Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1990, Blaðsíða 38
50 Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eftirtöldum fasteignum: Sunnubraut 9, Búðardal, þingl. eig- andi Guðbrandur Hermannsson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 10. maí ’90 kl. 13.30. Uppboðsbeiðend- ur eru Hróbjartur Jónatansson hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl., Þórunn Guð- mundsdóttir hrl., Tryggingastofnun ríkisins, Sigurður I. Halldórsson hdl., Landsbanki Islands, veðdeild, og Gísli Kjartansson hdl. Refabú ísfelds sf. ásamt 2 ha lóð úr landi Hjarðarholts, þingl. eigandi ís- feldur sf., fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 10. maí ’90 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru Eggert B. Ól- afsson hdl., Búnaðarbanki íslands, Brunabótafélag íslands, Gunnar Sól- nes hrl. og Gísli Kjartansson hdl. Stekkjarhvammur 6, Búðardal, þingl. eigandi Kristján J. Jónasson, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 10. maí ’90 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru Kristinn Hallgrísson hdl., Guðjón Á. Jónsson hdl., Valgarður Sigurðsson hdl., Landsbanki íslands, veðdeild, og Sigurmar K. Albertsson hrl. Sýslumaður Dalasýslu VINNUSKOLI REYKJAVÍKUR Vinnuskóli Reykjavíkur tekur til starfa í byrjun júní nk. 1 skólann veróa teknir unglingar fæddir 1975 og 1976 og voru nemendur í 7. og 8. bekk grunnskóla Reykjavíkur skólaárið 1989-1990. Umsóknareyðublöð fást í Ráðningarstofu Reykjavík- urborgar, Borgartúni 3, sími 62 26 48, og skal um- sóknum skilað þangað fyrir 18. maí nk. Nauðsynlegt er að gefa upp kennitölu. Vinnuskóli Reykjavíkur Sjómannaskólinn í Reykjavík lóðarlögun Tilboð óskast í lóðarlögun við Sjómannaskólann, alls um 1800 m2. Um er að ræða jarðvegsskipti, frárennslislagnir, snjóbræðslulagn- ir, kantstein og hellulögn. Auk þess á að hlaða vegg og gróðursetja plöntur. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykja- vík, frá miðvikudegi 9. mai til og með föstudags 18. maí gegn 5.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R. Borgartúni 7, Reykjavík, þriðjudaginn 22. maí kl. 11.00. INNKAUPASTOFIMUN RIKISINS BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK Hjúkrunarfræðingar Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu- stöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar: 1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina á Þingeyri. 2. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina á Hólmavík. 3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina í Neskaup- stað. 4. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina i Ólafsvík. 5. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina á Dalvik. 6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á Djúpavogi. 7. Staða hjúkrunarfræðings við heilsugæslustöðvarnar á Fá- skrúðsfirði og Stöðvarfirði. 8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á isafirði. 9. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina í Borgarnesi. 10. Hálf staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð Hlíðahverf- is í Reykjavík. 11. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á Höfn, Hornafirði. 12. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina efra Breið- holti, Reykjavík. Staðan veitt frá 1. júli 1990. 13. Staða hjúkrunarfræðings/ljósmóður við Heilsugæslustöðina á Skagaströnd. Staðan veitt frá 1. ágúst 1990. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík. Hjúkrunarfræðinga vantar á nokkrar heilsugæslustöðvar vegna sumarafleysinga. Upplýsingar veita hjúkrunarforstjórar heilsu- gæslustöðvanna. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1990. Afmæli Jóhannes J. Gunnarsson Jóhannes J. Gunnarsson, Lauga- læk 12, Reykjavík, verður fertugur á morgun. Jóhannes fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann útskrifaðist frá Hótel- og veitingaskóla íslands árið 1973 sem framreiðslumaður. Jó- hannes starfaði lengst af í Naustinu sem framreiðslumaður og yfirþjónn en hann starfar nú sem veitinga- maður í Leikhúskjallaranum. Jóhannes var formaður próf- nefndar Hótel- og veitingaskóla ís- lands frá 1978-87. Jóhannes kvæntist 5.7.1975 Ás- gerði Flosadóttur sem nú er að ljúka námi í stjórnmálafræði og fjölmiðla- fræði við HÍ auk þess sem hún rek- ur eigið innflutningsfyrirtæki. For- eldrar Ásgerðar eru Sigurborg Guð- rún Jónasdóttir, f. 3.5.1936, og Flosi Þórormsson, f. 17.4.1930, d. 18.10. 1984. Stjúpfaðir Ásgerðar er Hreinn Þorvaldsson múrarameistari. Jóhannes og Ásgerður eiga tvær dætur. Þcér eru Guðrún Eva, f. 26.9. 1977, og Flosrún Vaka, f. 18.3.1985. Systkini Jóhannesar eru Sigur- björt Júlíana Gunnarsdóttir, f. 25.12. 1942, skókaupmaður, gift Erni Sig- urðssyni sölustjóra en þau eignuð- ust fjögur börn og eru þrjú þeirra á lífi; Guðrún Elín Gunnarsdóttir, f. 29.3.1946, verslunarmaður, gift Erni Péturssyni leigubifreiðastjóra og eiga þau fjögur börn; Unnur Gunn- arsdóttir, f. 23.9.1947, skrifstofu- maöur á Sauðárkróki, gift Baldri Heiðdal verslunareiganda og eiga þau þrjú börn; Gunnar Bjöm Gunn- arsson, f. 14.7.1959, læknir við fram- haldsnám í Wisconsin í Bandaríkj- unum, kvæntur Þorgerði Þráins- dóttur hjúkrunarfræðingi; Helga Gunnarsdóttir, f. 1.8.1961, sölumað- ur, gift Erni Rósinkranssyni raf- virkja og eiga þau einn son. Stjúp- systkini Jóhannesar eru Sigrún Kristinsdóttir, f. 7.4.1946, skrifstofu- stjóri og á hún einn son; Jóhannes Ágúst Kristinsson, f. 17.5.1949, flug- stjóri hjá Cargolux í Lúxemborg, kvæntur Þorbjörgu Jónsdóttur og eiga þau fjögur börn, og Elín Krist- insdóttir,f. 1.10.1958, giftMagnúsi Gíslasyni framkvæmdastjóra og eigaþauþrjúböm. Foreldrar Jóhannesar eru Bjarn- dís Jónsdóttir, f. 7.3.1920, húsmóðir, og Gunnar S. Guðmundsson, f. 28.6. 1917, d. 21.6.1963, vömbifreiðastjóri. Stjúpfaðir Jóhannesar er Kristinn Guðjónsson, forstjóri Banana hf. Foreldrar Gunnars voru Guðrún Finnbogadóttir, húsmóðir í Reykja- vík, og Guðmundur Erlendsson tré- smiður. Foreldrar Bjarndísar voru Jón Jónsson, sjómaður og síðar fisksali í Reykjavík, og kona hans, Júlíana Björnsdóttir, f. 19.7.1884, húsmóðir. Jón var sonur Jóns, b. í Hruna- króki í Laxárdal og Hörgsholti í Hreppum, bróður Guðmundar í Hörgsholti, fóður Jóns á Brúsastöð- um, gestgjafa á Þingvöllum, og fóður Bjama, óöalsb. í Hörgsholti. Jón var einnig bróðir Jónasar „Plausor", dyravarðar Alþingis og kímni- skálds, og Snorra í Gröf, föður Tóm- asar, útgerðarmanns á Járngerðar- stöðum í Grindavík. Jón var sonur Jóns, óðalsb. í Hörgsholti, bróður Guöbjargar, móður Jóns, ættföður Setbergsættarinnar í Hafnarfirði, langafa Vigdísar, móður Harðar Sigurgestssonar, forstjóra Eim- skips. Jón í Hörgsholti var sonur Jóns, b. þar, Magnússonar. Móðir Jóns fisksala var Sesselja, Jóhannes J. Gunnarsson. sem lést rúmlega aldargömul í marsmánuði 1950, Guðmundsdóttir, b. á Fossi í Ytrahreppi, Helgasonar, b. á Grafarbakka, Einarssonar, lögrm. á Galtarfelli, Ólafssonar. Móðir Sesselju var Margrét Guð- mundsdóttir, „læknis" og b. í Hellis- holtum, Ólafssonar. Móðir Guö- mundar „læknis" var Marín Guð- mundsdóttir, b. á Kópsvatni, Þor- steinssonar, ættfööur Kópsvatns- ættarinnar sem margir okkar fremstu skákmenn eru komnir af. Júlíana, móðir Bjarndísar, var dóttir Björns, b. í Þjóðólfshaga, Magnússonar, b. á Vestri-Geldinga- læk ogÞjóðólfshaga, Magnússonar, b. í Bolholti á Rangárvöllum, Björnssonar. Móðir Magnúsar á Vestri-Geldingalæk var Sólveig Brandsdóttir, b. í Næfurholti, Jóns- sonar. Móðir Júlíönu var Arndís Er- lendsdóttir, b. á Þverlæk og Ásmúla, Ólafssonar, og konu hans, Sigríðar Árnadóttur. Til hamingju með afmælið 6. maí 90 ára Ólöf Indriðadóttir, Bjarmastíg 8, Akureyri. Jón, Kristján Jónsson, Tjamargötu 9, Miðneshreppi. Halldór Benediktsson, Gautlandi 19, Reykjavík. Tómas Hansson, Hringbraut 59B, Keflavík. 40 ára 60 ára 85 ára Árný Stefánsdóttir, Hvammbóli, Mýrdalshreppi. Guðiaug Þorsteinsdóttir, Strandgötu 3, ísafirði. Hannesína Tyrfingsdóttir, Heiðarbraut 13, Keflavík. Gunnar Lárusson, Hellulandi 7, Reykjavik. 75 ára Ólöf Stefánsdóttir, Miðstræti 7, Neskaupstað. 50ára 70 ára Ólafur Bjarni Th. Pálsson, Grundartanga52, Mosfellsbæ. Francis William Mattson, Bragagötu26A, Reykjavík. Jóhann Ingi Einarsson, Brekkubyggð 56, Garðabæ. Halldóra Halldórsdóttir, Safamýri 19, Reykjavík. Erlingur Hansson, Stífluseli 11, Reykjavík. Björn Þórisson, Langanesvegi 23, Þórshöfn. Reynir E. Kjeruif, Brávöllum 5, Egilsstöðum. Hannes Sigurðsson, Hrauni II, Olfushreppi. Hann býður vini og vandamenn velkomna á heimili sitt í dag, laug- ardag. Björg Kjartansdóttir, Karfavogi 15, Reykjavík. Einar Pálmi Jóhannsson, Skaftahlíð 40, Reykjavík. Halldóra Helgadóttir, Hraunbæ 98, Reykjavík. Ingimar Kristinsson, Laufvangi 7, Hafnarfiröi. ER SMÁAUGLÝSINGA BLADID SIMINNER Hugsum '4 <x-, " !*% ' ' . ... á veginn! Brýr og ræsi krefjast sérstakrar varkárni. Draga verður úr hraða og fylgjast vel með umferð á móti. Tökum aldrei áhættu! | UMFERÐAR Uráð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.