Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1991, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991.
Utlönd
írakar f allast loks
á viðræður 9. janúar
Aziz, utanríkisráðherra íraks, hef-
ur fallist á boð Bandaríkjastjórnar
um fund með James Baker, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, í Genf í
Sviss þann 9. janúar.
Tilkynning um þetta kom frá Aziz
síðla í gær en þá voru liðnir tveir
sólarhringar frá því George Bush
gerði írökum það sem hann kallaöi
lokatilboð um viðræður áður en
frestur Sameinuðu þjóðanna til íraka
um að hafa sig á brott frá Kúvæt
rennur út þann 15. janúar.
Þetta er í fyrsta sinn sem írakar
fallast á ákveðna dagsótningu fyrir
viðræður en þeir hafa áður margoft
lýst yfir vilja til að leysa Persflóadeil-
una við samningaborðið. Fram til
þessa hafa allar ákvarðanir um dag-
setningar snúist upp í málalenging-
ar.
Marlin Fitzwater, talsmaður
Bandaríkjaforseta, hefur sagt að
sinnaskipti íraka vekji upp nýja von
um að deilan leysist án þess að til
frekari blóðsúthellinga komi. Af
hálfu Bandaríkjamanna hefur þó
ekki verið kveðið fastar að orði.
Aziz sagði í tilkynningu sinni að
hann hefði tekið þessa ákvörðum
með tilliti til almenningsálitsins og
góðra siða í samskiptum þjóða en
ógnanir af hálfu Bandaríkjamanna
og fylgiríkja þeirra hefðu engin áhrif
haft á niðurstöðuna.
Þó þykir ljóst að írakar hafi séð
alvöru málsins enda hefur Bush ekki
léð máls á að hvikað verði frá fyrri
ákvörðunum um að þann 15. janúar
renni úr frestur íraka til að fara frá
Kúvæt. Eftir að Bush lagði fram
lokatilboð sitt um viðræður hefur
hann ítrekað þessa skoðun og í
Bandaríkjunum hailast margir máls-
metandi menn að því að Bandaríkja-
mönnum sé nauðugur einn kostur
að ráðast gegn írak ef þeir sinna ekki
lokafrestinum.
í Genf hefur verið upplýst að von
sé á James Baker þangaö þriðjudag-
inn 8. janúar, degi fyrir fundinn.
Þetta var upplýst áður en nokkuð
heyrðist frá Aziz. Samkvæmt þessum
heimildum átti Baker að dvelja um
einn sólarhring í Genf þannig að ekki
er gert ráð fyrir að fundur þeirra
verðilangur. Reuter
Tyrkir hafa lagt hart að forráðamönnum NATO að efla flugflotann I landi þeirra til að verjast hugsanlegri árás iraka. Nú þegar er ákveðið að 28
herþotur af gerðinni Alpha verði með í flugflotanum sem fer til Tyrklands. Þoturnar eru úr þýska flughernum Luftwaffe, svo sem sjá má á mynd-
inni. Luftwaffe hefur ekki komið nærri hernaðarátökum frá því i síðari heimsstyrjöldinni. Símamynd Reuter
Mikið
mannfall
íSómalíu
Uppreisnarmenn í Sómalíu segja
að um 2000 ménn hafi fallið í átökun-
um í höfuðborginni Mogadishu í síð-
ustu viku. Þá er talið að í það minnsta
4000 þúsund manns hafi særst.
Fréttir frá landinu hafa verið óljós-
ar enda hafa uppreisnarmenn ekki
ljáð máls á vopnahléi svo hægt verði
að sinna þeim sem hafa orðið illa úti
í átökunum. Erlendar hjálparstofn-
anir hafa átt erfitt um vik og nú síð-
ast uröu menn frá Rauða krossinum
fyrir árás uppreisnarmanna. Enginn
féll þó í því tilviki.
Aö sögn upreisnarmanna eru öll
sjúkarahús í höfuðborginni nú yfir-
full og særðum og sjúkum hefur ver-
ið komið fyrir í skólum og á hótelum.
Engar áreiðanlegar tölur eru um
fjölda fallinna. í þeim efnum er að-
eins byggt á áætlunum frá læknum
sem starfa með liði uppreisnar-
manna. Reuter
John Major ætiar til
Persaf lóans fyrir stríð
John Major, forsætisráðherra
Breta, ætlar að heimsækja heri
Breta í Saudi-Arabíu í næstu viku.
Hann verður því á spennusvæðinu
nokkrum dögum áður en lokafrest-
urinn, sem Sameinuðu þjóðimar
hafa gefiö írökum til að hverfa frá
Kúvæt, rennur út.
í liði Breta við flóann eru nú um
34 þúsund hermenn. Bretar hafa
gengið manna lengst fram í því
hóta írökum með hernaði fari þeir
ekki frá Kúvæt. Þó hafa menn
merkt nokkurn mun á málflutningi
Majors og Margrétar Thatcher í
afstöðunni til íraka og þótt hann
heldur mildari i orðum en járnfrú-
in.
Á fundi forsætisráðherra Evr-
ópubandalagsins hefur Major vilj-
að halda fast við að írökum verði
settir úrslitakostir í deilunni.
Frakkar hafa á hinn bóginn viljað
fara hægar í sakirnar. Á fundinum
var upplýst að hugmyndir Frakka
um friðsamlega lausn á Persaflóa-
deilunni miðuöu í fyrstu atrennu
aðeins að því að írakar gæfu vil-
yrði fyrir að fara frá Kúvæt án
þess að nefndar væru dagsetningar
í því sambandi.
Major ítrekaði afstöðu Breta í
nýlegu viðtali þar sem hann sagði
að þeir vildu helst af öllu að deil-
unni lyki án átaka en þó væru tak-
mörk fyrir hve dýru verði ríki
heims gætu keypt frið við íraka.
Major hefur m.a. fagnað viðleitni
Bandaríkjamanna til að koma á
friðarviðræðum áður en lokafrest-
urinn rennur út þann 15. janúar.
Áætlað er að Major verði íjóra
daga í fór sinni til Persaflóans og í
leiðinni ætlar hann að koma viö í
Egyptalandi og ræða þar við Mu-
barak forseta. Breskir efnahags-
sérfræðingar segja að þaö komi illa
við efnahag landins ef Persaflóa-
deilan dregst á langinn. Þeir segja
að það þjóni því hagsmunum Breta
best að semja um lausn á henni sem
allra fyrst. Major ætlar þó að halda
fyrri stefnu þótt versnadi efnahag-
ur grafi stöðugt undan stjóm hans.
Reuter
Danskir smákökubakarar ótt-
ast nú um hag sinn eflir aö
sænska fyrirtækið Dana Foods
keypti eina stærstu smáköku-
verksmiðju Ðanmerkur. Svíarnir
höfðu áður keypt Dana Foods og
gert fyrirtækið að sínu en gerðu
danska nafnið að aðalvörumerk-
inu.
Nú í byrjun árs hefur Bakka-
gerðisbakariinu danska verið
bætt í safnið. Það er sænska fyrir-
tækið Hexagon sem stendur fyrir
þessum kaupum. Með þessum
síðustu kaupum eru Svíar nú
orðnir helstu framleiðendur á
dönskumsmákökum. Ritzau
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 2-3 lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2.5-3 Allirnema Bb
6 mán. uppsögn 3.5-4 jb.Sb
12mán.uppsögn 4-5 ib
18mán. uppsögn 10 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Bb
Sértékkareikningar 2-3 íb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6 mán. uppsögn 2.5-3.0 Allir nema ib
Innlánmeðsérkjörum 3-3,25 ib
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 6,5-7 Ib.Lb
Sterlingspund 12-12,5 Sb
Vestur-þýskmörk 7-7,6 Sp
Danskar krónur 8,5-9 Sp
LITLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 12,25-13,75 ib
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupqengi
Almenn skuldabréf 12.5-14.25 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 16-17.5 Allir nema ib
Utlán verðtryggð
Skuldabréf 7,75-8,75 Lb.Sb
Utlántilframleiðslu
Ísl.krónur 12,25-13,75 Lb.Sb
SDR 10,5-11.0 ib.Bb
Bandaríkjadalir 9.5-10 Allirnema Sb
Sterlingspund 15-15,25 Sb
Vestur-þýsk mörk 10-10.7 Sp
Húsnæðislán 4.0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir /21.0
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. des. 90 13.2
Verðtr. des. 90 8.2
VlSITÖLUR
Lánskjaravisitalajan. 2969 stig
Lánskjaravisitala des. 2952 stig
Byggingavísitala jan. 565 stig
Byggingavisitala jan. 176.5 stig
Framfærsluvisitala des. 148,6 stig
Húsaleiguvisitala óbreytt l.okt
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,256
Einingabréf 2 2,847
Einingabréf 3 3,456
Skammtimabréf 1,765
Kjarabréf 5,156
Markbréf 2,747
Tekjubréf 2,039
Skyndibréf 1,535
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,524
Sjóðsbréf 2 1,791
Sjóðsbréf 3 1.753
Sjóðsbréf 4 1,508
Sjóðsbréf 5 1,057
Vaxtarbréf 1.7785
Valbréf 1,6670
islandsbréf 1.088
Fjórðungsbréf 1,063
Þingbréf 1,088
Öndvegisbréf 1,079
Sýslubréf 1,095
Reiðubréf 0 1,070
HLUTABRÉF.
Solu- og kaupgengi að lokinni jöfnun m.v. 100
nafnv.:
KAUP SALA
Sjóvá-Almennar hf. 6,55 6.88
Eimskip 5.57 5,85
Flugleiðir 2.42 2.53
Hampiðjan 1.72 1,80
Hlutabréfasjóðurinn 1.76 1,83
Eignfél. Iðnaðarb. 1.89 1.98
Eignfél. Alþýðub. 1.38 1.45
Skagstrendingur hf. 4,00 4.20
Islandsbanki hf. 1.36 1.43
Eignfél. Verslb. 1,36 1.43
Oliufélagið hf. 6.00 6,30
Grandi hf. 2.20 2,30
Tollvörugeymslan hf. 1.07 1.12
Skeljungur hf. 6.40 6,70
Ármannsfell hf. 2.35 2,45
Fjárfestingarfélagið 1.28 1,35
Útgerðarfélag Ak. 3.43 3,60
Olis 2.00 2.10
Hlutabréfasjóður ViB 0,95 1,00
Almenni hlutabréfasj. 1,01 1,05
Auðlindarbréf 0.95 1,00
Islenski hlutabréfasj. 1,02 1,08
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn,
lb= Islandsbanki Lb= Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.