Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1991, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1991, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 1991. 25 Sviðsljós John James helgar sig föðurhlutverkinu um þessar mundir. Vinkona Supermans í hjólastjól Leikkonan Margot Kidder lenti í alvarlegu bílslysi í Kanada fyrir nokkru og slasaðist illa. Kidder, sem er þekktust fyrir hlutverk sitt sem Lois Lane í Superman-mynd- unum, dvaldi í Kanada vegna upp- töku á nýjum sjónvarpsþáttum þegar óhappið varð. Polly Bergen, sem leikur einnig í þessum nýju sjónvarpsþáttum, Nancy Drew and Daughter, var einnig í bílnum en slapp ómeidd. Kidder var þó ekki svo heppin og fékk miklar kvalir dagana eftir slysið. Á fimmta degi dundi síðan áfallið yfir þegar henni varð ljóst að hún gat ekki hreyft fæturna. Að auki er vinstri höndin máttlaus og leikkonan er nú algjörlega hjálpar- laus. Þrátt fyrir þetta ástand leikkon- unnar höfðu framleiöendur þátt- anna ekki meiri samúð með henni en svo að uppsagnarbréf var ritað og komið á framfæri. Kidder varð vitaskuld ævareið við brottrekst- urinn og hefur nú hótað að fara í skaðabótamál við framleiðendur þáttanna en ætlar þó aö einbeita sér að þvi að ná fyrri bata áður en slagurinn í réttarsalnum hefst. Margot Kidder ætlar sér aö ná fyrri bata áður en hún fer að kljást í réttarsalnum við fyrrverandi atvinnurekendur sína. John James í Dynasty: Úr einu hlutverki í annad John James er hamingjusamur maður þessa dagana. Eiginkona hans, Denise Coward, fæddi honum stúlku fyrir skömmu og nú er það fóðurhlutverkið sem hefur algeran forgang. James tekur þetta svo alvar- lega að það er óvíst hvort hann hafi hreinlega tíma til að bregða sér fram fyrir myndavélina svo að hægt verði að taka upp Dynasty-þættina. Áður en bamið kom í heiminn eyddi leikarinn miklum tíma í að gera húsið tilbúið svo að hægt væri að taka á móti erfingjanum með stæl. Fjölskyldan býr nú í stóru húsi í sveitinni, fjarri ys og þys stórborgar- innar. James viðurkennir þó að hluti af honum sakni lífsins í Los Angeles og alls þess sem borgin hefur upp á að bjóða. Þessar vangaveltur fengu þó ekki mikinn tíma um jólahátíðina því að tengdamamma kom í heimsókn ásamt nokkrum öðrum ættingjum sem voru æstir í að sjá litlu stelpuna og að beija snjóinn augum. Tengda- fólkið kemur frá Ástralíu og þar er víst heldur lítið um skíðasnjó. Ef ein- hveijum þykir þeir kannast við svip- inn á Coward er það sennilega vegna þess að hún komst á síður pressunn- ar hér í eina tíð fyrir að vera valin fegursta fljóðið í heimalandinu, Ástr- alíu. Er nú ekki kominn tími til að þú farir að hreyfa þig! TEYGJU- OG ÞREKLEIKFIMI Hjá okkur er hress og skemmtileg leikfimi þar sem við látum hoppið eiga sig. Tímarnir okkar eru byggðir upp á góðri upphitun, teygjum og styrkjandi æfingum fyrir maga, rass og læri. Hringdu og veldu þér tíma sem hentar þér. Við bjóðum upp á tima í hádeginu-kl. 13.20-16.10- 17.10—18.10—19.1 0 og 20.10. Þessir tímar eru bæði fyrir karla og konur. Einnig bjóðum við upp á sér karlatíma. Ath.: Takmarkaður fjöldi í tímunum svo að kennar- inn geti leiðbeint hverjum og einum. Kennarar: Emilía Jónsdóttir. Sóley Jóhannsdóttir og Ásta Ólafsdóttir. Innritun hafin í símum 687701 og 687801. Engjateigi 1 • Reykjavík Símar 687801 & 687701

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.