Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1990, Page 27
.39
LAUGARDAGIJR 30. JÚNÍ J990.
Lífsstíll
Tákn Moskvu. Kirkja heilags Basils sem ívan grimmi lét reisa fyrir sig. Til að koma i veg fyrir að fallegri kirkja
yrði byggð lét ívan stinga augun úr byggingameisturunum.
Konurnar standa í biðröð með passana á lofti og gjald- í þessum gossjálfsölum nota allir sama glasið. Gler-
kerinn reiknar allt með gömlu talnagrindinni. glasið er fyrst þvegið vandlega i þar til gerðri vatns-
sprænu og síðan fyllt af gosi. Þegar búið er aö drekka
úr glasinu er þvi skilað á sinn stað.
Utlendingar geta hins vegar versl-
að í svo kölluðum doliarabúðum eöa
Beriozkum. Þar er vöruskortinum
ekki fyrir að fara og hægt að kaupa
vestrænt tóbak og áfengi, ýmis konar
minjagripi og mat.
Svartamarkaðsbrask
Hið sovéska þjóðfélag er gegnsýrt
af mútum og svartamarkaðsbraski.
Árið 1989 jukust glæpir um 31,8% um
öll Sovétríkin og jafnvel meira í stór-
borgum eins og Leningrad og
Moskvu.
Á Arbat, aðalgöngu- og verslunar-
götunni í Moskvu lítur lögreglan í
hina áttina á meðan sovéska mafían
athafnar sig og „íþróttastrákamir“
berja og ræna götusalana.
Alls staðar er fólk sem vill selja
eitthvað undir borðið fyrir dollara
eða skipta peningum. Hið almenna
opinbera gengi rúblunnar er um það
bil 1 dollari á móti 6 rúblpm. Á svarta
markaðinum er hins vegar hægt að
skipta 1 á móti 12 og allt upp í 20 eft-
ir því hve glúrinn ferðamaðurinn er.
Ásóknin í gjaldeyri er gífuleg enda
er hægt að kaupa allt, og þá meina
ég ALLT, fyrir dollara. Ólöglegir
götusalar, mest kornungir strákar,
bjóða stolinn hermannafatnað og
hermannaúr, merki, fána og jafnvel
hríðskotarifíla til sölu.
Þegar dollurunum er veifað opnast
allar dyr. Það sem áður var ófáanlegt
býðst nú með bukti og beygjum.
Kampavín og kavíar, þjónusta karla
sem kvenna, eiturlyf og allt hvaö
eina.
Ferðir
Ódýr borg
Ferðamaður í Moskvu er milljóna-
mæringur. Það kostar 30 aura í neð-
anjarðarlestina sem er mjög góð og
hkist stundum meira listasafni en
neðanjarðarkerfi. Fyrsti kílómetrinn
í leigubO kostar 4 krónur og 2 krónur
bætast svo við fyrir hvern auka kíló-
metra.
Geisladiskar kosta 100 krónur og
mjög góð þriggja rétta máltíð með
öllu því víni sem hægt er að torga
kostar kannski um 500 krónur - svo
lengi sem borgað er í rúblum því
dollaraveitingastaðirnir eru með
mun hærra verð. Á það ber hins veg-
ar að líta að meðallaun Moskvubúa
eru frá 1500-2000 krónur á mánuði.
Allir bílar leigubílar
Húsnæðisvandinn í Moskvu er gíf-
urlegur. Fólk fer því aðeins á biðlista
hins opinbera að hver einstaklingur
hafi minna en 5 fermetra húspláss.
Ef þriggja manna fjölskylda býr í
20 fermetra húsnæði kemst hún aldr-
ei á listann. En björninn er ekki unn-
inn við að komast á biðlistann því
þá tekur við um það bil 10 ára bið
eftir húsnæði.
Takist Moskvubúa að komast yfir
nægan gjaldeyri er hugsanlegt að
hann geti fengið íbúð eða bíl. Af þess-
um sökum reyna margir að bjarga
sér með svartamarkaðsbraski.
Það má til dæmis segja að í Moskvu
séu allir bílar leigubílar. Það er ein-
faldlega hægt að stinga út hendinni
og veifa í nálægan bíl. Bíleigendur
ná sér nefnilega gjarna í aukapening
með því að keyra gegn gjaldi - oftar
en ekki dollurum.
Gjafir og greiðar
Sovétmönnum finnst gaman að
gefa litlar gjafir og fá í staðinn eitt-
hvað smáræði frá heimalandi ferða-
mannsins. Það er mjög algengt að
skiptast á gjöfum og því er betra að
hafa alltaf við hendina einhverja
smáhluti, svo sem límmiða, barm-
merki, tyggjó eða vestrænar sígarett-
ur.
Einnig biður fólk stundum hæ-
versklega um einhvern greiða sem
ferðamaðurinn á yfirleitt gott með
að uppfylla. Heimspekistúdent vant-
ar tvær bækur sem ófáanlegar eru í
Sovétríkjunum og biður okkur vin-
samlegast um að kaupa þær og sendá
sér. Spænskustúdent langar til Spán-
ar en vantar heimboð og biður um
aðstoð.
Strangar reglur gilda um ferðalög
Sovétmanna. Viðkomandi verður að
fá formlegt heimboð frá einhveijum
búsettum í landinu sem ferðast á til.
Ferðamálaráðuneytið verður síðan
að samþykkja heimboðið og veitir þá
leyfi í allt aö tvo mánuði.
Hins vegar geta Sovétmenn ein-
ungis skipt peningum einu s'nni á
ári og þá eingöngu upphæð sem sam-
svarar 200 dollurum eða um 12 þús-
und íslenskum krónum. Hvorki er
hægt aö ferðast langt né mikið fyrir
þann aur.
„Viljum ekki
kommúnisma"
Breytingarnar í Sovétríkjunum
.gerast of ört fyrir regluveldið. Það
riöar til falls um leið og kommúnism-
inn. Þeir sem framfylgja eiga reglun-
um eiga erfitt með að fylgjast méð
breytingunum og fólk veit varla leng-
ur hvað má og hvaö ekki.
Með glasnost (frjálsræþi) eru
Moskvubúar þó orðnir óhræddir aö
gefa sig á tal við ferðamenn. Almennt
er fólk mjög vingjarnlegt og vill allt
fyrir mann gera.
Það kemur á óvart hvað fólk er til-
búið til að ræða opinskátt um ástand-
ið. „Sovétríkin riða á barmi bylting-
ar. Annaðhvort tekur herinn völdin
eða að almenningur fær nóg og rís
upp í borgarabyltingu," spáir Júríj,
rússneskur blaðamaður.
Hann heldur áfram. „Markmið
Gorbatsjovs var aldrei að koma á
almennilegu lýðræði. Hann vildi að-
eins skreyta gamla kerfiö með nýjum
slagorðum. Ef hann myndi fram-
kvæma allt sem hann hefur sagt þá
væri hann að fella það tré sem hann
situr á sjálfur. Því hver þarf á ein-
ræðiskommúnistaflokki að halda í
lýðræðiskerfi?“
Kirill, 18 ára, og Sergei, 16 ára, taka
í sama streng, „Gorbatsjov talar mik-
ið en framkvæmir minna“. Strákam-
ir hafa hins vegar, eins og velflestir
Moskvubúar, meiri trú á Borís Jelts-
in. „Hann mun hugsanlega byrja að
gera eitthvað af viti“.
Fólkið í Moskvu er almennt hungr-
að í upplýsingar og fylgist vel með á
þessum viðsjárveröu tímum í sögu
landsins. Ungt fólk er sérstaklega
opinskátt og hefur ákveðnar skoðan-
ir.
„Við viljum ekki kommúnisma,“
segir Dmítríj, tvítugur götusali. „Við
höfum fengið nóg af honum.“ Ekki
líst honum betur á kapitalíska kerfið.
„Rússland á að verða sjálfstætt lýð-
ræðisland með nokkurs konar sós-
íaldemókratísku kerfi.“
Áhrifamikið
og spennandi
Sovétríkin eru svo sannarlega að
ganga í gegnum miklar breytingar.
Þaö kraumar undir niðri og allt getur
gerst. Það er áhrifamikið að koma til
landsins núna á þessum timamótum,
reyna að taka púlsinn og finna hið
raunverulega andrúmsloft.
Ástandið er hrikalegt en samt er
gaman, alveg ótrúlega gaman og
spennandi. Og mann langar aftur.
Helst strax á morgun. -BÓl
Ósviknar „babúskur" eða gamlar
konur. Skuplurnar eru ómissandi og4**-
innkaupapokinn alltaf við höndina.
Utanríkisráðuneyti Sovétrikjanna.
Köld og ógnvekjandi bygging. Stalín
lét þýska fanga reisa sjö svona
skýjakljúfa vitt og breitt um borgina.
Gamall og lúinn en greinilega búinn
að þjóna föðurlandi sinu vel. Hvað
skyldi honum finnast um þær breyt-
ingar sem nú eiga sér stað í Sovét-
Verslunarhúsið GUM i Moskvu gefur
Kringlunni ekkert eftir í íburði en
vöruúrvalið er heldur minna.
Beðið eftir strætó á bökkum
Moskvuár.
DV-myndir Ari Sigvaldason