Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1990, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1990, Síða 9
MÁNUDAGUR 30. JÚLÍ 1990. 9 Utlönd Lögreglukona fylgir tveimur ungum konum frá næturklúbbnum I London eftir að byssumaðurinn hafði sleppt þeim. Simamynd Reuter Martröð í næturklúbbi Vopnaöur Sýrlendingur, undir áhrifum áfengis og fíkniefna, gafst upp fyrir lögreglunnni í London um hádegisbilið í gær eftir að hafa hald- ið tugum manna í gíslingu í nætur- klúbbi í Mayfair hverfinu, einu fin- asta hverfi borgarinnar. Um tvö hundruð manns voru í klúbbnum þegarmaðurinn réðst inn í klúbbinn aðfaranótt sunnudagsins. Hleypti hann af byssu og kvaðst vera með sprengju. Mörgum tókst að flýja en yfir hundrað voru gíslar byssu- mannsins. Nokkrum tókst að flýja síðar um nóttina og eftir viðræður við lögregluna sleppti byssumaður- inn fleirum. Þegar hann gafst loks upp var hann með sex menn í haldi, allt araba. Að sögn lögreglunnar var Sýrlendirtgurinn, sem krafðist þess að flogið yrði með hann til Beirút, vopnaður skammbyssu, haglabyssu, riffii og byssusting. Hann var hins vegar bara með eftirhkingu af sprengju. Lögreglan kvaðst hafa handtekið tvo aðra menn í sambandi við rannsókn málsins. Að sögn eins sjónarvotta talaði byssumaðurinn tóma vitleysu. Full- yrti hann meðal annars að guð hefði sent sig til að framkvæma þennan verknað. Maðurinn drakk viskí og neytti kókaíns í næturklúbbnum sem er einkaklúbbur og vinsæll meðal gesta frá Miðausturlöndum. Klúbbinn sækja hka margir frægir og ríkir, eins og til dæmis Rod Stewart og Bianca Jagger. Einn þeirra sem flúðu úr klúbbnum kvaðst halda að með- limir konungsfjölskyldunnar í Kuwait hefðu verið þar um nóttina. Reuter Sovéski efnahagurinn: Versnandi ástand Verðbólga, viðskiptahalli, erlendar skuldir og atvinnuleysi jókst allt á fyrri helmingi þessa árs í Sovétríkj- unum. Framleiðsla í flestum grein- um minnkaði aftur á móti. Þetta kom fram í upplýsingum sovésku hagstof- unnar nýlega. Þessar tölur sýna að efnahagsástandið fer versnandi í Sovétríkjunum þrátt fyrir perestroj- ku Gorbatsjovs Sovétforseta, eða umbótaherferðina. Gorbatsjov hefur áunnið sér virð- ingu margra með perestrojku en samkvæmt henni áætla Sovétríkin að hafa innleitt „stýrt“ markaðshag- kerfi í landinu á næsta ári. Gagnrýn- endur forsetans heima fyrir segja að umbótaherferðin gangi allt of hægt og nái alls ekki að fullnægja vaxandi þörf og kröfum almennings né mark- aðarins. í upplýsingum hagstofunnar var ástandið nú borið saman við sama tíma í fyrra. Þar kemur fram að þjóð- arframleiðsla hafl minnkað um eitt prósent, nýbyggingar dregist saman um sex prósent og verðbólga, þar sem ekki er tekið tillit til verðs á matvælum, hækkað um eitt prósent. Á fyrri helmingi þessa árs voru átta milljónir manna atvinnulausar og verkfóll kostuðu alls tíu mihjón vinnudaga. Greiðslujöfnuður var óhagstæður um 6,4 milljarða rúblna, eða 11,01 milljarða dohara, sem er 150 prósent hækkun. Þá skýrði aðstoðarforsætis- ráðherra frá því í gær að erlendar skuldir Sovétríkjanna hefðu hækkað um tvo mUljarða rúblna, úr 34 í 36 mUljarða, en það samsvarar 61 mill- jörðum dollara. Reuter Jarðskjálítmn á Filippseyjmn: Fannst á Ifffi eftir 14 daga Tuttugu og sjö ára maður fannst á lífi í rústum Hyatt-hótelsins í borginni Baguio á FUippseyjum, um 200 kúómetra norður af höfuð- borginni Manila, snemma í morg- un. Maðurinn, Pedrito Dy, er lítið slasaður en mjög þróttlítill. Hann kvaðst hafa haldið lífi með því að drekka regnvatn og þvag. Fyrir aðeins þremur dögum fannst tvennt á lífi í rústum hótelsins og höfðu þau þá verið grafin í ellefu daga. Öll þijú voru starfsmenn hótelsins. Dy var einn af tugum gesta og starfsmanna Hyatt-hótelsins sem voru niðri í kjallara þess þegar öflugur jarðskjálfti reið yfir Fihppseyjar þann 16. júlí. Hyatt- hótehð ásamt tugum annarra bygg- inga hrundi. Rúmlega sextán hundruö manns týndu lífi í skjálft- anum og enn er eitt þúsund sakn- að. Skjálftinn mældist 7,7 á Richt- er-kvarða. Björgunarmenn fundu fimm fórnarlömb skjálftans í rústum Hyatt-hótelsins í morgun en Dy var sá eini sem var á lífi. Ellefu aðrir voru í kjallaranum þegar skjálftinn reið yfir en þeir létust aUir. Tals- maður hótelsins kvaðst telja að enn væru rúmlega tuttugu og einn gest- ur og starfsmaður fastur í rústum þess. Björgunarmenn, sem berjast við mikla rigningu og þreytu í störfum sínum, halda áfram að leita að lifandi mönnum eftir skjálf- tann en fyrir viku var talið að eng- irmyndufinnast. Reuter Glæsivagnar á góðu verði Nissan Patrol dísll, árg. 1987, eklnn aðeins 60 þ. km, 5 gíra, vökvastýri, fjórhjóladrifinn, mjög góður kassi með góðum hurðum. Ath., skipti á ódýrari eða stærri sendibíl. Verð 1.350 þús. Mercedes Benz 280GE 4x4, árg. 1985, ekinn 106 þ. km, 4 þrepa sjálf- skipting, vökvastýri, álfelgur, splitt- anlegur að aftan og iraman, útvarp og segulband o.fl. Ath. skipti á ódýrari, góð kjör. Verð 2.300 þús. Subaru Legacy 1800 4x4, árg. 1990, ekinn aðeins 3 þ. km, útvarp og segulband, rafmrúður, samlæsing, rafmloftnet, rafdrifin topplúga, 5 gíra o.fl. Ath. skipti á ódýrari nýl. bfl. Verð 1.500 þús. Audi 100CC árg. 1986, ekinn 70 þ. km, 5 cyl., sjálfskiptur, samlæsing, útvarp og segulband, sumar- og vetrardekk o.fl. Ath. skipti á ódýr- ari, verö 900 þús. Auk þess Audi Quattro árg. 1985, verð 1.500 þús. Nissan Prarie 2000 4x4, árg. 1988, ekinn 34 þ. km, 5 gíra, vökvastýri, rafmrúður, álfelgur, útvarp og seg- ulband o.fl. Ath. skipti á ódýrari. Verð 1.060 þús. Toyota Corolla Touring 4x4, árg. 1989, ekinn 46 þ. km, 5 gíra, sam- læsing, vökvastýri, sidrif, d-grá- sans. Ath. skuldabréf eða skipti á nýl. ódýrari. Verö 1.135 þús. VÆNTANLEGIR KAUPENDUR, ATH. Gífurlegt úrval nýlegra bíla er á söluskrá. Ýmiss konar kjör og verð við flestra hæfi. Bilar gegn staðgreiðslu. Bílar gegn skuldabréfum. BORGARBILASALAN GRENSÁSVEGI 11, SÍMAR 83085 OG 83150 • SÆVARHÖFÐA 2, SI'MI 674848 Skógareldar á Grikklandi Mikhr skógareldar geisuðu í Grikklandi um helgina og eyðilögðu þúsundir hektara skóglendis og upp- skeru. Samos, einn vinsælasti ferða: mannastaður landins, varð verst úti en þar brunnu nærfellt tíu þúsund hektarar af skóglendi. Lögreglan tel- ur að brennuvargur hafi þar verið að verki. Reuter " 19 daga lúxusferð 26. ágúst Egyptalandsferö - Ævintýraheimur Kaíró - Skemmtiferðaskip á Níl - Baðstrandardvöl við Rauðahafið - Pýramídar - Gull og grafir faraóanna - Stórkostlegustu söguminjar ver- aldar - Fagurt landslag og framandi þjóðlíf. Þið njótið frábærrar þjónustu SAS alla leið frá Kefiavík til Kairó. Fimm stjörnu lúxus- hótel og fallegasta skemmtiferðaskipið á Níl. Takmarkaður sætafjöldi. - Hægt að stansa í Kaupntannahöfn á heimleióinni. íslenskur ----------------— F=lUCFEROIR raran>ljóri. |JT fl =T SOLRRFLUC Vesturgötu 12, símar 620066 og 15331

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.