Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1991, Side 3
MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1991.
3
dv Viðtalið
Égermikill
renaissance-
karl
Nafn: Gunnar Pálsson
Aldur: 35 ára
Starf: Sendiherra
Gunnar Pálsson hefur veriö
skipaður sendiherra af utanríkis-
ráöuneytinu. Gunnar verður meö
aðsetur hér á íslandi en mun aö
mestu starfa í Vínarborg þar sem
viðræður um takmörkun vig-
bunaðar standa yfir og er Gunnar
fulltrúi íslands í þeim viðræðum.
Gunnar er fæddur í Reykjavik
og alinn þar upp lengst af en einn-
ig bjó hann á Egilsstöðum um
tíma. Ættir sínar á Gunnar að
rekja til Vesturlands og Suður-
lands.
Nam heimspeki af
kaþólskum munkum
Öldugötuskólinn í Reykjavík
var fyrsti skólinn sem Gunnar
gekk í og síðan fór hann í barna-
skóla Egilsstaða. Eftir þetta fór
hann í Menntaskólann í Reykja-
vík og útskrifaðist þaðan 1974.
„Að því loknu fór ég til Dyflinnar
og nam þar heimspeki af kaþólsk-
um munkum í íjögur ár sem var
ljómandi skemmtilegt. Þar lauk
ég meistaraprófi með ritgerð 1979
um þekkingarfræði Kants. Síðan
var ég í framhaldsnámi í Tíibing-
en í Vestur-Þýskalandi. Þá fór ég
til New York-ríkis i Bandaríkjun-
um og skrifaði þar doktorsritgerð
sem ég lagðí fram 1984 og fjallaöi
um Machiavelli. Þar með lauk
minni skólagöngu, alla vega í
menntakerfinu.“
Heim til íslands kom Gunnar
1984 og bauöst þá starf í utanrík-
isþjónustunni. „Ég varhérheima
í tvö ár en var þá lánaður tilAtl-
antshafsbandalagsins þar sem ég
starfaði 1986-1988. Þá kom ég
heim og tók við málefnum Atl-
antshafsbandalagsins í ráðuney t-
inu.“
Öryggi og samvinna
í Evrópu
Það sem Gunnar kemur til með
að sjá um í Vínarborg er ráð-
stefna um öryggi og samvinnu í
Evrópu og afvopnunarmál. „í
Vínarborg fara fram tvenns kon-
ar viðræður, annars vegar við-
ræöur 34 ríkja CSCE, sem er
skammstöfun fyrir ráðstefnuna
um öryggi og samvinnu i Evrópu
um svokallaöar traustvekjandi
aögeröir á hemaöarsviðinu, og
svo hins vegar eru víðræður um
takmörkun hefðbundins víg-
-búnaöar. Þaö eru riki Atlants-
hafsbandalagsins og Varsjár-
bandalagsins sem-taka þátt í þeim
viðræöum.“
Helstu áhugamál Gunnars eru
fjallgöngur, endurreisnarbók:
menntir og klassísk tónlist. „Ég
er mikill renaissance-karl.“
Lífsmottó Gunnars segir hann
vera aö rækja sín störf af skyldu-
rækni og árvekni.
Gunnar er ókvæntur og bam-
laus en er í sambúð með Elínu
Snorradóttur rússneskunema.
-ns
Fréttir
Reykingabanninu
frestað á Húsavík
„Hér á sjúkrahúsinu eru margir
langlegusjúklingar og við lítum svo
á að þeirra raunverulega heimili
sé hér. Við teljum að við getum
ekki bannað þessu fólki að reykja
ef það kærir sig um það á annað
borð. Hvað varðar starfsfólkiö var
einnig ákveðið að fresta reykinga-
banninu um nokkra daga,“ segir
Aldís Friðriksdóttir, hjúkrunarfor-
stjóri sjúkrahússins á Húsavík. En
yfirstjórn sjúkrahússins hefur
ákveðið að fresta reykingabanni
um óákveðinn tíma.
„Þaö er unnið aö því aö koma upp
reykingaaðstöðu fyrir starfsfólkið
í kjallara gamla spítalans en þar
dvelja engir sjúkhngar. Ég á ekki
von á að sjúklingum verði meinað
að reykja hér á sjúkrahúsinu í
framtíðinni. Við höfum verið að
ræða hvort ekki verði rétt í fram-
tíðinni að takmarka reykingarnar
við ákveðna tíma dagsins en það
hefur enn sem komið er ekkert
verið ákveðið í því sambandi.“
-J.Mar
Pétur Jónsson:
Mesta furða
hvað gengur
að framf ylgja
banninu
„Það gengur sæmilega að fram-
fylgja reykingabanninu. EftirUt með
að fólk sé ekki að reykja er í höndum
starfsfólks sjúkradeUdanna. Ef
starfsfólkið sér einhvern vera að
reykja bendir það viðkomandi á að
það sé bannað en það er ekkert
skipulagt eftirUt í gangi til að fylgjast
með reykingafólki. Starfsfólkið verð-
ur hins vegar að fara út til að reykja,“
segir Gyöa Baldursdóttir, hjúk-
runarfræðingur á Landspítalanum.
„Þeir sem vilja fá undanþágu frá
banninu'verða að sækja skriflega um
hana til svæðisstjóra viðkomandi
deUdar og hann metur svo hvort hún
skuli gefin.
Það er ógurlega misjafnt hvemig
fólk tekur reykingabanninu, það eru
einkum þeir sem eru búnir að reykja
lengi og þurfa að dvelja langtímum
saman á spítalanum sem eru ósáttir.
En ég lít á reykingabannið sem lang-
tímaverkefni sem tekur tíma að
koma í gagnið.“
„Það hafa ekki verið veittar mjög
margar undanþágur og það er mesta
furða hvað gengur að framfylgja
reykingabanninu," segir Pétur Jóns-
son, framkvæmdastjóri stjómunar-
sviðs Ríkisspítalanna.
„Þetta hefur ekki orðiö jafnmikið
vandamál og við höfðum gert ráð
fyrir og eftirspurn eftir undanþágum
ekki eins mikil og við áttum von á.
En það verður að finna einhvem
stað inni á sjúkrahúsunum þar sem
þeir sem hafa fengið undanþágu til
að reykja geta verið og reykt án þess
að menga loftiö fyrir öðrum og án
þess að þetta fólk skapi eldhættu.
En sú ákvörðun var tekin af stjórn-
unarnefnd Ríkisspítalanna fyrir
rúmu ári að spítalarnir ættu að vera
reyklaus hús og hún stendur enn-
þá,“ segir Pétur.
-J.Mar
Loðskinnhf,:
Skuldum
breytt í hlutafé
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauöárkróki:
Á stjórnarfundi Kaupfélags Skag-
firðinga um miðjan desember var
samþykkt að breyta skuldum Loð-
skinns við félagið aö mestu í lilutafé
eða allt að þremur milljónum króna
að uppfylltum vissum skilyrðum.
Ekki skýrði stjórnin frá þessum skil-
yrðum.
Upphaflega óskaði Loðskinn eftir
15 milljóna króna hlutafé frá kaup-
félaginu en á seinni stigum málsins
lækkaði beiðnin niður í fimm millj-
ónir króna.
RÖÐ OG REGIA
Víð eígum allar stærðir af fallegum fataskápum og verðíð
slær engínn út.
FAX 91-673511 SÍMI91-681199 BÍLDSHÖFÐI20 112 REYKJAVÍK
Húsgagnajiöllin
REGENT MÖBEL Á ÍSLANDI