Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Side 39
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1990.
51
Afmæli
Leifur Blumenstein
Leifur Blumenstein byggingafræð-
ingur, Brekkustíg 10, Reykjavík, er
sextugur á morgun, sunnudaginn
12. ágúst.
Leifur er fæddur í Rvík og lauk
próíi í húsgagnasmiði í Iðnskólan-
um í Keflavík 1954. Hann tók próf í
byggingariðnfræði í Staatliche
Technikerschule Alsfeld/Hessen í
Þýskalandi 1957 og var í námi og
starfi á Teiknistofu Hannesar Kr.
Davíðssonar arkitekts 1957-1962.
Leifur vann hjá Reykjavíkurborg
1962-1986, lengst af sem tæknideild-
arstjóri byggingardeildar borgar-
verkfræðings. Hann lét af störfum
hjá Reykjavíkurborg 1986 vegna af-
leiðinga vinnuslyss 1980. Leifur hef-
ur verið kennari í Meistaraskólan-
um í Reykjavík frá 1965 og kennir
nú í Tækniskóla íslands og Iðnskól-
anum í Reykjavík. Hann var í stjórn
Steinsteypufélags íslands 1974-1976
og varaformaður bygginngafræðifé-
lags íslands 1972-1974, formaður
1974-1976. Leifur var í nefnd sem
samdi drög að byggingalögum er
tóku gildi 1979 og fékk viðurkenn-
ingu umhverfismálaráðs 1981 fyrir
hstræna endurbyggingu Tjarnar-
götu 33. Leifur hlaut menningar-
verðlaun DV í byggingarhst 1989
ásamt Þorsteini Gunnarssyni arki-
tekt fyrir endurbyggingu Viðeyjar-
stofu og Viðeyjarkirkju. Meðal fjöl-
margra bygginga sem Leifur hefur
endurbyggt eru, Miðbæjarskólinn,
hús Sigurðar Thoroddsen við Frí-
kirkjuveginn, Thor Jensen-húsið
við Fríkirkjuveg, Iðnskólinn við
Vonarstræti og Söluturninn við
Lækjargötu.
Leifur kvæntist 10. október 1959
Bergljótu Sigfúsdóttur, f. 31. ágúst
1938, deildarstjóra teiknistofu Pósts
og síma. Foreldrar Bergljótar voru
Sigfús Jónsson, trésmíðameistari í
Fjölni í Fjalakettinum í Rvík, síðar
b. á Laugum í Hraungerðishreppi,
og kona hans, Henny fædd Ekanger.
Synir Leifs og Bergljótar eru: Bragi
Börkur, f. 15. maí 1960, nemi í bygg-
ingarlist, sambýliskona hans er
Guðbjörg Hrafnsdóttir, Bragi á einn
son, Örn Smára; Sigfús Tryggvi, f.
28. maí 1968, nemi í rafvirkjun; og
Eiríkur Freyr, f. 5. desember 1969,
nemi í húsasmíði. Sonur Bergljótar
er Hlynur Trausti Tómasson, f. 14.
maí 1956, í framhaldsnámi í flug-
virkjun, kvæntur Særúnu Ingi-
mundardóttur og eiga þau tvö börn.
Systur Leifs eru Kristín Doris, f.
9. desember 1928, gift Uno Nilsson,
deildarstjóra hjá Stokkhólmssíma í
Svíþjóð, og eiga þau tvo syni; og
Nina Carla Marie, f. 28. mars 1950,
gift Ingimundi T. Magnússyni, við-
skiptafræðingi í Rvík, og eiga þau
þrjárdætur.
Foreldrar Leifs eru Andrés Karls-
son, húsgagnasmiður og fyrrver-
andi byggingaeftirlitsmaður hjá
Reykjavíkurborg, og kona hans,
Jónína Jósefsdóttir. Andres var
sonur Karls Blumenstein, skor-
steinamúrara í Kassel í Þýskalandi,
og konu hans, Anne Marie Mall-
asch, af þýskum aðalsættum. Móð-
ursystir Leifs er Kristín og synir
hennar eru Ingólfur Guðnason,
sparisjóðsstjóri á Hvammstanga og
fyrrverandi alþingismaður, Guðni
E. Guðnason, aðalbókari hjá Eim-
skip, og Samúel Guðnason skip-
stjóri.
Jónína er dóttir Jósefs, b. í
Lambadal í Dýrafirði, Jesperssonar,
b. og formanns í Hólsbúð, Jónsson-
ar, verslunarmanns á Vatneyri, Ól-
afssonar, lögsagnara í Hjarðardal í
Önundarfirði, Erlendssonar, sýslu-
manns í Hjarðardal, Ólafssonar,
bróður Jóns frá Grunnavík, forn-
ritafræðings í Kaupmannahöfn.
Móðir Jóns var Ástríður, systir Sig-
ríðar, langömmu Þóru, ömmu Sól-
veigar Ólafsdóttur, móður Jóns
Baldvins Hannibalssonar. Ástríður
var dóttir Magnúsar, prófasts í
Vatnsfirði, Teitssonar, bróður Jóns,
biskups á Hólum, langafa Einars
Benediktssonar skálds. Jón var
einnig langafi Margrétar, móður
Jóns Þorlákssonar forsætisráð-
herra og Guðrúnar, ömmu Sigurðar
Nordals. Móðir Magnúsar var Ragn-
heiður Sigurðardóttir, prófasts í
Vatnsfirði, Sigurðssonar, og konu
hans, Helgu Pálsdóttur, prófasts í
Selárdal, Björnssonar. Móðir Páls
var Helga Árngrímsdóttir lærða,
vígslubiskups á Meðstað, Jónsson-
ar. Móðir Ástríðar var Ingibjörg
Markúsdóttir, sýslumanns í Ögri,
Bergssonar, og konu hans, Elínar
Hjaltadóttur, prófasts og málara í
Vatnsfirði, Þorsteinssonar. Móðir
Jósefs var Kristín Önundardóttir,
hreppstjóra á Brimilsvöllum, Jóns-
sonar, og Guðrúnar Jónsdóttur, b. á
Sölvahamri, Svartssonar, b. á Hálsi,
Pálssonar, bónda í Miðgörðum,
Svartssonar, bónda í Miðgörðum,
Pálssonar, bróður Sigurðar, langafa
Péturs, langafa Friðriks, föður
Sturlu erfðafræðings.
Móðir Guðrúnar var Kristín Guð-
mundsdóttir, b. á Svarthamri í
Álftafirði, bróður Efemíu,
langömmu Óskars Vigfússonar, for-
manns Sjómannasambands íslands,
og Gunnars Hanssonar, forstjóra
IBM. Guðmundur var sonur Jó-
hannesar, b. á Folafæti í Seyðis-
flrði, Jónssonar. Móðir Jóhannesar
Leifur Blumenstein.
var Guðrún Sigurðardóttir, systir
Þorláks, langafa Guðmundar, afa,
Guðmundar Inga skálds, Halldórs
rithöfundar, Jóhönnu Þórðardóttur
og Ólafs Þ. skólastjóra, afa Ólafs
Harðarsonar stjórnmálafræðings.
Guðmundur er einnig langafi Krist-
ínar Á. Ólafsdóttur borgarfulltrúa.
Leifur tekur á móti gestum á af-
mælisdaginn í Baðstofu iðnaðar-
manna (í gamla Iðnskólanum),
Lækjargötu 14A, Reykjavík, klukk-
an 16.00-19.00
Magnús B. Guðmundsson
Magnús B. Guðmundsson, fyrr-
verandi verkamaður og bóndi,
Skúlagötu 15, Stykkishólmi, er sjö-
tugurídag.
Magnús fæddist í Stykkishólmi en
ólst upp í Breiðafjarðareyjum;
Bjarneyjum, Akureyjum og Fagur-
ey. Hann var lengst af verkamaður
og í 15 ár var hann bóndi að Kljá í
Helgafellssveit.
Magnús kvæntist þann 11. júlí 1953
Halldóru Þórðardóttur, f. 15. janúar
1924, húsfreyju. Foreldrar hennar
eru Ingibjörg Pálmadóttir og Þórður
Jónsson bóndi.
Börn Magnúsar og Halldóru eru:
Kristján Breiðíjörö, f. 2. apríl 1953,
bílstjóri; Ingibjörg, f. 25. júní 1954,
sjúkraliði; Þórður Sigurbjörn, f. 22.
október 1955, bifreiðasmiður; Guð-
mundur Karl, f. 30. ágúst 1958, raf-
magnsiðnfræðingur; Dagbjört, f. 7.
nóvember 1961, kjólameistari;
Þröstur, f. 27. mars 1965, stýrimað-
ur. Barnaböm Magnúsar og Hall-
dóm eru tíu.
Magnús á tólf hálfsystkini. Faðir
Magnúsar er Guðmundur Kristinn
Kristjánsson. Móðir hans er Dag-
björt Hannesína Andrésdóttir. Fóst-
urforeldrar Magnúsar eru Kristján
Hreinsson, bóndi í Bjarneyjum, og
Kristjana Jónsdóttir.
Studioblóm
Þönglabakka 6, Mjódd,
norðan við Kaupstað,
sími 670760
Blómaskreytingar
við öli
tækifæri.
90 ára______________________ 75ára__________________
Eyjólfur Gíslason, JóhannaHelgadóttir,
Njálsgötu 82, Reykjavík. Hamraborg 18, Kópavogi.
KarlSigurðsson,
Gnoöarvogi 32, Reykjavík,
Sólveig Hallgrímsdóttir, 70 át3
Austurbyggð 19, Akureyri. ---------------------
__________ ______________________ Pétur Aðalsteinsson,
Anna Gunnlaugsdóttir,
Tjarnargötu 10A, Reykjavík.
BjarniSigurðsson,
Vígdísarstöðum, Kirkjuhvamms-
hreppi.
Guðmundur Jónsson,
Nýbýlavegi 28, Hvolsvelli.
Þyri Marta Magnúsdóttir,
Tjarnargötu 16, Reykjavik, verður
80 ára á mánudaginn, 13. ágúst. Hún
tekur á móti gestum í Kiwanishús-
inu, Skemmuvegi 13Á, Kópavogi, á
morgun, sunnudag, milli klukkan
15.00 og 19.00.
Hjallavegi 4, Hvammstanga.
Sigríður Guðmundsdóttir,
Smáratúní 6, Keflavík.
Ásta Ólafsdóttir,
Mörtungu 2, Kirkjubæjarklaustri.
Margrét L. Eggertsdóttir,
Drápuhlíð 13, Reykjavík.
60ára________________________
Ásdis Klara Enoksdóttir,
Búðum, Grindavík.
Maria Helgadóttir,
Sogavegi 202, Reykjavík.
Guðjón Jónsson,
Víðilundi 11, Garðabæ.
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir,
Sævangi 23, Hafnarfirði.
Sveinn Þórarinsson,
Þiljuvöllum 24, Neskaupstað.
50 ára
Guðný Ragnarsdóttir,
Einimel 13, Reykjavík. Hún ogeigin-
maður hennar taka á móti gestum
á heimili þeirra á afmælisdaginn
milli klukkan 16.00 og 19.00.
James Arthur Bray,
Tjarnargötu 24, Keflavík.
40ára_________________________
Ægir Ómar Hraundal,
Hafharbraut 36, Neskaupstað.
Símon Baldur Skarphéðinsson,
Daltúni 8, Sauðárkróki.
Kolbrún Guðmundsdóttir,
Hafnarstræti 79, Akureyri.
Brynhildur Sigurðardóttir,
Háaleitisbraut 39, Reykjavik.
Konráð Gíslason,
Engjavegi 32, ísafirði.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Skammtímavistun Álfalandi 6
óskar aö ráða þroskaþjálfa eða annað uppeldis-
menntað starfsfólk nú þegar. Um hlutastörf er að
ræða.
* 20% starf sem er eingöngu helgarstarf,
^ aðra hverja helgi
*-60% starf sem er kvöld- og helgarvinna.
Einnig kemur til greina að ráða starfsfólk með góða
starfsreynslu.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 32766
Heilsugæslustöð á Seltjarnarnesi
Tilboð óskast í 3. áfanga framkvæmda við heilsugæslustöðina á
Seltjarnarnesi. Um er að ræða innanhússfrágang af hluta hús-
næðisins sem nú er tilbúinn undir tréverk og nokkrar breytingar
á þeim hluta hússins sem verið hefur í notkun. Heildarflötur heilsu-
gæslustöðvarinnar er um 1000 m2 en hlutinn sem tilbúinn er
undir tréverk er um 350 m2.
Verkinu skal skila í tvennu lagi, fyrri hluta 15. janúar 1991 en
verkinu öllu 2. apríl 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Innkaupastofnunar rikisins,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík, til og með mánudegi 27. ágúst gegn
10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 31. ágúst 1990 kl.
11.00.
IIMNKAUPASTOFIMUN RlKISINS
BORGARTUNI 7, 105 REYKJAVIK
Tji/