Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Qupperneq 27
ÍÍAUÖÁÍIDAGUR ll. ÁGÚST 1990. 39 LífsstíU Tyrkland: Land andstæðnanna Við hlið hótelsins í Alanya er lítill akur þar sem tyrkneskar konur koma og tína agúrkur, vafðar sjölum og í síðbuxum undir skærlitum pils- unum. Seinna um daginn kemur þar líka kýr og baul hennar má auðveld- lega greina í gegnum tónlistina á barnum. Andstæðurnar blasa hvarvetna við. Til Miðjarðarhafsstrandar Tyrk- lands koma þúsundir ferðamanna til að sóla sig og til að baða sig í hreinum sjó. Það spillir heldur ekki fyrir dvöl- inni að vöruverð er lágt, hversu lengi sem það nú endist, og náttúra lands- ins er óspillt. Hafnarborg Alanya var fyrir áratug ósnortin hafnarborg, umkringd sögulegum minjum frá tímum heimsveldis Róm- verja. En hlutirnir hafa tekið stór- stígum breytinum. Nú er erfiðasta vandamálið að hafa hemil á öllum þeim sem vilja fá að byggja hótel á ströndinni út frá borginni. Heimamenn vilja sporna við því að ströndin verði eins og sólarstrendur Spánar og Kanaríeyja þar sem risa- stórir steinklumpar, sem áttu í fyll- ingu tímans að verða hótel, standa auðir og yfirgefnir af því að ferða- mannaþjónustan er jafn fallvölt og hvað annað í heiminum og ferða- mönnum á þessum slóðum hefur far- iö fækkandi. Á síðustu árum hafa verið hertar mjög allar reglur um hótelbyggingar í Alanya og nágrenni. Það má til dæmis ekki byggja fleiri hótel niðri á ströndinni og það er einungis hægt að fá lán til að byggja hótel af ákveð- inni stærð og gerð. Nú þegar standa nokkur hálfkláruð hótel við strönd- ina, hótel þar sem byggingarfélög luku ekki við því þau fóru á hausinn áður en hótelin voru fullkláruð. Það getur liðið langur tími uns byggingu þeirra verður lokið eða tekin ákvörð- un um að rífa þau. Ákvarðanataka í tyrknesku samfélagi gengur fremur hægt. Ibúarnir sýna hús sín brosandi. Ferðamannaþjónusta ný af nálinni Ferðamannaþjónusta er ný af nál- inni á þessum slóðum. Fyrir fimm árum klifruðu börn upp í fjallshlíð- arnar og köstuðu steinum að bílum ferðamanna. í dag standa börnin brosandi við veginn og rétta fram hendurnar í þeirri von að ferða- mennirnir gauki að þeim peningum, sígarettum eða tyggigúmmí. Foreldr- ar þeirra hafa komið á fót litlum matsölustöðum eða þá að þeir bjóða ferðamönnunum að skoða heimili sín gegn þóknun. Þeir sem hafa opn- að heimili sín ferðmönnum eru bændur og verkamenn sem búa í litl- um timburkofum í íjallshlíðinni, þar sem húsakynnin skiptast í stofu og lítið herbergi. í þessum kofum búa yfirleitt 6-3 manns. Húsgögnin eru ekki margbrotin, kannski einn skápur fyrir föt, hilla fyrir eldunaráhöld og ofnar mottur á gólfum. Ferðamennirnir kíkja og hafa gaman af að skoða og íbúarnir brosa ánægðir yfir að fá smávegis aura fyrir viðvikið. Undarlegir farfuglar Fjöldi barna er sendur úr sveitun- um niður til strandarinnar til að vinna á hótelum og á veitingastöð- um. Skólaskyldan er fimm ár og þeg- ar börnin eru orðin 12 ára þurfa þau ekki lengur að ganga í skóla. Það er algengt að tólf ára drengir vinni á börum, þrátt fyrir að einkennis- búningurinn sé alltof stór. En dreng- irnir kunna að lesa og skrifa og þeir skilja pantanir þessara undarlegu farfugla sem fá sér áfenga drykki hvenær sem er dagsins og eru svo ríkir að þeir hafa efni á að liggja í sólbaði. Sólin er heit og hún hitar Miðjarð- arhafið. í kaldasta mánuöinum, sem er janúar, er meöalhiti sjávar um 18 gráður en í águst er hitastigið rétt tæpar 30 gráður. Sumarið er langt, byijar í apríl og endar í nóvember. Það er því auðvelt Klámmyndir Hún er líka ekta stemmningin á litlu börunum sem eru eins og gor- kúlur hvert sem litið er. Þar sitja karlarnir, spila, drekka te og horfa á klámmyndir af myndböndum. Raun- ar hefur verið talað um að banna slíkar sýningar, því þær eru taldar hafa orsakað umferðarslys þegar bíl- stjórar hafa gleymt sér við að kíkja á myndirnar. Hins vegar hefur ekki verið rætt um að banna þær af sið- ferðilegum ástæðum. Jafnvel þrátt fyrir að trúin leggi ekki blessun sína yfir sýningar af þessu tagi. Margir taka létt á trúmálum, hins vegar hef- ur það verið að breytast dálítið upp á síðkastið því í Alanya og nágrenni hafa risið 120 skólar íjármagnaðir af nágrannalandinu íran og þar eru múslímsk fræði í hávegum höfð. Margtaðskoða Það er mýmargt að skoða í Alanya og nágrannabæjunum. Þar er mikið um alls kyns fornminjar og gamli bærinn er að stofni til frá árinu 1200 en elstu minjarnar eru frá árinu 200. Gamlar sagnir herma að Kleopatra drottning hafi komið til Alanya og baðað sig í sjónum þar. í um 20 kíló- metra fjarlægð er svo bærinn Side, hafnarborg frá dögum Rómverja, og þar er ýmsar merkar fornminjar að sjá. Oft ber það við að innfæddir reyni að selja ferðamönnum forn- minjar en samkvæmt tyrkneskum lögum er bannað að flytja þær úr landi. Ef upp kemst er fólk umsvifa- laust fangelsað og tyrknesk fangelsi eru víst ekkert grín. Það er mýmargt að sjá og skoöa á þessum slóðum og ferðamenn ættu ekki að vera í vandræðum með að eyða fríinu sínu þar. Tyrkneskir handverksmenn. Það er ódýrt að fara út að borða i Alanya.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.