Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1989, Page 6
6
Viðskipti
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989.
Aðeins Mikligarður við Sund
sem breytt var í hlutafélag
- aðrar Miklagarðsverslanir eru 1 eigu KRON
Mikligarður vestur í bæ, í Hafnarfirði og í Kópavogi eru fyrirtæki aö fullu í eigu KRON.
Þröstur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri KRON, segir að það sé aðeins
Mikligarður við Sund sem breytt
hafi verið í hlutafélag en Mikligarður
vestur í bæ, í Miðvangi og í Engi-
hjalla séu fyrirtæki sem séu að fullu-
í eigu KRON.
KRON áttí áður 52 prósent í Mikla-
garði sf. við Sund, Kaupfélag Kjalar-
nesþings 6 prósent, Kaupfélag Suður-
nesja 6 prósent og Sambandið ásamt
nokkrum öðrum fyrirtækjum 36 pró-
sent.
Ekki er enn búið að birta tilkynn-
inguna um hlutafélagið Miklagarð
hf. í Lögbirtingablaðinu þrátt fyrir
Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri
KRON, segir að Mikligarður hafi
verið gerður að hlutafélagi til að
eiga möguleika á að fá inn nýtt fé
og nýja aðila i reksturinn.
að félagið hafi verið stofnað í lok
apríl, samkvæmt upplýsingum
Hlutafélagaskrár.
„Það voru smáformgallar í tilkynn-
ingunni til Hlutafélagaskrár en þeim
láðist að láta okkur vita af þeim
strax. Síöan hefur það dregist hjá
Hlutafélagaskrá að senda tilkynn-
inguna í Lögbirtingablaðið en ég veit
ekki betur en að hún birtist þar á
næstunni," segir Þröstur Ólafsson.
Sameignarfélagið Mikilgarður sf.
var með neikvæðan höfuðstól þegar
fyrirtækinu var slitið. Sá neikvæði
höfuðstóll hefur verið jafnaður út.
Þröstur viil ekki gefa upp hversu
neikvæður höfuðstóllinn var orðinn
þegar félagið var lagt niður. „Það er
trúnaðarmál," segir hann.
í sameignarfélögum bera eigend-
umir ótakmarkaða ábyrgð en í
hlutafélögum miðast ábyrgðin ein-
göngu við hlutaféð.
Þrátt fyrir að fólk taki ekki eftir
neinum útlitsbreytingum þegar
komið er inn í Miklagarð við Sund
breytir það ekki því að fólk er nú að
skipta við hlutafélag í stað sameign-
arfélags áður.
En hvers vegna var sú ákvörðun
tekin að breyta Miklagarði við Sund
í hlutafélag?
„Það er fyrst og fremst verið að opna
möguleika á að fá nýja eignaraðila
inn í fyrirtækið og þar með aukið fé.“
Athygli hefur vakið að hlutafé nýja
hlutafélagsins, Miklagarðs hf„ er
aðeins 15 milljónir króna. Er það
ekki of lítið hlutafé fyrir svo stóra
verslun?
„Þetta er einfaldlega byrjunin en
menn verða að fylgjast með fram-
haldinu og sjá hver þróunin verður,
ég á von því að hlutaféð aukist á
næstunni.“
Um það hvort Mikligarður við
Sund eigi framtíðina fyrir sér, en
stöðugur orðrómur gengur um það
að mikill og stöðugur hallarekstur
sé á versluninni, segir Þröstur að
hann efist ekki um það. Verslunin
hafi gengið í gegnum tímabundna
rekstrarerfiðleika.
Þann 1. febrúar á næsta ári mun
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins,
ÁTVR, opna áfengisútsölu í Mikla-
garði við Sund. „Það undirstrikar
enn frekar að við erum að styrkja
þessa verslun og að við höfum trú á
henni.“
Ný tækni er ný bók
Iðntæknistofnun íslands hefur gef-
ið út bók sem heitir Ný tækni. Bók-
inni er ætlað að vera leiðarvísir fyrir
þá sem vilja fræðast um tækninýj-
ungar sem verða mest áberandi á
næstunni.
í fyrsta hluta bókarinnar er fiallað
um nauðsyn staðgóðrar menntunar
fyrir þá sem þurfa að fást við nýja
tækni. í öðrum hluta bókarinnar er
skrifaö um hönnun með aðstoð tölvu
og framleiðslu með aðstoð tölvu og
helstu hugtök þegar fiallaö er um
nýja tækni. í þriðja og síðasta hluta
bókarinnar segja forráðamenn sex
fyrirtækja frá reynslu sinni af undir-
búningi og íramkvæmd tæknivæð-
ingar og birtar eru myndir úr þess-
um fyrirtækjum.
Bókin er 158 blaðsíður og kostar
útúrbúð 1.995 krónur. -JGH
NÝTHKNI
Bókin Ný tækni er gefin út af Iðn-
tæknistofnun.
Borgarstjóm:
Hótel Emskip
var samþykkt
Borgarstjóm Reykjavíkur hefur
samþykkt breytingar á skipulagi við
Skúlagötu. í breytingunum er gert
ráð fyrir hóteibyggingu Eimskipafé-
lagsins. Ehnskip getur nú skotið
málinu til skipulagssfióra ríkisins.
Ef hann er samþykkur verður bygg-
ingamefnd Reykjavíkur að sam-
þyklfia bygginguna.
„Það getur vel verið að byggingin
myndi sóma sér vel í Hong Kong eða
Singapore en hún veröur nfiög fram-
andi í þvi umhverfi þar sem hún á
að rísa,“ sagöi Sigurjón Pétursson,
borgarfulltrúi Alþýðubandalags,
sem greiddi atkvæði gegn breyting-
unum á skipulaginu.
-sme
Göngugatan á Akureyri:
Framkvæmd-
um hætt við
stórbyggingu
Gylfi Knstjánsson, DV, Akureyii:
Framkvæmdum viö sex hæða
verslunar- og skrifstofuhús viö
göngugötuna á Akureyri verður að
öllum líkindum hætt á næstu dög-
um og engar ákvarðanir hafa verið
teknar um hvenær byggingarfram-
kvæmdum verður haldið áfram.
„Framkvæmdir eru ekki langt á
veg komnar en við erum komnir
upp úr jörðinni, komnir með gólf-
plötu,“ sagði Pálmi Jónsson hjá
Lind hf. sem byggir húsið. í upp-
hafi var talaö um að húsiö yröi tek-
ið í notkun nú fyrir jólin, síðan var
rætt um næsta sumar í því sam-
bandi og fleiri útgáfur hafa heyrst.
í húsinu áttu að verða verslanir á
neðri hæðunum en skrifstofur á
hæöunum þar fyrir ofan og var
talað um „litla Kringlu," manna á
meðal á Akureyri þegar rætt var
um húsið.
„Ég reikna með að við stöðvum
framkvæmdir nú alveg á næstunni
og þaö er ástandið í þjóðfélaginu
sem veldur því. Við ætluðum í 1.
áfanga að byggja þama 3 hæðir en
við þurfum fleiri kaupendur til
þess að það sé grundvöllur fyrir
því að halda áfram. í dag höfum
við því ekki gengið frá neinni sölu
í húsinu til þess að binda ekki
hendur okkar.
Við þurfum að selja 70% af pláss-
inu á þessum þremur hæðum og
það hefur ekki tekist og vantar tals-
vert upp á. Fyrirtæki sem ætluðu
að kaupa þama em að ganga úr
skaftinu, jafnvel stöndug fyrirtæki
hér í bænum. Ástandið í þjóðfélag-
inu er orðiö þannig að menn eru
skíthræddir viö aö fara út í fiárfest-
ingar, og mér sýnist allir vera með
allt niður um sig,“ sagði Pálmi.
Að fyrirtækinu Lind hf. standa 8
aðilar, einstaklingar og fyrirtæki á
Akureyri. Pálmi sagði að algjör
óvissa væri varöandi það hvenær
framkvæmdum yrði haldið áfram
við bygginguna, hvort það yrði
næsta vor eða síðar.
Samhliða orðrómi um rekstrarerf-
iðleika Miklagarðs við Sund er sí-
felldur orðrómur um rekstrarerfið-
leika sjálfs móöurskipsins, KRON.
Hvað er hæft í því?
„Þaö er ekki ný frétt að matvöru-
verslunin á höfuðborgarsvæðinu búi
við kröpp kjör. Við hjá KRON höfum
heldur ekki reynt að fela það að síð-
astliðin tvö ár hefur verið tap á
rekstrinum. Á þessu ári hefur samt
oröið umtalsverður bati á afkomu
félagsins. Og höfuðstóll þess er já-
kvæður. Jafnframt tel ég að eignir
séu meira virði en bókfært er í reikn-
ingum. Það er ljóst að þær eignir
okkar, sem vdð erum ekki að nota,
verða fremur seldar en að lenda í
frekari greiðsluerfiðleikum."
Aö lokum má geta þess að KRON
á um 3 prósent í Samvdnnubankan-
um sem Landsbankinn hefur gert
samningumaðkaupa. -JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóösbækurób. 9-12 Bb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 11,5-13 Úb.Vb
6mán. uppsögn 12,5-15 Vb
12mán. uppsögn 12-13 Lb
18mán.uppsögn 25 lb
Tékkareikningar.alm. 2-4 Sp.Vb
Sértékkareikningar 4-12 Bb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 0,75-2 Vb
6 mán. uppsögn Innlán meðsérkjörum 2,5-3,5 Ib
21 Lb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 7,25-7,75 Ab
Sterlingspund 13,25-14 JO -O co <
Vestur-þýskmörk 6,5-7 Ib
Danskar krónur 9-10,5 Bb.lb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 27,5 Allir
Viöskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 28-32.25 Vb
Viöskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr.) 32,5-35 Lb.lb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,25-8,25 Úb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 25-31.75 Úb
SDR 10,5 Allir
Bandaríkjadalir 10-10,5 Allir
nema Úb.Vb
Sterlingspund 16.25-16,75 Úb
Vestur-þýsk mörk 9.25-9,75 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 38.4
MEÐALVEXTIR
överðtr. nóv. 89 29,3
Verótr. nóv. 89 7.7
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala nóv. 2693 stig
Ðyggingavisitala nóv. 497stig
Byggingavísitala nóv. 155,5 stig
Húsaleiguvísitala 3,5%hækkaöi 1. okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa veröbréfasjóöa
Einingabréf 1 4.391
Einingabréf 2 2.423
Einingabréf 3 2,882
Skammtímabréf 1,504
Lífeyrisbréf 2,207
Gengisbréf 1,950
Kjarabréf 4.360
Markbréf 2.312
Tekjubréf 1,852
Skyndibréf 1.316
Fjölþjóðabréf 1.268
Sjóósbréf 1 2.116
Sjóösbréf 2 1.659
Sjóðsbréf 3 1.486
Sjóösbréf 4 1.248
Vaxtasjóðsbréf 1,4905
HLUTABREF
Söluverö aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv •
Sjóvá-Almennar hf. 318 kr.
Eimskip 390 kr.
Flugleiöir 164 kr.
Hampiöjan 170 kr.
Hlutabréfasjóður 160 kr.
Iðnaöarbankinn 170 kr.
Skagstrendingur hf. 244 kr.
Útvegsbankinn hf. 148 kr.
Verslunarbankinn 148 kr.
Grandi hf. 157 kr.
Tollvörugeymslan hf. 110 kr.
(1) Viö kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Lltvegsbankinn, Vb=
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn blrtast í DV á fimmtudögum.