Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Blaðsíða 42
50
L'AUGAR'DAGUR 21. APRÍL 1990.
Afmæli dv
Stefán Halldórsson I I
Stefán Halldórsson múrarameist-
ari, Eyrarlandi 20, Akureyri, er átta-
tíu og Fimm ára í dag. Stefán er
fæddur í Garöi í Mývatnssveit og
lauk sveinsprófi í múraraiðn 1928.
Hann vann við þá iðn sem múrara-
meistari á Akureyri og var lengi
verkstjóri hjá Kaupfélagi Eyfirð-
inga. Stefán var húsvörður í Tónlist
arskólanum á Akureyri til 1988.
Hann hefur verið í Karlakórnum
Geysi frá 1928 og sy ngur enn með
„Gömlum Geysisfélögum", einnig
er hann í Kór aldraðra á Akureyri.
Stefán starfaöi einnig með Leikfé-
lagi Akureyrar í nokkur ár og er
heiðursfélagi í Múrarafélagi Akur-
eyrar. Fyrri kona Stefáns var Bára
Lyngdal Magnúsdóttir, f. 15. janúar
1908, d. 2. júlí 1944. Börn Stefáns og
Báru eru Magnús, f. 2. nóvember
1936, barnalæknir á Akureyri, fyrri
kona hans er Gerður Ólafsdóttur,
hjúkrunarfræðingur, börn þeirra
eru: Óiafur, f. 5. nóvember 1962,
múrari, kvæntur Örnu Arnardótt-
ur, börn þeirra eru: Arnar, f. 1985
og Sindri Már, f. 1988; Bára Lyngd-
al, f. 3. júlí 1964, leikari, sonur henn-
ar er: Þengill Þrastarson, f. 1988;
Brynja, f. 8. júlí 1971; Stefán, f. 5.
október 1975; Magnús, f. 5. október
1975; seinni kona Magnúsar er Sig-
ríður Jónsdóttir læknaritari. Bára,
f. 9. mai 1944, skrifstofustjóri Flugfé-
lags Norðurlands, Akureyri, gift
Gunnari Tryggvasyni bílasala, þau
skildu, synir þeirra eru: Stefán, f.
10. júlí 1969, ogTryggvi, f. 18. sept-
ember 1973. Seinni kona Stefáns er:
Brynja Siguröardóttir, f. 28. sept-
ember 1919. Dætur Stefáns og
Brynju eru: Ingibjörg, f. 21. maí 1948,
ritari, gift Smára Sigurðssyni,
múrarameistara, börn þeirra eru:
Agnes, f. 7. september 1967, lækna-
nemi, sambýlismaður hennar er:
Davíð Stefánsson stjórnmálafræði-
nemi, Anna Brynja, f. 20. júní 1972,
og Magnús Smári, f. 8. janúar 1985;
Sigríður, f. 5. maí 1953, hjúkrunar-
fræðingur í Svíþjóð, gift Tommy Asp
vélvirkja, dætur hennar eru: Gerð-
ur Olofsson, f. 15. febrúar 1972, alin
upp hjá Stefáni og Brynju, Charlotta
Asp, f. 9. júní 1981, og Súsanna Asp,
f. 20. desember 1983; Hrafnhildur, f.
4. október 1955, fóstra og kaup-
maður á Akureyri, gift Kára I. Guð-
mann kaupmanni, synir þeirra eru:
Róbert, f. 17. ágúst 1978, og Brynjar,
f. 9. maí 1983, og Halldóra, f. 17. fe-
brúar 1962, ritari, gift Grími Laxdal,
starfsmanni hjá Vör. Systir Stefáns
var Anna, f. 5. júní 1902, d. 21. maí
1975.
Foreldrar Stefáns eru: Halldór
Stefánsson, b. í Garði í Mývatns-
sveit, og kona hans, Ingibjörg Lýðs-
dóttir. Halldór var sonur Stefáns,
b. í Haganesi, Gamalíelssonar og
konu hans, Bjargar Helgadóttur, b.
á Skútustöðum, Ásmundssonar,
ættfóður Skútustaðaættarinnar.
Ingibjörg var dóttir Lýðs, b. og
hreppstjóra á Skriðnesenni í Bitru-
Stefán Halldórsson.
firði, Jónssonar og konu hans, Önnu
Magnúsdóttur. Stefán verður að
heimanídag.
Guðrún Tryggvadóttir
Guðrún Tryggvadóttir, Þursstöð-
um, Borgarhreppi, Mýrasýslu, verö-
ur sjötug á morgun. Guðrún er fædd
á Þórshöfn á Langanesi og var í
námi í húsmæðraskólanum á Hall-
ormsstað. Hún lærði síðan kjóla-
saum og er kjólameistari. Guörún
giftist 1942 Helga Jónassyni, f. 5. maí
1906, b. á Þursstöðum. Foreldrar
Helga voru: Jónas Helgason, b. á
Þursstöðum, og kona hans, Guðrún
Þórðardóttir. Börn Guðrúnar og
Helga eru: Helgi Jónas, f. 9. apríl
1947; Guðrún Magnea, f. 28. apríl
1947, og Þórunn, f. 9. desember 1951.
Uppeldisdóttir Guðrúnar og Helga
er Lilja Bára, f. 1. júní 1952. Systkini
Guðrúnar, sem komust upp, eru:
Alfreð, f. 1915; Sigfús, f. 1923; Helga,
f. 1924; Jakob, f. 1926; Ólafur, f. 1929;
Sverrir, f. 1930; Ingólfur, f. 1934, og
Signý, f. 1936.
Foreldrar Guðrúnar voru:
Tryggvi Sigfússon, sjómaður og út-
gerðarmaöur á Þórshöfn, og kona
hans, Stefanía Sigurbjörg Kristjáns-
dóttir. Tryggvi var sonur Sigfúsar
Jónssonar pósts og konu hans, Guð-
rúnar Guðmundsdóttur.
Stefanía var dóttir Kristjáns Jak-
obssonar á Svínabökkum í Vopna-
firöi, Sveinssonar, b. í Vatnadals-
gerði, Jónssonar, b. á Þorvaldsstöð-
um á Tjörnesi, Árnasonar, b. á
Grímsstöðum, Jónssonar, b. í Hóls-
seli á Fjalli, Sigurðssonar, b. í Hóls-
seli, Sigurðssonar. Móöir Sigurðar
var Sesselja Gunnlaugsdóttir, prests
í Möðrudal, Sölvasonar, og konu
hans, Ólafar Jónsdóttur. Móðir Stef-
aníu var Signý Sigurlaug Davíðs-
dóttir, vinnumanns í Höfn á Langa-
nesströndum, Sigmundssonar, b. á
Bakka á Tjörnesi, Sigfússonar, b. á
Bakka, Þorlákssonar, b. á
Klömbrum í Aöaldal, Guðmunds-
sonar, b. á Birningsstöðum í Lax-
árdal, Þorlákssonar, b. á Halldórs-
stöðum, Björnssonar b. á Laxamýri,
Magnússonar, lögréttumanns í
Djúpadal í Eyjafirði, Árnasonar.
Móðir Björns var Þuríður Sigurðar-
dóttir, officialis á Grenjaðarstaö,
Jónssonar, biskups og skálds á Hól-
um, Arasonar. Móðir Davíðs var
Ólöf Stefánsdóttir tvíbreiðs Kvæða-
Stefánssonar (bróður Galdra-Þor-
geirs), Stefánssonar, b. í Skógum í
Hörgárdal, Jónssonar, b. á Steins-
stöðum í Öxnadal, Einarssonar,
prests á Myrká, Magnússonar,
prests á Sauðanesi, Ólafssonar,
prests og skálds á Sauðanesi, Guð-
mundssonar. Móðir Signýjar var
Guðrún Jónsdóttir, b. á Langanesi,
Steinmóðssonar, b. í Skoruvík,
Torfasonar, b. í Hlíð, Illugasonar,
b. á Ytra-Lóni, Bjarnasonar, b. á
Guðrún Tryggvadóttir.
Ytra-Lóni, Sæmundssonar, b. á
Skálum, Jónssonar, prests og skálds
í Presthólum, Bjarnasonar.
Menning
Jarðbundin verk og loftkastalar
Þaö er undarleg tilfinning sem fylgir því að labba
hornanna á milli í austursal Kjarvalsstaða.
Öðrum megin í salnum eru myndlengjur eöa bekkir
Jóns Axels, í hæsta máta huglæg verk. Hinum megin
eru konumyndir Sóleyjar Eiríksdóttur, eins gegnheilar
og jarðbundnar og hugsast getur. Að hverfa frá Jóni
til Sóleyjar er eins og að ganga á vegg.
Að sínu leyti staðfesta þessar sýningar það sem mig
hefur ævinlega grunað, þaö er að konur einbeiti sér
yfirleitt að því aö moða úr því sem er áþreifanlegt, „hér
og nú“, en karlmenn eru gjarnir á að byggja sér loft-
kastala.
En þetta er sannarlega útúrdúr.
„Loftkastalar" Jóns Axels, fjórir að tölu, eru sannar-
lega bæði margræð verk og metnaðarfull. Sjálfur tel
ég mig tæplega vera þess umkominn að brjóta til
mergjar þær hugmyndir sem liggja að baki þeim, tæpi
því aðeins á nokkrum atriðum sem vert er aö hafa í
huga við skoöun þeirra.
Þetta eru í fyrsta lagi lengri verk en Jón Axel hefur
áður gert, sem þýðir meðal annars að í stað þess að
byggja upp rismikla þungamiðju stílar hann upp á
ákveðið ferli, sem áhorfandinn getur gripið niður í þar
sem honum sýnist og rakið í hvora áttina sem hann
vill.
Mannlaus verk
í annan stað er enga mannveru að finna í þessum
umfangsmiklu verkum. Þó finnur áhorfandinn mjög
sterkt fyrir mannlegri nálægð í þeim hversdagslegu
gripum, aðallega ílátum sem listamaðurinn dreifir um
myndflötinn. Og ekki aðeins mannlegri, því ílátin:
kaleikur, könnur og matardiskar, skírskota beinlínis
til píslarsögunnar. Því er út af fyrir sig vel við hæfi
að sýningin skuli standa yfir akkúrat nú.
Þó hefur listamaðurinn látið hafa eftir sér að hann
sé ekki að mála trúarlegar myndir, heldur myndir um
trú, og þá helst trúarleg tákn.
Sjálfur efniviðurinn .í myndunum, krossviður og
stálplötur, virðist virkjaður í þágu þessarar óvanalegu
rannsóknar. Til dæmis er „næturmyndin" 7 nætur
eingöngu úr blásvörtum stálplötum, en í kvöldmáltíð-
armyndinni 13 diskar eru krossviðar- og stálplötur á
víxl, óefað af góðum og gildum ástæðum.
Uppsöfnuð helgi
Við skoðun þessara verka kemur í ljós aö vegna
Jón Axel og Sóley Eiriksdóttir á sýningu sinni.
DV-mynd Brynjar Gauti
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
sinnar uppsöfnuðu helgi geta ílátin/táknin í raun kom-
ið í stað hins mannlega drama. ílátin/táknin kveikja
hina stóru myndfleti til lífs engu síður en þær kröft-
ugu mannverur sem Jón Axel málaði áður af svo mik-
illi innlifun. Og það sem meira er, ílátin/táknin gera
okkur að beinum þátttakendum í hinni dramatísku
framvindu - öfugt við hinar máluðu mannverur, sem
tóku á sig syndir okkar áhorfendanna.
Það verður spennandi að fylgjast með framvindu
þessarar hugmyndafræði í verkum Jóns Axels.
Skúlptúrar Sóleyjar verða stöðugt hnitmiðaðri í
forminu og skilvirkari í skírskotunum sínum. Þeir eru
í senn erkitýpískir og nýsmíði(konkret), tignarlegir
og glaðhlakkalegir.
Á sýningu hennar er varla veikan punkt aðiinna.
-ai.
Dieter Roth.
Dieter
Roth
Dieter Roth myndlistarmaður,
búsettur á Bala í Mosfellsbæ og
Basel í Sviss, er sextugur í dag. Börn
hans og tengdabörn bjóða þeim sem
vilja vera með á afmælishópmynd
til hans að koma saman við Lista-
safn Einars Jónssonar stundvíslega
kl. 17 í dag, laugardag.
75 ára
Bessi Guðlaugsson,
Bústaðavegi65, Reykjavík.
70 ára
Kristján Valdimarsson,
Böðvarsnesi, Hálshreppi.
60 ára
Siguijón Valberg Jónsson,
Vallargötu 27, Miðneshreppi.
50 ára
Gunnar Gunnarsson,
Engihlið6, Ólafsvík.
Josepha vanPeer,
Stigahiíð 63, Reykjavík.
Ragnar Christiansen,
Þórsmörk 3, Hverageröi.
40 ára
Ólafur Örn Thoroddsen,
Bjargarstig 15, Reykjavík.
Sigrún Hannibalsdóttir,
Hrafnhólum 8, Reykjavík.
Jóna Magnúsdóttir,
Vesturvallagötu6, Reykjavík.
Hólmfríður Guðjónsdóttir,
Holtabrún 17, Bolungarvík.
Þorgils Sigurþórsson,
Stillholti 5, Akranesi.
Gunnar E. Guðmundsson,
Marklandi 4, Reykjavík.
Kristinn Bjarnason,
Höfðabraut 14, Akranesi.
Ólöf María Olsen,
Miövangi 8, Hafnarfirði.