Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1990, Qupperneq 16
16'
LAUGARDAGUR 30. JÚNÍ 1990.
Skák
Sú tegund skáklistar, er hvor
keppandi hefur aðeins hálfa
klukkustund á skákina, hefur verið
nefnd atskák á íslensku, til aö-
greiningar frá venjulegri kappskák
og hraðskák. Atskákinni vex stöð-
ugt fiskur um hrygg, enda er at-
burðarásin hröð og verður oft mik-
ill handagangur í öskjunni er um-
hugsunartíminn styttist. Atskákin
er af þessum sökum hin besta
skemmtun fyrir áhorfendur og um
leið bráðgott sjónvarpsefni. Margir
spá því að meö henni eigi vinsæld-
ir skáklistarinnar eftir að aukast
til muna.
Fyrr í mánuðinum var haldið
sterkt atskákmót í Murcia á Spáni
á vegum stórmeistarasamtakanna.
Þátttakendur voru 120, þar af yfir
100 stórmeistarar. Mótið vakti tals-
verða athygli heimamanna; margt
var um áhorfendur og sjónvarps-
menn voru iðnir viö að filma
ósköpin og var af nógu að taka af
fingraleikfimi í 13 umferðum.
íslensku stórmeistararnir, sem
sumir vilja nefna „íjórmenningak-
líkuna“, mættu til leiks og sömu
orð eiga við þá alla: Á köflum tefldu
þeir vel en hittu þess á milli á
slæmar skákir. Sennilega má að
hluta kenna um æfingarleysi en
það er sérstök list í þessari tegund
skákar að hitta á gullna meðalveg-
inn milli hraðskákar og kappskák-
ar og er ekki öllum gefið.
Jóhann Hjartarson tefldi örugg-
ast en hann er margfaldur bikar-
meistari Taflfélags Reykjavíkur -
þar sem umhugsunartími er einnig
30 mínútur, og því hefur hann þeg-
ar sannað gott atgervi sitt á þessu
sviði. Jóhann hlaut 9 v. af 13 mögu-
legum, sem gerði 5.-6. sæti. Mar-
geir Pétursson og Helgi Ólafsson
fengu 8 v. og höfnuðu í 14.-30. sæti
og Jón L. Ámason fékk 7,5 v. og
varð í 31.-37. sæti. Sigurvegari varð
sovéski stórmeistarinn Vladimir
Tukmakov með 10,5 v. og ellefu
þúsund Bandaríkjadali að launum.
Skákmeistari Júgóslava, Zdenko
Kozul, hlaut 10 v. og 2. sætið og
Sovétmennirnir Tsjernín og Goldin
fengu 9,5 v.
Skák
Jón L. Árnason
Skipulag mótsins í Murcia, sem
var höfuðborg eins hinna fomu
konugsríkja Mára á Spáni, var til
mikillar fyrirmyndar. Atskákmót-
in taka færri daga en venjuleg
kappskákmót og koma þannig bæði
mótshöldurum og keppendum til
góða. í Murcia var ekkert til sparað
í mótshaldinu. Mismunurinn á
drunganum í Moskvu og léttleikan-
um í Murcia var ótrúlegur.
En nú er rétt að líta á nokkur
dæmi um atskákir. Eins og fyrr
sagði virðist kunnátta í atskák út-
heimta ákveðna hæfileika því að
vitaskuld er lítið ráðrúm til djúp-
hugsaðra áætlana. Atskákin bygg-
ist á snerpu og tækni og ekki sakar
að leggja eina eða tvær lúalegar
gildmr fyrir andstæðinginn í leið-
inni!
Hér koma bestu skákir okkar ís-
lendinganna á mótinu sem lesend-
ur taka vonandi hæfilega alvar-
lega.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: J. Murey (ísrael)
Reti-byrjun
1. Rf3 d5 2. g3 c6 3. Bg2 Bg4 4. b3
Rd7 5. Bb2 Rgffi 6. 0-0 e6 7. c4 Bd6
8. d4 Bxf3 9. Bxf3 0-6 10. Rc3 He8?!
Betra er 10. - De7 með hugmynd-
inni 11. -Ba3 og skipta á biskupum.
11. e4 dxe4 12. Rxe4 Rxe4 13. Bxe4
e5 14. Bf5! Rf6
Ekki 14. - exd4 15. Bxd7 Dxd7 16.
Dxd4 með máthótun á g7 og hótar
einnig 17. c5 með mannsvinningi.
Dæmigerð atskákgildra!
15. Hel Da5 16. c5 exd4 17. Hxe8+
Hxe8 18. cxd6 Dxf5 19. Dxd4 c5?
Hér var 19. - b6 nauðsynlegt og
svartur gæti sloppið með skrekk-
inn.
20. Dd2 Re4
Jóhann Hjartarson stóð sig best íslendinga á atskákmótinu í Murcia
og hafnaði í 5.-6. sæti.
Vladimir Tukmakov sigraði á atskákmótinu í Murcia
Er atskákin leið-
in til vinsælda?
- frá atskákmótinu í Murcia á Spáni
8 i &
ii iii
6
5 a m
4 *
3 III A A
2 O Á. W & A
S &
ABCDEF GH
21. d7! Hd8 22. Hel!
Svartur er nú varnarlaus þar sem
22. - Rxd2 er svarað með 23. He8+
meömáti.
22. — Kf8 23. De3 Dxf2+ 24. Dxf2
Rxf2 25. He8+ Hxe8 26. Bxg7+! Ke7
27. dxe8+ Kxe8 28. Kxf2
og ekki þarf að rekja þetta lengra
- Jóhann vann í fáum leikjum.
Hvítt: Margeir Pétursson,-
Svart: Vyzmanavin (Sovétríkin),
Nimzo-indversk vörn.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2
hvítur aftur yfirhöndinni.
26. Rxc5! Rxc5 27. Hxd4 exf3 28. gxf3
He3 29. Hgl+ Kh7?
Eftir 29. - KÍ7 getur svartur enn
reynt að verjast en eftir textaleik-
inn tapar hann óvænt í fáum leikj-
8
7
6
5
4
3
2
1
30. Hd3!! He5 31. b4! Hb8 32. bxc5
Bxf3 33. Bh3! Df7 34. Dxe5 Dxc4+
35. Hc3
0-0 5. a3 Bxc3+ 6. Dxc3 b6 7. Bg5
Bb7 8. f3 c5 9. dxc5 bxc5 10. e3 Rc6
11. Rh3 h612. Bh4 De713. 0-0-0 Hfd8
14. Rf2 g5 15. Bg3 d5 16. Be5?
Slæmur leikur; nú lendir hvitur
í ógöngum.
16. - Rd7 17. Bg3 d4 18. Del f5! 19.
exd4 Rxd4 20. Rd3 f4 21. Bf2 e5 22.
h4 He8 23. hxg5 Dxg5 24. Bh4 DÍ5 25.
Dc3 e4?
Svartur hefur náö góðu tafli en
eftir þennan vanhugsaða leik nær
Og svartur gafst upp.
Hvítt: Granda Zuniga (Perú)
Svart: Helgi Ólafsson
Drottningarindversk vörn.
1. Rf3 Rf6 2. c4 b6 3. d4 e6 4. g3
Ba6 5. b3 Bb4 + 6. Bd2 Be7 7. Bg2 c6
8. Bc3 d5 9. Rbd2 0-0 10. 0-0 Rbd7 11.
Bb2 c5 12. cxd5 exd5 13. Hel He8 14.
dxc5 Rxc5 15. Rd4 Dd7 16. Dc2 Hac8
17. Df5 Re6 18. R4f3 g6 19. De5?
19. - Bf8!!
Eftir þennan frábæra leik lendir
hvíta drottningin í vandræðum á
miðborðinu. Ekki gengur 20. DxfG
vegna 20. - Bg7 o.s.frv.
20. Bh3 Bg7 21. e4 Db7! 22. Dxfl6
Illt er að þurfa að gefa drottning-
una fyrir aðeins tvo létta menn en
hvað var til ráða?
22. - Bxf6 23. Bxf6 Hc2 24. exd5 Dxd5
25. Hadl Bb7 26. Bg2 Df5 27. Bal Hd8
28. Rh4 Dc5 29. b4 Dxb4 30. Bxb7
H8xd2 31. Rf3 Hxdl 32. Hxdl Dc5
Og hvítur gafst upp.
Hvítt: Jón L. Árnason
Svart: Predrag Nikolic (Júgóslavíu)
Pirc-vörn.
1. e4 d6 2. d4 Rfl6 3. Rc3 g6 4. f4
Bg7 5. Rf3 0-0 6. Bd3 Rc6 7. 04) e5
8. fxe5 dxe5 9. d5 Rb4 10. Bc4 Dd6
11. Khl a5 12. Be3 Bd7 13. Rd2 Rg4
14. Bgl Bh6? 15. Be2! f5
Ekki gengur 15. - Re3 vegna 16.
Bxe3 Bxe3 17. Rc4 Dc5 18. Rxe5
o.s.frv.
16. a3 Ra6 17. Rc4 De7 18. d6 cxd6
19. Rd5! Dh4 20. Rcb6 Be6
Eða 20. - Had8 21. g3 Dg5 22. h4
Dh5 23. Bxg4 fxg4 og síðan vinnur
Rf6+ skiptamun og hvítur á vinn-
ingsstöðu.
21. Rxa8 Hxa8 22. Bxg4
Annar möguleiki var 22. Bxa6 og
næst 23. Rc7 sem vinnur.
22. - fxg4 23. Rf6 + Kh8 24. Dxd6 Bc4
25. Dxe5! Bg7 26. Hf4 HÍ8 27. Bd4 h6
Hvítur hótaði 28. Re8! Bxe5 29.
Hxf8+ Bg8 30. Bxe5 mát.
28. Dd6! g5 29. Rh5! Hxf4 30. Dxh6+
Og svartur gaf, enda mát í næsta
leik.
-JLÁ