Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1991, Side 20
20
LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991.
Kvikmyndir
Varla hefur farið framhjá nein-
um kvikmyndaáhugamanni hin
mikla velgengni Walt Disney kvik-
myndaversins undanfarin fimm ár.
Það var einmitt um 1985 sem þeir
félagar Michael Eisner og Jeffrey
Katzenberg voru ráðnir yfirmenn
kvikmyndaversins en þeir höfðu
starfað áður hjá Paramount kvik-
myndaverinu. Þeir hristu upp í
stöðnuðu rekstrarfyrirkomulagi
kvikmyndaversins og köstuðu fyr-
ir borð flestum gömlu boðorðum
Walt Disney heitins.
Það var svo sannarlega orðin
þörf á breytingum hjá Walt Disney
kvikmyndaverinu. Það var þekkt
fyrir að framleiða myndir sem voru
gerðar „fyrir alla íjölskylduna“.
Walt Disney stofnaði fyrirtækið
1920 og stjómaði því af mikilli rögg-
semi meðan það óx og dafnaði
þangað til hann lést árið 1966. Við
andlát hans myndaðist tómarúm
og svo virðist sem þeir stjórnendur
sem tóku við hafi ekki fylgst með
þeim þjóðfélagsbreytingum sem
voru að gerast og trúðu því að
gamla formúlan, sem Walt Disney
hafði notað með góðum árangri,
myndi gilda um ókomna tíð.
Erfióleikar
Árið 1976 var svo illa komið fyrir
Disney kvikmyndaverinu að tekjur
þess voru farnar að minnka milh
ára. Þá var ákveðið að kynna „nýju
Disney Ununa“ sem fólst í því að
reynt var að höfða tU eldri og breið-
ari aidurshóps. Þessi ákvörðun var
m.a. tekin vegna þess að á sl. 20
árum hafði börnum á aldrinum
5-13 ára fækkað umffæp 6% eða
úr 18,2% niður í 13,6%. Fyrstu
myndimar í þessari nýju línu voru
Peters Dragon, Freaky Friday og
svo The Black Hole sem reyndist
óhemju dýr og þar að auki mis-
heppnuð. TU að kóróna allt saman
var ósamkomulag milh hluthafa
Walt Disney fyrirtækisins ásamt
því að fjölmargir íjárglæframenn
vildu eignast fyrirtækið. Stærsti
eigandinn var Roy E. Disney,
frændi Walt Disney. Það var ein-
mitt hann sem bauð þeim Eisner
og Katzenberg að koma til Disney.
Myndir fyrir
fullorðna
Skömmu áður hafði Disney kvik-
myndaverið stofnað annað fyrir-
tæki sem bar nafnið Touchstone
Pictures. Það átti að sjá um að
framleiða myndir sem höfðuðu til
eldri áhorfenda og vora yfirleitt
bannaðar börnum því það þótti
ekki rétt aö láta Walt Disney nafn-
ið tengjast slíkum fullorðinsmynd-
um. Fyrsta myndin sló í gegn en
það var Splash og fjallaði um haf-
mey sem verður ástfangin af ung-
um pilti. Þeir félagar héldu áfram
út frá þessum punkti og þróuðu
nýja stíl í kvikmyndagerð sem
leiddi af sér á næstu 5 árum topp-
myndir á borð við Down and out
in Beverly Hills, Ruthless People,
Three Men and a Baby, Good
Morning, Vietnam og svo síðast
Pretty Woman. Þeir hafa ekki held-
ur gleymt rótum Walt Disney sam-
anber „teiknimyndina“ Who
Framed Roger the Rabbitt og svo
The Little Mermaid sem sýnd er
þessa dagana í Bíóhöllinni.
Nývinnubrögð
En hvað gerðu þeir Katzenberg
og Eisner til að ná þessum árangri?
Þeir höfðu báðir hlotið ákveðna
skólun hjá Paramount við gerð
sjónvarpsþátta. Þar gilti að vinna
hratt og vel og halda kostnaði niðri.
Þeir heimfærðu þetta einfaldlega
yfir á kvikmyndirnar. Það sem er
svo sérstakt við myndir Walt Dis-
ney og Touchstone fyrirtækjanna
er að það eru tiltölulega óþekktir
aðilar sem standa að baki gerð
þeirra, þ.e. engir frægir leikstjórar,
handritahöfundar og svo fram-
vegis. Það hefur verið sagt að Katz-
enberg sé alveg sama hver sé leik-
stjórl svo framarlega sem hann viti
hvað snýr fram og hvað snýr aftur
á kvikmyndatökuvélinni.
Walt Disney kvikmyndaverið
ræður heldur aldrei stórstjörnur í
aðalhlutverkin vegna þess hve þær
krefjast hárra launa. Gott dæmi er
þegar Walt Disney réðst í gerð
myndarinnar Down and out in Be-
verly Hills, sem var eitt af fyrstu
verkefnum sem Katzenberg gaf
grænt ljós á eftir að hann hóf störf
hjá Disney. Katzenberg fékk þau
Bette Midler, Richard Dreyfuss og
• Nick Nolte í aðalhlutverkin. Allir
þessir leikarar höfðu átt erfitt upp-
dráttar þar sem fyrri myndir þeirra
höíðu ekki gengið vel. Það var því
hægt að fá þessa leikara á skikkan-
Umsjón:
Baldur Hjaltason
legjim taxta. Myndin sló svo í gegn
og kom þeim aftur upp á stjörnu-
himininn.
Handrit
Sama gerðist með Three Men and
a Baby. Þar gekk Katzenberg
lengra og setti tvo leikara í aðal-
hlutverkin sem höfðu aðallega
unnið fyrir sjónvarp. Þar sem kvik-
myndagerð og sjónvarpsþáttagerð
er yfirleitt vel aðskilin hjá kvik-
myndaverunum er mjög sjaldgæft
að leikarar fái tækifæri til að reyna
sig í báðum þessum miðlum. Tom
Selleck hafði t.d. ekki leikið í einni
einustu vinsælli kvikmynd áður en
hann sló í gegn í áðurnefndri mynd.
Að vísu eru til undantekningar
eins og alltaf þarf til að sanna regl-
una. Touchstone Films gerði Coc-
tail með Tom Cruise í aðalhlut-
verki. Þeir sem hafa séð þessa
mynd eru ábyggilega sammála um
að hún gekk bara út af andlitinu á
Cruise.
„Það er handritið sem skiptir
mestu máli, ekki hverjir eru leikar-
arnir eða hver sé leikstjórinn. Það
eru ýmsir sem telja að ef þau Dust-
in Hoffman, Sidney Pollack og Ela-
ine May fáist til að vinna saman
verði til Tootsie,“ hefur verið haft
eftir einum af framkvæmdastjór-
um Disney.
Góðar hugmyndir
„Við erum þeirrar skoðunar að
ef hugmyndin er ekki góð og hand-
ritið gallað sé náestum ómöglegt að
gera góða mynd.“ Þetta atriði gerir
Disney kvikmyndaverið dálítið frá-
brugðið öðrum kvikmyndaveram.
Orion kvikmyndaverið telur að það
sé leikstjórinn sem allt snúist um.
Ef Orion fær ekki „réttan" leik-
stjóra þá vilja þeir ekki framleiða
myndina. Warner kvikmyndaverið
byggir hins vegar á stórstjörnum
til að tryggja góða aðsókn. Góð
handrit geta legið hjá þeim í nokk-
ur ár vegna þess að kvikmyndaver-
inu tókst ekki að tryggja réttan
„stjörnupakka". Ef Walt Disney
kvikmyndaverið ákveður að gera
kvikmynd, þá er það gert og strax.
Katzenberg leggur mikiö upp úr
því að gera langtímasamninga í
upphafi við hæfileikaríkt fólk.
Hann gefur einnig mörgum þeirra
fyrsta tækifæri til að takast á við
gerð kvikmyndar í fullri lengd.
Katzenberg hefur t.d gert samning
viö Goldie Hawn um gerð 7 mynda
og Bettie Midler um einar 6 mynd-
ir. Þessir samningar eru einstakir
nú til dags í Hollywood því þessar
leikkonur geta ekki gert myndir
fyrir aðra aðila á meðan. Hins veg-
ar hefur Katzenberg einnig samið
við leikara á borð við Tom Hanks
og Tom Selleck á þann veg að þeir
geta unnið fyrir aðra en verða þó
að gera ákveðinn lágmarksfjölda
af myndum fyrir Disney kvik-
myndaverið.
Framtíðin
En hve lengi geta þeir félagar
Eisner og Katzenberg notað sömu
formúluna til að viðhalda veldi Di-
sney kvikmyndaversins. Efniviður
flestra mynda Disney hefur verið
að grunni til sá sami en í ýmsum
útgáfum. Þetta eru myndir í léttum
tón sem skilja afskaplega lítið eftir
þótt áhorfendur hafi af nokkurt
stundargaman. Gott dæmi um
svona myndir er einmitt Pretty
Woman. Þetta eru myndir sem
enda vel svo allir fara ánægðir
helm. Kvikmyndagagnrýnandi
New York Times tók svo sterkt til
orða að vinnubrögð þeirra félaga
takmörkuðu mjög listræna tján-
ingu þeirra kvikmyndagerðar
manna sem ynnu fyrir Disney. Þeir
yrðu að gera myndir sínar með lág-
markskostnaði og oft án þess að
hafa aðgang að þeim bestu í faginu.
Þeir Eisnér og Katzenberg eru
ekki sammála og benda á að undir
þeirra stjórn hafi verið gerðar
myndir á borð viö Who framed
Roger the Rabbitt, Dead Poets Soci-
ety og svo Color of Money. Það er
einnig staðreynd að þá félaga lang-
ar til að fá til starfa þekkta leik-
stjóra til að gefa Walt Disney nafn-
inu meira listrænt yfirbragð. Það
er sagt að Katzenberg fari ekki til
New York án þess að heimsækja
Woody Allen. Hingað til hefur hann
ekki haft erindi sem erfiði því Allen
framlengdi nýlega samning sinn
við Orion. Hins vegar fékk Katzen-
berg smásárauppbót þegar Disney
keypti réttinn að New York stories
sem er safn af nokkrum stuttum
myndum eftir leikstjóra eins og
Woody AUen, Martin Scorsese og
svo Ford Coppola.
En Disney virðist líka langa til
að hefja framleiðslu stórmynda og
gerði það raunar með Dick Tracy.
Katzenberg undirritaði nýlega
samning við nýtt fyrirtæki sem
m.a. er að gera myndina The Stand
með Sean Connery í aðalhluverki.
Kannski þeim félögum takist einu
sinn enn að snúa vörn í sókn og
halda þannig nafni Walt Disney á
lofti um ókomna framtíð.
Helstu heimildir: Premier og Variety.