Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Page 16
16
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990.
Skák
Dregið í fyrstu lotu áskorendaeinvígjanna:
Tiimnan mætir Húbner
og Kortsnoj teflir við Sax
- Óvæntur sigurvegari áWorld Open-skákmótinu
Flestir veðja á Timman i einvigi hans og Hiibners en þeir eru annars prýðisgóðir vinir. DV-mynd EJ
Skákunnendur mega eiga von á
mörgum spennandi einvígjum í
fyrstu lotu áskorendakeppninnar
ef marka má svissneska skákritið
Die Schachwoche sem birti útdrátt-
inn í vikunni. Hins vegar er hætt
við aö skákmeistararnir sjálflr
hefðu sumir hverjir kosið aðra nið-
urröðun því að í nokkrum einvígj-
anna þurfa landar og vinir að berj-
ast.
Fjórtán stórmeistarar standa- nú
eftir í áskorendakeppninni. Þeir
munu heyja einvígi þar til sjö
standa eftir og þá bætist sá í hópinn
sem lægri hlut bíður í heimsmeist-
araeinvíginu í október (Karpov eða
Kasparov). Síðan er teflt þar til
einn stendur eftir og hann hefur
unnið sér rétt til að skora á heims-
meistarann.
Samkvæmt Die Schachwoche
tefla þessir saman í fyrstu umferð:
Timman - Húbner
Ivantsjúk - Judasin
Dolmatov - Jusupov
Short - Speelman
Gelfand - Nikolic
Kortsnoj - Sax
Dreev - Anand
Af bræðravígum er fyrst að nefna
einvígi Englendinganna Shorts og
Speelmans sem eru búsettir í sama
hverfi í Lundúnaborg. Skemmst er
að minnast einvígis þeirra í síðasta
hring heimsmeistarakeppninnar
en þá vann Speelman öllum að
óvörum. Short er almennt álitinn
honum fremri og hann fær nú
tækifæri til að sýna fram á það.
Þá er hætt við að sovéski skák-
þjálfarinn snjalli, Mark Dvoretsky,
viti ekki í hvorn fótinn hann eigi
að stíga. Frægustu nemendur hans
eru Dolmatov og Jusupov og nú
þurfa þeir að heyja einvígi upp á
líf og dauða! Dvoretsky hefur náö
frábærum árangri með þjálfunar-
aðferðum sínum og eru stórmeist-
ararnir tveir lýsandi dæmi um það.
Vitaskuld gjörþekkja þeir hvor
annan og hefðu áreiðanlega kosið
annan mótherja.
Timman og Húbner eru einnig
prýöisgóðir vinir én engu að síður
er þetta eitt athyglisverðasta ein-
vígið. Flestir veðja væntanlega á
Timman en hann er mistækur eins
og dæmin sanna.
Einvígi Kortsnojs við Sax gæti
oröið fjörugt. Sax teflir léttan sókn-
arstíl og Kortsnoj er þekktur fyrir
að taka hraustlega á móti. Kortsnoj
hefur sýnt að hann er til alls vís
en spurningin er hvort aldurinn
fari ekki að segja til sín.
Sovésku stórmeistaramir Ivant-
sjúk og Gelfand eiga „léttustu“
andstæðingana að minu viti og eru
líklegir til að komast áfram í 2. lotu.
Landi þeirra, Alexei Dreev, gæti
hins vegar átt í vandræðum með
Indveijann snjalla, Anand, sem
hefur sérlega næmt auga fyrir flétt-
um og brellum og er þekktur fyrir
aö tefla hratt. Erfiður mótherji sem
gæti hæglega slegið Sovétmanninn
út af laginu.
Það er fróðlegt að sjá hvort ein-
hver þessara fjórtán nær aö ógna
veldi K-anna tveggja. Eða stefnir í
sjötta einvígi Karpovs og Kas-
parovs að þremur árum liðnum?
Óvæntúrslit
á World Open
íslendingar hafa löngum verið
tíðir gestir á World Open-skákmót-
inu í Philadelphiu og oftsinnis náð
framúrskarandi árangri. Ingvar
Ásmundsson varð þar t.a.m. efstur
ásamt öörum 1978 og Haukur Ang-
antýsson endurtók afrek hans árið
eftir.
í ár bar hins vegar svo við að
enginn íslendingur var á þátttak-
endalistanum en þeim mun fleiri
Sovétmenn sem gera nú strand-
högg víða. Alls tefldu 1160 skák-
menn í fjölmörgum flokkum. í efsta
flokki voru 210 keppendur, þar á
meðal fjölmargir stórmeistarar.
En stórmeistararnir urðu að sjá
á eftir fyrsta sætinu í hendur al-
þjóðameistara frá Sovétríkjunum,
Igor Glek aö nafni. Hann varð einn
efstur á mótinu, hlaut 7,5 v. og tæp-
lega átján þúsund Bandaríkjadali
að launum, eða ríflega eina milljón
íslenskra króna. Má nærri geta
hvílík upphæð þetta er austur í
Sovétríkjunum. Glek gæti nú sest
í helgan stein og lifað í vellysting-
um til ævikvölds og jafnvel lengur.
Hálfum vinningi á eftir Glek
komu bandarisku stórmeistararnir
Joel Benjamin, Larry Christiansen
og Walter Browne; Svíinn Hellers,
Hodgson, Englandi, og Sovétmenn-
irnir Rashkovsky, Shabalov, Jer-
mohnsky og Smirin. Neðar voru
kunnir stórmeistarar, s.s. Mal-
anjúk, Tseshkovsky, Kudrin, D.
Gurevits, Alburt, Dlugy og Lein.
Óvæntur sigur Gleks gegn Tsesh-
kovsky í lokaumferðinni fleytti
honum upp í efsta sætið óskipt.
Glek hafði svart í þessari skák en
það kom ekki að sök. Hann náði
snemma myljandi sókn og Tsesh-
kovsky fékk ekki neitt við ráðið.
Hvítt: Vitaly Tseshkovsky
Svart: Igor Glek
Frönsk vörn
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 c5 4. exd5
Dxd5 5. Rgf3 cxd4 6. Bc4 Dd6 7. 6-0
Rf6 8. Rb3 Rc6 9. Rbxd4 Rxd4 10.
Rxd4 Bd7 11. b3 0-0-0!?
Athyglisverð tilraun til að blása
lífi í þetta afbrigði sem er spilað á
rólegri nótum ef svartur hrókar
stutt. Þannig hefur Glek teflt áður
Skák
Jón L. Árnason
en samt er eins og hann komi
Tseshkovsky á óvart.
12. Bb2 Dc7 13. De2 h5! 14. Rf3
Geller reyndi 14. a4 Rg4 15. g3 a6
16. Rb5!? gegn Naumkin á opna
mótinu á Mallorca í fyrra en tapaði
skákinni. Mannsfórn hans er þó
ekki alveg út í bláinn.
14. - Rg4 15. Hadl?
Betra er 15. h3 Bc6! 16. Hfdl Bc5
17. Hxd8 Dxd8 18. hxg4!? hxg4 19.
Bxe6 fxe6 20. Dxe6+ Bd7 21. Dc4
gxf3 22. Dxc5 Bc6 (Lanka - Glek,
Moskva 1989) og að sögn Gleks
heföi hvítur nú með 23. Df5 + getað
haldið jafnvæginu.
15. - Bd6 16. h3 Bc6! 17. Hxd6
Hvað átti hvítur til bragðs að
taka? Ekki gekk 17. hxg4 Bxf3 18.
Dxf3 hxg4 19. Dxg4 Bh2+ 20. Khl
Bgl + ! og mátar.
17. - Dxd6 18. hxg4 hxg4 19. Re5
Hh4! 20. Rxg4
Svartur vinnur eftir 20. f4 g3 21.
De3 Hdh8 22. Dxg3 Dc5+ o.s.frv.
20. - Hdh8 21. f3
Eftir 21. f4 er 21. - Hhl+ 22. Kf2
Dxf4 + 23. Kel Hxfl + 24. Dxfl Dxg4
einföld vinningsleið en nú verða
endalokin enn sneggri.
X
Á Á Á Á '
AWá
Jl £>I
A A
sifl • A
24?
ABCDE FGH
21. - Dg3!
Hótunin 22. - Hhl mát er nú
óviðráðanleg. Hvítum tekst ein-
ungis að tefja fyrir úrslitunum.
22. Bxe6+ fxe6 23. Dxe6+ Bd7 24.
Dc4+ Kd8
Og hvítur gafst upp.
Önnur skák frá World Open flýt-
ur með. Svartur fórnar hrók til að
opna kóngsstöðu hvíts en sjálfur á
hann eftir að finna konungi sínum
skjól. Það tekst hvítum að færa sér
í nyt. Hann snýr vörn í sókn og
þegar svartur hefur þegið nokkrar
fórnir blasir hrun stöðunnar við.
Hvítt: Alexander Shabalov
Svart: Maxim Dlugy
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4..
Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. Bg5 e6 7. Dd2
a6 8. 0-0-0 h6 9. Be3 Rxd4 10. Bxd4
b5 11. De3 Bd7 12. e5! dxe5 13. Dxe5
Hc8 14. Re4 Rxe4 15. Dxe4 Bc6 16.
De3 Da5 17. Kbl Bd5 18. b3 Hxc2?!
Freistandi fórn en varla þarf að
líta lengi á stöðuna til að skynja
aö hvítur eigi góða varnarmögu-
leika. Svartur á enn eftir að koma
kóngi sínum í var og opna eftirlif-
andi hrók útgönguleiö.
19. Kxc2 Dxa2+ 20. Bb2 Ba3 21.
Hxd5!
Þá eru aöeins drottning og biskup
eftir í sókninni. Nú leiðir 21. -
Dxb2+ 22. Kdl Dbl+ 23. Ke2 Bcl
til sömu stöðu og í skákinni.
21. - Bxb2 22. Kdl Dbl+ 23. Ke2 Bcl
24. De5 Dc2+ 25. Kf3 Dc6
Leppar hrókinn og er ekki svart-
ur aö vinna lið sitt til baka með peð
í kaupbæti því að 26. Db8 + Ke7 29.
Dxh8? Dxd5+ getur hvítur ekki
leyft sér? Nei, hvítur lumar á lag-
legri leið:
# 1
Á Á
á m Á Á
á 2 W
A & A A A
A S
abcde fgh
26. Db8+ Ke7 27. Da7+! Ke8
Eða 27. - Kf6 28. Dd4+ Kg6 (ef 28.
- Ke7 29. Dc5+ og forðar hróknum)
29. Bd3 + f5 30. Hxcl og vinnur létt.
28. Bxb5! axb5 29. Hxcl Dxd5+ 30.
Ke2
Og svartur gaf. Hvíti kóngurinn
er á leiö í fylgsni sitt en sá svarti
situr eftir berskjaldaður.
-JLÁ