Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1990.
■ Ymislegt
SMÍDADU
Framleiði hliðarfellihurðir, áratuga
reynsla, hafa staðist alla ísl. veðráttu.
Framl. einnig handrið, hringstiga,
pallastiga o.fl. Járnsmiðja Jónasar, s.
91-54468, einnig á kvöldin og um helg-
ar (símsvari).
Torfærukeppni Jeppaklúbbs Rvíkur
verður haldin á landi Hrauns við
Grindavík laugard. 12/5 ’90, kl. 13.
Ath. „Draumastaðurinn“. Lofum
hörkukeppni. Skráning keppenda er
hafín og iýkur sunnudaginn 6/5 kl. 23.
Skráning er í s. 91-672332 og 91-674811.
Fóf- og/eða rafknúinn, settur saman úr
venjulegum reiðhjólahlutum. Gaman
að smíða og keyra. Fullkomnar smíða-
teikningar og leiðbeiningar, kr. 1.200.
Uppi. í síma 91-623606 kl. 16-20. Send-
um í póstkröfu. Geymið auglýsinguna.
■ Líkamsrækt
Sumartilboð: „Ultra flex“, fullkomn-
asti pressubekkur sem við höfum boð-
ið upp á, með 100 punda (44 kg) lyft-
ingasetti. Verð aðeins kr. 35.420 eða
kr. 32.940 stgr. Sendum í faxkröfu.
Hreysti hf., Skeifunni 19, 108 Rvík, s.
681717.
Vermireitir
á góðu verði,
stærð 180x80 cm.
Uppl. í síma 91-675529.
Heildverslunin Bjarkey I
nýtthúsnæði
Heildverslunin Bjarkey hf. flutti nýlega
í ný og rúmgóð húsakynni sem hönnuð
hafa verið sérstaklega fyrir starfsemi
hennar. Bjarkey hf., sem stofnuð var árið
1956, er ein af eístu heildverslunum
landsins á sviði leikfanga og gjafavöru.
Heildverslunin skartar eftir flutningana
einum stærsta og bjartasta sýningarsal
fyrirtækja á þessu sviði. Bjarkey hf. er í
eigu Ingvars Helgasonar, Sigríðar Guð-
mundsdóttur og tjölskyldu þeirra. For-
stjóri er Sigríður Guðmundsdóttir.
Myndatexti 1: Frá vinstri: sendiráðs-
mennimir Sommer og Rolf Böttcher, Sig-
ríður Guðmimdsdóttir, forstjóri Bjar-
keyjar hf., Denis Charles frá Supeijouet
í Frakklandi og Ingvar Helgason for-
stjóri.
Myndatexti 2: Stjórnendur og hluti starfs-
manna Bjarkeyjar hf. Frá v: Elisabet
Birgisdóttir, Sigríður Guðmundsdóttir,
Dennis Charles frá Superjouet, Guörún
Ingvarsdóttir og Elisabet Ingvarsdóttir.
Misskilningur í
forystugrein DV
Blaðinu hefur borist athugasemd frá
Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavik, þar sem segir:
„í forystugrein DV hinn 3. maí sl.
er fjallað um misnotkun stjórnmála-
manna á opinberri aðstöðu. Þar er
m.a. komist svo að orði að „bláar
bækur“ hafi tíðkast í Reykjavík ára-
tugum saman. Af samhenginu að
ráða virðist sem átt sé við að Reykja-
víkurborg hafi kostað útgáfu stjórn-
málarits, gefið út „póhtískan áróð-
ursbækling" svo notað sé orðalag
höfundar forystugreinarinnar.
Af þessu tilefni vill Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
taka eftirfarandi fram:
Heitið „Bláa bókin“ hefur um langt
árabil vísað til rits þess sem Sjálf-
stæðisflokkurinn í Reykjavík gefur
út fyrir hverjar borgarstjórnarkoan-
ingar. Rit þetta fjallar um störf og
stefnu borgarstjómar á kjörtímabil-
inu sem er að líða og hefur komið
út fyrir hverjar kosningar frá 1946.
Allur kostnaður við það er greiddur
af Sjálfstæðisflokknum. Reykjavík-
urborg hefur þar hvergi komið
nærri.“
Aths. ritstj.: Athyghsvert er að full-
trúaráðið tekur í bréfi sínu enga af-
stöðu til umræðuefnisins sem var
áróðursbæklingur um félagsmál er
Reykjavíkurborg var látin borga fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn.
Andlát
Þóra Sigríður Guðnadóttir, Hraun-
bæ 12, Reykjavík, lést í Borgarspítal-
anum 2. maí.
Guðjón Friðbjörnsson frá Bakkabæ,
Akranesi, Bergstaðastræti 53,
Reykjavík, andaðist í Landakotsspít-
ala að morgni 3. maí.
Þórlaug Hansdóttir, Hverfisgötu 43,
andaðist í Hátúni lOb, 3. maí.
Ögmundur Friðfinnsson, áður til
heimilis á Leifsgötu 5, andaðist á
Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn
3. maí.
Guðný Pálsdóttir, Furulundi lb, Ak-
ureyri, áður húsfreyja að Stíflu, lést
í Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri
að kvöldi 3. maí.
Tilkyimíngar
Alþýðubandalagið I
Kópavogi
Spilakvöld verður í Þinghóli, Hamraborg
11, mánudaginn 7. mai kl. 20.30. Allir
velkomnir.
Eurovision á breiðtjaldi
í Sjallanum
Laugardagskvöldið 5. maí fara fram úr-
slit í söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva þar sem íslendingar eiga nú full-
trúa í 5. sinn. Að vanda eru miklar vonir
bundnar við framlag okkar og „næsta
vist“ að þjóðin muni sitja límd við sjón-
varpsskjáinn þetta kvöld. Til þess að
skapa sem skemmtilegasta stemningu
hefur Sjallinn ákveðið aö sýna úrslita-
keppnina á breiðtjaldi auk þess að bjóða
upp á frábæran hýómburð. Húsið opnar
kl. 18.30 en útsending mun hefjast kl. 19.
Boðið verður upp á léttan málsverð
(Eurovision-disk) meðan á sýningu
stendur. Verð á sýningu með mat og
dansleik á eftir, þar sem Eddi og fiskam-
ir munu spila í síðasta sinn, er kr. 1.500.
Miða- og borðapantanir í síma 96-22770.
Fundir
Kvenfélag Háteigskirkju
heldur fund þriðjudaginn 8. maí í Fjósinu
að Básum í Ólfusi. Farið verður frá Há-
teigskirkju kl. 19.45.
Kvenfélag Laugarnessóknar
heldur fund í safnaðarheimilinu mánu-
daginn 7. mai kl. 20. Góðar veitingar.
Mætum vel.
Zen-kynningarfundur
Laugardaginn 5. maí kl. 10 mun Kwong-
roshi vera með kynningu á Zen-iðkun.
Kynningin verður í húsnæði Guðspekifé-
lagsins að Ingólfsstræti 22, og er á vegum
Zen-hópsins. Jakusho Kwong-roshi er
kínverskættaður Bandaríkjamaður, en
hann fæddist í Santa Rosa árið 1935. Hann
byrjaði að iðka Zen undir handleiðslu
Shunryu Suzuki-roshi árið 1959. Árið
1973 keypti hann ásamt sjö nemendum
sínum sveitasetur í Sonomafjöllunum í
Kaliforrúu til að þróa hið hefðbundna Zen
49
í anda kennara síns. Jakusho Kwong er
nú staddur á íslandi í boði Zen-hópsins,
en hann er jafnframt kennari hópsins.
Héðan fer hann til Þýskalands og Pól-
lands, þar sem hann leiðir Zen-hópa.
Kynningin á Zen er öllum opin, og er
aðgangur ókeypis.
Líf og land
heldur aðalfund sunnudaginn 6. maí kl.
17 á loftinu í Lækjarbrekku. Venjuleg
aðalfundarstörf. Hreinn Hjartarson held-
ur erindi um súrt regn.
íslandsdeild Amnesty
International
Aðalfundur íslandsdeildar Amnesty Int-
emational verður haldinn laugardaginn
5. maí kl. 15 í veitingahúsinu Litlu-
Brekku við Bankastræti. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa mun Steingrimur Gaut-
ur Kristjánsson flytja erindi um starfs-
svið Amnesty Intemational og að því
loknu verða almennar umræður. Félagar
em hvattir til þess að mæta á fundinn.^
Fyrirlestrar
Fyrirlestur um William Hein-
esen
Mánudaginn 7. maí kl. 20.30 heldur fær-
eyski rithöfundurinn Ebba Hentze fyrir-
lestur í Norræna húsinu um William
Heinesen. Eins og áður hefur komið fram
varð Heinesen niræður í janúar sl. Ebba
Hentze er varaformaður Rithöfundafé-
lags Færeyja og á sæti í norræna þýðing-
arsjóðnum. Hún hefur skrifað nokkrar
bækúr, þar á meðal bamabækur.
DÆMI:
STÆRÐ VERÐ
155SR 12 2980,-
145SR13 3280,-
155SR13 3350,
165SR13 3655;