Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 21.04.1990, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 21. APRÍL 1990. 51 Afmæli Sesselja Sumarrós Sigurðardóttir Sesselja Sumarrós Sigurðardóttir, Smáratúni 20, Selfossi, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Sesselja Sumarrós fæddist á Víðinesi á Kjal- arnesi á sumardaginn fyrsta 1915 og fluttist meö foreldrum sínum í Seljatungu í Gaulverjabæjarhreppi vorið 1919. Auk barnaskólanáms, fjögurra vetra farkennslu sem þá var algengust, á S viðugörðum og í Gaulverjabæ nam hún í Húsmæðra- skóla Suðurlands á Laugarvatni 1942-1943 og á saumastofu í Reykja- vík. Sesselja vann fyrst á búi for- eldra sinna og var síðan í vist víöa. Hún vann oft í mötuneyti KÁ á Sel- fossi á veturna en á búi foreldra sinna á sumrin. Sesselja var ráðs- kona á Laugardælabúinu 1943-1947, húsfreyja á Geldingalæk 1948-1949 og í Seljatungu 1949-1973 er þau hjón fluttu að Selfossi. Hún vann við matreiðslu hjá Sjúkrahúsi Selfoss 1973-1985 og síðan að mestu á heimili sínu. Sesselja giftist á sumardaginn fyrsta 1948,22. apríl, Vigfúsi Einars- syni, f. 5. september 1924. Foreldrar Vigfúsar: Einar Sigurðsson, verka- maður og b., fyrst á Gljúfri í Ölfusi, síðar á Helli, og kona hans, Pálína Benediktsdóttir. Börn Sesselju og Vigfúsar eru: Einar Páll, f. 3. nóvember 1948, verkamaðurí Gaulverjabæ; Sigurð- ur, f. 17. ágúst 1950, þjónn í Rvík, kvæntur Hrönn Sverrisdóttur, þau skildu, börn þeirra eru: Sesselja Sumarrós, f. 10. febrúar 1977, Jónína Eirný, f. 2. júní 1981, Árný Ösp og Vigfús Snær, f. 24. ágúst 1982; og Ingibjörg, f. 19. maí 1956, útgerðar- tæknir í Rvík, gift Ólafi Jónssyni á Eyrarbakka, dóttir þeirra er Halla, f. 24. febrúar 1978. , Systkini Sesselju eru: Sigríður, f. 11. apríl 1912, gift Guðmundi Sig- urðssyni, d. í október 1987, b. á Sviðugörðum í Gaulverjabæjar- hreppi, sonur þeirra er Sigurður, f. 29. maí 1942; Þorsteinn, f. 21. apríl 1913, húsasmiður á Selfossi, kvænt- ur Guðrúnu Valdimarsdóttur, börn þeirra eru: Þorsteinn, Erlingur, Trausti og Guðfinna; Jón, f. 12. mars 1916, bifvélaeftirlitsmaður á Sel- fossi, kvæntur Sigríði Guömunds- dóttur, börn þeirra eru: Guðmund- ur, Sigurður, Þuríður, Gísli, Kári, Sigríður, Gunnar og Ásmundur; Laufey, f. 25. október 1917, d. 30. september 1976; Magnea Kristín, f. 13. ágúst 1921, húsfreyja á Selfossi, giftist Ólafi Nikulássyni, d. 27. maí 1987, börn þeirra eru: Sigríður, Sverrir og Ólöf; Guðjón Helgi, f. 26. nóvember 1922, bankamaður á Sel- fossi, kvæntur Margréti Valdimars- dóttur, d. 13. október 1982, börn þeirra eru: Haukur, Rannveig Ágústa, Sigríður Erla og Pétur Valdimar; og Einar Gunnar, f. 16. júlí 1924, skrifstofumaður á Selfossi, kvæntur Vilhelmínu Valdimars- dóttur, dætur þeirra eru: Guðný Vilborg, Sigrún Sesselja, Margrét Kristín og Laufey Sigríður. Foreldrar Sesselju voru: Sigurður Einarsson, f. 24. mars 1884, d. 10. mars 1951, b. í Seljatungu, ogkona hans, Sigríður Jónsdóttir, f. 4. júlí 1883, d. 27. desember 1970, ljósmóð- ir. Sigurður var sonur Einars, b. á Holtahólum, Sigurðssonar, ogkonu hans, Guðrúnar Eiríksdóttur, b. á Brunnum, Einarssonar. Sigríður var dóttir Jóns, b. á Kalastöðum á Hvalíjaröarströnd, Þorsteinssonar, Sesselja Sumarrós Sigurðardóttir. og konu hans, Sesselju Jónsdóttur, b. og hreppstjóra í Kalastaðakoti, Sigurðssonar. Sesselja veröur ekki heima á af- mælisdaginn. Ingólfur Bjamason Ingólfur Bjarnason, Hjallaseli 55, Reykjavík, verður níræður á mánu- daginn. Ingólfur fæddist á Breiða- bólstað á Síðu og fluttist til Reykja- víkur 1914. Hann lauk prófl í Versl- unarskóla íslands 1920 og vann hjá ýmsum fyrirtækjum í Reykjavík til 1937. Ingólfur stofnaði verslunina Ljósafoss á Laugavegi 27 ásamt Jóni Sveinssyni rafverktaka 1937 og var þar verslunarstjóri, á meðan versl- unin var rekin, til 1960. Hann vann síðan við bókhald og tengd störf og tók jafnframt þátt í fiskirækt í ýms- um ám, þarí meðal í Lárósi á Snæ- fellsnesi og var stjórnarformaður þess félags. Ingólfur kvæntist 1932 Sigríði Guðmundsdóttur, f. 4. febrú- ar 1898, d. 4. maí 1965, foreldrar Sig- ríðar eru: Guðmundur Guðmunds- son, sjómaður í Skáholti í Rvík, og kona hans, Sigurveig Einarsdóttir. Dætur Ingólfs og Sigríðar eru: Sig- ríður, Guörún og Ingibjörg. Systkini Ingólfs voru: Þórður, f. 1893, d. 1982, b. á Vallarhúsum í Miðneshreppi, Jens, f., 1894, d. 1954, skrifstofustjóri í Rvík, kvæntur Guðrúnu Helga- dóttur, Ólöf, f. 1895, d. 1988, gift Jóni Hallvarðssyni, sýslumannií Stykk- ishóimi, Björn, f. 1904, d. 1930, læknastúdent og Jón, f. 1909, d. 1975, skrifstofustjóri í Rvík, kvæntur Kristínu Pálsdóttur. Foreldrar Ingólfs voru: Bjarni Jensson, læknir á Breiðabólstað á Síðu, og kona hans, Sigríður Jóns- dóttir. Bjarni var sonur Jens, rekt- ors Lærða skólans í Rvík, Sigurðs- sonar, bróður Jóns forseta. Móðir Bjarna var Ólöf Björnsdóttir, yfir- kennara og stærðfræðings, Gunn- laugssonar og konu hans, Ragn- heiðar Bjarnadóttur. Sigíður var dóttir Jóns, b. á Stóru-Borg undir Eyjafjöllum, Jónssonar og konu hans, Ingibjargar Einarsdóttur. Ing ólfur dvelur að Seljahlíð í Breið- holti. Hann tekur á móti gestum á heimih dótturdóttur sinnar í Álfs- nesi á Kjalarnesi sunnudaginn 22. apríl kl. 16. Ingólfur Bjarnason. Til ham- ingju með sunnu- daginn 95 ára Kjartan Ólafsson, Skipasundi 17, Reykjavík. 75 ára Þorsteinn Sigmundsson, Hjallabraut 9, Þorlákshöfn. Kristín Sigurjónsdóttir, Tindum, Svinavatnshreppi. 60 ára Magnús Gunnarsson, Frakkastíg 14, Reykjavík. Auður Alexandersdóttir Auður Alexandersdóttir. Auður Alexandersdóttir, skrif- stofustjóri við Landsbankann á Hellissandi, Háarifi 33, Rifi á Snæ- fellsnesi, varð fimmtug á sumardag- innfyrsta. Auður fæddist að Hjarðarfelli í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi og óJLst upp á Stakkhamri í sömu sveit frá fjögurra ára aldri. Hún flutti á Hellissand 1959 en hefur búið á Rifi frá 1970. Hún hefur starfað hjá Landsbankanum á Hellissandi síð- astliðin tíu ár. Auður giftist 11.7.1959 Smára J. Lúðvíkssyni frá Hellissandi, f. 14.3. 1938, húsasmíðameistara, en hann er sonur Lúðvíks Albertssonar, verslunarmanns frá Súðavík, sem nú er látinn, og Veroniku Her- mannsdóttur á Hellissandi. Börn Auðar og Smára eru Alex- ander Kristinn læknir, kvæntur Rósu Kristjánsdóttur frá Húsavík og eiga þau þrjú börn; Lúðvík Ver kennari, kvæntur Önnu Þóru Böö- varsdóttur frá Keflavík og eiga þau einn son; Örn, nemi við Tækniskól- ann, og Hildigunnuf, nemi við MA. Systkini Auðar eru Guðbjartur, bóndi í Miklholti; Bjarni, bóndi á Stakkhamri; Hrafnkell, kaupmaður í Stykkishólmi; Guðrún, skrifstofu- maður í Ólafsvík; Þorbjörg, útgerð- armaður á Rifi; Magndís, skrifstofu- maður í Stykkishólmi; Friðrik, tæknifræðingur í Reykjavík, og Helga, fóstra í Reykjavík. Foreldrar Auðar voru Alexander Guðbjartsson, bóndi og kennari að Hjarðarfelli og síöan á Stokkhamri, og kona hans, Kristjana Bjarnadótt- ir húsmóðir. Þau eru bæði látin. Á afmælisdaginn veröur Auður stödd hjá syni sínum í Oxford á Englandi. Stefán B. Einarsson Stefán B. Einarsson lögreglumaö- ur, Ránargötu 24, Akureyri, varð sextugur á sumardaginn fyrsta. Stefán fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hann flutti til Reykjavíkur 1947, í Kópavoginn 1953, til Ólafs- fjarðar 1967 og aftur til Akureyrar 1981 þar sem hánn hefur búið síðan. Stefán lauk gagnfræðaprófi 1947 og sveinsprófi í múrverki 1951. Hann var ritari og sat í trúnaðar- ráði Múrarafélags Reykjavikur á árunum 1952-55. Hann var lögreglu- maður í Kópavogi 1964-66, á Olafs- firði 1967-81 og síðan lögreglumaður áAkureyri. Stefán sat í stjórn Breiðabliks á árunum 1953-67, var formaður Karlakórs Ólafsijarðar 1978-81, í stjórn Ungmennafélags Ólafsfiarðar 1978-81, í Rotaryfélagi Ólafsfiarðar 1970-81 og stofnandi Golíklúbbs Ól- afsfiarðar 1968 og ritari hans til 1980. Hann hefur starfað í Rotaryfélagi Akureyrar, var ritari Lögreglufé- lags Akureyrar 1985-88 og hefur verið í framhaldsstjórn SÁÁ á Ak- ureyri frá 1988. Stefán kvæntist 30.9.1950 Guð- mundu Marín Jóhannsdóttur hús- móður, f. 3.9.1930, dóttur Hildar Jóhannsdóttur húsmóður og Jó- hanns Ásmundssonar, starfsmanns hjá Reykjavíkurbæ. Börn Stefáns og Guðmundu Mar- ínar eru Einar Jóhann Stefánsson, f. 6.4.1951, rafvirki í Þýskalandi, kvæntur Guðbjörgu Astvaldsdótt- ur, f. 24.1.1964, og eiga þau saman eitt barn auk þess sem hann átti eitt barn áður; Áslaug Ólöf Stefáns- dóttir, f. 26.10.1959, húsmóðir á Akureyri, gift Steinari Oddgeiri Sig- urjónssyni mjólkurfræðingi, f. 22.5. 1954, og eiga þau tvö börn, og Ingi- björg Hildur Stefánsdóttir, f. 23.9. 1963, en hún er að ljúka námi í hjúkrunarfræði við HÍ. Systkini Stefáns eru Áslaug Jón- ína Einarsdóttir, f. 1.7.1921, bæjar- fulltrúi á Akureyri, gift Haraldi Helgasyni, f. 8.2.1921, sölumanni, og eiga þau þrjú börn, og Helga Soff- ía Einarsdóttir, f. 22.11.1924, kenn- ari í Reykjavík, en hún á eitt barn og er í sambýli með Eggert G. Þor- steinssyni forstjóra. Hálfbræður Stefáns eru Ásgeir Rafn Bjarnason, bifreiðastjóri í Reykjavík, sem á sex börn, og Einar Einarsson, múrari í Reykjavík, en hannátvöbörn. Foreldrar Stefáns: Einar Jóhanns- son, f. 17.2.1896, d. 1960, oglngibjörg Jónsdóttir Austfiörð, f. 24.6.1899. 50 ára Anna Fornadóttir, Höiðahlíð 11, Akureyri. Jóhanna G. Halldórsdóttir, Háahvammi 11, Hafnarfirði. Baldvin Bjarnason, Hrafnagilsstræti 8, Akureyri. Signý Einarsdóttir, Nónási 5, Raufarhöfn. Kolbrún Jóhannesdóttir, Ásgarði36, Reykjavík. 40ára Steindór Hall, Laugavegi 10, Reykjavík. Gréta Óskarsdóttir, Sefiavöllum, Austur-Eyjafialla- hreppi. Sigurður Bessason, Hjarðarhaga54, Reykjavík. Helga Högnadóttir, Hjaltabakka 10, Reykjavík. Ásvaldur Sigurðsson, Melagötu 4, Neskaupstað. Sigurður Leifsson, Fífuseli 32, Reykjavík. Edda Hjörleifsdóttir, Jörvabyggö 5, Akureyri. Studioblóm ÞönglabaKka 6, Mjódd, norðan við Kaupstað, sími 670760 Blómaskreytingar við öll tækifæri. Sendingarþjónusta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.