Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1990, Page 6
6
MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 1990.
Fréttir
Veruleg lækkun á álverði:
Breytir engu um við-
ræður við Atlantsál
- segir Jóhannes Nordal. formaður íslensku viðræðunefndarinnar
Veruleg lækkun á álveröi um þess-
ar mundir breytir engu um áfram-
hald viðræönanna um nýtt álver á
íslandi að mati Jóhannesar Nordal
og Birgis ísleifs Gunnarssonar sem
sæti eiga í íslensku viðræðunefnd-
inni. -
Álverð hefur verið að lækka á und-
anförnum mánuðum og er búist viö
að það lækki enn meira á næstunni.
Álverðið var hæst 1988, tonnið var
þá selt á 3000 dollara. Nú hefur því
Eldur kom upp í togaranum Viðey
þar sem hann lá við Grandagarð rétt
eftir hádegi í gær. Eldurinn kom upp
í rými á vinnsludekki, þar sem ljósa-
vél er, og var hann töluverður.
Erlingur Lúðvíksson, varðstjóri
hjá slökkviliðinu, segir aö mikill
reykur og hiti hafl komið upp úr
herberginu og voru fimm reykkafar-
ar sendir niður. Einn þeirra brennd-
verið spáð aö á næsta ári verði tonn-
ið selt á aðeins 2200 dollara. Þetta
lága verð gerir það aö verkum að
reiknað er með að tap verði á rekstri
álversins í Straumsvík.
Eins og kunnugt er hafa staðið yfir
erfiðar samningaviðræður um nýja
álverið sem væntanlega mun rísa á
Keilisnesi. Formaöur viöræðunefnd-
ar íslands er Jóhannes Nordal. Var
hann spurður hvort þessar verðspár
heföu einhver áhrif á samningavið-
ist af gufu og hlaut nokkurt bruna-
sár.
Reykköfurunum tókst að slökkva
eldinn áður en hann náði útbreiðslu.
Minnstu munaði að hann næði að
breiðast út um skipið.
Slökkviliðið var um klukkustund
að slökkva eldinn. Nokkrar skemmd-
ir urðu á vélarafbúnaði í herberginu.
-ns
ræöurnar. Sagði Jóhannes svo ekki
vera. Hann sagði að þessi lækkun á
álverði kæmi engum á óvart. „Það
eru miklar sveiflur í verði á áÚ og
ég hef ekki orðið var viö að lækkandi
verð á áli hafi nokkuð breytt skoðun-
um manna á að reisa álver í framtíð-
inni.“ Jóhannes bætti því við að ál-
verð hefði verið hærra síðastliðiö
sumar en menn höfðu búist við.
í viðræðunefndinni er einnig Birgir
ísleifur Gunnarsson alþingismaður
og sagði hann að ef sagan væri skoð-
uö sæist að sveiflur í álverði væru
mjög reglubundnar. Hann sagði aö
ekkert hefði komið fram í síðustu
viðræðum, sem voru fyrir viku, um
að breyta skyldi afstööu nefndarinn-
ar. Næstu fundir með Atlantsáls-
hópnum verða í byrjun janúar og
verður þá eingöngu rætt um orku-
verð.
-HK
Eldur í togaranum Viðey:
Kviknaði
í Ijósavél
- reykkafaribrenndistafgufu
Eldur kom upp i togaranum Viðey rétt eftir hádegi i gær. Slökkviliðinu tókst
að slökkva eldinn á um klukkustund. Erlingur Lúðviksson, varðstjóri hjá
slökkviliðinu, stjórnaði aðgerðum. DV-mynd S
Heimsmeistaraeinvígið:
Óvæntar f órnir héldu áhorfendum hugf öngnum
„Ég er mjög ánægður - loksins
vann ég skák í mínum gamla stíl,“
sagði heimsmeistarinn Kasparov eft-
ir tuttugustu einvígisskákina viö
Karpov á laugardag þar sem hann lét
fórnirnar dynja á stöðu Karpovs.
„Þetta var ekki besta skák einvígis-
ins en sú árangursríkasta,“ bætti
hann við hlæjandi.
Skák
Jón L. Árnason
Sigur Kasparovs gerir stöðu Karpovs
í einvíginu harla vonlitla. Hann þarf
að fá þrjá og hálfan vinning úr þeim
fjórum skákum sem eftir eru til aö
endurheimta heimsmeistaratitilinn.
Staðan er ellefu-níu Kasparov í vil
og nái hann tólf vinningum er ein-
víginu lokið.
Því verður ekki neitað að Kasparov
tefldi eins og heimsmeistara sæmir í
tuttugustu skákinni. Hver leikurinn
var öðrum glæsilegri og óvæntar
fómir héldu um eitt þúsund áhorf-
endum í ráðstefnuhöllinni i Lyon
hugföngnum. Karpov þurfti að glíma
við erfið vandamál og átti aðeins
nokkrar sekúndur eftir á síöustu
leikina. Eftir 41 leik gafst Karpov upp
enda stefndi í ójafnan leik á taflborð-
inu, tveir hrókar Kasparovs gegn
tveimur léttum mönnum Karpovs.
Kasparov hafði reyndar misst af ein-
faldri mátleiö nokkrum leikjum fyrr
sem óneitanlega setur skugga á ann-
ars fallega skák.
Fyrirhugað er að tefla 21. skákina
í dag en báðir eiga ónýttan einn
möguleika til frestunar.
Hvítt: Garrí Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8.
c3 0-0 9. h3 Bb7 10. d4 He8 11. Rbd2
Bf8 12. a4 h6 13. Bc2 exd4 14. cxd4 Rb4
15. Bbl c5 16. d5 Rd7 17. Ha3 f5
Teningunum er kastað! Leikurinn
er rökréttur - svartur ræðst að hvíta
peðamiðborðinu og nú riðar peð
hvíts á d5 til falls. En vopnið er tvi-
bent sökum þess að kóngsstaða
svarts verður ótryggari. Karpov
tefldi svona 1 fjórðu skák þeirra í
New York og Kasparov svaraði með
18. exfö. Nú velur hann aðra leið og
fetar í fótspor Timmans gegn Karpov
í áskorendaeipvígi þeirra í Kuala
Lumpur.
18. Hae3 Rf6!?
Endurbót Karpovs en gegn Tim-
man ákvað hann að losa strax um
spennuna með 18. - f4. Kasparov
virðist hafa verið við öllu búinn því
að svarleikur hans kom að bragði.
19. Rh2!? Kh8 20. b3 bxa4 21. bxa4 c4!?
22. Bb2 fxe4 23. Rxe4 Rfxd5 24. Hg3
He6 25. Rg4 De8
í síðustu leikjum hefur Kasparov
markvisst bætt vígstöðu sína, meö
því að koma biskupnum á hornalín-
una, hróknum á g-línuna og riddarar
hans eru einnig ógnandi. Karpov
hefur heldur ekki setið aðgerðalaus.
Hann hefur nælt sér í mikilvægt
miðborðspeð, komiö hrók og drottn-
ingu í varnarstöðu og þokað c-peðinu
fram sem er tilbúið að fara enn
lengra ef þörf krefur og trufla sókn-
aráform hvíts. Skákin er oröin mjög
spennandi og iðar af möguleikum.
Fáir áttu þó von á næsta leik
Kasparovs en meö honum hleypir
hann öllu í bál og brand.
26. Rxh6!!?
Sannarlega óvænt mannsfórn. Ef
svartur þiggur riddarann með -26. -
Hxh6 (takið eftir að g-peð hans er
leppur) svarar hvitur með 27. Rxd6
og svartur verður aö gefa drottning-
una því að 27. - Dd7? 28. Dg4 (28. RÍ5
er einnig sterkt) gefur hvítum sterka
sókn (snoturt afbrigði er 28. - Dxg4
29. RÍ7+ Kg8 30. Rxh6+ gxh6 31.
Hxg4+ Kf7 32. Bg6+ Kg8 33. BÍ5 +
Kf7 34. Be6+ Ke8 35. Bxd5 og næst
36. Bxb7 og vinnur).
Eftir 26. - Hxh6 27. Rxd6 Dxel + 28.
Dxel Hxd6 hefur svartur nægilegt lið
fyrir drottninguna en hvítur lumar
á ýmsum hótunum og eftir 29. De4
eða 29. De5 hefur hann enn sóknar-
stöðu. Taflið er þó afar flókið og vera
má að þetta hafi verið besti kostur
K'arpovs.
26. - c3 27. Rf5! cxb2 28. Dg4 Bc8
Til að geta svarað 29. Rxg7 með 29.
- Hxe4! Oll spjót beinast aö svörtum
og ekki verður séð að hann fái varist
öllum hótununum.
29. Dh4+ Hh6
Ekki er 29. - Kg8 beinlínis fagurt.
Kannski er 30. Kh2!? einfaldasta
svariö og 30. Rg5 bætist við safn hót-
ananna.
30. Rxh6 gxh6 31. Kh2!!
Svartur er nú varnarlaus. Hvítur
hótar 32. Rxd6 og 32. Rg5.
31. - De5 32. Rg5 Df6 33. He8 Bf5
I IJl #
A i W A
4
a®
l ÉL-
ABCDEFGH
34. Dxh6 + ! Dxh6 35. Rf7+ Kh7 36.
Bxf5+ Dg6 37. Bxg6 + ?
Nú spillir heimsmeistarinn glæsi-
legri skák. Eftir 37. Hxg6! hótar hann
að fara eitthvað eftir g-línunni með
hrókinn og máta í leiknum. Viö því
er engin vörn en nú lengjast lífdagar
Karpovs. Úrslitin verða þó óumflýj-
anlega hin sömu.
37. - Kg7 38. Hxa8 Be7 39. Hb8 a5 40.
Be4+ Kxf7 41. Bxd5 +
Og Karpov gafst upp.
Sandkom x>v
Vildi keyra fyrstur
Jarðgönginí
piafsfiarðarm-
úlavorutckini
notknn i gær
þotiekki væn .
um (ormlega
opnunaðræöa.
Erfittreyndist
aðfáupplýs-
ingar hjá Vega-
geröinni fyrir
helgina klukkan hvað í gær fyrsti
bíllinn færi í gegn og var ástæðan sú
að samgönguráöherra langaði mjög
að vera i þeim bíl og sjálfsagt að aka
honum. Annir hjá Steingrími J.
gerðu það hins vegar að verkum að
hann gat ekki gefiö það út afdráttar-
laust hvort hann kæmist norður í
gær og þá klukkan hvað. Biðu menn
fyrir norðan bara eftir þvi h vort úr
rættist. Steingrímurhefurkomiö
mikíö við sögu ganganna, hann
sprengdi fyrstu sprenginguna þegar
framkvæmdir hófust, hann sprengdi
einnig síðustu sprenginguna þegar
göngin náðu loksins í gegn og haíði
það þá umfram aðra „fyrirmenn' ‘
sem mættu á svæðið að á öryggis-
hjálmi þeim sem hann bar við það
tækifæri var myndarlegsilfurplata
meðnafhihansá.
Reiði í Grímsey
■ Grímseyingar
■ eru reiö'irsjáv-
■ arútvegsráð-
plr herra þessa
■ tI dagana og telja
H+A ■ aösérvegið
' )■ meðnýjum
BL •' ■ kvótareglum
■k ' ■ semþeirsegja
■ ■ aö þrengi mjög
iWBMs aJ aðbyggðí
eynni og stefni henni beinlínis í voða.
Á fjölmennum fundi i Grímsey með
ráðherranum á dögunum var heitt í
kolunum. „Eigum við e.t.v. vill að
segja okkur úr lögum við ísland og
færaút landheigi okkar“ sagði einn
fundarmanna. „Við hér verðum ekki
slegin út af laginu með tölum eins
og gert er á Alþingi þar sem ekki
meira en helmingur þess fólks sem
þar er skilur haus eöa sporð á þess-
ari fiskveiöastjórnun og lái því hver
semvill,“sagðiannar.
Ekki þurfalingar
Grímseyingar
hafaaldreiþeg-
iöatvinnuleys-
isbæturogþeir
viljaalltfrem-
uren veraá
framfærihins
opinbera. Þess
vegmitóku þeir
mjögóstihht
uppummæli
ráðherrans sem hann haíði viðhaft
um að þeir gætu leitað á náðir Hag-
ræðingarsjóðs vegna sérstöðu sinnar.
Þeir sögðust ekki vilja neina ölmpsu
eða veröa þurfalingar á framfæri '
hins opinbera, en Halldór svaraði
fldlum hálsi: „Er það að vera þurfal-
ingur að þurfa að líta á sérstöðu
byggðarlagsins? Þið lítið ekki á ykkur
sem þurfalinga þótt hér hafi veriö
byggð höfn af fé landsmanna. Hag-
tæðingarsjóður er bara nafn sem
skiptir ekki máli,“ sagði ráðherrann.
Bruggið úr bæn-
um?
Akureyringar
hafa af því tais-
verðaráhyggj-
urhvortverk-
smiðjaViking
Bruggþarí
bænummuni
faraúrbænum :
enþriðjaogsíð-
astauppboðá
verksmiðjunni
á að fara fram á miðvikudag. Menn
hafá áhyggjur af því hvort hin 30-40
störf sem verksmiðjan veitír muni
leggjast niður þar og menn hafa líka
áhyggjur af því andvaraleysi sem
þeir segja að bæjaryfirvöld sínu í
þessu máli. Þannig mun t.d. atvinnu-
málanefnd bæjarins ekki hafa látið
þetta mál til sín taka enn sem komiö
er a.m.k. Reyndar eru í gangi sögur
í bænura um að heimamenn vilji
eignast þessa verksmiðju oghafa
KEA (sjálft) og hinir landskunnu
„Kennedybtæður" verið í aðalhlut-
verkum i þeim sögum sem ekki er
tekin nein ábyrgö á hér eins og gefur
aðskilja.
Umsjón: Gylfl Krlstjánsson