Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1989, Page 29
MÁNUDAGUR 6. NÖVEMBER 1989.
41
Sviðsljós
Nýjasta ástin i lífi Stevens Spielberg
er Holly Hunter sem leikur aðal-
hlutverkið I nýjustu kvikmynd hans,
Always.
Steven Spielberg og Amy Irving voru Kate Capshaw brenndi sig á þvi að
hamingjusamir foreldrar fyrir nokkr- heimta of mikið.
um árum. Þau eru enn gift sam-
kvæmt lögum.
Flugu-
kastsnám-
skeið haíin
Vandamál Steven Spielberg
eru ekki kvikmyndir
heldur leikkonur
Hinn frægi kvikmyndaleikstjóri,
Steven Spielberg, hefur yfirgefið
sambýliskonu sína, Kate Capshaw.
Var hún farin að heimta of mikið að
sögn vina Spielbergs.
Þessi snöggu sambandslit komu
meira að segja kjaftadálkahöfundum
í Hollywood á óvart. Þeir sem þekkja
til segja að kröfur Capshaw um
hjónaband og mikil fjárráð sér til
handa hafi gert það að verkum að
Spielberg fékk sig fullsaddan af sam-
bandi þeirra.
Spielberg kynntist Kate Capshaw
meðan tökur á annarri Indiana
Jones-myndinni stóðu yfir. Þá var
hann giftur annarri leikkonu, Amy
Irving, og voru þau nýbúin að eign-
ast bam. Má geta þess að ekki er enn
búið að ganga frá skilnaðarmáli
þeirra en búist er við að það verði
honum dýrt.
Spielberg var rétt búinn að segja
Kate Capshaw upp þegar hann fór
að sjást með Holly Hunter, aðalleik-
konunni í nýjustu kvikmynd hans,
Always. Telja kunnugir að ástarsam-
band þeirra hafi í raun byrjað löngu
áður en hann sleit sambandinu við
Capshaw.
Spielberg, sem virtur er á minnst
þrjú hundruð milljónir dollara vegna
gróða á myndum á borð við E.T.,
Who Framed Roger Rabbit og Indi-
ana Jones myndunum þremur, á ör-
ugglega eftir að sjá á eftir helmingi
þessarar upphæðar til eiginkonu og
ástkonu. Taliö er að Amy Irving
muni fá um það bil eitt hundrað
milljónir í sinn hlut. Þá er öruggt að
lögfræðingar Capshaw munu fara
fram á háar peningafjárhæðir henni
til handa fyrir að svíkja loforð um
að giftast henni og geta þaö orðið
allt að þrjátíu milljónum dollara.
Hvað hefur svo Spielberg sjálfur
að segja um ástamál sín? Um Kate
Capshaw sagði hann: „Hún vildi gift-
ast mér og stofna fjölskyldu. Samt
vildi hún óhindrað halda áfram á
leiklistarbrautinni og jafnframt eign-
ast ávísanaheftið mitt.“
Holly Hunter, uppáhaldið hans í
dag, fær aðra einkunn: „Hún er snið-
ugasta, hlýjasta og elskulegasta
stúlka sem ég hef hitt og hún er rétta
stúlkan fyrir mig.“
„Við höfum haldið eitt námskeið
og núna er annað byrjað, það mættu
fleiri mæta en verið hefur, þetta kem-
ur vonandi þegar líður á veturinn,"
sagði Þorsteinn Þorsteinsson, einn
af kennurum hjá Ármönnum, en
þeir æfa fluguköst í íþróttahúsi
Kennaraháskólans og svo Kastklúb-
bur Reykjavíkur, Stangaveiðifélag
Reykjavíkur og Stangaveiðifélag
Hafnarfjarðar í Laugardalshöllinni á
sunnudögum, snemma.
Við htum inn til Ármanna fyrir
fáum dögum og þar voru nokkir að
æfa köst, bæði konur og karlar. En
sjón er sögu ríkari eða köst eru sögu
ríkari.
-G.Bender
Það var margt sagt í hópnum og
allir æfðu af miklum áhuga.
Hlass af demöntum
Þorsteinn Þorsteinsson útskýrir leyndardóminn fyrir einum nemanda sinum.
DV-myndir G.Bender
Það er sjálfsagt aðeins hægt í hinu ríka landi, Japan, að fylla vélsleðalíkan
af demöntum en á myndinni sjáum við hvorki meira né minna en 19.935
demanta sem eru samanlagt 506 karöt. Áætlað verðmæti demantanna er
ein billjón yen sem samsvarar 430 milljónum íslenskra króna. Sleðinn með
demöntunum verður til sýnis í ýmsum skartgripaverslunum í Japan fram
að jólum.
Nýi kærastinn
hennar Cher
Hin fjörutíu og þriggja ára gamla
leikkona og söngkona, Cher, lenti i
smáástarsorg þegar klámmynda-
leikkona stal kærastanum frá henni.
Hún er nú búin að jafna sig og hefur
fundið sér nýtt leikfang sem er að
venju mun yngri maður en hún sjálf.
Nýi kærastinn hennar heitir Richie
Sambora og er gítarleikari hinnar
vinsælu rokkhljómsveitar, Bon Jovi.
Er ekki annað að sjá en þau séu
hin hamingjusömustu á þessari
mynd sem tekin var af þeim er þau
voru að maeta í mikið samkvæmi.