Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1991, Blaðsíða 30
38
LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1991.
Vísnaþáttur
Þegar slódin örðug er
Seint í nóvembermánuöi síðast-
liðnum barst mér bréf frá Ingvari
Gíslasyni, fyrrv. alþingismanni,
þar sem hann gerir grein fyrir til-
urð stöku sem birtist í þætti sem
bar fyrirsögnina: Stóðu öll vopn á
vonum manns. Ég fékk leyfi hans
til að birta þessa umsögn og nánari
skýringar sem henni fylgja. Hann
segir m.a.:
„í vísnaþætti í DV laugardaginn
17. nóv. er birt vísa eftir Steingrím
Davíðsson, skólastjóra á Blöndu-
ósi, svohljóðandi:
Tapist auður, tel ég lítilsvert,
tapist vinir, þá er margt til baga.
Dvíni traustið, bölið verður
bert,
bresti heiður, þín er glötuð
saga.
Ekki leynir sér að Steingrímur hef-
ur þama að fyrirmynd vísu eftir
danska 19. aldar skáldið og blaða-
manninn Erik Bogh (f. 1822, d.
1899). Steingrímur hefur trúlega
lært vísuna þegar hann var í Kenn-
araskólanum í Reykjavík, en þar
lauk hann kennaraprófi 1915. Vís-
una er að finna í danskri lestrar-
bók, sem þá var stuðst við í dönsk-
ukennslu í skólanum. Frásögn í
minningabók Kristjáns Sigurðs-
sonar, kennara á Brúsastöðum í
Vatnsdal (kennarapróf 1910), ber
með sér að nemendur í Kennara-
skólanum hafa eitthvað skemmt
sér við að endurgera dönsku vís-
una á íslensku. Kristjáni farast svo
orð:
„Eitt sinn var tekin upp sú ný-
breytni að heita verðlaunum fyrir
bestu þýðinguna á vísu eftir Erik
Bogh, er var í danskri lesbók og á
þessa leið:
Tabes penge det er ikke vel,
tabes venner det vil mindes
længe.
Tabes livet det er bagatel,
tabes modet, da bor man sig
hænge.
Helgi Hjörvar gerði bestu þýðing-
una, og er hún svo, og hygg ég rétt
munað:
Glatist fé og gull, það er mjög leitt,
glatist vinir, þaö mun svíða lengi.
Glatist lífið, gerir ekki neitt,
glatist þrek er rétt, að hver sig
hengi.“
En þá er að segja frá því, að við
Guðmundur G. Þórarinsson, verk-
fræðingur og alþingismaður, gerð-
um okkur það eitt sinn til gamans
með alvarlegum þingstörfum 70-80
árum eftir að Helgi Hjörvar og
Steingrímur Davíðsson og fleiri
voru að fella vísukom þetta í ís-
lenskt form, að reyna eitthvað svip-
aö. Ég átti upptökin að þessu, þvi
að ég datt af tilviljun ofan á fyrr-
nefnda frásögn Krisfjáns Sigurðs-
sonar og kenndi Guðmundi G.
dönsku vísuna og bað hann að
snara henni með mér. Endirinn
varð sá að hvor setti saman sína
gerð.
Vísa mín er svona:
Að missa auð sinn, það mörgu
getur breytt.
Vísnaþáttur
Að missa vini, þá löng er hugar-
kvölin.
Að missa lífið, það mælist ekki
neitt.
Að missa þorið, er snaran eina
völin.
Guðmundur G. Þórarinsson leysti
dæmið á eftirfarandi hátt:
Þótt glatist fé má gera bót,
geymast vinamissir hlýtur.
Glatist líf ég hirði ei hót,
en hengi mig, ef kjarkinn
þrýtur.
Guðmundur Gunnarsson, bóndi á
Tindum á Skarðsströnd, var hag-
mæltur vel og fljótur að kasta fram
stökum. Það var einhveiju sinni,
er hann sat að teiti með nokkrum
kunningjum, að einum þeirra
fannst ástæða til að segja: „Þetta
er nú orðinn fullmikill. leirburður
hjá þér, Gvendur". Guðmundur
svaraði að bragði:
Vísan var í gamni gerð,
gáðu að því, maður.
Hún er hka lítilsverð
og leirinn óharðnaður.
Þorbjöm Bjömsson (þorskabítur)
gerir greinarmun á hagmælsku ög
skáldskap, eöa svo skil ég eftirfar-
andi stöku hans:
Að smíða úr efni svo í stuðlum
standi
ei stór er list, þó margur dáist að,
en skapa efni er öllu meiri vandi
og enginn nema skáldið getur
það.
Óskar Aðalsteinn, vitavörður og
skáld, orti til skáldagyðjunnar:
Oft ég rölti á þinn fund,
orti ljóð af munni -
hef víst marga stolna stund
frá starfi á samvizkunni.
Ásgrímur Kristinsson, fyrrum
bóndi í Ásbrekku í Vatnsdal, leitaði
til stökunnar þegar á móti blés:'
Þegar slóðin örðug er
og engar bjóðast lendur
alltaf ljóðið yljar mér
eins og móðurhendur.
Og Bjami Guðmundsson frá
Hjaltabakka tekur í sama streng:
Mörg þér verði stundin stytt,
stökur myndi gaman.
Harpa vors og hjarta þitt
hugljúft vinni saman.
Hjálmar Þorsteinsson, bóndi á Hofi
á Kjalarnesi, gerir vissar kröfur til
vísnagerðarmanna:
Talaðu íslenzkt erfðamál
ef þú gerir bögu,
hún á aö geyma hjarta og sál
- heila ævisögu.
En oft var viö ramman reip að
draga, eins og fram kemur í stöku
Kristjáns Samsonarsonar frá
Bugðustöðum í Dölum:
Vísan færði engum auð,
aðeins stundargaman.
Hagmælskan og höndin snauð
héldu löngum saman.
En ég hygg það sé til heilla best
hagyrðingum öllum áð hafa orð
Lilju Gottskálksdóttur, húsfreyju í
Syðri-Hofdölum í Skagafirði, að
leiðarljósi á því ári sem í hönd fer:
Kveð ég ljóðin kát og hress,
kvíði ei hnjóði í orðum,
fyrst að góður guð til þess
gaf mér hljóðin forðum.
Torfi Jónsson
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram á skrifstofu embættisins,
Strandgötu 31, Hafnarfirði,
á neðangreindum tíma
Skeiðarás 3, Garðakaupstað, þingl.
eig. Raíboði hf., þriðjudagmn 8. janúar
nk. kl. 14.35. Uppboðsbeiðendur eru
Kristján Ólafsson hdl., Landsbanki
íslands og Sigríður Thorlacius hdl.
Bjamastaðavör 8, Bessastaðahreppi,
þingl. eig. Hjördís Ámadóttir, mið-
vikudaginn 9. janúar nk. kl. 14.20.
Uppboðsbeiðandi er Eggert Ólafsson
hdL____j___________________________
Breiðvangur 30, l.h.a., Hafharfirði,
þingl. eig. Eyjólfur Agnarsson en tal.
eig. Sigurður T. Guðmundsson, mið-
vikudaginn 9. janúar nk. kl. 14.25.
Uppboðsbeiðendur em Innheimta rík-
issjóðs og Veðdeild Landsbanka Is-
lands.
Hverfisgata 37, l.h., Haínarfirði, þingl.
eig. Erlingur Kristjánsson en tal. eig.
Hilmar Ásgeirsson, miðvikudaginn 9.
janúar nk. kl. 14.30. Uppboðsbeiðend-
ur em Gjaldheimtan í Hafiiarfirði og
Gjaldheimtan í Reykjavík.
Langitangi 1, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Holtadekk hf., miðvikudaginn 9. jan-
úar nk. kl. 14.35. Uppboðsbeiðendur
em Guðjón Á. Jónsson hdl., Magnús
H. Magnússon hdl., Ólöf Finnsdóttir
lögír. og Öm Höskuldsson hrl.
Hnotuberg 11, Haínarfirði, þingl. eig.
Magnea A. Sigurðardóttir/Sigurður
Bjama, fimmtudaginn 10. janúar nk.
kí. 14.25. Uppboðsbeiðandi er Eggert
Ólafeson hdl.
Þemunes 9, Garðabæ, þingl. eig. Jó-
hannes Georgsson, fimmtudaginn 10.
janúar nk. kl. 14.45. Uppboðsbeiðend-
ur em Ingvar Bjömsson hdl., Inn-
heimta ríkissjóðs, Pétur Kjerúlf hdl.,
Sigríður Thorlacius hdl. og Veðdeild
Landsbanka Islands.
BÆJARFÓGETINN í HAFNARFIRÐI,
GARÐAKAUPSTAÐ 0G Á SELTJARNARNESI.
SÝSLUMAÐURINN í KJÓSARSÝSLU.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á eftirtöldum
fasteignum fer fram á skrifstofu
embættisins, Strandgötu 31, Hafn-
arfirði, á neðangreindum tíma
Stekkjarkinn 17, Hafnarfirði, þingl.
eig. Jónas Guðvarðarson/Halldóra
Guðmundsd. en tal. eig. Hans Kristj-
ánsson/Kristín Kr., þriðjudaginn 8.
janúar nk. kl. 13.25. Uppboðsbeiðend-
ur em Ámi Grétar Finnsson hrl.,
Ásbjöm Jónsson hd]., Ásgeir Thor-
oddsen hrl, Guðjón Armann Jónsson
hdl., Hróbjartur Jónatansson hdl.,
Innheimta ríkissjóðs, Jón Þóroddsson
hdl., Veðdeild Landsbanka Islands og
Þorsteinn Einarsson hdl.
Lindarflöt 36, Garðakaupstað, þingl.
eig. Guðlaug N. Ólafsdóttir/Eggert
A. Magnússon, þriðjudaginn 8. janúar
nk. kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er Jón
Eiríksson hdl.
Víðir, Mosfellsbæ, þingl. eig. Eygerð-
ur Ingimundardóttir en tal. eig. Kristj-
án Oláfsson, þriðjudaginn 8. janúar
nk. kl. 13.35. Uppboðsbeiðendur em
Bjöm Ólaíur Hallgrímsson hdl.,
Halldór Þ. Birgisson hdl., Innheimta
ríkissjóðs, Jón Ingólfsson hdl., Veð-
deild Landsbanka íslands og Öm
Höskuldsson hrl.
Skerjabraut 7 A, Seltjamamesi, þingl.
eig. Sveinn Guðmundsson/Anna Er-
lendsdóttir, þriðjudaginn 8. janúar nk.
kl. 13.40. Uppboðsbeiðendur em Egg-
ert Ólafsson hdl., öjaldheimtan í
Reykjavík, Guðjón Á. Jónsson hdl.,
Jónas Guðmundsson lögfr. og Sigríð-
ur Thorlacius hdl.
Sunnuhvoll A, 201. Seltjamamesi.
þingl. eig. Guðmundur Magnússon,
þriðjudaginn 8. janúar nk. kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur em Eggert Ólafe-
son hdl. og Valgarður Sigurðsson hdl.
Dvergholt 22, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Ámi Andersen, þriðjudaginn 8. janúar
nk. kl. 13.50. Uppboðsbeiðendur em
Landsbanki íslands og Ólafur Axels-
son hrl.
Bugðutangi 14, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Sigurgeir Ámason, þriðjudaginn 8.
janúar nk. kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi
er Veðdeild Landsbanka Islands.
Arkarholt 14, 1/6 hluti, Mosfellsbæ,
þingl. eig. Anna Þorsteinsdóttir,
þriðjudaginn 8. janúar nk. kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er Ólafur Axelsson
hrl.
Mb. Þórhildur HF 206, Hafharfirði,
þingl. eig. Þórður Þórðarson, þriðju-
daginn 8. janúar nk. kl. 15.20. Upp-
boðsbeiðendur em Byggðastofnun,
Eggert _ Ólafeson hdl. og Fiskveiða-
sjóður íslands.
Lyngás 20, Garðakaupstað, þingl. eig.
Silfurtún hf., miðvikudaginn 9. janúar
nk. kl. 13.20. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Garðabæ og Iðnþró-
unarsjóður.
Litlabæjarvör 4, Bessastaðahreppi,
þingl. eig. Guðni Pálsson og Guðríður
Tómasdóttir, miðvikudaginn 9. janúar
nk. kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Garðabæ, Guðjón Á.
Jónsson hdl., íslandsbanki hf., lög-
fræðideild, og Ólöf Finnsdóttir lögfr.
Marargrund 2, Garðakaupstað, þingl.
eig. Vilhjálmur Ólafeson, miðvikudag-
inn 9. janúar nk. kl. 13.35. Uppboðs-
beiðendur em Ásgeir Thoroddsen hrl.,
Eggert Ólafeson hdl., Gjaldheimtan í
Garðabæ, Guðmundur Pétursson hdl.,
Innheimta ríkissjóðs, Jón Eiríksson
hdl., Jón G. Briem hdl. og Valgarður
Sigurðsson hdl.
Miðbraut 4, 2.h.h, Seltjamamesi,
þingl. eig. Pálína Sigurðardóttir, mið-
vikudaginn 9. janúar nk. kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er Baldur Guð-
laugsson hrl.
Álfaskeið 86, 3.h., Hafnarfirði, þingl.
eig. Hjalti Einarsson en tal. eig. Krist-
ín Jónatans/Sig. T. Sigurðs, miðviku-
daginn 9. janúar nk. kl. 13.50. Upp-
boðsbeiðendur em Friðjón Öm Frið-
jónsson hdl., Gjaldheimtan í Hafhar-
firði, íslandsbanki hf., lögfræðideild,
og Veðdeild Landsbanka Islands.
Víðihvammur 1, 2.h., Hafnarfirði,
þingl. eig. Adolf Adolfsson, miðviku-
daginn 9. janúar nk. kl. 13.55. Upp-
boðsbeiðandi er Pétur Kjerúlf hdl.
Hjallabraut 17,3.h., Hafiiarfirði, þingl.
eig. Sigríður Þorleifsdóttir, miðviku-
daginn 9. janúar nk. kl. 14.00. Upp-
boðsbeiðandi er Gjaldheimtan í Hafn-
arfirði.
Smyrlahraun 24, l.h., Hafharfirði,
þingl. eig. Sigurður S. Ketilsson/Guð-
rún Hjálmarsd., miðvikudaginn 9. jan-
úar nk. kl. 14.05. Uppboðsbeiðandi er
Valgarður Sigurðsson hdl.
Brattakinn 6, e.h., Hafharfirði, þingl.
eig. Hjördís Jóna Sigvaldadóttir,
fimmtudaginn 10. janúar nk. kl. 13.20.
Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Hafnarfirði.
Hringbraut 11, e.h., Hafnarfirði, þingl.
eig. Þorvaldur J. Kristinsson, fimmtu-
daginn 10. janúar nk. kl. 13.35. Upp-
boðsbeiðendur em Guðjón Á. Jónsson
hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands.
Lækjargata 22-30, Hafnarfirði, þingl.
eig. Raftækjaverksmiðjan h£, fimmtu-
daginn 10. janúar nk. kl. 13.50. Upp-
boðsbeiðendur em Ásgeir Thoroddsen
hrl., Gjaldheimtan í Hafharfirði, Iðn-
lánasjóður, Innheimta ríkissjóðs,
Klemenz Eggertsson hdl., Magnús
M. Norðdahl hdl., Ólafur Gústafsson
hrl. og Valgarður Sigurðsson hdl.
Sléttahraun 26, 2.h.v„ Hafiiarfirði,
þingl. eig. Guðmundur Bergþórsson,
fimmtudaginn 10. janúar nk. kl. 13.55.
Uppboðsbeiðendur em Landsbanki
íslands og Veðdeild Landsbanka Is-
lands.
Helgaland 10, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Fríður Helga Hannesdóttir, fimmtu-
daginn 10. janúar nk. kl. 14.05. Upp-
boðsbeiðendur em Innheimta ríkis-
sjóðs og Öm Höskuldsson hrl.
Bæjarhraun 16, Hafharfirði, þingl. eig.
Gissur og Pálmi sf„ fimmtudaginn 10.
janúar nk. kl. 14.10. Uppboðsbeiðandi
er Gjaldheimtan í Hafnaríírði.
Engimýri 10, Garðakaupstað, þingl.
eig. Valdís Kristinsdóttir/Hákon Giss-
urarson, fimmtudaginn 10. janúar nk.
kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Garðabæ og Inn-
heimta ríkissjóðs.
Eyland, Garðakaupstað, þingl. eig.
Dánarbú Sigurðar Hannessonar,
fimmtudaginn 10. janúar nk. kl. 14.20.
Uppboðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Garðabæ.
Hjallabraut 70, Hafiiarfirði, þingl. eig.
Kristinn Sigmarsson, fimmtudaginn
10. janúar nk. kl. 14.25. Uppboðsbeið-
endur em Gjaldheimtan í Reykjavík
og Guðjón Á. Jónsson hdl.
Ljósaberg 20, Hafnarfirði, þingl. eig.
Böðvar Hermannsson, fimmtudaginn
10. janúar nk. kl. 14.35. Uppboðsbeið-
endur em Gjaldheimtan í Hafharfirði
og Veðdeild Landsbanka Islands.
BÆJARFÓGETINN í HAFNARFIRÐI,
GARÐAKAUPSTAÐ 0G Á SELTJARNARNESI.
SÝSLUMAflURINN í KJÓSARSÝSLU.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á eftirtöldum
fasteignum
Hjallahraun 2, Hafiiarfh-ði, þingl. eig.
Börkur hf/Þórarinn Jónsson en tal.
eig. Pólaris hf„ fer fram á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 9. janúar nk.
kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur em Axel
Kristjánsson hrl„ Bjöm Jónsson hdl„
Gjaldheimtan í Hafiiarfirði, Iðnlána-
sjóður, _ Iðnþróunarsjóður/Elfar
Rúnarss., Islandsbanki hf„ lögfræði-
deild, Sigríður Thorlacius hdl„ Tómas
Þorvaldsson hdl. og Þorsteinn Einars-
son hdl.
BÆJARFÓGETINN í HAFNARFIRÐI,
GARÐAKAUPSTAÐ 0G Á SELTJARNARNESI. •
SÝSLUMAÐURINN í KJÓSARSÝSLU.