Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1990, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1990, Side 6
6 MÁNSUDAGUk k \ÍARSÍégÁ Fréttir Sænski blaðamaðurinn og metsöluhöfundurinn Jan Guiilou 1 viðtali við DV: Njósnasögur byggðar á reynslu höfundar Blaöamaðurinn og metsöluhöfundurinn Jan Guillou í Norræna húsinu á laugardag þar sem bækur hans um njósnarann Hamilton voru kynntar. DV-mynd Hanna Níu árum eftir aö Jan Guillou, umdeildasti blaðamaður Svíþjóðar og metsöluhöfundur, sat í fangelsi dæmdur fyrir njósnir í kjölfar upp- ljóstrana um njósnastarfsemi leyni- þjónustu sænska hersins var honum veitt eftirfór af norsku öryggislög- reglunni í Osló. Hann sendi henni langt nef en fékk um leið hugmynd- ina að því að skrifa njósnasögur. „Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið þegar ég varð var við eftirfor norsku öryggislögreglumannanna þegar ég kom út af hótelinu sem ég dvaldi á. Ég hélt að samskiptum mín- um og öryggislögreglumanna væri löngu lokið en ákvað að gera eftirför- ina að góðri æfingu fyrir þá,“ sagði Guillou við blaðamann DV sem ræddi við hann um helgina. Hingað kom Guillou í tilefni kynningar á bókum hans. Guillou lýsti því hvemig hann hefði farið inn í stórmarkað til að gera lögreglumönnunum erfitt um vik. Hann gekk út frá því sem vísu að þeir ætluðu að fylgjast með því hvort hann hefði samband við ein- hvem. „Og þá datt mér í hug að rugla þá í ríminu. Ég fór að máta hanska og setti svo gráan í bunka með brún- um og svo öfugt. Svona til að þeir héldu að þetta ætti að tákna eitthvað eða að skilaboð væri að finna í þeim hönskum sem ég heföi mátað. Svit- inn fór að boga af lögreglumönnun- um þegar þeir eltu mig á milli deilda, meira að segja í undirfatadeild kvenna,“ sagði Guillou og var greini- lega skemmt við minninguna. „Og ekki gátu þeir farið úr frökkunum því þeir vom með labbrabbtæki inn- an á sér sem þeir þurftu að dylja. Ekki gat orðið af fundi mínum og kunningja míns vegna veikinda dótt- ur hans þannig að ég ákvað aö snúa heim til Stokkhólms, eftir að hafa gamnað mér með norsku öryggislög- reglunni í heilan dag. í kaffiteríunni á flugvellinum keypti ég mér dagblöð til að reyna að komast að því hvort ég gæti séð í þeim eitthvert tilefni þess að mér var veitt eftirfór. Eitt- hvað mikilvægt hlaut aö vera á seyði. í blöðunum sá ég að von var á ísra- elskri sendinefnd til Oslóar daginn eftir og ég haföi pantað herbergi á sama hóteli og sendinefndin." Langt nef Guillou ákvað að gera gys að örygg- islögreglumönnunum sem auðvitað höföu elt hann inn í kaffiteríuna. Reyndar höföu þar orðið vaktaskipti því þeir em ekki látnir hafa næga peninga til að geta setið yfir. heilh máltíð, eins og hann sagði. „Þeir sem fyrir vom gátu ekki lengur setið yfir kaffibollunum sínum án þess að það yrði áberandi og nýir voru teknir við. Ég gerði hring utan um fréttina af komu ísraelsku sendinefndarinn- ar, lét blaðiö falla niður á borð þeirra nýkomnu og gaf þeim langt nef. í flugvélinni á leið heim fékk ég hug- myndina að því að skrifa njósna- sögu.“ Guillou velti því fyrir sér hvernig öryggislögreglumennirnir myndu greina frá viðureign sinni við hann. Líklegustu niðurstööu norsku örygg- islögreglunnar taldi hann verða að með eftirfórinni heföi tekist að koma í veg fyrir aðgerðir af hans hálfu. Hann fékk löngun til að lýsa vinnu- brögðum öryggislögreglunnar þar sem þemað væri: Hver er sannleikur- inn? Njósnir sænska hersins Vinnubrögðin þekkti hann sannar- lega vel eftir að hafa verið yfirheyrð- ur af sænsku öryggislögreglunni í sex mánuði í kjölfar uppljóstrana sinna um njósnastarfsemi leyniþjón- ustu sænska hersins. Hann kynntist hugsanagangi starfsmanna öryggis- lögreglunnar og gerði sér grein fyrir bakgranni þeirra. Þekkingu sína gat hann notað í skrifum njósnasagn- anna. Það var árið 1973 sem IB-málið svo- kallaða kom fram í dagsljósið í vinstra blaðinu FIB/Kulturfront. IB er skammstöfun á informationsbyrá sem þýðir upplýsingaskrifstofa. Und- ir því nafni gekk leynileg deild innan leyniþjónustu hersins. Engir vissu um tilvist þessarar deildar nema Palme forsætisráðherra og yfirmað- ur sænska hersins. Meö rannsókn- um sínum höföu Guillou og annar blaöamaður komist að því að deild þessi fylgdist með starfsemi vinstri sinnaðra samtaka í Svíþjóð. Öryggislögreglunni hafði sam- kvæmt lögum verið bannað að fylgj- ast með slíku, meðal annars í kjölfar skrifa Guillou um starfsemi hennar. Auk þessara ólöglegu njósna sinnti þessi deild leyniþjónustunnar einnig eigin samskiptum við erlend ríki. „Vegna afstöðu sænskra stjóm- valda til Víetnamstríðsins hafði sendiherra Bandaríkjanna í Svíþjóð verið kallaður heim og sömuleiðis sendiherra Svíþjóöar í Bandaríkjun- um. En það var sænskt sendiráð í Hanoi og þær upplýsingar sem bár- ust frá því voru seldar bandarísku leyniþjónustunni CIA. IB-deildin vann einnig með ísraelum og seldi þeim upplýsingar um Palestínu- menn.“ Uppljóstranir Guillous leiddu meöal annars til breytinga á stjórnarskránni. Guillou var hins vegar dæmdur í eins árs fangelsi fyr- ir njósnir. Sterk réttlætiskennd Þetta vom reyndar ekki fyrstu uppljóstranimar á blaðamannsferli Guillous, ferli sem byrjaði glæsilega. Hann haföi farið í lögfræðinám þar sem hann taldi það bestu leiðina til að berjast fyrir réttlæti. Vegna sárrar reynslu í bemsku var réttlætiskennd hans sterk. „Það má eiginlega segja að ég hafi fæðst á ríkismannsheim- ili, þar var þjónustufólk og einkabíl- stjóri. Móðir mín, sem var norsk, og faðir minn, sem var franskur, skildu. Móðir mín giftist aftur, Svía, sem misþyrmdi mér og sóaði fé móður minnar. Ég misþyrmdi honum hins vegar þegar ég var orðinn nógu stór. Þegar móöir mín losaði sig loksins við stjúpföður minn voram við næst- um því orðin fátæk.“ Guillou hafði verið á heimavistar- skóla þar sem ríkti mikið ranglæti og eftir að hann haföi tekið ákvörðun um aö skrifa greinar og selja til að fjárm'agna nám sitt fór hann til skól- ans sem blaðamaður. Umfjöllun hans vakti gífurlega athygli, alhr fiölmiðlar skrifuðu um málið og skól- inn var búinn aö vera. Þetta þótti honum, þá 22 ára, stórkostlegt. Með einni blaðagrein hafði honum tekist að gera það sem hann hafði taliö að myndi taka hann allt lífið sem lög- fræðingur. Nokkru seinna fór hann til norður- hluta Svíþjóðar og skrifaði eftir þá ferð um gamla Sama sem urðu að hírast í skúmaskotúm þar sem þeir fengu ekki inni á elliheimilum. Rök embættismanns þar voru að Samar þyldu betur kulda en aðrir og svo væru þeir heldur ekki alvöru Svíar. í kjölfar greinar Guillous var emb- ættismaðurinn rekinn og Samarnir komust inn á elliheimiliö. Þar með var framtíð Guillous ráðin. „Ég sá aö með blaðamennsku var hægt að berjast fyrir réttlætinu." Einn stærsta sigur sinn vann Gu- illou fyrir nokkrum árum þegar hæstiréttur sýknaði ungan mann sem dæmdur var saklaus fyrir aðild að moröi. Guillou hafði lengi barist fyrir að málið yrði tekið upp að nýju. En þrátt fyrir glæstan feril staifar Guillou ekki lengur sem blaðamað- ur. Er það satt að hann sé svo um- deildur að hann geti það ekki lengur? „Það er hálfur sannleikur. í átta ár eða þar til í fyrravor vann ég á sænska ríkissjónvarpinu en þar ættu reyndar bara fulltrúar yfirvalda að starfa. Fjöldi áhorfenda að þáttum mínum jókst stöðugt ár frá ári en samtímis minnkuðu fiárframlögin til þáttanna jafnt og þétt. Síðastliðið vor taldi ég það ekki heiðarlegt að halda áfram undir þessum kringumstæö- um.“ Njósnarinn Hamilton Hann hafði ofsóknir öryggislög- reglunnar á hendur Kúrdum í huga þegar hann skrifaði fyrstu njósna- söguna sína. „Kúrdum er kennt um allt og þegar rannsóknin á Palme- morðinu fór af stað beindist athyglin því miður fyrst að þeim,“ sagði Gu- illou sem sannfærður er um að einn maður hafi verið að verki og það Christer Pettersson. í fyrstu njósna- sögunni lætur hann Palestínumenn gegna hlutverki Kúrda. Allt virkar raunverulegt í bókinni og að sögn Guillous er flestallt satt í fyrstu bók- inni. „Ég spurði sjálfan mig að því hvort fólk hlyti ekki að vilja njósna- sögur þar sem raunveruleikinn væri til staðar úr því aö það kaupir eins og heitar lummur njósnasögur þar sem ekkert virðist geta staöist. Ég hafði tekið eftir því að á flugvöllum er mikið framboð af slíkum sögum en sjálfur gafst ég alltaf upp eftir að hafa lesið 30 til 40 síður. Ég var van- ur að segja við sjálfan mig að þetta gæti ekki verið satt, svona gengi þetta ekki til.“ Og við undirbúning bóka sinna hefur Guillou ráðfært sig við fyrrum yfirmann IB og yfirmann öryggislögreglunnar. Aðalsöguhetjan, Carl Gustaf Gil- bert Hamilton, er tilbúin persóna. Ungir menn af heldri ættum sem gerðust félagar í vinstri hreyfingum á sjöunda áratugnum voru ofarlega í huga Guillous þegar hann skapaði njósnarann Hamilton. „Nafnið Hamilton var vahð af handahófi. Það er reyndar algeng- asta eftirnafn aðalsmanna i Svíþjóð og ekki sakaði að auðvelt er að bera það fram utan Svíþjóðar," sagði Gu- illou kíminn sem einnig gaf aðal- söguhetjunni nokkur algengustu for- nöfn sænskra aðalsmanna. Hann sagði nokkra greifa af Hamiltonætt- inni hafa hringt eftir útkomu fyrstu bókarinnar og voru þeir talsvert óró- legir. Kvaðst hann hafa getað róað þá meö því að segja þeim frá því að í lok bókarinnar fengi Hamilton orðu fyrir afrek sín. Og þaö fær hann reyndar í lok allra bókanna fiögurra sem út em komnar um hann. Viðbrögðin við bókunum um njósnarann Hamilton, sem í er mikil ádeila, voru öðmvísi en Guillou átti von á. Hann hafði búist við umræð- um en þær urðu engar. Hann hafði vonast eftir breytingum. Og hann hafði búist við að þær seldust svipað og flestar aðrar bækur. En fyrstu fiórar bækurnar hafa selst í 1,3 millj- ónum eintaka. Guillou benti á að Svíar væm sjálfir ekki nema um 8 milljónir. Skýring hans á því hvers vegna svo margir kaupa bækurnar er sú að almenningur þekkir Svíþjóð af þeim og hefur aujc þess áhuga á að vita hvernig valdaápparatið lítur út. „Ég get ekki farið fram á meir,“ sagði hann alls ekki óánægður á svip. IBS Sandkom Slagurinn um álverið Togstreítan um staðsetn- ingunýsálvers (■r i algk.'j m- ; ingi.ogýmsum brögðumbeittí þeirribaráttu. Árni Gunnars- ______________ sonalþingis- maður upplýsti á fundi á Akureyri fyrir skömmu að þegar forstjórar tveggja fiTÍrtækja í Atlantal-hópnum heimsóttu Austfirðinga á dögunum hefði komið í ljós að Reyðfirðingar höfðu búið sig vel undir þann fund. Þeir höíðu m.a. hengt upp á veggi kort sem sýndu helstu eldvirku svæðin á f slandi og þar var m.a. bent á Mývatnssvæðið. Annað kort sýndi jarðskjálftasvæði og ekkert var dreg- iðúrþví að á Eyjafjarðarsvæðinu hafa orðið jarðskjálftar. Einnig sýndu þeir kort af hafis við ísland og vöktu athygli á að hafís hefði legið við mynni Eyjafiaröar. Það er greini- lega ölfum brögðum beitt í þessari baráttu. GuðmundurÁmi hranalegur ÁrniGunn- arssonvar greinilega óhress með málflutning ílokksbrciður síns, Guð; mundarÁrna Stefánssonar, bæjarstjóra í Hafharfiröi, i þessu máli. Árni sagði hvimleitt að heyra það sem haft heföi verið eftir Guð- mundi Árna í málinu að það væri nánast ófrávíkjanleg regla að álver væru staðsett á Reykjanessvæðinu. Þau ummæli væru sér lítt að skapí og Guðmundur Ámi hefði farið hranalega fram í öllum málflutningi sínum. Guðmundur Árni hefurbent á það að umræða um aðra staðsetn- ingu álversins cn á Straumsvíkur- svæðinu geti tafið framgang málsins. Bjartsýni nyrðra Óhætterað segjaaðbjart- sýni nyrðra hafi aukisl og JCyfirðinyar teljamunhk- legraenáður aðálveriðkomi íþeirrahlut. Spilar margt þar inn í, s.s. þaö að stjórnvöld geti hreiniega ekki sam- þykkt byggingu þess á Reykjanesi vegnabyggðarsjónarmiða. Bjartsýn- in jókst mjög við tilkomu Alumax í Atlantal-hópsins þvi forráöamenn þess fyrirtækis munu hafa lítinn áhuga á að vera i nábýli við álverið í Straumsvík, t,d. ef mengunarslys ætti sér stað. Þá hefur heyrst að Straumsvikurmenn hafi heldur ekki mikinn áhuga á að fá keppinaut handan götunnar sera hugsanlega myndi taka frá þeím þjálfaðan vinnu- kraft. - Mitt i allri þessari þjartsýni Eyfirðinga heyrist síðan ein og ein rödd sem varar viö of mikilh bjart- sýni, enn sé langt í land, Davíð skemmt Vandræða- canvuraml- sta'ðingaSjálf- stæðístlokkslns í horgarmálun- umíReykjavik viröistætlaað vera endalaus ______ og rekurhver uppákoman aðra. Gengur svo langt að menn virðast varla vita i hvaða flokki þeir eru eða þá að þeir æfla að starfa á tveimur vígstöðvum. Gangur mikið á og ekki virðist framapotið ætla að verða minna hjá hinum nýju samtökum sem kalla sig Nýjan vettvang. Fer ekki hjá því aö fólki þyki að ööruvísi eigi að standa að framboðsmálum á þeim bæ en rætt var um þegar umræöan um stofnun samtakanna var að hefiast. Bjarni Magnússon, alþýðuflokks- maður sem Jón Baldvin Hannibals- son sagði aö ekki borgaöi sig að ey ða atkvæði á, ætlar í 1. sætið, sömuleið- is Ólína Þorvarðardóttir og sennilega Kristín Ólafsdóttir einnig. Lítið heyr- ist hlns vegar í Davíð konungi meðan á þessum ósköpum stendur, hann lætur andstæðinga sína einfaldlega um aö færa sér öll vopnin upp í hend- urnar og er án efa skemmt. Umsjón: Gylfi Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.