Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1990, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 26. MARS 1990.
Fréttir
Nýir kennarar ráðnir að meiriprófum án þess að hinum sé sagt upp:
Okkur var sýnd lítils-
virðing og dónaskapur
- segja kennaramir og vanda forstöðumanninum ekki kveðjumar
Guðjón Andrésson, nýr forstöðumaður meiraprófsnámskeiðanna, sést hér, fyrir miðju, taka við bréfi frá
Eyjólfi Guðmundssyni, t.v., og Guðjóni Einarssyni, báðum kennurum við meirapófin. DV-mynd Brynjar Gauti
„Við teljum að okkur hafi verið
sýnd lítilsvirðing og dónaskapur
sem ekki sæmir stofnun sem þess-
ari. Viö erum ráðnir sem kennarar
og starfsmenn við meiriprófin til
maíloka en er meinað að koma inn
í húsið. Við höfum aldrei fengið
uppsögn í hendur en engu að síður
er búið að ráöa nýja kennara að
námskeiðunum. Hinn nýi yfirmað-
ur hefur hagað sér nánast eins og
hann hafl veriö yfir okkur hafinn,
ekki kynnt sig eins og venja þykir
þegar nýir yfirmenn taka við og
varla haft fyrir því að kasta á okk-
ur kveðju. I þau skipti sem við höf-
um átt orðastað við hann hefur við-
kvæðið ávallt verið: Hér er það ég
sem ræö. Hann er þama eins og
þetta sé hans einkafyrirtæki,"
sögðu þeir Guðjón Einarsson, Karl
Valdimarsson, Eyjólfur Guð-
mundsson og Halldór Halldórsson,
kennarar og starfsmenn við meira-
prófsnámskeiðin, í samtali við DV.
Þeir kennarar og starfsmenn
meiriprófanna, sem ráðnir höföu
verið til að annast þau í vetur,
mættu til að setja nýtt námskeið í
húsnæði meiriprófanna við Duggu-
vog á fóstudag. Þegar þangaö kom
var Guðjón Andrésson, nýr for-
stöðumaður meiriprófanna, þar
fyrir ásamt nýjum kennurum og
meinaði þeim inngöngu í húsið.
Hafði hinn nýi forstööumaður þá
ráöið nýja kennara aö námskeið-
unum án þess að segja hinum upp.
Þeir telja sig hins vegar vera ráðna
áfram. Reyndar hefur ráðning
kennara við meiriprófin verið
munnleg frá ári til árs en í bréfi
Ingimundar Eymundssonar, deild-
arstjóra hjá meiriprófunum, sem
séð hefur um ráðningar, segir að
alltaf hafi mátt treysta þessum
samningum.
í bréfi frá Gunnari Gunnarssyni,
framkvæmdastjóra Starfsmanna-
félags ríkisstofnana, vegna fyrir-
spurnar um uppsagnir segir frá
meginréglum um uppsögn vinnu-
samriings, Þar segir meðal annars
að uppsögn skuli vera skrifleg og
tilgreina skuli ástæður hennar.
Engum af þessum reglum virðist
hafa verið fullnægt í þessu til-
viki.
„Ekkert við okkur að tala“
„Hann sagði að þangað færum
við ekki inn en svaraði að öðru leyti
engu. Hann kallaði okkur reyndar
inn í kompu og spurði þar hvað við
værum að gera þarna. Við sögð-
umst vilja halda okkar samning
sem gilti til maíloka en hann svar-
aði því til að hann hefði ekkert við
okkur að tala. Við afhentum hon-
um bréf þar sem ráðningarskilmál-
ar okkar eru staðfestir af Ingi-
mundi Eymundssyni, deildarstjóra
í meiriprófunum, en hann hafði
ekki fyrir því að lesa það.“
Að sögn kennaranna er mál þetta
allt hið undarlegasta en alls ekki
lokið af þeirra hálfu.
„Deildarstjóri prófdeildar hætti
um áramótin vegna aldurs og þá
var Guðjón Andrésson ráðinn í
starf forstöðumanns af flokksbróð-
ur sínum, dómsmálaráðherranum.
Það leiö þó langur tími áður en viö
áttuðum okkur á til hvers hann
hafði verið ráðinn. Síðan höfum við
verið að heyra utan úr bæ að hann
vantaði kennara þar sem við vild-
um ekki kenna. Það er tómt rugl,“
sögðu kennararnir.
Einn þeirra, Guðjón Einarsson,
segir sig hafa verið beittan órétti
og ofríki og hefur sent bréf til Óla
Guðbjartssonar dómsmálaráherra.
í þvi bréfi er lýst atviki þar sem
hann var viðstaddur próftöku 9.
mars, rúmum tveimur mánuöum
eftir að Guðjón Andrésson tók við.
Vildi Guðjón sem kennari fá prófin
til yfirferöar, eins og venja væri
til, áður en þau væru send próf-
dómara, hinum nýja forstööu-
manni. Spurði forstöðumaöurinn
þá hver Guðjón væri, hann hefði
ekki kynnt sig. Guðjón sagði að
yfirmaður stofnunar hlyti að eiga
frumkvæði af því að kynna sig en
var þá svarað með því að störfum
hans við meiriprófin væri lokið.
„Mér sýnist augljóst að fram-
koma af þessu tagi sé ekki samboö-
in forstöðumanni ríkisstofnunar og
tel fullvíst að þótt yfirmaður stofn-
unar geti ráðið fólk og sagt því upp
störfum þá hljóti það að eiga að
gerast á siölegri máta en hér varð
raunin," segir í bréfinu. í lok bréfs-
ins er undirrituð stuðningsyfirlýs-
ing sex félaga hans hjá meiripróf-
unum.
Þá þótti þeim kennurum skrýtið
að forstöðumaöurinn hefði ráðið
son sinn sem kennara.
„Ég hef unnið hérna í 26 ár og
þykir agalegt aö sjá þegar mjög
hæfum kennurum er sagt upp
störfum án sýnilegrar ástæðu. Ég
þekki góða kennara þar sem ég hef
samanburðinn eftir þennan tírna,“
sagði Karl Valdimarsson.
-hlh
Guðjón Andrésson, forstöðumaður Bifreiðaprófs ríkisins:
Þessir menn eru mér alveg óviðkomandi
„Þessir menn sem þú talar við
hafa aldrei unnið hjá mér. Þeir eru
mér gjörsamlega óviðkomandi. Það
er bara ráöið í hvert námskeið fyr-
ir sig þannig að þetta eru stunda-
kennarar," sagði Guðjón Andrés-
son, forstöðumaður Bifreiðaprófs
ríkisins, við DV.
- Eru þessir menn ekki ráðnir til
maíloka?
„Nei. Það hefur enginn ráöning-
arsamningur verið gerður."
- Nú segir í bréfi frá Ingimundi
Eymundssyni aö á hverju hausti
hafi veriö ráðnir menn til vors.
„Þú verður að athuga að Bifreiöa-
eftirlitið er lagt niður núna. Ég tek
við nýju fyrirtæki sem heitir Bif-
reiðapróf ríkisins. Ég er aö taka við
meiriprófunum núna en þessir
menn gerðu kröfu til þess að hafa
sömu yfirmenn og áður. Það er til-
hneiging til þess að framkvæma
breytingar þegar nýir menn taka
við og ég er alveg óbundinn af þess-
um mönnum í því. Þeir hafa heldur
aldrei óskaö efti vinnu hjá mér.“
- Hefur mönnunum verið til-
kynnt á skýran hátt um þessar
breytingar?
„Það er á vegum Guðna Karls-
sonar og ég veit ekkert um það.“
- Nú kemur þú inn um áramótin.
Af hverju er þetta fyrst að koma
upp núna?
„Þeir Guðni og Ingimundur voru
með námskeið í gangi og kláruðu
þau. Ingimundi var sagt upp störf-
um á fimmtudaginn. Nú er ég að
byija með mín námskeiö og ráða
til þess menn. Ráðuneytiö samein-
aði meira- og minnapróf og ég kom
inn 11. janúar. Þá var samið um
að Guöni og Ingimundur kláruðu
sitt. Ef mennirnir hafa ráðið sig hjá
Guðna og Ingimundi er það þeirra
að segja þeim upp. Ég taldi ekki við
hæfi að blanda mér í það. Það ætti
annars ekki að hafa farið framhjá
þessum mönnum að nýtt fyrirtæki
er tekið við. Ég endurréð þá sem
báðu um vinnu hjá mér en þessir
hafa aldrei talaö viö mig. Þeir urðu
bara reiðir þegar ég kom til og þetta
leiðindamál kom upp á dögunum
og vildu ekki tala við mig.“
Guðni sagði að það gilti ekki um
þessa menn að þeir yrðu að vera
endurráðnir til hins nýja fyrirtæk-
is þar sem þeir hefðu aðeins verið
ráðnir til eins námskeiðs í einu.
Svo yrði áfram varðandi nýja
kennara. Aðeins prófdómarar
væru fastráönir og þeir hefðu allir
verið endurráðnir hjá hinni nýju
stofnun um áramótin.
-hlh
Ófærð í Mývatnssveit:
Kisilgurinn komst ekki i skip
Kísilgúrverksmiöjan í Mývatns- „Þetta veldur mörgum kaupend- árum og er nú helsta samgöngu-
sveit hefur verið innilokuð vegna um okkar óþægindum því þeir leiðin til Húsavíkur. Það er löngu
snjóa og tókst þvi ekki að koma 300 liggja ekki með birgðir. í versta kominn tími á endurbætur á hon-
tonnum af kísilgúr í skip á laugar- falli missum við kaupendur því við um og hefur lengi legiö fyrir að það
dag. Þetta er í annað sinn í vetur erum í harðri samkeppni við aðra yrði gert en alltaf stranda fram-
sero þetta gerist. í fyrra sinníð framleiðendur víöa um heim. Víö- kvæmdir á íjármagnsleysi. Hann
hlóöst kísilgúrinn upp og lá við skiptamenn okkar í Evrópu eiga teppist á ákveönum stöðum og yrði
vandræðaástandi vegna plássleys- frekar bágt með að skilja þetta þvi vandalaust að halda honum
is. Venjulega er skipað út einu ástand enda komiö vor hjá þeim opnum ef tekið yröi á því atriði
sinni í viku um borð í strandferöa- fyrir löngu,“ sagöi Róbert Agnars- Vegagerðarmenn hér eru allir af
skip á Húsavík sem flytur kísilgúr- son, framkvæmdastjóri Kísilgúr- vilja gerðir en þvi miöur er tækja-
inn suöur tíl Reykjavíkur og þar fer verksmiðjunnar, við DV. kostur þeirra lélegur og svæöið
hann í áætlunarskip. Ef tapast ein f gær voru Reykjadalur og Mý- stórt sem halda á opnu “
ferð verður að bíða í eina viku eftir vatnsheiðimokuðenekkiKísilveg- .jj
þeirri næstu. ur. „KísUvegur var lagður fyrir 23
Mývatnssveit:
Símasambandslaust
við alla sveitina
Á laugardag bilaði símakerfið við
símstöðina í Reykjahlíð með þeim
afleiðingum að sveitin varö síma-
sambandslaus í nokkrar klukku-
stundir. Áð sögn Þórarins Ólafsson-
ar, svæðisumsjónarmanns Pósts og
síma á Húsavík, tókst að laga sima-
sambandið til bráöabirgða og veröur
fullnaðarviðgerð reynd í vikunni.
Orsök sambandsleysisins var bilun í
fjölsímasambandi úr stöðinni í
Reykjahlíð til Húsavíkur.
A laugardag leit út fyrir að viðgerö-
arflokkar yrðu að fara í Mývatns-
sveitina á vélsleðum en helstu vegir
innan sveitarinnar hafa verið meira
og minna ófærir síðan um áramót.
Hins vegar tókst að gera við sam-
bandið á símstöðinni á Húsavík.
„Þegar ljóst var að ekkert var aö í
símstöðinni sjálfri og rafmagn í lagi
vissum við að bilunin lá í fjölsíma-
sambandinu," sagði Þórarinn Ólafs-
son.
-JJ