Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.1990, Síða 44
Einn sá
ódýrasti
i bænum
ÍSVAL
v/Rauðarárstíg
11. AGUST 1990.
Böðvar lögreglu-
stjóribaðst
afsökunar
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í
Reykjavík, hefur beðist afsökunar á
því fyrir hönd lögregluembættisins í
Reykjavík að sjónvarpsmenn skyldu
hafa verið í íör með lögreglunni þeg-
ar hún fór í fyrirtæki vegna vanskila
á opinberum gjöldum.
Böðvar sagði við DV í gær aö lög-
reglan hefði gefið leyfl fyrir því að
sjónvarpsmenn frá Stöð 2 fengj u að
fylgjast með aðgerðum lögreglunnar
gegn því að í sjónvarpsútsending-
unni kæmi ekkert það fram sem
gæfi visbendingu um hvaða verslun
væri að ræða eða hver væri eigandi
hennar.
Að sögn Böðvars reyndist ekki vera
farið eftir þessu samkomulagi í út-
sendingu sjónvarpsmanna. „Engu að
síður bar lögreglan ábyrgð á málinu,
hún gaf leyflð og því hef ég beðið
viðkomandi aðila velvirðingar."
-JGH
Í
i
i
i
i
i
i
i
Vöruskiptaj öfnuður:
Minni afgangur
enífyrra
íslendingar fluttu út vörur fyrstu
sex mánuði ársins fyrir um 46,4 millj-
arða króna en inn fyrir rösklega 44
milljarða króna. Vöruskiptajöfnuð-
urinn fyrri hluta ársins reyndist því
hagstæður um tæplega 2,3 milljarða
króna en á sama tíma í fyrra var
hann hagstæður um 4,2 milljarða
krónaásamagengi.
-JGH
LAUGARDAGUR
S351
Jón Bjarnasoi
úrsmiður,
s. 96-25400
LOKI
Það eftirsóttasta
í apótekinu í dag mun
vera svokölluð skipverja!
Tveir stuttir snáðar, tveggja og fjögurra ára gamlir, urðu heldur skelkaðir þegar bíllinn, sem þeir biðu i eftir
mömmu sinni, rann skyndilega af stað á bak við hús að Laugavegi 176 í gær. Billinn stóð i brekku og fór hann úr
gír hjá strákunum. Það skipti síðan engum togum, bíllinn rann um 40 metra niður brekku og endaði á kyrrstæðum
mannlausum bíl á stæði fyrir neðan. Báðir bílarnir skemmdust lítils háttar. Á myndinni er lögreglan komin á stað-
inn og drengirnir búnir að jafna sig eftir áfallið. DV-mynd S
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Áf ram svalt norðanlands en sæmilega hlýtt syðra
Á sunnudag verður hæg norðlæg átt, sums staðar súld við norðurströndina, annars yfirleitt bjart veður á
landinu. Fremur svalt verður í veðri, einkum norðanlands. Á mánudag verður austan- og norðaustan átt, súld
eða rigning á Norðurlandi, hætt við skúrum á Suður- og Austurlandi en líklega þurrt á Vesturlandi. Áfram
verður svalt norðanlands en sæmilega hlýtt syðra.
Steinþóra Sigurðardóttir sem býr 1 Stokkhólmi:
Stóð á milli tveggja vopn
aðra bankaræningja
horfði í hlaup silfurlitaðrar skammbyssu
„Ég vinn á hárgreiðslustofú sem
er beint á móti bankanum. Ég var
að ná í skiptimynt um fimmtán
mínútnra eftir að bankinn var opn-
aöur. Þegar ég var komin að af-
greiðslukassanum stökk grímu-
klæddur maður yfir afgreiðslu-
borðið. Ég hugsaði meö mér hvaða
fiflalæti þetta væru eiginlega. Ég
heyrði að fyrir aftan mig var eitt-
hvað kallað á ensku. Þegar ég sneri
mér við stóð annar grimuklæddur
maður fyrir aftan mig. Ég horfði
inn i silfurlitað byssuhlaup,“ sagði
Steinþóra Sigurðardóttir sem býr í
Stokkhólmi í Svíþjóð.
Steinþóra var stödd í einni af-
greiðslu Svenska Handelsbanken í
Stokkhólmi þegar tveir vopnaðir
og grímukæddir merrn rændu
bankann.
„Eftir að ég hafði séð manninn
með byssuna hugsaði ég með mér
aö ég nennti ekki að taka þátt í
þessum leik. Ég er komin sjö mán-
uði á leið og ætlaði að fá mér sæti.
Þá bönnuðu þeir öllum að hreyfa
sig. Eftir að þeir höfðu fengiö ein-
hverja peninga hlupu þeir út.
Þeir töluöu spænsku sin á mílli.
Viö sem vorum í bankanum fórum
öll í yfirheyrslu hjá lögreglunni.
Ég mimdi fátt og gat lítið sagt. Þeir
voru háðir svartklæddir og með
grímur.
Þegar ég hugsaði til báka brá mér.
Ég var lengi að átta mig á því að
þetta væri bankarán og að ég hefði
staðið á milli tveggja bankaræningja.
Ég veit ekki hversu lengi þetta stóð
yfir. Gjaldkerarnir eru með einhvers
konar falsaða peningaseðla hjá sér.
Þegar ræningjamir komu út úr
bankanum sprakk litil bomba sem
er í peningabúntunum og við það
kom mikill reykur og peningaseðl-
amir aflituðust. Fólk horíði á eftir
þeim á flóttanum. Þeir peningar sem
þeir tóku em þeim einskis nýtir,“
sagði Steinþóra Sigurðardóttir.
„Ég fékk mjög stóran blómvönd
frá bankanum. Ég vinn á móti
bankanum og klippi marga starfs-
menn þar. Ég veit að ræningjarnir
hafa ekki fundist þó um vika sé lið-
in frá því þetta gerðist. Sama dag
og ránið var framið var framið
annað bankarán i annarri af-
greiðslu hjá sama banka,“ sagði
Steinþóra Sigurðardóttir.
Steinþóra og eiginmaður hennar,
Ásmundur Ingvarsson, hafa búið í
Stokkhólmi í fimm ár. Þau eiga
tveggja ára gamalt bam og annaö
á leiöinni. -sme
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjörn -