Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1990, Blaðsíða 56
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstfórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 1990.
Jaf nhlýtt og
á Azoreyjum
- þó ekki einsdæmi
Landsmenn hafa heldur betur orð-
ið varir við óvenjulegt desemberveð-
ur undanfarna daga. Hitinn hefur
verið á bilinu 7-14 stig og mestur
hiti mældist á Sauðanesvita í fyrra-
dag, eða 14 stig. Magnús Jónsson
veðurfræðingur segir að þetta sé
mjög sjaldgæft en ekki einsdæmi.
Ástæður þessa sumarveðurs eru
lægðir sem koma frá Nýfundnalandi
og bera með sér hlýtt loft langt sunn-
an úr hafi. Magnús segir þetta vera
fjórða haustið sem snjólaust er og
hlýtt fram til jóla. „Þetta hefur nú
verið í hlýrri kantinum en veturinn
1988 var hlýrra. Þá fór hitinn yflr 15
stig fyrir norðan í desember."
Það þarf að fara suður til Costa del
Sol á Spáni og til Azoreyja til að fmna
jafnháar hitatölur og hér eru. Á meg-
inlandi Evrópu er hins vegar frost
og þokugangur og kuldi.
Áhrif þessara hlýinda á gróður eru
ekki talin mikil á þessum árstíma.
„Lóðir eru margar hverjar grænar
ennþá þannig að það stefnir allt í
græn jól - hvorki rauð né hvít. Þótt
gróður sé enn með lífsmarki á þess-
um tíma þá skiptir það ekki máli
segir Magnús.
Næstu daga fer að kólna, en það
eru hins vegar líkur á að það hlýni
"*áftur, jafnvel um næstu helgi. -ns
Nýtt tryggingargjald:
Gef ur ríkinu
500 milijónir
„Það má alltaf deila um hvað eru
skattar á fyrirtæki og hvað annað.
Hins vegar stendur eftir að gert er
ráð fyrir að skatttekjur ríkisins
minnki um einn milljarð á næsta
ári,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra í samtali við DV í
morgun.
Hann sagði að ef borin væru saman
árin 1990 og 1991 þá félli niður virðis-
aukaskattur af bókum, jöfnunargjald
lækkaði, virðisaukaskattur af við-
haldi húsnæðis yrði endurgreiddur
og leyflsgjald af gjaldeyrisfærslum
félli niður frá og með næstu áramót-
um. Samtals væru þetta um 1500
milljónir króna.
Á móti þessu á að koma trygginga-
gjald sem tekið verður upp um ára-
mótin. Það á að færa ríkissjóði 500
milljónir króna í tekjur þannig að
eftir standa einum milljaröi króna
minna skatttekjur ríkisjóðs.
Ólafur sagði að hann myndi í dag
leggja fram frumvarp um þetta
tryggingagjald. Það er samræming á
öllum þeim launagjöldum sem hafa
^verið í gildi til þessa. Það væri fyrsta
skrefið í að færa skattlagningu at-
vinnulífsins í nútímalegt form. _g dór
LOKI
Næsta skref verður
að bjóða hingað
í sólarlandaferðir!
Fegin að þessi ósköp
skuli vera yf irstaðin
smm
„Ég er mjög fegin að snákurinn
hefur náðst og aö þetta sé ailt sam-
an yfirstaðið. Þó ég hafi kannski
virst vera róleg meðan á öllu þessu
stóð þá leið mér hreint ekkert vei
þegar ég var að aöstoða Guðmund
meindýraeyði við að ná snáknum.
Þaö tók mig dálítinn tíma að jafna
mig á eftir, sagði konan við DV sem
hefur haft lausan snák í baðher-
berginu í íbúð sinni í Holtunum
síðan á fóstudag.
Konan sá snákinn fyrst þegar
hún fór inn á baðherbergi hjá sér
á föstudagsmorgun - hann var þá
að spóka sig úti á gólfi. Hún lokaði
hurðinni á eftir sér. og hringdi
skelkuð til Guðmundar Björnsson-
ar meindýraeyðis sem kom strax.
Snákurinn var kominn í felur þeg-
ar Guðmundur kom. Hann hafði
með einhverjum óskiijanlegum
hætti komist inn íbúðina og hafði
greinilega aðsetur í rás fyrir vatns-
rör á bak við uppsteyptan sturtu-
botn á baðherberginu.
Guðmundur sá höfuð snáksins
gægjast fram í 4-5 skipti á þeim
tveimur sólarhringum sem „veið-
in“ stóð yflr um helgina. Reynt var
að lokka kvikindið fram með fisk-
bita - en án árangurs. Þar sem ekki
er beinlínis þægileg tilfinning að
vera með lausan snák á heimili
sínu var ákveðið .að reyna öll ráð
tii að ná dýrinu. Múrari var fram
á kvöld á laugardag ásamt Guð-
mundi að reyna að ná snáknum.
Mennirnir notuðu múrbrjót við að
komast að fylgsni snáksins og
þurfti að taka sturtubotninn í
burtu og brjóta töluvert upp af
steypu og vikri til að komast að
rörarásinni. Það var ekki fyrr en i
hádeginu í gær að dýrið náðist:
„Ég sá snákinn þegar ég kom aft-
ur í íbúðina í gær. Hann var þá
skriðinn langleiðina út um röragat
og var hálfur inni í skáp við hliðina
á. Konan rétti mér gúmmíhanska
sem ég setti yflr höfuðið á honum
og svo skellti ég honum í
glerkrukku. Harm var ekki liklegur
til að verja sig en ég var ekkert að
Veðrið á morgun:
Frostum
allt land
Á morgun verður breytileg átt
og síðan norðlæg um allt land og
kólnandi veður. Él, einkum um
. norðan- og vestanvert landið en
úrkomulítið suðaustanlands. Hiti
verður á bihnu -2 til -7 stig.
veifa fingrunum framan i hann,“
sagði Guðmundur. Aðspurður
sagði hann að sér hefði ekki verið
beint vel við að handleika snákinn.
„Við erum allavega ekki vanir
snákaveiðum,“ sagði hánn.
Að sögn Jóhanns Brandssonar
hjá Náttúrufræðistofnun íslands er
líklegast talið að hér sé um fullvax-
inn grasasnák að ræða sem getur
lifað 'án fæðu svo vikum skiptir.
Hann er um 40-50 sentimetra lang-
ur, gildur á við blýant og er talinn
hættulaus. Snákurinn er nú á
stofnuninni og verður ákvörðun
tekin bráðlega um hvað skuli gert
við hann.
-ÓTT
Maður fótbrotnaði:
Hélthann hefði
stokkiðaf 1. hæð
Rúmlega fertugur maður stökk
fram af tvílyftu húsi i Skipholti á
flórða tímanum í nótt. Talið var að
hann hefði fótbrotnað.
Maðurinn var nýfluttur í húsið
ásamt sambýliskonu sinni. Hann
klifraði í fússi út um glugga á þriðju
hæð og niður á þak tveggja hæða
viðbyggingar. Þaðan stökk maðurinn
niður með fyrrgreindum afleiðing-
um. Þegar lögregla hafði tal af mann-
inum sagðist hann hafa haldið að
hann hefði verið að stökkva ofan af
fyrstu hæð. Hann hefur oft komið
viðsögulögregluáður. -ÓTT
Maðurfannst
íreykjarkófi
Guðmundur Björnsson, meindýraeyðir frá Reykjavíkurborg, var meira og minna í tvo sólarhringa
að reyna að ná rúmlega 40 sentímetra löngum snák sem fannst í íbúð í Reykjavík fyrir helgina.
Þurfti hann með aðstoð múrara meðal annars að taka upp sturtubotn og brjóta steinsteypu til að
komast að fylgsni snáksins. DV-mynd S
Slökkvilið var kallað út að íbúð á
3. hæð í Yrsufelli 9 um klukkan eitt
í nótt. Þegar komið var á staðinn var
nokkur reykur í stigagangi en enginn
virtist vera í íbúðinni sem reykurinn
kom frá. Þurfti því að brjótast inn.
Þegar inn var komið reyndist mað-
ur vera í fastasvefni og var töluvert
reykjarkóf í íbúðinni. Pottur hafði
gleymst á eldavél og var straumur
undir. Maðurinn var fluttur á slysa-
deild þar sem talið var að hann hefði
fengið reykeitrun. -ÓTT
ý
\0
k
k
4
f
f
f
ý
f
y
y
V