Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1990. 17 Lesendur „í Lúxemborg er ísland vel kynnt af flugsamgöngunum einum frá þvi snemma á 6. áratugnum," segir hér m.a. - Á Findel-flugvelli að loknu fyrsta þotuflugi íslendinga til Lúxemborgar. Forsetaferöir og fréttaflutningur: Leiðigjarnt til lengdar Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar: Hann fer nú að verða helst til leiði- gjarn til lengdar þessi fréttaflutning- ur af ferðum forseta okkar til ann- arra landa. Það er ekkert spennandi þegar svona ferðir eiga sér stað á nokkurra vikna, jafnvel nokkurra daga, fresti eins og nú er raunin. - Ferðalög og móttökur á vegum for- setaembættisins eru að verða kapít- uli út af fyrir sig hvað varðar fyrir- ferð, fréttaflutning og fríðindi fyrir þá sem þeim tengjast. Ferð forseta okkar til Lúxemborgar nú síðast er einmitt dæmi um þetta. Hvað er það sem við íslendingar þurfum alveg sérstaklega að kynna í því annars ágæta landi? I Lúxem- borg er ísland þegar vel kynnt af flugsamgöngunum einum frá því snemma á 6. áratugnum og þarf ekki frekar vitnanna við. - Sú síbylja í fréttum, að forsetinn hafi heimsótt klaustrið í Clervaux, þar sem Halldór Laxness hafi haft stuttan stans endur fyrir löngu, er að verða svo herfilega klígjugjörn að henni má likja við lýs- istökuna sem var oröin öbærileg skylda forðum daga. Eg vil bara biðja til guðs að í næstu ferð forseta vors, sem kannski stend- ur yfir er þetta birtist, og í þetta sinn til frænda okkar í Svíaríki, verði aðeins linað á fréttafiutningi í þeim dúr sem nú hefur dunið á okkur landsmönnum hér á norðurslóðum. - Er nú ekki kominn tími til að taka saman kostnaðinn af þessum fyrir- gangi öllum og birta hann opinber- lega, t.d. kostnaðinn á þessu ári til dagsins í dag? /• -/’ . -/• -/• -/■ 1í() I 1/S) iíSi 1í() í) IfS) IrS) lí) lí() ÖMAR, HALLl OG LADDI sameina skemmtikraftana FYRSTA SYNING LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 22. SEPT PANTIÐ TIMANLEGA Uppselt var á allar sýningar frá síðastliðnum áramótum til vors. OPINN DANSLEIKUR FRÁ KL. 23.30 TIL 3 MÍMISBAR opinn frá kl. 19. Miðaverð (skemmtun + veislumatur) 3.900 kr. Tilboð á gistingu. Nánari upplýsingar í síma 91-29900. 5i IíS) IfS) lí() IíS) S) lf() IfS) IfS) IfS) IíS) líSt líS) IfS) .IfSi r() IfS) IfS) líS) IfS) ISLENSKA SJAVARUTVEGSSYNINGIN, sem nú er haldin í þriðja sinn í Laugardalshöll, hefur fest sig í sessi sem alþjóðleg stórsýning á sviði sjávarútvegs. Sýningin í ár verður glæsilegri en nokkru sinni fyrr og er von á þús- undum gesta hvaðanæva að úr heiminum. Á 10 þúsund fermetra rými munu á fimmtahundrað íslenskra og er- lendra sýnenda kynna allar helstu nýjungarnar í veiðum, vinnslu og markaðssetningu sjávarfangs. Á meðan sýningin stendur yfir bjóða Flugleiðir sérstakan afslátt á innanlandsflugi fyrir sýningargesti utan af landi. Nánari upplýsingar fást hjá ferðaskrifstofum, sölumönnum og umboðsmönnum um land allt. _ ____ FLUGLEIDIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.