Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1990, Qupperneq 28
36
FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990.
Nýjar plötur
Midnight Oil - Blue Sky Mining
Rokkarar með hlutverk
Þeir voru famir aö prédika umhverfisvernd löngu
áöur en slík mál komust í tísku meðal poppara. Um
langt árabil hafa þeir látiö málefni frumbyggja Ástral-
íu til sín taka og verið málsvarar hinna minnimáttar
yfirleitt. Þeir eru meðvitaðri í náttúruvemdarmálum
en Sting og Bubbi til samans og kunna svo sannarlega
að pakka boðskap sínum og áróðri í umbúðir sem eft-
ir er tekið. Midnight Oil hefur sent frá sér enn eina
plötuna.
Þær eru víst orðnar níu talsins plötumar með Midn-
ight Oil. Augu og eyru umheimsins tóku hins vegar
ekki aö beinast að hljómsveitinni að neinu ráði fyrr
en með plötunni Diesel And Dust er út kom árið 1987.
Lögin Beds Are Buming og The Wild Heart hittu vel
í mark hjá öllum þeim sem unna frísku og vel spiluðu
rokki.
Ef eitthvað er þá er Blue Sky Mining betri plata en
Diesel And Dust. Hún er fyrst og fremst jafnbetri. Öll
tíu lögin em fimasterk. Gæðarokk. í sjálfu sér er ekki
margt frumlegt við tóniist Midnight Oil. En hljómsveit-
in er vel samspiluð. - Sér í lagi er söngur og raddir í
fínu lagi. - Plötumar með Midnight Oil (að minnsta
kosti tvær þær síðustu) eru ekta hljómsveitarplötur.
Ekki hefur verið legið yfir hverjum tóni í hljóðveri
heldur em lagasmíðar og útsetningar þannig að auð-
veldlega á að vera hægt að endurtaka leikinn á hljóm-
leikum.
Textarnir á plötum Midnight Oil eru sérkapítuli.
Þeir era rammpólitískir. Þar ræður umhverfispólitík-
in ríkjum. En áheyrendur þurfa ekki nauðsynlega að
vera skoðanabræður fimm- eða sexmenninganna í
hijómsveitinni til að njóta tónlistarinnar. Titillagið,
Blue Sky Mine, er ekkert verra þótt maður leiði það
hjá sér að sungið er um ástralska verkamenn í as-
bestvinnu í Wittenoom í Vestur-Ástralíu. Lagið er
jafngott gítarrokk hvort sem við veltum vöngum yfir
mannvonsku atvinnurekendanna sem höfðu vitað um
óholiustu asbestryks ámm og jafnvel áratugum saman
áður en þeir lyftu litlafingri til að bæta vinnuskilyrð-
in. Og þannig er með öll lög plötunnar Blue Sky Min-
ing.
Liðsmenn Midnight Oil em rokkarar með hlutverk.
Þeir hafa lengi barist fyrir betri heimi. Mörg baráttu-
mál þeirra eru einmitt í sviðsljósinu um þessar mund-
ir. En fimmmenningarnir munu halda sínu striki burt-
séð frá öllum tískubólum. Það hafa þeir margsýnt og
sannað. Og haldi þeir áfram að koma sínum boðskap
á framfæri með jafnhressu og frísku rokki og á Blue
Sky Mining mega þeir mín vegna veröa kaþólskari en
páfinn. Textar skipta jú oft miklu máli en þeir eru
ekki allt.
-ÁT
Marianne Faithfull - Blazing Away
Lífssagan hrjúfa
Þegar Marianne Faithfull hóf upp mjóa raust sína
og söng As Tears Go By, Come Stay With Me, This
Little Bird og fleiri hátt upp á vinsældalistana um
miöjan sjöunda áratuginn lögðu margir saman tvo og
tvo. Útkoman varð sú að söngkonan ætti upphefð sína
eingöngu að þakka nánu sambandi við Mick nokkurn
Jagger, söngvara beatgrúppunnar Rolling Stones.
En mjó raust er mikils vísir - á stundum. Aldarfjórð-
ungi og mikilli lífsreynslu síðar sendir Marianne Fa-
ithfull frá sér hljómleikaplötuna Blazing Away. í leið-
inni er platan safn bestu og þekktustu laga söng-
konnunnar - jafnvel lífssaga hennar. Svo segir hún
að minnsta kosti sjálf í svolitlu tilskrifi sem fylgir plöt-
unni.
Blazing Away er hljóðrituð á hijómleikum í kirkju
heilagrar Önnu í Brooklyn í New York. - Þó var titillag-
ið unnið í stúdíói. - Öflugir hljóðfæraleikarar leika
með söngkonunni. Dougie Bowne trommar, Garth
gamli Hudson leikur á nikku og hljómborð, Dr. John
á píanó og einnig gítar í einu lagi, Barry Reynolds er
á sínum stað við gítarinn, Marc Ribot leikur einnig á
gítar, Femando Saunders á bassa og Lew Soloff á
trompet og hom.
Ég verð að játa að ég þekki ekki alla þessa músí-
kanta frá fornu fari. Miðað við útkomuna virðist þarna
ekki um neina aukvisa að ræða. Enginn er í stjörnu-
leik heldur er heildin góð.
Stjarna plötunnar er vitaskuld frú Faithfull sjálf.
Fyrsta lagið er Les Prisons Du Roy sem Edith Piaff
söng hér á árum áður. Vel vahð. Og ósjálfrátt rifjast
upp fyrir manni skrautlegt líf söngkvennanna tveggja
er dimm og hrjúf rödd Faithfull hljómar. Síðan koma
lögin hvert af öðru. Sum betur þekkt með öðrum en
söngkonunni. Önnur hafa komið á plötum hennar á
liðnum árum og þau skara fram úr. Þetta eru lögin
Broken Enghsh, Times Square og Ballad Of Lucy Jord-
an sem Shel Silverstein samdi fyrir Dr. Hook um árið.
Marianne Faithfull er engum söngkonum lík. Fáar
hafa hrjúfari rödd en hún. Eiginlega á hún heima í
flokki með Leonard Cohen sem ræður ekki lengur við
nema fáein útvalin lög en skilar þeim líka með mik-
illi prýði. Það er líka prýðilega gaman aö hlusta á
hljómleikaplötu Marianne Faithfull. Lífssögu söng-
konunnar sem hún túlkar á röskri klukkustundu í
kirkju heilagrar Önnu.
Fréttir
Á söluskrifstofunni í París. Pétur Einarsson sölustjóri og Lúðvik B. Jónsson
framkvæmdastjóri. DV-mynd RóG
Sölumiöstöðin í París:
Sala á haf beitarlaxi
gengur mjög vel
„Salan hefur fariö feikivel af stað
og er að finna á öllum undirtektum
að þetta er rétt byijunin,“ sagi Lúð-
vík B. Jónsson, framkvæmdastjóri
söluskrifstofu Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna í París, í samtali við
DV.
í sumar var farið út í heljarmikið
markaðsátak á íslenskum hafbeitar-
laxi, eina mestu auglýsingaherferð
sem gerð hefur veriö á ferskri ís-
lenskri vöru á erlendri gmnd. Þar
sem verð á eldislaxi hefur farið mjög
lækkandi var farið út í þetta átak og
voru miklar vonir bundnar við að fá
hærra verð fyrir hafbeitarlax sökum
þess að um villtan lax er að ræða.
Salan á hafbeitarlaxinum er svo ný-
hafin.
„Við höfum fengið það verð sem
við væntum fyrir hafbeitarlaxinn og
erum vissulega mjög ánægðir með
það. Á síðustu tveimur vikum höfum
við selt um 40 tonn af hafbeitarlaxin-
um og fer salan stigvaxandi. Við
gerðum okkur í upphafi vonir um
að selja 2-300 tonn en t.d. bara í gær
seldust 10 tonn,“ segir Lúðvík.
„Undirtektimar eru mjög ánægju-
legar. Það virðast allir sammála um
að hér sé um að ræða besta lax sem
hægt er að fá. Fagfólk er sífellt að
hafa samband við okkur og vill upp-
lýsingar. Á næstunni er von á um-
fjöllun um íslenska hafbeitarlaxinn
í ýmsum blöðum og tímaritum sem
sérhæfa sig í matarlist og ýmsu því
tengdu.“
Liður í þessu mikla auglýsingaá-
taki var að bjóða fiskheildsölum í
París til íslands að heimsækja haf-
beitarlaxstöðvamar Vogaiax og Silf-
urlax. Sú ferð tókst mjög vel og að
sögn Lúðvíks voru franskir fisk-
heildsalar yfir sig hrifnir af öllum
aðstæðum hér og hvernig að ræktun-
inni er staðið.
Söluskrifstofa Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna í París sér um
fisksölu til Belgíu og Spánar auk
Frakklands.
- RóG
Andlát
Kristín María Kristinsdóttir, fyrrver-
andi bankafuUtrúi, Hringbraut 112,
lést í hjúkrunarheimilinu Skjóli mið-
vikudaginn 18. júli.
Haraldur Hannesson, formaður
Starfsmannafélags Reykjavíkur-
borgar, Bakkagerði 2, Reykjavík, lést
á Borgarspítalanum 19. júlí.
Margrét Steingrímsdóttir, Hring-
braut 90, Reykjavik, andaðist 18. júlí.
Alfred Georg Alfredsson fram-
kvæmdastjóri, Vesturgötu 71,
Reykjavík, lést miðvikudaginn 18.
júlí.
Jarðarfarir
Jón Sigurjónsson frá Bláfeldi lést 14.
júlí. Hann fæddist þann 20. ágúst 1899
á Bláfeldi, sonur hjónanna Sigurjóns
Guðmundssonar og Sveinsínu
Sveinsdóttur. Hann giftist Helgu
Káradóttur en hún lést árið 1981. Þau
hjónin eignuðust átta böm. Útfor
Jóns verður gerð frá Áskirkju í dag
Skúli Sveinsson er látinn. Hann
fæddist í Syðra-Langholti í Hruna-
mannahreppi í Árnessýslu 28. nóv-
ember 1905. Hann var sonur Ágústu
Jónsdóttur og Sveins M. Hjartarson-
ar. Skúli starfaði lengst af í lögregl-
unni í Reykjavík. Hann kvæntist Sig-
ríði Ingibergsdóttur en hún lést fyrir
rúmum tveimur árum. Þau hjónin
eignuðust þrjú böm. Útför Skúla
verður gerð frá Háteigskirkju í dag
kl. 15.
Halla Dagbjartsdóttir, Heiðargerði
70, lést 16. júlí í Landakotsspítala.
Jarðsett verður frá Bústaðakirkju
mánudaginn 23. júlí kl. 15.
Þormóður Dagsson er látinn. Útfor
hans verður gerð frá Fossvogskap-
ellu þriðjudaginn 24. júlí kl. 13.30.
Oddur Ingólfur Einarsson málara-
meistari, Vallholti 28, Selfossi, lést
17. júlí. Útfor hans fer fram frá Sel-
fosskirkju laugardaginn 21. júlí kl.
11.'
Sigurður Guðjónsson, Urriðaá, sem
lést 16. júlí, verður jarðsunginn frá
Borgameskirkju laugardaginn 21.
júlí kl. 14.
Ásgeir E. Jóhannesson, Seljanesvegi
18, ísafirði, verður jarðsunginn frá
ísafjarðarkapellu laugardaginn 21.
júlí kl. 14.
Málfreð Friðrik Friðriksson skó-
smíðameistari, Ægisstíg 2, Sauðár-
króki, verður jarðsunginn frá Hóla-
dómkirkju laugardaginn 21. júlí kl.
14. Jarðsett verður í Sauðárkróks-
kirkjugarði.
Tapað-fundið
Flugustöng tapaðist
Ný flugustöng meö hjóli tapaðist í Anda-
kilsá í Borgarfirði. Finnandi vinsamleg-
ast hringi í síma 43350.
Skjalataska tapaðist
Svört skjalataska úr harðplasti með
pappírum og kvittunum í tapaðist fyrir
ca fimm dögum. Finnandi vinsamlegst
hringi i síma 51794 eftir kl. 22 á kvöldin.
Fundarlaunum heitið fyrir töskuna.
Fjölmiðlar
Af guðum og konum
Ástir griskra guða hafa löngum
heillað bæði lærða menn og leika.
Þaö er með ólíkindum hversu við-
buróaríkar og flóknar sögurnar eru
og grunar mig að margan manninn
hafi gegnum tíðina langaö að njóta
kvenhylli þeirrar er Seifur naut.
í þætti Ingunnar Ásdísardóttur
um ævintýr grískra guða í gær-
kvöldi var áherslan lögö á ástarmál
himnaguðsins Seifs. Þeir ástarfúnd-
ir, sem hann átti með „veikara"
kyninu, enduðu hins vegar ekki
ávallt á ameríska vísu.
Hefnd Hem, konu hans, var aidrei
langt undan og fengu veiklyndar,
fagrar konur aldeilis að finna fyrir
því. Ástmeyjar guðsins lentu því í
hinum mestu hremmingum eftir
viðskipti sín við hinn vínsæla guð.
Saga, sem sögð var af Kalisto, er
dæmigerð. Eftir að hafa lagst með
Seifi var henni hent út af heimili
sínu en hún var í hirð Artemisar,
veiði- og verndargyðjunnar. Var
hún rekin burt eftir viðkynni sín
við guöínn þar sem einungis máttu
vera hreinar meyjar í hirð hennar.
Kalisto hrökklaðist því burt og ól
son sinn Arkas nokkra seinna. Ekki
þótti Hera brottrekstur hennar að
heiman nægjanleg refsing fyrir hina
saklausu mey og bætti gráu ofan á
svart með því að breyta henni í
bjamdýr sem þó var með mannlegt
hjarta og sál. Hún reikaöi um í 15
ár en þá bjargaði Seifur henni und-
an spjóti sonar þeirra, sem var á
veiðum og kannaðist ekkí við móður
sína, og lyfti henni upp á hírainfest-
inguna þar sera nú sést stóri bjöm.
Eftir þetta tók ég aðra stefnu og
horföiá „óvenjulega spennumynd",
eins og sagði í dagskrárkynningu á
Stöð 2. Flókin saga og fjallaði auk
hryllingsins og spennunnar um bar-
áttu tveggja systra um hylli manns.
Það er ekki að leikslokum að spyrja.
Eftir að hafa s vikið hvor aðra end-
aði sagan manninum í hag. Eftir
þetta fór ég að hugsa hvort það
væri rétt að konur væru konum
verstar?
Telma L. Tómasson