, er uppburðaleysi. Sumir kalla hann hræðslugjarnan, aðrir óvirkan og afskiptalausan. í kosningabaráttunni í fyrra var Bush stundum kallaður veimiltíta, sú einkunn er honum einnig gefin núna. Noriega hefur veriö fleinn í holdi Bandaríkjamanna allt frá því haustið 1987, þegar hann var opin- berlega ákærður í Bandaríkjunum fyrir eiturlyfjasmygl. Sumir hafa rifjað upp vanmátt Bandaríkjanna gagnvart íran árin 1979 og 80 þegar starfsmönnum bandaríska sendi- ráðsins var haldið í gíslingu í Te- heran og bent á háðslega að saman- borið við Bush hafi Jimmy Carter verið hið mesta hörkutól. Hingað til hefur Bush sloppið ótrúiega vel við gagnrýni, í byrjun september voru um 70 prósent Bandaríkjamanna ánægð með hann. En um leiö og hann gefur höggstað á sér með óákveðni sinni í Panama dynur á honum uppsöfn- uð óánægja síðustu mánaða. Gætni Það er skiijanlegt að á þeim óvissutímum, sem nú eru vegna nýrra viðhorfa í samskiptum risa- veldanna og breytinganna í Aust- ur-Evrópu, vilji Bandaríkjamenn vera varkárir. í stjómartíð Bush hefur stefiian einkennst af að- KjáUaiinn Gunnar Eyþórsson fréttamaður gerðaieysi, hún er í því fólgin að bíða átekta. Bandaríkjamenn virð- ast frekar vilja hvetja aðra til at- hafna en gera nokkuð sjálfir. Í Mið-Austurlöndum styðja Bandaríkin friðarhugmyndir Mu- baraks Egyptalandsforseta en hafa enga áætlun sjálf. í Evrópu vilja Bandaríkjamenn að Evrópubanda- lagið hafi forystu um aðstoð við Pólverja, en leggja sjálfir lítið af mörkum. - Svo er helst að sjá sem Bush og öryggismálaráðgjafar hans geri sér óþarflega góða grein fyrir takmörkunum sínum, en að- gerðaleysi er oft túlkað sem sinnu- leysi. Þaö sem háir Bush öðru fremur er að hvorki hann né neinn utan- ríkismálaráðgjafi hans virðist hafa heildarmynd af því sem að skuli stefnt. Þess vegna geta Bandaríkin virst stefnulaus, þau bregðast við einstökum tíðindum frá degi til dags en í Washington er engin heildarmynd sem atburðir falla inn í nema þá sú gamla góða sem Bush erfði í forsetastóli. - En það gamla góða er ekki lengur nógu gott, það er kominn tími til að aölagast nýj- um viðhorfum. Það er hyggilegt að rasa ekki um ráð fram í Evrópu en of mikil gætni of lengi getur breyst í uppburðaleysi sem er einmitt sú gagnrýni sem Bush sætir nú. Gorbatsjov Bush hefur verið mjög tregur til að taka Gorbatsjov alvarlega og viðhorf hans til Sovétríkjanna ein- kennast af tortryggni. Því hefur hann veriö seinn til að koma til móts viö Gorbatsjov í afvopnunar- málum og virðist reyndar tregur til að breyta nokkuö gamalii og gróinni stefnu Bandaríkjanna í Evrópu. - Hún byggist enn sem fyrr á kjamorkufælingu og stuðn- ingi við Nato og Evrópubandalagið. Það er einmitt í Evrópu sem skorturinn á heildarmynd er til- finnanlegastur. Gamla stefnan get- ur ekki dugað óbreytt mikið leng- ur. í vændum er sameining Vest- ur-Evrópu í eitt markaðssvæöi árið 1992, og upplausnin í kommúnista- ríkjunum gerir alla framvindu mála mjög óvissa. - Jafnvel er hugsanlegt að einhver Austur- Evrópuríkjanna, svo sem Ung- verjaiand, tengist Evrópubanda- laginu, og sú skipting Evrópu, sem öli stefna Bandaríkjastjórnar bygg- ist á, er að breytast. Óvinurinn í austri er allt í einu ekki jafnógnvekjandi og fyrr, og þar af leiðandi er óttinn við hann ekki lengur ráðandi sameiningar- tákn vestrænna ríkja. Það gengur ekki fyrir Bandaríkjastjórn að láta sem ekkert hafi breyst. Gorbatsjov sé stundarfyrirbrigði, og bráðum muni allt fara aftur í sama gamla góða farið. - Það sem þegar hefur gerst er of mikil breyting til að hún gangi nokkru sinni til baka. Áræði og djörfung Það sem Bush þarf að gera er ein- mitt það sem honum mistókst í Panama, skilgreina hagsmuni Bandaríkjanna og afstöðu og vera síðan sjálfum sér samkvæmur í framkvæmdinni. Til þess þarf áræði, yfirsýn og djörfung. Einmitt það sem stjórn Bush virðist vanta. Það er ljóst að vegna breyting- anna í Evrópu hlýtur hlutverk Bandaríkjanna að taka miklum breytingum, staða þeirra í evrópsk- um málum verður öll önnur ef ógn- unin frá kommúnistaríkjunum er ekki lengur fyrir hendi. - Og eftir sameininguna 1992 verður Evrópu- bandalagið ofjarl Bandaríkjanna á ýmsum sviðum. Það er aö vísu rétt að Bandaríkin hafa engin áhrif á það sem nú er að gerast í Austur-Evrópu, né held- ur innan Evrópubandalagsins. Það er samt ekki næg ástæða til að halda fast við gömlu stefnuna óbreytta og reyna að rétlæta hana með tortryggni. Bush virðist fastur í fortíðinni og vantrúaður á grund- vallarbreytingar. En með þvi að láta reka á reiðanum eykur hann á óvissuna í heimsmálunum og aðgerðaleysi hans getur leitt til þess að Bandaríkin tapi svo pólit- ískum áhrifum aö forystuhlutverk þeirra verði dregið í efa. Gunnar Eyþórsson „ ... sú skipting Evrópu, sem öll stefna Bandaríkjastjórnar byggist á, er að breytast.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.