Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1990. 5 dv Fréttir Akureyri: Kvennalisti kominn fram Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Kvennalistinn á Akureyri hefur birt framboðslista sinn fyrir bæjar- stjórnarkosningar á Akureyri óg eru 11 efstu sætin skipuð þessum konum: 1. Valgerður Magnúsdóttir sál- fræðingur, 2. Sigurborg Daðadóttir dýralæknir, 3. Lára Ellingsen ritari, 4. Hólmfríður Jónsdóttir bókavörö- ur, 5. Gunnhildur Bragadóttir sjúkraliði, 6. Halldóra Haraldsdóttir skólastjóri, 7. Elín Stephensen kenn- ari, 8. Sigurlaug Arngrímsdóttir hjúkrunarfræðingur, 9. Elín Antons- dóttir nemi, 10. Þorgerður Hauks- dóttir kennari, 11. Vilborg Trausta- dóttir húsmóðir. Kvennalistinn: Ekki framboð í Hafnarfirði Kvennalistakonur í Hafnarfirði hafa ákveðið að bjóða ekki fram við bæjarstjórnarkosningarnar. Kon- urnar funduðu talsvert um fram- boðsmálin en að lokum ákváðu þær að bjóða ekki fram. Við kosningarnar 1986 bauð Kvennalistinn fram í Hafnarfirði. Þær fengu engan fulltrúa kjörinn í bæjarstjórn. Allt bendir til þess að fjögur fram- boð verði í Hafnarfírði. -sme Akureyri: Þjóðar- flokkurinn í kosninga- slaginn Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Þjóðarflokkurinn ætlar að bjóða fram við bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri í næsta mánuði og verður þetta í fyrsta skipti sem flokkurinn er í framboði við sveitar.tjórnar- kosningar. Undirbúningur að þessu framboði hefur farið leynt en að sögn Valdi- mars Péturssonar, sem mun að öll- um líkindum skipa efsta sæti lista flokksins, verður gengið endanlega frá framboðslista um helgina. Krossanesverksmiðjan: Geir var sagt upp Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: Geir Zoega, forstjóra Krossanes- verksmiðjunnar á Akureyri, hefur verið sagt upp störfum og hefur hann hætt sem forstjóri fyrirtækisins. Að sögn heimildarmanna DV munu hafa verið talsverðir sam- starfserfiðleikar milli ’ Geirs og stjórnar verksmiðjunnar sem munu vera undirrót uppsagnarinnar. Þá var mikið um „árekstra" milli Geirs og annarra starfsmanna verksmiðj- unnar á sínum tíma. Tveir forstjórar hafa verið látnir fara frá verksmiðjunni á skömmum tíma, en sá sem nú tekur við er fngi Björnsson, Qármálastjóri Álafoss. NYR VETTVANGUR - NY VINNUBROGÐ Nýr vettvangur vinnur nú að málefnum Reykvíkinga með þvi að útfæra stefnuramma framboðsins. Á þeim grundvelli mun borgarmálaráð Nýs vettvangs starfa næsta kjörtímabíl í borgarstjórn Reykjavíkur. Það stuðn- ingsfólk, sem vill taka þátt í þessu starfi, er hvatt til þess að skrá síg i málefnahópa nú um helgína. Þátttaka tilkynnist á skrífstofu Nýs vettvangs á horni Bankastrætis og Þingholtsstrætís fram á mánudagskvöld. Málefnahópar: 1. Lýðræðísleg stjórnun borgarinnar. 2. Umhverfi, skipulag og almannavarnir. 3. Rekstur borgarinnar og tengsl við atvínnulíf. 4. Menning, listír og íþróttir. 5..MáIefní barna og unglinga. 6. Málefni aldraðra. 7. Húsnæðismál. VINNUM SAMAN I VOR Símar 625525 - 625524 ALVORU VIDEÓLEIGA gij&t otTtaL WIUW.MS who' ■ tatUWA1 Myfathtn «»«<».** lamt’ waWI SMIÐSBÚÐ 6 - SÍMI 42633 HAMRABORG 11 - SÍMI 641320 MJÓDD - SÍMI 670066 LÁGMÚLA 7 - SÍMI 685333 SKIPHOLTI 50 - SÍMI 688040

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.