Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1989, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1989, Qupperneq 2
Fréttir MÁNUDÁcM 6. NÓVÉ^IBÉR 1989. 1 Dauðaslys er bifreið með þremur mönnum valt skammt frá Patreksfirði: Gekk slasaður og kaldur um sjö kílómetra leið Ungur maður lést í bílslysi og tveir aðrir slösuðust aðfaranótt laugar- dagsins þegar Mazda-bifreiö fór margar veltur við bæinn Raknadal sem er um sjö kílómetra frá Patreks- flrði. Farþegi, sem var í framsæti bílsins, gekk handleggsbrotinn og illa á sig kominn til Patreksfjarðar til að tilkynna um slysið. Sá látni og slasaður maður í aftursætinu urðu eftir í bílnum sem lenti á toppnum eftir veltumar. Talið er að maðurinn hafi verið um hálfa aðra klukkustund frá slysstað til sjúkrahússins, sem er á Patreks- firði, en það er um 6,7 kílómetra leið. Hiti var um frostmark og var maður- inn aðeins í peysu og því illa á sig kominn er hann kom á sjúkrahúsið. Hann man nánast ekkert eftir at- burðinum og því ekki vitað nákvæm- lega hve lengi hann var á leiðinni. Mennirnir eru frá Patreksfirði og voru á leið inn í sveit á laugardags- morguninn. Slysið varð þar sem bundið slitlag endar á veginum frá kaupstaðnum í átt að fjarðarbotni. Ökumaður mun hafa misst stjórn á bílnum er hann kom út úr beygju sem liggur niður að brú. Fór bíllinn þá út af veginum, fór margar veltur en endaði svo aftur inni á vegi á toppnum. BOlinn er gjörónýtur og var að- koman ófögur er lögregla og sjúkra- sb01 komu á staðinn. Farþeginn var þá kominn út úr bOnum en ökumað- urinn látinn. Sá fyrmefndi nefbrotn- aði og marðist töluvert. Lögreglunni var tilkynnt um slysið þegar maðurinn kom á sjúkrahúsið um sexleytið á laugardagsmorgun. Talið er að bOveltan hafi orðið á íimmta tímanum um morguninn. Ökumaður og farþegi í framsæti voru í bílbeltum er slysið varð. -ÓTT Skrítnar niðurstööur könnunar um áreiðanleika frétta: Sömu fréttimar stundum taldar áreiðanlegar en stundum ekki kom fréttastofa Sjónvarpsins en 31,6 prósent þeirra sem tóku afstööu töldu fréttir hennar ábyggilegar. Næst kom Morgunblaðið með 10,7 prósent, þá Stöð 2 með 7,1 prósent. 3 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðu fréttir DV ábyggOegar. Færri en 1 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust telja fréttir annarra fjölmiðla ábyggOegar. Þeir sem kom- ust á blað eru Bylgjan, rás 2, ÞjóðvOj- inn, Stjaman og Pressan. Dagblöðin Tíminn og Alþýðublaðið komust ekki á blað. -gse Samkvæmt Gallup á íslandi telja landsmenn fréttastofu Ríkisútvarps- ins áreiðanlegustu fréttastofu lands- ins þegar þeir hlusta á fréttir hennar á rás eitt en hins vegar ekki þegar þeir hlusta á sömu fréttaútsendingar á rás 2. Þannig sögðust 40,6 prósent þeirra sem tóku afstöðu að fréttir rásar 1 væru áreiðanlegustu fréttimar en ekki nema 0,7 prósent sögðu að frétt- ir rásar 2 væm ábyggOegar. í báðum tOvikum er um sömu fréttaútsend- ingar að ræða. A eftir fréttastofu Ríkisútvarpsins Fáir hlusta á útvarpsfréttir Einungis 17 til 18 prósent lands- manna hlusta á hádegisfréttir Rík- isútvarpsins sem er sá fréttatími útvarpsstöðvanna sem fær lang- mesta hlustun. 15 prósent lands- manna hlusta á kvöldfréttir Rfkis- útvarpsins. Þetta eru niðurstöður nýrrar Gallup-könnunar. Hér er átt við blustun á sam- tengdar rásir - það er bæöi á frétt- ir rásar 1 og rásar 2. Útvarpshlustun hefur fariö mínnkandi að undanfomu. Fyrir fáeinum misseram hlustuðu um 40 til 50 prósent þjóðarinnar á þessar fréttir. Nýjasta könnunin sem mældi lestur dagbiaða sýndi að um 80 pró- sent þjóðarinnar las Morgunblaðið, lítið eitt færri DV og smáblöð á borð viö ÞjóðvOjann og Tímann komu fyrir augu um 20 prósent þjóðarinnar. -gM,- Fé í hrakningum í Jökuldal Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egflsstöðum; Veður hefúr verið óvenjugott hér á Héraði í haust, - aðeins einu sinni hvítnað jörð á EgOsstöðun. En þó að héraðið sé ekki stórt er veður breyti- legt á svæðinu. Mikiö áhlaup gerði um helgina út í Jökulsárhlíð, það er ysta og vestasta sveitin. AUan laugardaginn var blindösku- bylur þar og bóndinn á ysta bænum, KetUsstöðum, átti í talsverðum erf- iðleikum með að ná sama lömbum sem lágu í skjóli við þúfur og börð á kafi í snjó. Fullorðinn hrút hrakti í Fögruhlíðará og drakknaði hann. A sama tíma var lógn og frábært veður á EgUsstöðum. Valgerður Sverrisdóttir með nýju dótturina í fanginu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri í gær. DV-mynd: KAE Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður: Fæðingin gekk Ijómandi vel „Fæðingin gekk ljómandi vel. Þetta var eiginlega enn stórkostlegri upplifun en í hin tvö skiptin og okkur mæðgunum heUsast vel,“ sagði Val- gerður Sverrisdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norður- landskjördæmi eystra. Klukkan 21.56 á laugardagskvöldið eignuðust Valgerður og eiginmaður hennar, Arvid Kro, 13 marka og 52 cm langa stúlku á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Fyrir eiga þau hjón tvær dætur. „Sú litla var aðeins farin að láta bíöa eftir sér þvi ég var komin sex daga fram yfir áætlaöan fæðingardag en það er nú alveg eðlUegt." Valgerður-verður í fæðingarorlofi fram tU páska en þá býst hún við að setjast á þing á nýjan leik. „Ég er svo upptekin af þvi sem ég er að fást við þessa dagana að ég hef nánast engan tíma til að hugsa um pólitík. Maður fylgist nú samt sem áður með því sem er að gerast, les blöðin og fylgist með fréttum í ljós- vakafjölmiðlunum," sagði Valgerð- ur. -J.Mar Grænland: bíða eftir flugi Þrjátíu „Við höfum ekki getað flogið tU Grænlands síðan á þriðjudag í síö- ustu viku og þeir farþegar sem áttu bókað far hjá flugfélaginu síðastlið- inn fimmtudag hafa orðið að bíða í Reykjavík síðan þá,“ segir Ólafur Bertelsson hjá Grönlandsfly. Það era um 30 manns sem bíða þess að komast til Narsarsuaq á Grænlandi og mun ekki verða reynt að fljúga þangað fyrr en á morgun. Ef flugfært verður þá hafa farþegam- ir beðið í fimm daga í Reykjavík eftir að komast í áfangastað. . „Við reyndum að fljúga á fóstudag- inn en þegar tíl kom reyndist ekki unnt að lenda á flugvellinum í Nars- arsuaq vegna slæmra brautarskU- yröa. Síðan höfum við orðið að aflýsa flugi á hverjum degi. Farþegarnir dvelja á Hótel Lofleið- um og við sjáum þeim fyrir gistingu og mat, svo og skoðunarferðum. í gær fór fólkið í skoðunarferð um borgina og í dag ætlum við að fara með hópinn í skoðunarferö til GuU- foss og Geysis. Fólkið tekur þessu ákaflega vel, enda veit það að við eram ekki að aflýsa flugi að gamni okkar. Þetta er þolinmótt fólk og það er enginn að þrasa yfir því þó að það sé ekki flug- fært. Það er nokkuð algengt yfir vetr- armánuðina að það gangi Ula með flug tU Grænlands en þetta er með verri tilvikum sem ég man eftir," segir Ólafur. v | -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.