Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1990, Blaðsíða 55
MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 1990.
63
Menning
Kammersveitin og
ungir einleikarar
Kammersveit Reykjavíkur hélt tónleika í gær í Ás-
kirkju þar sem fram komu fimm ungir einleikarar;
Eiríkur Örn Pálsson, trompet, Bryndís Halla Gylfa-
dóttir, selló, Sigurður Þorbergsson, básúna, Guðmund-
ur Kristmundsson, víóla, og Áshildur Haraldsdóttir,
flauta. Á efnisskránni voru verk eftir Giuseppe To-
relb, Antonio Vivaldi, Johann Georg Albrechtsberger,
Georg Philipp Telemann og Carl Philipp Emanuel
Bach.
Trompetkonsert Torellis er léttur, stílhreinn og
skemmtilegur, en ekki sérlega innihaldsríkur. Tromp-
etparturinn er fyrir piccolotrompett og býsna erfiður,
en Eiríkur Örn lét það ekki mikið á sig fá og spilaði
verkið mjög vel og af miklum glæsileik.
Sellókonsert Vivaldis minnir mjög á einn af fiölukon-
sertum J.S. Bachs, enda er það alkunna að sá síðar-
nefndi tók Vivaldi sér til fyrirmyndar í konsertasmíð.
Þótt sellókonsert Vivaldis sé ágætt verk hefur hann
ekki andríki Bachs. Bryndís Halla hafði fullkomið
vald á þessu verki og túlkun hennar var bæði djúp
og tilfinningarík án þess þó að tapaðist það göfuga
látleysi sem er einkenni þessarar snjöllu tónhstar-
konu. í hæga þættinum var svo sem tíminn stæði
kyrr en enginn dirfðist að anda svo að stemningin
rofnaði ekki.
Albrechtsberger er frægastur fyrir að hafa kennt
Beethoven og skýring á þeim örlögum fékkst í konsert
hans fyrir alt básúnu, sem er vel gert verk og skóla-
kennaralegt og vantar neistann. Flutningur Sigurðar
Þorbergssonar á verkinu var svohtið misjafn. Kann
að vera að það hafi gert honum erfitt fyrir að það er
skrifað fyrir altbásúnu, en hljóðfæri Sigurðar venju-
lega er hin algengari tenórbásúna. Þó gerði hann
margt vel, einkum var fyrsti þátturinn prýðilega flutt-
ur.
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
Það er alkunna að konur hafa af einhveijum ástæð-
um lagt undir sig strengjaleik á íslandi, einkum fiðlu-
leik, og hafa fáir af hinu sterkara kyni orðið til þess
í seinni tíð að ögra yfirburðum kvenkynsins á þessu
sviði. Flutningur Guðmundar Kristmundssonar á kon-
sert Telemanns fyrir lágfiðlu telst því tíðindi þar sem
hér var sannur karlmaður á ferðinni sem að auki lék
frábærlega vel. Lágfiðlan er hljóðfæri sem of sjaldan
er í einleikshlutverki. Hún býr yfir mjög sérstökum
töfrum sem sjálfsagt er að nýta og komu þeir vel fram
hjá Guðmundi. Vald hans á verkinu var mjög gott og
leikur hans bæði blæbrigðaríkur og skemmtilega
hrynrænn.
Flautukonsert C.P.E. Bachs er skrautlegt verk fullt
upp með hröðu fírverkiríi af margvíslegu tagi. Ás-
hildur Haraldsdóttir lék þetta af léttleika þess sem
hefur tæknina vel á valdi sínu. Tónn hennar er sér-
lega bjartur og fallegur. Einhver órói eða óstyrkur
varð þó th þess að flutningurinn heppnaðist ekki alveg
eins vel og flytjendurnir hafa alla burði til.
Kammersveitin, skipuð strengjum og sembal, komst
yfirleitt ágætlega frá undirleik í konsertum þessum.
Áskirkja var troðfull af áheyrendum og var opnað inn
í hhðarsah. Þá var kirkjuloftið fullskipað en efst á
hanabjálka var gagnrýnendum komið fyrir og sáu
þeir ekkert af því sem fram fór nema með því að klifra
upp á kassa og tylla sér á tá. Hins vegar er hijómburð-
ur þarna á hanabjálkanum með besta móti og gerðu
menn sér gott af því.
Elly Ameling
Hinir heimsfrægu Iistamenn Elly Ameling söngkona
og Dalton Baldvin píanóleikari sungu og léku á tónleik-
um til stuðnings samtökunum Barnaheill í Háskóla-
bíói í gær. Þá kom einnig fram kór Öldutúnsskóla í
Hafnarfirði undir stjórn Egils R. Friðleifssonar. Tón-
leikarnir voru styrktir fjárhagslega af nokkrum fyrir-
tækjum í Reykjavík með Eimskipafélagi íslands í far-
arbroddi.
Elly Ameling og Dalton Baldvin eru hstamenn sem
um árabil hafa veitt heiminum forystu í listgrein sinni
ljóðasöngnum. Þau hafa verið mælikvarðinn sem aðr-
,ir hafa miðað sig við. Þau eru nú bæði að komast af
léttasta skeiði en þess gætir þó lítið í flutningnum sem
er frábærlega vandaður, auðugur og listrænn svo að
af ber. Efnisskráin var mótuð af kunnuglegu efni eftir
Franz Schubert, Johannes Brahms og Hugo Wolf. Þá
var sitt lagið eftir hvorn, Maurice Ravel og Claude
Debussy, en lag þess síðarnefnda var sérlega snjaht.
Jólalög frá ýmsum löndum létu þau skötuhjú fylgja
með í tilefni komandi hátíöar.
Kór Öldutúnsskólans, sem er eingöngu skipaður
stúlkum, söng mjög hreint og fallega og er greinilega
vel og vandvirknislega þjálfaður kór. Lögin, sem kór-
inn söng, voru úr ýmsum áttum en tengdust mörg
jólunum með einhverjum hætti. Það lag sem hljómaöi
ferskast var eftir Ungverjann Zoltán Kodaly, Ave Mar-
ia.
Svo vildi th á þessum tónleikum aö gagnrýnandi DV
fékk að kenna á hljómburði Háskólabíós en í upphafi
tónleikanna var honum skipað til sætis á 19. bekk.
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
Þegar svo langt er komið frá sviðinu er hinna illu
áhrifa salarins farið að gæta svo mikið að öll fínlegri
blæbrigði týnast. Er engu líkara en hlustað sé gegnum
plast. Þar hljóma alhr flytjendur eins, hvort sem þeir
eru góðir eða vondir, hafa háskólabíóshljóm. Sem bet-
ur fer urðu góðir menn th að finna sæti framar fyrir
gagnrýnandann eftir hlé svo að ahir tónleikarnir fóru
ekki forgörðum. Svo virðist sem málefni tónlistarhúss
séu í sjálfheldu eftir að hætt var við að byggja tónlistar-
hús og ákveðið að byggja óperu í staöinn. Sú spurning
er áleitin hvort ekki sé rétt að byrja aftur frá byrjun
og stofna félag sem vhl byggja tónleikahús af raun-
særri stærð og án íburðar sem miklu brýnni þörf er
fyrir og mun meiri stuðningur við en það sem nú er
stefnt að.
En þetta er útúrdúr. Á dagskrá tónleikanna'voru 28
lög. Nú vildi svo til að áheyrendur ákváðu að klappa
eftir hvert einasta lag auk þess að fagna listamönnum
með klappi er þeir komu inn á sviðið, sem var oft, því
að flytjendur skiptust á. Klappið varð því það sem
mest fór fyrir á þessum tónleikum og var orðið býsna
hvimleitt undir lokin. Þess utan brýtur svona títt klapp
niður stemningu og einbeitingu hstafólks. Mun betri
siður er að láta sér nægja að klappa eftir hvert atriði.
Fjölmidlar
Þetta svín verður skotið
Í gærkvöld sáu sjónvarpsáhorf-
endur, þeir sem höfðu stillt á RÚV-
ið, tíunda þáttinn af í allt um þrjátíu
í framhaldsmyndaflokknum Ófrið-
ur og örlög. Það er ekki ætlunin að
eyöa þessum fáu línum í að fjalla
um þessa þætti sérstaklega, tilþess
ætti að gefast nægur tími seinna.
En það er gaman að velta því fyrir
sér að þegar síðasti þátturinn hefur
verið á skjánum verður farið að
vora. Ogþaðer einniggamanað
velta fyrir sér hve margir hafi séð
hvem einn og einasta þátt þegar
staðið verður upp úr sjónvarpsstól-
unum eftir síðasta þáttinn. Sjálfsagt
verða þeir margir. Undirritaður hef-
urekki séð nema brot og brot af
þessum þáttum og missti einhvern
veginn áhugann strax í byrjun.
En það er þannig með þessa mara-
þonframhaldsmyndaþætti að veru-
leiki þeirra, ekki síst persónurnar,
verður töluvert áhrifamikih hluti
raunveruleika fólks. Liðsforingj-
arnir, majórarnir og gyðingarnir
verða jaínraunverulegir og J.R. og
fjölskylda á Suöurgafh. Gleði og
sorgir þessara ij ölskylduvina hafa í
mörgum tilfellum jafndjúptæk áhrif
á fólk og væru þetta nánustu ætt-
ingjar (þetta neita náttúrulega
margir aö viðurkenna). Þessi þoku-
kenndu skil mhh veruleika og
imyndunar, „vemleikinn“, koma
oft upp í huga manns en aldrei þó
eins og dag einn í Kaupmannahöfn
fyrir átta árum. Þá las undirritaður
aöalfyrirsgön danska Ekstralilaðs-
ins á plakati, sem hékk á sjoppu-
vegg, og tilvisun áfréttí blaðinu(um
veruleikann). Þar stóð: Þetta
heimska s vín verður skotiö í kvöld.
Á meðfylgjandi mjmd var kunnug-
legt glottandi andlit J.R. Undirritaö
uráennplakatið.
Haukur Lárus Hauksson
FACQ
LISTINN - 51. VIKA
kr. 76.500 stgr. m/geislaspilara
JVC myndbandstæki frá hönnuð-
inum
frá 43.900 stgr. m/2 JVC spólum
Faco óskar viðskipta-
vinum sínum gleði-
legra jóla og farsældar
á komandi ári. Næsti
listi kemur út í janúar-
byrjun 1991.
| SÖLUDÁLKURINN
Til sölu: GR-45 VideoMovie. S.
91-75113 (Jónasína).
Til sölu: JVC' AX-711 2x100 s-Wött.
S. 12056 (Friðrik).
1 Heita línan í FACO ~
91-613008
Sendum í póstkröfu
Sama verð um allt land
Þeir sem versla í Faco um jólin
fá vandaða JVC dagbók í jóla-
gjöf meðan byrgðir endast.
JVC gæðatæki fyrir jólin
VideoMovie GR-Al, verðlaunuð vél
góðu verði!
Panasonic útvarpsvekjari á 3.800
Panasonic símar frá 5.680
Panas. símsvari/jólatilboð! á 9.980
Panasonic diktafónar frá 6.400
Sony vasaútvarp á 2.990
Sony útvarpstæki frá 4.500
Sony og JVC vasadiskó frá 3.900
Sony barnasegulband frá 4.900
Casio vasasjónvörp frá 16.900
Casio vasatölvur frá 690
JVCmyndbönd,3ípakka, á 1.890
J VC og aðrir geisladiskar frá 690
Nýjafótboltaspiliðá 2.500
Alvöru Teddy bangsar frá 2.575
Canonljósmyndavélá 6.500
Keystone ljósmyndavél á 2.450
Viewluxsjónaukarfrá 4.490
Casio úr, CD og video geymslur o.fl.
Vivitar & JVC videoaukahlutir:
Videoljós, breytilinsur, þrífætur,
hljóðnemar, ljóssíur, kaplar og
kennslubók fyrir
myndatökumanninn.
kr. 74.900 stgr. m/Vivitar tösku
VideoMovie GR-S70 super VHS
fjölskylduvélin
kr. 104.900 stgr.
MIDI W51 stæðan, 170 wött
kr. 113.900 stgr.
Lófavélin GR-AX7 5 lús, 760 g
Veður
Allhvöss suðvestanátt með hvössum éljum suðvest-
an- og vestanlands en hægari suðvestan og úrkomu-
minna i nótt. Bjart veður um austanvert landió í dag.
Frost 3-6 stig.
Akureyri skýjaö 3
Hjarðarnes alskýjað 3
Galtarviti haglél 0
Keflavíkurflugvöllur haglél 1
Kirkjubæjarklaustur snjóél 1
Raufarhöfn léttskýjað 2
Reykjavik snjóél 1
Vestmannaeyjar úrkoma 2
Bergen alskýjað 3
Helsinki alskýjað -1
Kaupmannahöfn þokumóða -2
Osló þoka -2
Stokkhólmur súld 1
Amsterdam þokumóða 1
Barcelona þokumóða 4
Berlín snjókoma 0
Chicagó alskýjað 2
Feneyjar þokumóða 2
Frankfurt snjókoma 0
Glasgow reykúr 5
Hamborg þokumóða -1
London mistur -0
LosAngeles heiðskírt 11
Lúxemborg skýjaö -1
Madrid skýjað 2
Malaga . alskýjað 12
Mallorca skýjað 7
Montreal alskýjað -3
Nuuk snjóél -10
Paris skýjað -1
Róm heiðskírt 2
Valencia rigning 7
Vín snjókoma -1
Winnipeg skafrenning- -16
ur
Gengið
Gengisskráning nr. 241.-17. des. 1990 kl. 9.15
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 54,740 54,900 54,320
Pund 105,867 106,177 107,611
Kan. dollar 47,281 47,420 46,613
Dönsk kr. 9,5641 9,5920 9,5802
Norsk kr. 9,3910 9,4184 9,4069
Sænsk kr. 9,7820 • 9,8106 9,8033
Fi. mark 15,2670 15,3117 15,3295
Fra.franki 10,8375 10,8691 10,8798
Belg.franki 1,7787 1,7839 1,7778
Sviss. franki 42,9502 43,0757 43,0838
Holl. gyllini 32,6601 32,7556 32,5552
Vþ. mark 36,8409 36,9485 36,7151
it. líra 0,04883 0,04897 0,04893
Aust. sch. 5,2400 5,2553 5,2203
Port. escudo 0,4168 0,4180 0,4181
Spá. peseti 0,5781 0,5798 0,5785
Jap. yen 0,41172 0,41292 0,42141
írskt pund 98,067 98,353 98,029
SDR 78,4172 78,6464 78,6842
ECU 75,6042 75,8251 75,7791
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
/ /
EINSTAKT A ISLANDI
KRONUR
Úrval
TÍMARIT FYRIR ALLA
Láttu
sjá þig!
tfsasER“R