Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1991, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1991, Blaðsíða 17
LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991 17 Bömin velja uppáhaldsmatseðilinn: Pitsan varð númer eitt Mama mia! Eftirlætismatur bama á aldrinum 3ja til 11 ára í henni stóru Ameríku er pitsa. Alls vom það 82% barnanna sem völdu pitsuna í könnun Gallups. í næsta sæti voru kjúklingakubbar, litlir, beinlausir, djúpsteiktir bitar, með 51 % atkvæða. I þriðja sæti voru það pylsumar vel þekktu (45%), í fjórða sæti varð ostborgarinn góðkunni með 42%, í fimmta sæti pasta með osti (42%), í sjötta sæti komu þessir venjulegu hamborgarar með 38% atkvæða, í sjöunda sæti var spag- hetti og kjötbollur (37%), í áttunda sæti djúpsteiktur kjúklingur (37%), í níunda var það mexíkóski réttur- inn taco (32%) og í því tíunda og síðasta heitar samlokur með osti með 22% atkvæða. Þannig er nú það, foreldrar góðir. Keaton gaf A1 Pacino reisupassann Samband leikaranna Diane Keaton og A1 Pacino er nú fyrir bí, a.m.k. í bih. Reyndar hefur gengið á ýmsu hjá þeim skötuhjúum í gegnum árin en þau hafa verið sundur/saman í hartnær tvo áratugi. Ástæða shtanna. nú mun vera ágreiningur um hvort geta skuh barn eður ei. Keaton er orðin 44 ára gömul og veit að hún er á síðasta snúningi í þessum efnum. Af þeim sökum setti hún Al Pacino afarkosti: Eignastu með mér barn eða hundskastu á brott. Kunningjar þeirra beggja telja reyndar að krafa um giftingu hafi fylgt þessu skilyrði. A1 Pacino hefur ekki gefið afdrátt- arlaust svar í máhnu enda veit hann ekki sitt ijúkandi ráð. Sviðsljós von- ar þó að hann hafi notið jólanna þrátt fyrir heilabrotin sem fylgja þessari erfiðu stöðu. Keaton setti Al Pacino afarkosti: Eignastu með mér barn eða sambandi okkar er lokið. Sviðsljós Linda McCartney sendi frá sér matreiðslubók nú fyrir jólin. Þar er að finna ýmsa rétti sem hún hefur eldað oni bónda sinn, bitillinn Paul. Engir kjötrétt- ir eru i bókinni, enda þau hjón bæði grænmetisætur. ALDREI AFTUR í MEGRUN! GR0NN KYNNING Mánudagskvöldið 8. Jan. kl. 20.30 i Gerðubergi, Breiðholti. Aðgangur ókeypis og opinn öllum sem áhuga hafa á heilbrigðum lífsháttum. QR0NN NAMSKEIÐ Dagana 9.-12. jan. haldið fyrir þá sem eiga við matarfíkn að stríða og vilja breyta neyslumunstri sínu. Skráning fer fram strax að loknum fyrirlestrinum í Gerðubergi. Pöntun á kynningum og námskeiðum hjá MANNRÆKTINNI í s. 625717. Matt og Luke eða Luke og Matt geta nú væntanlega farið að brosa á ný. Brosbræður ÖLDUFELAGAR! ÖLDUFELAGAR! Tvíburabræðurnir í Bros, þeir Matt og Luke Goss, eru ekki aldeihs dauðir úr öhum æðum þótt ætla mætti að svo væri. Á síðasta ári voru þeir lítið í sviðsljósinu, a.m.k. tónhst- arinnar vegna. Það var helst að heimspressan hefði áhuga á fjármál- um drengjanna en þar var nánast allt í rúst. Með tilkomu frægðar og frama áskotnaðist drengjunum nokkurt skotshfur í vasann en enginn var th staðar til að ráðleggja þeim að eyða aurunum skynsamlega og því fór sem fór. Eftir að hafa keypt fasteign- ir og bíla í gríð og erg munaði minnstu að bræðumir yrðu lýstir gjaldþrota en svo fór þó ekki. Öll þessi leiðindi eru nú að baki og strákamir hafa einbeitt sér að laga- smíðum að undanförnu. Meðal ann- ars héldu þeir til Los Angeles th að göfga andann og afraksturinn er væntanlegur á markað fljótlega. Síð- ar í þessum mánuði er væntanleg smáskífa með tvíbunmum og í kjöl- farið fylgir stór plata. Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan heldurfram- haldsaðalfund sunnudaginn 6. janúar nk. kl. 14.00 að Borgartúni 18, 3. hæð. DAGSKRÁ: 1. Aðalfundarstörf 2. Reikningar 3. Lagabreytingar 4. Önnur mál Stjórnin Sean Penn á leið í hnapp- helduna Leikarinn Sean Penn er nú á leið í hnapphelduna með tilvon- andi barnsmóður sinni, Robin Wright. Gifting var reyndar fyrir- huguð á síðasta ári en einhver snurða hljóp á þráðinn og ekkert varð úr. Nú er öldin önnur og staðfestar fregnir herma að hjónaleysin æth að láta pússa sig saman áöur en barnið kemur í heiminn en Robin á von á sér í aprh. Penn var áður giftur söng- konunni Madonnu, eins og ahir vita, og brúðkaup þeirra var haldið með pomp og prakt á sín- um tíma og kostaði stórfé. Þrátt fyrir það stóð sambúðin stutt og Penn ætlar að reyna að standa sig betur núna. VERTU MEÐ - ÞAÐ ER GALDURINN UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI: 681511 LUKKULÍNÁ: 991000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.