Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1990, Blaðsíða 30
42
MÁNUDAGUR 17. SEPTEMBER 1990.
A&næli___________________
Marinó Kristinsson
Marinó Kristinsson, fyrrv. prest-
ur og prófastur, Bergþórugötu 27,
Reykjavík, er áttræöur í dag.
Marinó Friðrik er fæddur í Grims-
by í Lancasshire í Englandi og varð
stúdent frá MR1930. Hann var skrif-
stofumaöur í Rvík 1930-1931 og lauk
guðfræðiprófi frá HÍ1936. Marinó
var prestur í Vallanesi 1936-1939 og
á ísafirði 1939-1942. Hann var prest-
ur á Valþjófsstað 1942-1960 og í
Vallanesi 1960-1966. Marinó var
prestur í Sauðanesi í N-Þingeyjar-
sýslu 1966-1979 og prófastur í Norð-
ur-Þingeyjarprófastsdæmi 1966-
1971. Hann tók þátt í söngför Karla-
kórs Rvíkur um Norður-Ameríku
haustið 1946 og var í stjórn Prestafé-
lags Austurlands og Prestafélags
Vestfjarða um skeið. Marinó var í
stjórn kirkjukórasambands Austur-
lands 1946-1966 og formaður íþrótt-
aráðs Austurlands 1937-1938. Hann
var í íþróttaráði Vestfjarða 1940 og
í skólaráði Hallormsstaðarskóla
1942-1946. Marinó kvæntist 19. júlí
1949 Þórhöllu Gísladóttur, f. 11.
mars 1920, ljósmóður og hjúkrunar-
konu. Foreldrar Þórhöllu eru Gísli
Helgason, b. í Skógargerði í Fella-
hreppi, S-Múlasýslu, og kona hans,
Dagný Pálsdóttir. Böm Marinós og
Þórhöllu eru Dagný, f. 12. maí 1947,
kennari, gift Ágústi Guðröðarsyni,
b. og kennara á Sauðanesi, þau eiga
fjögur börn, áður átti Dagný eitt
barn og Ágúst tvö börn; Hrefna, f.
31. mars 1950, gift Vífli Þorfinnssyni
vélgæslumanni og eiga þau tvö
börn, áður átti Hrefna eitt barn;
Ágúst, f. 5. maí 1951, lögreglumaður,
fyrri kona hans var Auður Stefáns-
dóttir, þau skildu og áttu þau tvö
börn, seinni kona hans er Elísabet
Ó. Árnadóttir og eiga þau tvö börn;
Gísli Már, f. 16. september 1952,
húsasmíðameistari, kvæntur Eriu
Ásgrímsdóttur og eiga þau fjögur
börn, áður átti Gísli tvö börn; Rósa
Kristín, f. 28. nóvember 1953, starfs-
maður taugarannsóknardeildar
Landspítalans og á hún eitt barn,
Rósa er tvíburi en hitt barnið,
stúlka, lést í fæðingu; Steinunn, f.
13. júní 1958, markaösráðgjafi, hún
á tvö börn; Kolbeinn, f. 15. júh 1959,
skipstjóri, og Úlfur Heiðar, f. 23.
desember 1961, trésmiður, kvæntur
Drífu Aradóttur og eiga þau tvö
börn. Kjörsonur Marinós er Hrafn,
f. 2. október 1938, rafvirki í Rvík.
Bræður Marinós eru: Viktor, f. 1908,
læknir í Rvík, kvæntur Huldu Dal-
mann og Sigurður. Systkini Marin-
ós sammæðra eru: Oddný Steinunn
Þorsteinsdóttir, f. 13. október 1931,
d. 11. júní 1934; Þóra Þorsteinsdóttir,
f. 30. október 1933, gift Sigurþóri
Hallgrímssyni, pípulagningameist-
ara í Rvík, og Sigurður Þorsteins-
son, f. 11. apríl 1936, d. 1980, leigubíl-
stjóri í Rvík, kvæntur Ágústu Vig-
fúsdóttur.
Foreldrar Marinós voru Gestur
Kristinn Guðmundsson, f. 8. október
1881, d. 26. apríl 1931, togaraskip-
stjóri í Rvík, og og Ágústa M. S.
Valdimarsdóttir, f. 2. september
1890, d. 1973. Gestur var sonur Guð-
mundar, sjómanns á Stokkseyri,
Gestssonar. Ágústa var dóttir Valdi-
mars, verkstjóra í Hull í Englandi,
Rögnvaldssonar, b. í Litla-Leðri í
Selvogi, Rögnvaldssonar. Móðir
Ágústu var Rósa Þórðardóttir,
verkamanns í Rvík, Stefánssonar,
b. á Báreksgerði á Miðnesi, Ólafs-
sonar. Móðir Þórðar var Ingveldur
Marinó Kristinsson.
Jónsdóttir, b. á Hamri, Ámasonar,
prests í Steinsholti, Högnasonar
„prestaföður" prófasts á Breiðaból-
stað í Fljótshlíö, Sigurðssonar. Móð-
ir Ingveldar var Helga Ólafsdóttir,
b. og og hreppstjóra á Eystri-Lofts-
stöðum, Vernharðssonar og konu
hans, Sesselju Aradóttur, b. og
hreppstjóra á Eystri-Loftstöðum,
Bergssonar, b. og hreppstjóra í
Brattsholti, Sturlaugsonar, ættföð-
ur Bergsættarinnar.
Heiðbjört Bjömsdóttir
Heiðbjört Björnsdóttir húsmóðir,
Miðbraut 7, Vopnafiröi, varð sex-
tugígær.
Heiðbjört fæddist að Syðra-
Laugalandi í Eyjafirði. Hún var
talsímavörður á Akureyri í fjölda
ára en hefur lengst af verið hús-
móðir. Heiðbjört hefur verið matr-
áðskona við Vopnafjarðarskóla tvö
sl. ár. Hún hefur verið virkur félagi
í Slysavamadeildinni Sjöfn á
Vopnafirði og formaður hennar frá
1975.
Heiðbjört giftist 15.2.1953,
Tryggva Gunnarssyni, f. 24.7.1927,
skipstjóra en hann er sonur hjón-
anna Gunnars Tryggvasonar, b. á
Brettingsstöðum, og Emelíu Sig-
uröardóttur húsfreyju.
Heiöbjört og Tryggvi eiga fimm
börn. Þau eru Þorgerður, f. 12.9.
1949, hárgreiðslumeistari í Kópa-
vogi, gift Gylfa Ingimundarsyni,
verkstjóra hjá Eimskip og eiga þau
tvær dætur, Heiðbjörtu, f. 1969 og
Margréti Elísu, f. 1971; Hulda, f.
17.4.1953, hjúkrunarfræðingur og
ljósmóðir í Reykjavík, gift JÓhanni
Einari Jakobssyni rafvirkja og eiga
þau tvö börn, Örvar, f. 1978 og
Matthildi, f. 1981; Gunnar Björn, f.
10.10.1955, skipstjóri á Vopnafirði,
og á hann eina dóttur, Kristjönu
Ingibjörgu, f. 1976 en sambýliskona
Gunnars Björns er Birna Halldóra
Einarsdóttir skrifstofumaður;
Emma, f. 22.1.1959, hjúkmna-
rfærðingur og ljósmóðir á Vopna-
firði, gift Steindóri Sveinssyni
húsasmíðameistara, og Adda, f.
19.3.1961, hjúkrunarfræðingur á
Vopnafiröi, en sambýlismaöur
hennar er Aðalbjörn Björnsson
yfirkennari og eiga þau einn son,
Tryggva, f. 1986.
Systkini Heiöbjartar eru Þóra, f.
14.12.1926, húsmóðir í Reykjavík,
gift Sveini Sveinssyni bifreiða-
stjóra; Hjördís, matráðskonaí
Reykjavík, f. 17.6.1928, matráðs-
kona í Reykjavík, gift Magnúsi
Aðalsteinssyni lögregluvarðstjóra;
Óttar, b. í Eyjafirði, f. 3.7.1929,
kvæntur Steinunni Gísladóttur;
Broddi, f. 4.5.1938, lögreglumaður
á Akureyri, kvæntur Kristínu Pét-
ursdóttur; Björn, f. 25.2.1943, skóla-
stjóri á Sauðárkróki, kvæntur
Birnu Guðjónsdóttur.
Hálfsystkini Heiðbjartar: Ragna
Iðunn, f. 21.12.1928, húsfreyja í
Eyjafirði, gift Hreiðari Kristni Sigf-
ússyni bónda; Brynja, f. 14.6.1932,
húsfreyja á Akureyri, en sambýlis-
maður hennar er Guðjón Pálsson
tónlistarkennari; Gunnvör, f. 27.12.
1947, lögregluliði í Reykjavík, og
Jóhannes, f. 13.11.1932, verslunar-
maður á Akureyri, kvæntur
Dagnýju Sigurgeirsdóttur.
Foreldrar Heiðbartar voru Björn
Jóhannsson, f. 11.4.1893, sem er
látinn, bóndi að Laugalandi í Eyja-
firði, og Emma Elíásdóttir, f. 8.10.
1906, húsfreyja.
Björn var sonur Jóhanns Ágúst
Helgasonar og Þóru Árnadóttur.
Foreldrar Emmu voru Elías
Árnason og Sigurmunda Sig-
mundsdóttir.
Heiðbjört Björnsdóttir.
Andlát
Til hamingju með afmælið 17. september
95 ára 60 ára
Elínborg Jónsdóttir, Dalbæ, Dalvík Guðrún Guðmundsdóttir, Tjöm, Stokkseyrarhreppi
90 ára Hringbraut 82, Keflavík Ingvar Ingvarsson, Múlastööum, Andakílshreppi
Jöfríður Stefángdóttir, Staihi, Reykdáelahreppi
Kristjana Guöfinnsdóttir, Ásvallagötu 61, Reykjavík Guðmundur lngimarsson, 50 ára
Holti 2, Stokkseyrarhreppi Unnur Karlsdóttir, Lágholti 7, Mosfellsbæ Sigrún Margrét Jónsdóttir, Hjallabrekku 26, Kópavogi
85 ára
Liija Finnsdóttir, Borgarbarut 70, Borgameá Kristin Finnsdóttir, Odda, Seltjamamesi
40 ára
75 ára Guðmundur G. Norðdahl, Krummahólum 2, Reykjavík Þórhallur Bjarnason, Drangshlíö, Bandagerði 1, Akureyri Sigrún F. Guðmundsdóttir, Stapasíðu 17 E, Akureyri Ragnhiidur B. Jóhannsdöttir, Austurtuni 13, Bessastaöahreppi Guðný Svavarsdóttir, Heiöarseli 25, Reykjavík Páil Halldórsson, Sólbakka 6, Flateyrarhreppi Marta Guðmundsdóttir, Lágabergi 7, Reykiavík Gunnar Magnússon, Engihjalla 3, Kópavogi Eva Benediktsdóttir, Goðheimum 22, Reykjavik Theódór Vilmundarson, Efsta-Dal 1 B, Laugardalshreppi
Hannes Ágústsson, HjaUabraut 33, Hafharfiröi Einar Guömundsson, Stigahliö 88, Reykjavík
70 ára
Gunnlaug Hannesdóttir, Höröalandi 6, Reykjavík Brynhiidur Eyjólfsdóttir, Arnbjargariæk, Þverárhlíöarhreppi, Mýrasýslu Sigurgeir Sigurösson, Hrauntúni 14, Vestmannaeyjum Heigi Þorkelsson, Garðaílöt 13, Garðabæ
Andrés Fjeldsted Sveinsson
Andrés Fjeldsted Sveinsson síma-
málafulltrúi, Ægisíðu 72, Reykjavík,
lést í Borgarspítalanum mánudag-
inn 10.9. sl. Hann verður jarðsung-
inn frá Dómkirkjunni á morgun,
þriðjudaginn 18.9., klukkan 13.30.
Andrés fæddist í Reykjavík 12.12.
1934, og ólst þar upp í foreldrahús-
um. Hann lauk landsprófi frá Hér-
aðsskólanum á Laugarvatni 1952,
lauk sveinsprófi í símvirkjun 1966
og stúdentsprófi utan skóla frá MR
1974. Andrés stundaði nám við
heimspekideild HÍ1974-77 og lauk
þaðan þriðja stigs prófi í ensku.
Andrés sótti námskeið Dale
Camegie í ræðumennsku og mann-
legum samskiptum og varð síöar
fyrirlesari þar og leiðbeinandi.
Hann stundaði nám á vegum Ferða-
skrifstofu ríkisins og haföi réttindi
sem leiðsögumaður.
Á námsárunum starfaði Andrés
hjá véladeild Eimskipafélagsins
1954-57 og 1959-63. Hann vann við
endurskoðun hjá KRON1958, starf-
aði við símvirkjun 1963-67, fulltrúi
í aðalbókhaldi hjá Pósti og síma og
hafði síöan umsjón með erlendum
viðskiptum stofnunarinnar 1967-77
en frá þeim var hann yfirmaður
símamálaskrifstofunnar til dauða-
dags.
Andrés var alla tíð mikill sjálf-
stæðismaður og virkur félagi í Sam-
tökum um vestræna samvinnu.
Hann sat í stjórn Samtaka gegn
astma og ofnæmi í fjögur ár og þar
af formaður í eitt ár.
Andrés kvæntist 24.3.1966, eftirlif-
andi konu sinni, Ragnhildi Þórhalls-
dóttur, f. 1.1.1920, fyrrv. gjaldkera
hjá Pósti og síma.
Systkini Andrésar: Sigríður, f.
1931, starfsmaöur á Hrafnistu í
Reykjavík, gift Pétri Sigurðssyni,
formanni Sjómannadagsráðs og
fyrrv. alþingismanni, og eignuðust
þau fjögur börn en þijú þeirra eru
á lífi; Margrét, f. 1932, húsmóðir í
Suður-Afríku, gift John Price, arki-
tekt og verktaka, og eiga þau þrjár
dætur; Sveinn, f. 1939, viöskipta-
fræðingur hjá Landsbanka íslands,
en sambýliskona hans er Erna Jóns-
dóttir bankastarfsmaöur o'g eiga
þau tvo syni; Sighvatur, f. 1941, raf-
virkjameistari viö Hrafnistu í
Reykjavík, kvæntur Örnu Borg
Snorradóttur, starfsmanni við
Hrafnistu í Hafnarfirði og eiga tvo
syni; Ingvar, f. 1943, fulltrúi hjá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
kvæntur Kristínu Lárusdóttur
tannsmið og eiga þau tvö börn.
Foreldrar Andrésar: Sveinn E.
Ingvarsson, f. 1902, d. 1976, forstjóri
Viðtækjaverslunar ríkisins, og kona
hans, Asta Fjeldsted, f. 1909, hús-
móöir.
Föðursystir Andrésar er Fanney,
móðir Ingvars Gíslasonar ritstjóra.
Sveinn var sonur Ingvars, alþingis-
manns og b. á Ekru á Norðfirði,
Pálmasonar, b. að Litla-Búrfelli og
að Ysta-Gili í Langadal, Sigurðsson-
ar, b. á Grund í Svínadal, Guð-
mundssonar. Móðir Sigurðar var
Ingibjörg, systir Erlendar, afa Sig-
urðar Guðmundssonar skólameist-
ara, föður listmálaranna Örlygs og
Steingríms. Annar bróðir Ingibjarg-
ar var Jón, alþingismaður í Stóra-
dal, afi Jóns Leifs tónskálds, al-
þingismannanna Jóns Jónssonar í
Stóradal og Jóns Pálmasonar á
Akri, föður Pálma alþingismanns á
Akri. Systir Ingibjargar var Guð-
rún, langamma Pálma Gíslasonar,
formanns UMFÍ. Ingibjörg var dótt-
ir Pálma, b. í Sólheimum, Jónsson-
ar, b. í Sólheimum, Benediktssonar.
Móðir Pálma í Sólheimum var Ingi-
ríður yngri Jónsdóttir, b. á Skegg-
stöðum, Jónssonar, ættfööur Skegg-
staðaættarinnar.
Móðir Ingvars á Ekru var Guðrún
Björg Sveinsdóttir, b. að Ysta-Gili,
Jónssonar. Móðir Sveins var Margr-
ét Guömundína Finnsdóttir, b. í
Andrés Fjeldsted Sveinsson.
Tungu í Fáskrúðsfirði, Guömunds-
sonar. Móðir Margrétar var Anna
Margrét Guömundsdóttir.
Ásta Fjeldsted er dóttir Jochums
skipstjóra, bróður Björns forsætis-
ráðherra og Matthíasar, skipstjóra
og ritstjóra, afa Friðriks Friðriks-
sonar, ritstjóra Fiskifrétta. Jocum
var sonur Þórðar, hreppstjóra á
Móum á Kjalarnesi, bróður Sigríö-
ar, móður Matthíasar Þórðarsonar
þjóðminjavarðar og langömmu Páls
Flygenringráðuneytisstjóra. Þórð-
ur á Móum var sonúr Runólfs,
hreppstjóra á Saurbæ á Kjalarnesi,
Þórðarsonar, og konu hans, Hall-
dóru Ólafsdóttur, b. á Blikastöðum,
Guömundssonar. Móðir Jochums
varÁstríður, systir Matthíasar'
skálds, langafa Ragnars Arnalds.
Ástríður var dóttir Jochums, b. í
Skógum í Þorskafirði, Magnússon-
ar, og konu hans, Þóru Einarsdótt-
ur, systur Guðmundar, prófasts á
Breiðabólstað á Skógaströnd, föður
Theódóru Thoroddsen skálds og afa
Muggs.
Móðir Ástu var Diljá Tómasdóttir,
b. í Arnarholti, Magnússonar, og
konu hans, Guðrúnar Þórólfsdóttur.