Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1990, Síða 31
MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 1990.
39
Eitt besta árval landsíns af gullhringum,
14 kt., handsmiðuðam.
Verð frá kr. 3.200,-
Gott úrval demantsskartgripa
Smíði skipsins fyrir OS í Vestmannaeyjum fer fram víða hjá Slippstöðinni. Stýrishús skipsins er t.d. við trésmíða-
verkstæðið eins og sést á myndinni og verður síðan flutt á sinn stað þegar tekjð verður til við að „raða skipTnu
saman". DV-mynd gk
GULLSMIÐUR
LAUQAVEQI30 - SÍMI19209
Skartgripiri úrvali - Viðgerðarþjónusta
Fljót aígreiðsla - Við smiðum, þár veljið
Fréttir
Slippstöðin á Akureyri:
Nýjar aðferðir við
áttu pantaðan tíma í stöðinni, því að
koma með skip sín til viðgerða og
viðhalds og kom nýsmíðin hjá stöð-
inni í veg fyrir að menn gengju þar
um aðgerðalausir.
„Við höfum tekið upp ný vinnu-
brögö við smíði þessa skips fyrir
Vestmannaeyingana sem eiga að
skila okkur ódýrara skipi og styttri
smíðatíma. Það útheimtir að smíöa
þarf skipið víða hér í stöðinni. Það
er t.d. verið að vinna við stýrishúsið
við hliðina á trésmíðaverkstæðinu,
vélvirkjarnir eru að smíða á sínu
verkstæði einingar í vélarrúmið og
það er veriö að vinna eitt og annað
á ýmsum stöðum áður en skipinu
verður raðað saman.
Þaö er spennandi að sjá hvernig
þetta kemur út. Mér sýnist starfs-
menn hér líka vera mjög spenntir
fyrir því hvernig þetta kemur út.
Þeir vinna við betri aðstæður en
venjan er og þetta er áhugavert,"
sagði Sigurður.
Akstur krefst fullkominnar
einbeitingar!
yUMFERÐAR
RÁÐ
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ef við hefðum ekki haft þetta
verkefni heföi nákvæmlega ekkert
verið að gera hér í stöðinni í nóvemb-
er og þetta sýnir okkur enn og aftur
að við verðum að hafa eitthvert kjöl-
festuverkefni hér við nýsmíðar,“
sagði Sigurður G. Ringsted, forstjóri
Slippstöðvarinnar, um skipið sem
stöðin er að smíða fyrir fyrirtækið
ÓS í Vestmannaeyjum.
Vegna yfirvofandi verkfalls yfir-
manna á fiskiskipum í nóvember
frestuðu margir útgerðarmenn, sem
Gerum ekki margt í einu
við stýrið..
Meiming
Ágætur ef niviður
sem nær aldrei að
verða f ullmótaður
Það er stór stund hjá ungum rithöfundi að sjá sína
fyrstu sögu á prenti. Þar sér hann árangur af margra
mánaða vinnu og vonar að bókin falli lesendum í geð.
En áður én bók kemur út hafa margir aðrir en höfund-
ur lagt hönd á plóginn til að úr verði bók.
Ábyrgð bókaútgefenda er mikil. Þeir eru í þeirri
stöðu að fylgja bók eftir gegnum framleiðsluferlið frá
tölvu eða ritvél höfundar inn á borð lesenda. í fyrsta
lagi taka þeir ákvörðun um útgáfuna. Þeir lesa hand-
rit yfir í upphafi og gera hugsanlega einhverjar athuga-
semdir. Og stundum segja þeir við höfundinn: „Nei
takk, þetta er því miður ekki nógu gott."
Bjarni Dagsson heitir ungur rithöfundur sem gefið
hefur út sína fyrstu bók. Hún hefur fengið nafnið:
Ófrísk af hans völdum. Á kápusíðu er bókin kynnt
með þessum orðum: „Höfundur hefur í gegnum tíðina
starfað mikið með unglingum og nýtir sér reynsluheim
þeirra í þessari bók.“ Eg var fullur eftirvæntingar
þegar ég fékk þessa bók í hendur og tók til við lestur-
inn. Ekki er ég lengur unglingur en hef hins vegar
eins og Bjarni Dagsson lengi átt samleið með ungling-
um. Og einhvern veginn virðist mér reynsla höfundar
af samskiptum við unghnga ekki hafa skilað sér í að
lýsa hugarheimi þeirra af næmi.
Söguþráður bókarinndr er í stuttu máli sá að Gummi,
drengur á unglingsaldri, er atvinnulaus eftir að skóla
lýkur eitt vorið. Hann rekst á auglýsingu í dagblaði
þar sem auglýst er eftir gítarleikara í hljómsveit. Sjálf-
ur spilar hann á gítar og áður en margir dagar eru
hðnir er hann farinn aö spila með hljómsveitinni Ven-
us. Sagan lýsir einu sumri sem einkennist af ferðalög-
um um landiö þvert og endilangt. Söguþráðurinn er
kryddaður dálítilli rómantík og áður en sagan er öll
er rómantíkin búin að bera ávöxt.
Höfundur fer af staö meö bærilegan efnivið og hug-
mynd. í upphafi sögunnar er greint frá eríiðleikum
fóður aðalpersónunnar. Fyrirtækið, sem hann rekur,
stendur ekki traustum fótum og faðir hans á við áfeng-
isvandamál að stríða. En einhvern veginn vinnur höf-
Bókmenntír
Sigurður Helgason
undur ekki úr því. Það er aðeins tæpt á ýmsu en ekk-
ert tekið föstum tökum. Þessi annars ágæti efniviður
nær aldrei að verða fullmótuð saga.
En hvað er að? í fyrsta lagi er persónusköpun mjög
af skornum skammti. Fólkið líður einhvern veginn
framhjá án þess að lesandanum fmnist hann nokkurn
tímann kynnast því. Þá er söguþráðurinn alls ekki
nógu fagmannlega spunninn. Það vantar í hann öll
átök. Og þegar lesandinn býst við að eitthvað fari að
gerast er sagan búin. Það er til dæmis ekki gerð til-
raun til að vinna úr þeim siðferðilegu spurningum sem
fylgir því þegar unglingar eignast börn. Sagan er í
raun og veru ófullgerð. Eiginlega er þetta ágætt upp-
kast sem eftir er að vinna betur úr.
í upphafi þessarar greinar er minnst á ábyrgð útgef-
anda. Hann veröur að vera gagnrýninn við val á bók-
um til útgáfu. Það er ekki greiöi við ungan rithöfund
að gefa út eftir hann bók sem á eru stórir hnökrar.
Og útgefandinn undirstrikar virðingarleysi sitt fyrir
lesendum með því að standa mjög illa að lestri próf-
arka. Ég hélt hreint út sagt að íslenskir útgefendur
reyndu að hafa það í góðu lagi.
Bjarni Dagsson má ekki láta hugfallast þrátt fyrir
að árangurinn sé ekki eins góður og æskilegt getur
talist. Hann þarf að gefa sér tíma til að vinna betur
úr viðfangsefninu og skrifa hvern kafla fyrir sig aftur
og aftur. Það verður nefnilega enginn smiður í fyrsta
sinn.
Bjarni Dagsson
Ólrísk af hans völdum
Reykjavík, Skjaldborg, 1990
Ur bókinni
H játrú:Þeir sem eru
duglegastir, iðnastir og
eiga mest skilið að komast
til metorða.
Raunveruleiki: Vertu
raunsær! Athugaðu
ástandið í eigin fyrirtæki
eða öðrum. Verakann að
foreldrar þínir haft
sannfært þig að lífið sé
sanngiamt eða a.m.k. að
það ÆTTI að vera
sanngjamt. Hvaða skoðun
sem þu hefur á sanngimi
skiptir það mestu mali að
það er engin TRYGGING
fyrir sanngimi
Þetta er bók sem höfðar til allra sem
vilja auka tekjur sínar og öðlast raunsætt
viðhorf til peninga
Fæst í bókaverslunum um land allt, einnig getur
þú pantað bókina hjá okkur og við sendum hana
samdægurs þér að kostnaðarlausu.
Lífsafl, Laugavegur 178, 105 Reykjavík, S.: 91-622199
H»88«ÍæÍj
Phil Laut
18 LITRA ORBYLGJUOFN
600 vött
rszb-
5 stillingar, 60 mín. klukka, snún-
ingsdiskur, tslenskur leiðarvfsir,
matreiðslunámskeið innifalið.
Sértilboð 14.950," stgr.
Rétt verð 19.950.- stgr.
2E Afborgunarskilmálar |2)
HUÓMCO
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005 i
smíði nýja skipsins