Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990. Utlönd Saddam Hussein Iraksforseti: Hvetur til uppreisnar gegn erlendum heraf la Breskir sjóliðar á HMS York á leið til Persaflóa senda ástvinum kveðjur. Saddam Hussein íraksforseti hefur hvatt araba til að rísa gegn erlendum herafla við Persflóa. Símamynd Reuter Saddam Hussein íraksforseti hvatti í gær alla araba til uppreisnar gegn erlendum herafla við Persaflóa. I ræðu, sem forsetinn hélt, hvatti hann trúbræður sína tii heilags stríðs gegn bandarísku hermönnun- um og ásakaði leiðtoga araba um spillingu. Fréttaskýrendur segja að i ræðunni hafi forsetinn því sem næst verið að hvetja til þess að leiðtogum nokkurra arabaríkja, s.s. Fahd kon- ungi Saudi-Arabíu, yrði steypt af stoli. Hussein sakar konunginn um að hafa „opnað dyrnar" fyrir banda- rísku hermönnunum og erlendum herskipum sem nú eru í þessum heimshluta. Mörg þúsund Jórdanir hafa þegar lýst yfir heilögu stríði gegn Banda- ríkjunum og hvatt jórdönsku stjórn- ina til að senda sjálfboðaliða til að berjast fyrir írak. Rúmlega fjörutíu þúsund Jórdanir hafa boðist til að fara til írak og berjast gegn Banda- ríkjunum komi til átaka við Persa- flóa. Þúsundir komu saman í Amm- an, höfuðborg Jórdaníu, í gær til að lýsa yfir reiði sinni með aðgerðir Bandaríkjanna og krefjast þess að verða sendir til íraks. Margir arabar hafa, þvert á stefnu leiðtoga sinna, lýst yfir stuöningi við innrás íraka í Kuwait og síðar innlimun landsins. Arabaleiðtogar funda Hussein íraksforseti hélt ræðu sína á sama tíma og leiðtogar Araba- bandalagsins hittust í Kaíró í Egypta- landi til að ræða hið viðsjárverða ástand við Persaflóa. Á fundinum sýndu fulltrúar íraka þess engin merki að þeir hygðust gefa eftir í þessari deilu eða fallast á málamiðl- un. Leiðtogar arabaríkja vilja að írakstjóm dragi til baka hermenn sína frá Kuwait, að sögn heimildar- manna. Ráðamenn í Egyptalandi hvöttu fundarmenn í Kaíró til að samþykkja beiðni Saudi-Araba og ráðamanna annarra ríkja að senda herlið araba til þessara landa ‘Persaflóa til að vernda þau komi til árásar íraka. Hafnbann íhugað Utanríkisráðherrar NATO komu einnig saman til neyðarfundar í gær. Ráðherrarnir, sem sátu á rökstólum í Bmssel, lýstu einróma yfir stuðn- ingi við aðgeröir Bandaríkjanna við Persaflóa. Þá hétu þeir því að vernda Tyrkland, eitt aðildarríkja NATO, komi til árásar íraka en landamæri Tyrklands liggja að írak. Fregnir hafa borist af því að Irak hafi flutt hermenn til landamæranna. Þá sagði talsmaður Bandaríkjaforseta að í íhugun væri að setja hafnbann á írak til að auka þrýsting á Hussein. Ráðherrarnir sögðu að efnahags- Saddam Hussein, forseti Íraks. Teikning Lurie refsiaðgerðum Oryggisráðs Samein- uðu þjóðanna yrði að halda til streitu en þær aðgerðir fela í sér algert við- skiptabann, þar á meðal bann við sölu vopna til íraks. Manfred Wörn- er, framkvæmdastjóri NATO, sagði að ráðherrarnir hvettu Hussein ír- aksforseta til að leysa úr haldi alla erlenda ríkisborgara í írak og Kuwa- it. íraska stjórnin hefur vísað því á bug aö Vesturlandabúarnir séu gísl- ar og hafa flestar vestrænar ríkis- stjórnir varast að kalla erlenda ríkis- borgara í löndunum tveimur því nafni. En írakstjórn hefur, sam- kvæmt upplýsingum bandaríska ut- anríkisráðuneytisins, gert ljóst að fæstum Vesturlandabúanna, utan sendiráðsstarfsmönnum, sé heimilt að yfirgefa landið. Aðildarríki Evrópubandalagsins, sem og Japan, hafa neitað að ganga að kröfu íraka um að loka sendiráð- um sínum í Kuwait og færa sendi- ráðsstarfsemi til írak. Þrátt fyrir að margir íbúa Kuwait hafi flúið yfir landamærin til Saudi- Arabíu eru margir eftir sem enn veita írösku hermönnunum and- spyrnu nú, rúmri viku eftir innrás- ina. Að sögn eins andspyrnumann- anna skutu íraskir hermenn á fjölda- fund í Kuwaitborg sem haldinn var til að mótmæla innlimun landsins í írak. Að minnsta kosti þrír létust, sagði hann. írakar efla herinn írakar hafa styrkt hernaðarlega stöðu sína í Kuwait. Heimildir herma að nú séu að minnsta kosti 120 þús- und íraskir hermenn þar, auk þess sem um fimmtíu þúsund hermenn til viðbótar stefna suður á bóginn. Þá hafa íraskir hermenn einnig eflt liðs- afla sinn við landamæri Saudi-Arab- íu, að sögn talsmanns bandaríska varnarmálaráðuneytisins. írakar hafa hótað því að beita efnavopnum verði ráðist á þá. Bandaríkjamenn styrkja einnig herafla sinn á þessum slóðum, sagði talsmaðurinn í gær, og eru fleiri her- menn á leið til að styðja við bakið á þeim fjögur þúsund sem þegar hafa náð áfangastað. Fjöldi bandarískra hermanna við Persaflóa getur orðið allt að flmmtíu þúsund, segja emb- ættismenn bandaríska varnarmála- ráðuneytisins. Reuter Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 3,0 Allir Sparireikningar 3ja mán.uppsögn 3-4 Ib.Sb,- Sp 6mán. uppsögn 4-5 Ib.Sb 12mán. uppsögn 4-5,5 Ib 18mán. uppsögn 11 lb Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib Sértékkareikningar 3,0 Allir Innlan verötryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1.5 Allir 6mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb.Bb,- Sb Innlán með sérkjörum 2,5-3,25 Ib Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 7-7,25 Lb.Sb Sterlingspund 13,6-14,25 Sb Vestur-þýskmörk 6,75-7,5* Lb Danskarkrónur 9,25-10,75 Sb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 13,5-13.75 Bb.Sb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 14,0 Allir Viðskiptaskuldabréf (1) kaupqenqi Allir . Hlaupareikningar(vfirdr.) 16,5-17,5 Bb Utlan verðtryggð . Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb Utlántilframleiðslu Isl. krónur 13,75-14,25 Bb SDR 10,75-11 Bb Bandaríkjadalir 10.10-10,25 Bb Sterlingspund 16,8-17 Vestur-þýsk mörk 9.9-10,5 4,0 Bb Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 23,0 MEÐALVEXTIR óverðtr. ágúst 90 14,0 Verðtr. ágúst 90 7,9 VÍSITÖLUR Lánsxjaravísitala ágúst 2925 stig Lánskjaravísitalajúli 2905 stig Byggingavísitala ágúst 550 stig Byggingavísitala ágúst 171,9 stig Framfærsluvísitala jí|lí 146,8 stig Húsaleiguvísitala hækkar 1,5% l .júlí. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 5,035 Einingabréf 2 2,741 Einingabréf 3 3,314 Skammtímabréf 1,700 Lífeyrisbréf Gengisbréf 2,174 Kjarabréf 4,988 Markbréf 2,653 Tekjubréf 2,005 Skyndibréf 1,488 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,421 Sjóðsbréf 2 1,783 Sjóðsbréf 3 1,689 Sjóðsbréf 4 1,438 Sjóðsbréf 5 1,015 Vaxtarbréf 1.7090 Valbréf 1,6070 Islandsbréf 1,044 Fjórðungsbréf 1,044 Þingbréf 1,043 öndvegisbréf 1,042 Sýslubréf 1,046 Reiðubréf 1,032 HLUTABRÉF Söluverð' að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv : Sjóvá-Almennar hf. 650 kr. Eimskip 488 kr. Flugleiðir 191 kr. Hampiðjan 170 kr. Hlutabréfasjóður 162 kr. Eignfél. Iðnaðarb. 164 kr. Eignfél. Alþýðub. 126 kr. Skagstrendingur hf. 367 kr. Islandsbanki hf. 162 kr. ~ Eignfél. Verslunarb. 138 kr. Olíufélagið hf. 515 kr. Grandi hf. 184 kr. Tollvörugeymslan hf. 107 kr. Skeljungur hf. 546 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast í DV á fimmtudögum. alpen kteuzer tjaldvagnar VORUM AÐ FÁ SÍÐUSTU SENDINGUNA í SUMAR - TRYGGIÐ YKKUR VAGN í TÍMA Á SAMA GAMLA, GÓÐA VERÐINU. Opið í dag, laugardag, til kl. 16.00. Nokkrir vagnar til ráðstöfunar ef pantað er strax. Staðalbúnaður er m.a. fullkomið eldhús, fortjald, dúkur í fortjald, sól- tjald, innitjöld, gardínur, varadekk, 13" bíldekk, sjálfstæð íjöðrun, öryggis- hólf, hjálpar- og öryggishemlar, rúmgott farangursrými o.fl. o.fl. Vagnarnir eru sterkbyggðir og liggja sérlega vel á vegi. Alpen Kreuzer umboðið Skipholti 33 - sími 629990

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.