Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Síða 3
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990. 3 ;r________________________________________________Fréttir Hátt matarverð beinir sölu íslandsferða úr landi: Verðum að fflytja inn mat fyrir erlenda ferðamenn - segir Halldór Bjarnason, deildarstjóri Iceland Safari „Við gætum flutt inn 16 tonn af mat á sumri ef við færum að eins og erlendu ferðaskrifstofurnar. Það verður ef til tifl þrautalending ís- lensku ferðaskrifstofanna að stofna ferðaskrifstofur ytra og flyta matinn til landsins með ferðamönnunum," sagði Halldór Bjarnason, deildar- stjóri hjá Úrvali-Útsýn sem sér um sölu íslandsferða undir vörumerk- inu Iceland Safari. Hafldór sagði að vegna reglna um matarinnflutning erlendra ferða- manna hafi íslensku ferðaskrifstof- urnar smátt og smátt verið að tapa markaðnum fyrir íslandsferðir og nú sé svo komið að meira en helmingur ferðanna sé á vegum erlendra að- ila. „Þetta er búið að vera vandamál síðan árið 1970 en hefur ekki keyrt um þverbak fyrr en nú síðustu sum- ur. Síðustu árin höfum við tapað að jafnaði 350 ferðamönnum á ári vegna þess að maturinn hjá okkur er miklu dýrari en sá sem erlendu ferðaskrif- stofurnar flytja inn,“ sagði Hall- dór. „Ég vil fá að flytja inn mat tfl að sitja við sama borð og erlendu keppi- nautarnir. Það eru allaf fleiri erlend- ir aðila sem leita inn á þennan mark- að vegna þess að þeir flnna að við stöndum höllum fæti. Ef innflutning- ur á mat er eina leiðin til að stöðva þetta þá er ég til í að reyna hann,“ sagði Halldór. Þær reglur hafa gilt frá árinu 1970 að hver ferðamaður má hafa með sér til landsins 10 kíló af mat en þó ekki hráan. Fjármálaráðuneytið telur að þetta eigi við um einstaklinga sem koma til landsins en tollayfirvöld telja að þetta sé sá skammtur sem ætla má hverjum ferðamanni. Er- lendar ferðaskrifstofur hafa því flutt til landins 10 kíló fyrir hvern mann Veiddi 5 punda bleikju í Þing- vallavatni „Þingvallavatn hefur að geyma einn og einn stórfisk en mest eru þetta murtutittir sem veiðast þessa dagana,“ sagði okkar maður á bökk- um Þingvallavatns í gærdag. Á miðvikudagskvöldið veiddi Bjami Harðarson 5 punda bleikju úti á vatni á báti en fyrr í sumar veidd- ist 9 punda urriði á fluguna Wat- sons’s Francy. Svo þeir eru ennþá til vænir í vatninu þó mikið sé af murtu. Er DV ætlaði að ná í veiðigarpinn fengsæla í fyrradag var hann farinn úr bænum og líklega til veiða. -G. Bender • Bjarni Harðarson með bleikjuna vænu, 5 punda, i fyrradag úr Þing- vallavatni, rétt áður en hann fór úr bænum. DV-mynd JAK sem kemur hingað í hópferðum. „Þetta hefur gengið svo langt að útlendingarnir eru farnir að sjá sér hag í að vera með pökkunarstöðvar ytra sem búa út 10 kílóa nestispakka sem passa nákvæmlega fyrir tollinn hér. Ég hef fulla trú á að stjórnvöld komi í veg fyrir þetta því málið þolir enga bið. Að öðrum kosti flyst sala íslandsferða endanlega úr landi,“ sagði Halldór Bjarnason -GK MUNAR ÞIG UM 340.000.- krónur? Brimborg hf. hefur náð samningum við VOLVO um að sérsmíða þessa glæsilegu og ríkulega útbúnu lúxusbifreið fyrir íslenskan markað. Við köllum bifreiðina VOLVO 740 GLTi þar sem hún er byggð á VOLVO 740 GLi ogsíðan útbúin öllum þeim aukabúnaði sem prýðir VOLVO 740 GLT. Einnig er í bifreiðinni búnaður sem pantaður er sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður. Aukabúnaður er m.a.: ■■■■■■■■■■■ wmm Sjálfskipting mmr Læsivarið "ABS" hemlakerfi mm Læst drif (auðveldar vetrarakstur) mm Álfelgur ms VOLVO hljómflutningstæki með fjórum hátölurum mm Pluss innrétting m Upphituð sæti m Samlæsing á hurðum ■ Rafdrifnar rúður og speglar Þessi búnaður gerir bifreiðina bæði öruggari og margfalt þægilegri í akstri við hvers konar aðstæður. Það sem kemur hvað mest á óvart, við jafn vel útbúna bifreið og hér um ræðir, ertvímæla- laust mjög hagstætt verð: kr. 2.069.000 stgr. á götuna. Þetta frábæra verð fékkst aðei ns á takmarkað magn og með því að panta al lan au kabú naði nn í ei nu lagi. Sem dæmi má nefna að þetta verð er 340.000 krónum hagstæðara en verð á VOLVO 740 GLi semkeypturyrði meðsamaaukabúnaði samkvæmtverðlista. Viðhvetjumeinnigtii verðsamanburðar við aðrar bifreiðar með sambærilegum búnaði. VOLVO - Bifreið sem þú getur treyst! Kynnið ykkur glæsilega bifreið á einstöku verði. Brimborg hf. Faxafeni 8, sími 685870

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.