Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1990.
Menning
Styttur úr rekaviði á Kjarvalsstöðum:
Byrjaði að skapa
myndir í frístundum
- segir Sæmundur Valdimarsson myndhöggvari
Sæmundur Valdimarsson myndhöggvari
opnaði sýningu á verkum sínum á Kjarvals-
stöðum síðastliðinn laugardag. Sæmundur
hefur sérstöðu meðal íslenskra myndhöggv-
ara því hann gerir alla sína skúlptúra úr
rekavið.
Eins og með flesta alþýðuhstamenn er það
fyrst og fremst einlægnin sem gerir högg-
myndir Sæmundar eins eftirtektarverðar og
þær eru í raun. Stytturnar á sýningu Sæ-
mundar eru allt mannamyndir þar sem nafn
styttunnar gefur ávallt til aö kynna hver
hugmyndin að baki verkinu er og leynir sér
ekki mikið innsæi listmannsins í mannlegar
tilfinningar.
Sæmundur Valdimarsson fæddist 1918 að
Krossi á Barðaströnd og var þar búsettur til
fuUorðinsára. Hann fluttist til Reykjavíkur
1948 og vann vaktavinnu í þrjátíu og flmm
ár í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi.
Sæmundur fór ekki að fikta við myndlist
fyrr en um 1970 og voru hans fyrstu verk
sýnd í Gallerí SÚM 1974, á sýningu á al-
þýðulist sem þar var haldin. Upp úr því fór
hann að vinna við stærri skúlptúra úr reka-
viði. Fyrstu einkasýningu sína hélt Sæmund-
ur 1983 og eru þær nú orðnair átta talsins,
þar af ein í Osló 1989. Auk þess hefur hann
tekið þátt í nokkrum samsýningum. Verk
Sæmundar hafa vakið athygh bæði inn-
lendra og erlendra listunnenda og um þau
hefur verið skrifað í blöðum og tímaritum.
DV fékk Sæmund í stutt spjall í tilefni sýn-
ingar hans.
„Ég fæst eingöngu við rekavið nú. Á fyrstu
sýningunni, sem ég tók þátt í, gerði ég verk
úr mislitum steinum sem ég tíndi í fjöllum.
Þá safnaöi ég einnig rekavið, braut hann
niður og límdi hann aftur upp í grímur. Stytt-
umar koma eiginlega ekki fyrr en eftir 1980.
Þá var ég húinn að finna formið sem mér
hæfir.
Myndlistina hef ég ávallt stundað með ann-
arri vinnu að undanskildum síðustu tveimur
ámm. Rekaviðinn hef ég fundið mest í kring-
um Reykjanesið en einnig fengið rekavið
norðan af Ströndum. Rekaviðurinn kemur
nánast upp á flöru eingöngu að vetri til þeg-
ar gengur á með stórviðram."
Sá eini sem gerir
höggmyndir úr rekavið
Sæmundur gerir eingöngu mannamyndir
í rekaviðinn og getur hugmyndin að mynd-
inni verið lengi aö þróast með honum. „Ég
tek mikinn tíma í að hugsa upp myndina og
Sæmundur Valdimarsson myndhöggvari stendur hér við eitt verka sinna sem er á sýningu
hans á Kjarvalsstöðum. Nefnir hann verk þetta Móðurgleði.
það er ekki gott að segja á hvaða stigi mynd-
arinnar það er þegar ég er orðinn fullviss
um hvemig myndin muni líta út í lokin.“
Sæmundur er eini myndhöggvarinn sem
fæst við rekavið: „Spekingar hafa sagt við
mig að myndlist í rekavið hafi þekkst fyrir
um það bil 2500 árum, ekki veit ég neitt um
það, en ég veit ekki um neinn annan sem
fæst við þetta afhrigði af höggmyndalist."
Sýning Sæmundar nú er þriðja einkasýn-
ing hans að Kjarvalsstöðum en hans áttunda
einkasýning í heild. í fyrra voru verk hans
í fyrra á sýningu í Osló og vöktu mikla at-
hygli. Og það er þess vegna sem til landsins
er komin kona frá norsku listasafni sem mun
skoða verkin með það fyrir augum að sýna
þau á sýningu sem yrði haldin 1992 í Noregi.
Er myndhst Sæmundar alþýðulist: „Já, þaö
verð ég að segja, segir Sæmundur. „Ég var
með á sýningu í Hafnarborg í vor með öðrum
alþýðulistamönnum svo ég verð að telja mig
alþýðulistamann. Ég var svolítið feiminn við
nafnið „naivisti“ fyrst en í dag líkar mér
ágætlega við það.“
Verkin á sýningu Sæmundar eru öll frá
síðustu tveimur árum og voru nokkur þeirra
á sýningu hans í Noregi. Þótt rekaviðurinn
sé uppistaöan í skúlptúrum hans notar hann
einnig þara, ýsuroð og trjálauf svo eitthvað
sé nefnt til að fullgera stytturnar.
Byrjaði í frístundum
frá vinnunni
Hvaö kom til að vaktavinnumaður í Áburð-
arverksmiðjunni fór að eiga við myndlist?
„Mig vantaði eitthvaö til að gera í frístundum
og byrjaði fyrst að mála á steinflögur og
smám saman þróðaðist þetta út í rekaviðinn
og þá fannst mér ég hafa fundið það sem ég
leitaði að. Rekaviðurinn er vandmeðfarinn.
Hann er mikið mergsoginn og svo þegar
hann er þurrkaður þá springur hann allur
og það má sjá á verkunum."
Hvaö er það sem rekur Sæmund áfram í
myndsköpun sinni? „Ég hef margoft hætt og
fundist þetta vera ekki til neins en ávallt
byrjað aftur. Að vísu eftir að ég hætti að
vinna hef ég unnið stöðugt að styttunum og
mun gera það áfram á virkum dögum sem
og helgum.“
Óhætt er að hvetja fólk til að sjá hina sér-
stöku skúlptúra sem Sæmundur gerir í reka-
viðinn. Það er erfitt annað en að hrífast að
þeirri einlægni sem skín úr verkunum.
-HK
Alþýðuleikhúsið:
Grísk tragedía og bama-
leikrrt fyrstu verkef nin
Starfsemi Alþýðuleikhússins er að
heQast þessa dagana. í fyrstu verða.
tvö verkefni á dagskrá, Gríski harm-
leikurinn Medea eftir Evrípídes og
Keh þó eftir Iðunni og Kristínu
Steinsdætur.
Æfingar era þegar hafnar á Medeu
og er Inga Bjamason leikstjóri en
þýðingin er eftir Helga Hálfdanar-
son. Leikritið fjallar um Medeu,
svartahafsprinsessu, morðkvendi,
fegurðardrottningu og galdranom.
Tónhstina gerði Leifur Þórarinsson
og Hlíf Svavarsdóttir hefur umsjón
með dönsum. Medea verður sýnt í
gamla Iðnó sem ætlar að verða líf-
seigt sem leikhús. Nú er leikfélagið
flutt þaðan en aðrir leikhópar fá þar
að öllum líkindum inni í vetur.
Hlutverk Medeu leikur Jórann Sig-
urðardóttir en Jason, eiginmann
hennar, leikur Harald G. Haralds.
Ahs eru leikarar og dansarar þrettán
í sýningunni. Medea hefur ekki verið
leikið á svið áður hér á landi. Leikrit-
ið verður framsýnt 26. október. Þess
má geta að út kemur í haust hjá
Máli og menningu bók með þýðing-
um Helga á öllumn leikritum Æsílos-
ar, Sófóklesar og Evrípídesar.
Keh þó er barnaleikrit eftir Iðunni
og Kristínu Steinsdætur, ætlað börn-
um, 6-9 ára. Leikritið er með um-
ferðarfræðslu og er til sýningar í
skólum. Fjallar það um Kela, sem er
hress átta ára strákur, nýfluttur í
bæinn að vestan en er þó hvergi
banginn í umferðinni í Reykjavík.
Hans stærsti draumur er að verða
lögga. Hann kemst að því að hann á
ýmislegt ólært áður en sá draumur
rætist.
Auk Kela koma við sögu Vala, sem
er sex ára og hefur vhlst, mamma
Kela, lögregluþjónn, gamall maður,
fullorðin kona, strákur í boltaleik og
stressaður maður sem greinilega er
litblindur. Þrír leikendur fara með
öll hlutverkin. Þau eru Steinunn
Ólína Þorsteindóttir, Kormákur
Baltasar og Gunnar Rafn Guð-
mundsson. Tónhst er eftir Ólaf Hauk
Símonarson. Gerla gerir leikmynd
og búninga og leikstjóri er Sigrún
Valbergsdóttir. Frumsýning verður
10 október.
-HK
Inga Bjarnason leikstýrir Medeu.